Dagur - 15.02.1992, Blaðsíða 19
Laugardagur 15. febrúar 1992 - DAGUR - 19
Popp
Magnús Geir Guðmundsson
Af stórútgáfu:
Tvöfaldur Springsteen takk
Bruce Springsteen mætir til leiks á ný meö tvær nýjar plötur í sumarbyrjun.
Þeir eru eflaust mjög margir sem
munu gleðjast á komandi vori,
því þá er nefnilega von á nýjustu
afreksverkum stórrokkarans
Bruce Springsteen. Eru nú um
fimm ár síðan Springsteen sendi
frá sér plötu síðast, Tunnel of
love, árið 1987, þannig að heldur
betur var kominn tími til að hann
léti frá sér heyra á ný.
Hefur kappinn á þessu fimm
ára tímabili þó ekki setið alveg
auðum höndum, því hann hefur
meðal annars haldið tónleika hér
og þar, endrum og sinnum, í
styrktarskyni. Til dæmis fyrir
mannréttindasamtökin Amnesty
International.
Þá mun Springsteen hafa
eignast nýja eiginkonu (sem heit-
ir víst Patti) og getið með henni
að minnsta kosti eitt barn á
þessu tímabili, ef poppskrifara
skjátlast ekki.
Á þessum langa tíma hefur
Sþringsteen líka verið iðinn við
lagasmíðar, sem nú mun ræki-
lega skila sér í verki. Það verður
nefnilega ekki um einungis eina
plötu að ræða, heldur tvær og
fetar Springsteen þar í fótspor
pörupiltanna í Guns ’N' Roses
frá því í fyrra, er þeir sendu frá
sér Use your lilusion I og II.
Þessi tvöfaldi skammtur frá
honum mun þó ekki verða alveg
jafn efnismikill og hjá Guns ’N’
Roses, sem í raun var á við fjórar
meðalplötur að lengd, en verður
e.t.v. þess í stað innihaldsríkari.
(Það er jú ekki magnið sem skipt-
ir máli, þótt það sé líka mikið hjá
Springsteen, heldur gæðin.)
Nánar tiltekið innihalda plöt-
urnartvær, sem bera munu nöfn-
in Human touch og Lucky Town,
samtals 24 lög. Þar af verða 14 á
þeirri fyrrnefndu, sem unnin var í
ýmsum hljóðverum í Los Ang-
eles áárstímabili, en 10 á þeirri
síðarnefndu, sem öll var tekin
upp í heimahljóðveri Spring-
steens í Los Angeles.
Öll lögin á plötunum eru alfarið
eftir hann að undanskildum
tveimur á Human Touch, sem
hann semur í félagi við hljóm-
borðsleikarann Roy Bittan. Kem-
ur Bittan við sögu á báðum
plötunum ásamt bassaleikaran-
um Randy Jackson. Til að fylgja
útgáfunni eftir mun Bruce Spring-
steen síðan ætla að halda í stóra
og mikla tónleikaferð sem standa
mun fram á haust. Nánar verður
skýrt frá útgáfunni síðar.
Hitt og þetta
Madonna líka mannleg
( ársbyrjun skýrði Poppsíðan frá
miklu fjaðrafoki sem varð í kring
um poppdrottninguna Madonnu í
Bandaríkjunum fyrir áramótin.
Voru þar sögusagnir á kreiki um
að söngkonan væri sýkt af
alnæmi og að hún ætti ekki
langra lífdaga auðið frekar en
náinn vinur hennar, sem látist
hafði úr sjúkdómnum nokkru
áður. Reyndust þessar sögu-
sagnir hins vegar ekki vera á rök-
um reistar, en þó þurfti samt
sérstaka yfirlýsingu frá talsmönn-
um Madonnu til að kveða þær
niður.
[ kjölfarið birti svo stjarnan opið
handskrifað bréf í popptímaritinu
fræga, Billboard, til aðdáenda
sinna, þar sem hún fjallar um al-
næmissjúkdóminn á viðum
grundvelli. Hvetur hún í bréfinu til
þess að fólk kynni sér sjúkdóm-
inn og leggi sitt að mörkum við
að stemma stigu gegn honum
með hvaða hætti sem er.
„Nú á tímum gjafmildi og góðs
vilja hvet ég ykkur til að taka þátt
í baráttunni. Til að sigur geti unn-
ist í stríðinu við alnæmi verðum
við öll að leggjast á eitt,“ segir
Madonna og er greinilega þó
nokkuð mikið niðri fyrir.
Má marka af þessu bréfi að
dauðsfall vinar hennar og svo
söguburðurinn um hana sjálfa í
kjölfarið, hafa haft djúp áhrif á
hana og sýnir að hún er mannleg
eins og við hin.
Manic Street Preachers
Ein alefnilegasta rokksveit Bret-
lands nú um stundir, Manic Street
Preachers frá London, er nú
nýbúin að senda frá sér frumburð
sinn mikinn að vöxtum. Er um að
ræða 18 laga grip, sem ber þann
mergjaða titil, Generation Terror-
ists eða Hryðjuverkarakynslóðin.
