Dagur - 02.04.1992, Page 16
Hádegistilboð alla daga
Súpa og salatbar ásamt okkar nýbökuöu brauðum fylgja öllum aðalréttum og pizzum
Fri heii^sendingarþjónusta allan daginn
Alvöru veitingalxús
Margir biðu við Hrísalund í gærmorgun þegar Guðjón Ármannsson opnaði vcrslunina enda ókeypis bækur í boði
samkvæmt frétt Dags og Svæðisútvarps. Fréttin, eins og svo margar aðrar í fjölmiðlum í gær, reyndist vera gabb.
r' 1 1 r •'jj_• X Mynd: Golli
Gabbfrettir Dags 1 gær:
Margir bókaormar létu gabbast
- saumaklúbbar áhugasamir um strákaskoðunarferðir til Húsavíkur
Þeir voru margir sem létu
blekkjast um stund af 1. aprfl-
gabbfréttum Dags í gær. Við
Hrísalund á Akureyri var bið-
röð sólginna bókaunnenda við
opnun í gærmorgun enda ekki
á hverjum degi sem boðið er
upp á bækur gefins. Þá rigndi
fyrirspurnum frá saumaklúbb-
um yfir Ferðaskrifstofu Húsa-
víkur sem sagt var að ætli að
hefja sölu á sérstökum stráka-
skoðunarferðum. Þriðja frétt-
in fjallaði um skyndilega stór-
hækkun á gjaldskrá tann-
lækna.
„Þetta gekk vel og margir
komu eða hringdu í morgun.
Fólk byrjaði að hringja strax upp
úr kl. 8 en þegar líða tók á daginn
þá dró úr þessu. Það hlupu því
margir apríl en flestir tóku þessu
mjög vel,“ sagði Guðjón
Armannsson, verslunarstjóri í
Hrísalundi, um viðbrögðin við
fréttinni um að bækur fengjust
Rokkópera Freyvangsleikhússins
fær góðar viðtökur:
Pantanir víða af landinu
- sýnt verður fram í maí
„Við höfum fengið pantanir
víða að af landinu, t.d. frá ísa-
firði, Blönduósi, Hofsósi,
Hvammstanga og úr Reykja-
vík. Hingað til hefur aðsóknin
að verkinu verið mjög góð og
nú þegar höfum við bókað á
sýningar fram í byrjun maí
þannig að við erum ánægð,“
sagði Katrín Ragnarsdóttir,
formaður Freyvangsleikhúss-
ins um aðsóknina að rokkóper-
unni Messías mannssonur sem
leikhúsið sýnir um þessar
mundir.
Eins og fram hefur komið er
þessi uppfærsla viðamesta verk-
efni leikfélagsins til þessa og
hljóðaði kostnaðaráætlun upp á 3
milljónir króna. Miðað við góð
viðbrögð í upphafi sagðist Katrín
vonast til að náist upp í kostnað
við uppfærsluna.
Hún sagði að mikið væri um
pantanir frá starfsmannafélögum
fyrirtækja og öðrum hópum.
Aðspurð sagði hún að allir aldurs-
hópar virtust sækja verkið þótt
um rokkóperu væri að ræða og
ekki væri síður að sjá að eldra
fólkið kynni að meta hana. „Það
er mjög skemmtilegt að aðsóknin
einskorðast ekki við yngra fólkið.
En yngsta fólkið skemmtir sér
líka vel og við fréttum að eftir
heimsókn Lundarskóla á Akur-
eyri um daginn hafi krakkarnir
farið heim að leita í gömlum plöt-
um foreldra sinna og haft nokkuð
upp úr krafsinu. Þetta höfðar líka
til þeirra,“ sagði Katrín. JÓH
gefins á stóra bókamarkaðinum í
gær.
Páll Þór Jónsson, ferðamála-
frömuður á Húsavík, sagði að
viðbrögð hafi komið við fréttinni
um strákaskoðunarferðirnar.
„Hér hafa borist fyrirspurnir,
meðal annars verið beðið um að
tilgreina nákvæmlegá hvað væri í
boði, þ.e. aldur, þyngd, greind-
arvísitölu og fleira. Við höfum
ekki getað svarað þessu nákvæm-
lega vegna þess að við hefðum
þurft að óska eftir greindarvísi-
tölu saumaklúbbanna ef við ætt-
um að sérvelja hópa og stilla
saman. En þetta lítur vel út þó
við séum hrædd við að beðið
verði mest um gáfulegt útlit og
lága greindarvísitölu. Það er hóp-
ur sem við eigum lítið til af og
verðum því að flytja inn frá öðr-
um landshlutum,“ sagði Páll Pór
í gær.
Bessi Skírnisson, tannlæknir á
Akureyri, sagði viðtökur við-
skiptavina við fréttinni um 25%
gjaldskrárhækkun góðar. Við-
skiptavinir hafi tekið gríninu vel
og því ekki komið til mikilla út-
skýringa í gær. JÓH
Þorlákur Sigurðsson:
Grímseyingar vilja
aukið bryggjupláss
Þorlákur Sigurösson, oddviti
hreppnefndar Grímseyjar-
hrepps, segir að ekki séu
neinar ákveðnar framkvæmd-
ir á döfinni í sumar á vegum
sveitarfélagsins.
„Við erum að reyna að knýja
á um aukið bryggjupláss hérna
í höfninni. Við erum með um 40
metra bryggjupláss og flot-
bryggju að auki, en eigum að fá
í það heila 120 metra langa
bryggju meðfram landi. Þaðeru
veruleg óþægindi af því að hafa
ekki meira bryggjupláss, sér-
staklega þegar eru allt að 30
aðkomubátar hér yfir sumarið,“
sagði Þorlákur.