Vakti Manic Street Preacher
mikla athygli á síðasta ári með
smáskífunni Stay Beautiful og
líktu sumir hljómsveitinni við
pönkgoðin sálugu SexPistols. Þá
telja sumir einnig að Manic
Street Preachers gætu hæglega
orðið Nirvana Bretlands ef happa-
dísirnar eru hliðhollar.
Má líka til sanns vegar færa að
margt er líkt í tónlist þessara
tveggja hljómveita. Og fyrst
minnst er á Nirvana má bæta því
við að hljómsveitin hefur sent frá
sér nýja smáskífu með laginu
Come as you are.
New Order
Það er óhætt að segja að popp-
sveitin magnaða, New Order,
standi í stórræðum á nýbyrjuðu
ári. Nú í byrjun febrúar sendi
hljómsveitin frá sér sína fyrstu
hljómleikaplötu, sem kallast New
Order BBC Live in concert, og var
hún tekin upp á Glaston bury
tónlistarhátíðinni árið 1987, og
svo er hljómsveitin komin í hljóð-
ver til að taka upp efni á nýja
plötu. Annars hafa verið getgátur
uppi um að New Order væri að
brotna í marga parta í kjölfar
einkaverkefna einstakra með-
lima, en það virðist ekki vera fót-
urfyrirþví. Eru þessir einkaverk-
efni í formi starfsemi hljómsveit-
anna Revenge (Peter Hook), Elec-
tronic (Bernard Summer) og The
other two, sem eins og nafnið
gefur til kynna, inniheldur hina
tvo meðlimina Gilian Gilbert og
Stephen Morris. Mun einmitt vera
von á nýju lagi og síðan plötu frá
The Other two innan tíðar.
Blúsmannsdauði
Ein af merkari hetjum Chicago-
blúsins og blústónlistarinnar yfir
höfuð, WillieDixon, lést úr hjarta-
slagi þann 29. janúar síðastliðinn
76 ára að aldri. Var Dixon, sem
fæddist í Mississiþpi árið 1915,
fyrirmynd margra frægra tónlist-
armanna og er án efa einn besti
og afkastamesti lagasmiður
blúsins. Meðal frægra laga hans
má nefna Hoochie coochie man,
Little red rooster, You shook me
leave you o.fl. og fl.
Hóf Dixon feril sinn sem
bassaleikari og söngvari og varð
þekktur á sjötta áratugnum sem
bassaleikari, lagahöfundur og
upþtökustjóri í hljómsveit Muddy
Waters hjá Chess útgáfunni.
Meðal annarra frægra tónlistar-
manna sem hljóðritað haa lög
Willie Oixon má nefna, Rolling
Stones, Led Zeppelin, Doors, Jimi
Hendrix, Bo Diddley, Chuck Berry
o.fl. Var gamli maðurinn að allt
fram á síðasta dag og gaf meðal
annars út plötu á síðasta ári.
REM
Eins og getið var um fyrir nokkru
eru goðin í REM nú þegarfarin að
hyggja að gerð nýrrar smíðar,
tæpu ári eftir útgáfu verksins far-
sæla Outoftime. Mun hljómsveit-
in hefjaforupptökur í lok mánað-
arins, sem taka munu um tvo
mánuði. Er svo gert ráð fyrir að
afraksturinn líti dagsins Ijós
snemma sumars.
Aðalfundur
X/ Hestamannafélagsins Léttis
verður í Skeifunni, sunnudaginn 16. febrúar
kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
llil FRAMSÓKNARMENN ||f I
|||| AKUREYRI ||||
Bæjarmálafundur
Bæjarmálafundur verður haldinn að Hafnarstræti 90,
mánudaginn 17. febrúar kl. 20.30.
Rætt um dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar.
Þeir sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ á vegum Fram-
sóknarflokksins eru eindregið hvattir til að mæta og einnig
varamenn.
Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar.
Foreldrar barna í
vistun dagmæðra!
Kynningarfundur
verður haldinn í Dvalarheimilinu Hlíð,
þriðjudaginn 18. febrúar kl. 20.30-22.00.
Sýnum okkur og sjáum aðra!
Hestamenn
athugið!
Járninganámskeið
verður haldið á félagssvæði Léttis, dagana 21.,
22. og 23. febrúar.
Leiðbeinandi Sigurður Sæmundsson.
Þátttaka öllum opin.
Upplýsingar og skráning í síma 22351 Heimir og
11042 Höskuldur.
Fræðslunefndin.
Fundur um
alnæmisvandann
Fræðslufundur um félagslega aðstöðu HIV-
smitaðra íslendinga verður haldinn á vegum
Samtaka áhugafólks um alnæmisvandann
þriðjudaginn 18. febrúar, klukkan 17.30 í
Fiðlaranum 4. hæð, Alþýðuhúsinu á Akur-
eyri.
Erindi flytja:
Arndís Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Borgar-
spítalanum, Einar Þór Jónsson, meðferðarfull-
trúi á Unglingaheimili ríkisins og séra Jón
Bjarman, sjúkrahúsprestur þjóðkirkjunnar.
ALLIR VELKOMNIR
Héraðslæknirinn á Norðurlandi eystra.