Hann sagði aflabrögð Gríms-
eyjarbáta að undanförnu hafa
verið fremur léleg. Netabátarn-
ir hafi veriö að fá 1200 til 1300
kg eftir nóttina. Einnig væru
aflabrögð línubáta ekki til að
hrópa húrra fyrir. óþh
Hrísey:
Aukiiin áhugi fyrir
sumarbústöðum
Jónas Vigfússon, sveitarstjóri
í Hrísey, segir að töluverð
ásókn sé í byggingu eða kaup
á húsnæði til sumardvalar í
eynni.
Jónas sagði þegar ákveðið að
byggja í það minnsta einn bú-
stað í sumar f eynni og sótt hafi
verið um leyfi til að byggja
fleiri. Þá sagði hann hugsanlegt
að brottfluttur Hríseyingur, nú
búsettur á Akureyri, myndi
flytja sumarbústað út í eyna.
Sem dæmi um áhuga fólks á
sumarleyfishúsnæði í Hrfsey
nefndi Jónas að á dögunum hafi
forsvarsmaður starfs-
mannafélags spurst fyrir um
möguleika á kaupum á húsnæði
í eynni. óþh
Heilsugæslustöðin á Skagaströnd:
Ráðist í endurbætur
„Við erum búin að fá 3,3
milljóna króna fjárfrainlag
frá heilbrigðisráðuneytinu til
að ráðast í miklar endurbætur
á húsinu bæði utandyra og
innan,“ segir Bolli Ólafsson,
framkvæmdastjóri heilsu-
gæslu á Blönduósi og Skaga-
strönd.
Húsið sem þarna er um að
ræða hýsir heilsugæslustöðina á
Skagaströnd, auk þess sem í því
er apótek og tannlæknastofa.
Ætlunin er að gera töluverðar
endurbætur á húsinu í sumar og
að sögn Bolla munu fram-
kvæmdirnar hefjast fyrir næstu
mánaðamót. Ríkið hefur veitt
3,3 milljónum króna til verksins
og viðkomandi sveitarfélög
leggja fram á móti því um 700
þús. krónur. Samtals verður því
varið 4 milljónum króna til
endurbótanna á þessu ári.
„Þessi fjárhæð er ásættanleg
og nægir til að bjarga húsinu að
utan og einnig til einhverra
endurbóta innandyra. Þrátt
fyrir að húsið sjálft sé ekki svo
ýkja gamalt er löngu kominn
tími á viðhald á því og fram-
kvæmdirnar f ár ættu að veita
því verulega andlitslyftingu,"
segir Bolli. SBG
Gengið frá sölu á Sogni í Ölfusi:
Söluverðmætinu varið til byggingar Kjarnalundar
- gefur vonir um að unnt verði að standa við fyrri áætlanir
og hefla starfsemi heilsuhælis þar á næsta ári
Samningar um sölu á eign
Náttúrulækningafélags íslands
að Sogni í Ölfusi til ríkisins eru
nú á lokastigi. Eftir er að
undirrita samninginn en búið
er að ganga frá öllum megin-
atriðum hans. Kaupverð eign-
arinnar verður rúmar 30 millj-
ónir króna, sem greiðast á um
einu og hálfu ári. Akveðið hef-
ur verið að stærstum hluta
andvirðis Sogns verði varið til
uppbyggingar heilsuhælis
Náttúrulækningafélagsins í
Kjarnaskógi við Akureyri og
standa nú vonir til að unnt
verði að taka það í notkun á
næsta ári.
Vilhjálmur Ingi Árnason, for-
maður Náttúrulækningafélags
íslands, sagði að nú væri aðeins
eftir að ganga frá smávægilegum
atriðum varðandi kaupsamning-
inn en meginatriði hans eins og
verð og greiðsluskilmálar væru
ákveðin. Andvirði eignarinnar
ætti að greiðast að fullu á um
einu og hálfu ári og væri það
mjög gott fyrir okkur hér fyrir
norðan þar sem gert væri ráð fyr-
ir að þessum fjármunum verði að
mestu varið til áframhaldandi
byggingar heilsuhælisins í
Kjarnaskógi. Nú lægi fyrir að
endurskoða þá rekstraráætlun
sem búið hefði verið að vinna
varðandi starfsemina í Kjarna-
skógi en orðið hefði ómerk þegar
farið var af stað með niðurskurð í
heilbrigðiskerfinu og ljóst varð
að ekki fengist það fjármagn sem
gert hafði verið ráð fyrir.
Vilhjálmur Ingi sagði að með
þessar 25 til 30 milljónir, sem sal-
an á Sogni skili Náttúrulækn-
ingafélaginu auk sambærilegrar
upphæðar er Akureyrarbær hefði
gefið vilyrði fyrir sköpuðust
möguleikar til þess að ljúka við
bygginguna í Kjarnaskógi miðað
við þá áætlun sem fyrir var. Ef
það tækist væri svo stutt í að starf-
semin gæti hafist að ótrúlegt væri
að ekki fengist fjármagn til þess
að koma henni af stað. Aðal-
atriðið sé nú að gera verði þarfa-
lýsingu til þess að komast að því
hvar þarfirnar séu mestar og á
hvern hátt heilsuhælið verði best
rekið og nýtt með tilliti til annarr-
ar heilbrigðisþjónustu sem veitt
er hér á svæðinu. Þótt hugmyndir
hafi verið um þjónustu við
útlendinga sé ekkert vitað um
hvaða möguleikar séu fyrir hendi
í því efni heldur sé þar um lengri
tíma markmið að ræða. ÞI