Dagur - 23.05.1992, Blaðsíða 5

Dagur - 23.05.1992, Blaðsíða 5
Laugardagur 23. maí 1992 - DAGUR - 5 Fréttir Prjóna- og saumastofan Adam og Eva á Blönduósi: Markaðshorfiir fyrir ullarvörur góðar - segir Zophonías Zophoníasson, framkvæmdastjóri saumastofunnar Evu „Við erum að framleiða fyrir Evrópumarkað. Um 90% af framleiðslu okkar fer til Evrópulanda og helstu við- skiptalöndin fyrir utan Þýska- land eru Danmörk, Svíþjóð, Austurríki og Sviss,“ sagði Zophonías Zophoníasson, framkvæmdastjóri saumastof- unnar Evu á Blönduósi. Zop- honías stofnaði prjónastofuna Evu á árinu 1985 en áður hafði hann veitt starfsemi Pólar- prjóns forstöðu. Saumastofan Eva og prjónastofan Adam, sem stofnuð var á síðasta ári eru nú rekin samhliða á Blönduósi og sagði Zophonías að tala mætti um nýjan rekstur á gömlum grunni í því sambandi. Zophonías kvaðst hafa rekið saumastofuna í litlu húsnæði í tengslum við heimili sitt þar til á síðasta ári að hann færði út kví- arnar í samvinnu við Matthías Sigursteinsson, tengdason sinn, en hann setti þá á stofn prjóna- stofuna Adam og eru þessi fyrir- tæki nú rekin í tengslum við hvert annað í sameiginlegu húsnæði. Zophonías sagði að framleiðsla fyrirtækjanna byggðist aðallega á peysum en einnig nokkuð á treflum, húfum og vettlingum og vinna fyrirtækin alla framleiðslu sína úr bandi frá ístex í Mosfells- bæ. Hann sagði að markaðshorfur væru góðar um þessar mundir en mestur hluti framleiðslunnar fer til afgreiðslu á fyrirframgerðum pöntunum. Zophonías annast sjálfur sölu á framleiðslu fyrir- tækjanna og segir það einfaldara og kostnaðarminna en að vinna að þeim málum í gegnum umboðsmenn eða söluaðila. Nú vinna tólf manns hjá prjóna- og saumastofunni og þessa dagana er verið að leggja hug og hönd að hönnun þeirrar framleiðslu sem áætlað er að fari á markað á næsta ári. Zophonías sagði nauðsynlegt að fylgjast vel með öllum breytingum og kröf- um sem markaðurinn gerði á hverjum tíma og gera áætlanir fram í tímann samkvæmt þeim. Sér virtist sem nú væri fremur uppsveifla að eiga sér stað varð- andi sölu á íslenskum ullarvörum og kvaðst hann vera bjartsýnn á sölu þeirra á næstunni. ÞI Zophonías Zophoníasson og Matthías Sigursteinsson í vinnusal prjóna- og saumastofanna. Akureyri: Minjagripahús verdur starfrækt í sumar - eingöngu íslenskir minjagripir verða á boðstólum Anna Gunnarsdóttir á Akur- eyri mun í sumar starfrækja nýja verslun á Akureyri sem hún nefnir Minjagripahúsið. Eins og nafnið gefur til kynna verða þar á boðstólum minja- gripir, eingöngu íslenskir, og gefst áhugasömu fólki, sem vinnur að gerð vandaðra og áhugaverðra minjagripa, kost- ur á að selja þá í Minjagripa- húsinu. En hvernig kom þessi hug- mynd til? Því svarar Anna þannig að á sl. sumri hafi hún sjálf dund- að sér við að búa til minjagripi úr leðri og selskinni og selt í ferða- mannaverslanir í Reykjavík og á Akureyri. Henni hafi í framhaldi af því dottið í hug að vert væri að koma upp sérstakri minjagripa- verslun á Akureyri. Hún viðraði hugmyndina við Elínu Antons- dóttur, sem vinnur hjá Iðnþróun- arfélagi Eyjafjarðar að ráðgjöf fyrir konur í atvinnusköpun, og leist henni strax vel á hugmynd- ina. Síðan hefur málið tekið þá stefnu að Anna leigði sumarhús frá S.S. Byggi á Akureyri, sem hún mun innan fárra dag setja niður á horni Glerárgötu og Strandgötu. Ætlunin er að opna húsið 5. júní nk. og verður það Samstaða um óháð ísland: Utanríkisráðuneytið hafiiar beiðni um flárstuðning Utanríkisráöuneytið hefur hafnað erindi frá Samstöðu um óháð ísland, þar sem samtökin sækja um styrk til kynningar á samningi um Evrópskt efna- hagssvæði. Stjórn Samstöðu sótti um fjárframlag að upp- hæð 2,5 milljónir króna til að auðvelda kynningu á þeirra vegum á sjónarmiðum varð- andi EES-samninginn. Sam- tökin munu beita sér fyrir fræðslufundum og útgáfu af ýmsu tagi. Samstaða um óháð ísland var stofnuð 29. ágúst 1991 og eru skráðir félagar nú um 1000. Starfsemin hefur hingað til ein- göngu verið borin uppi af frjáls- um framlögum og félagsgjöldum. Á fjárlögum fyrir árið 1992 er gert ráð fyrir að verja nokkurri fjárhæð til kynningar á EES. Að mati stjórnar Samstöðu verður að teljast eðlilegt að hluti þess fjár renni til almannasamtaka sem láta sig málið sérstaklega varða. Á öðrum Norðurlöndum njóta samtök hliðstæð Samstöðu umtalsverðs fjárstuðnings af opinberri hálfu og er litið á starf þeirra sem hlekk í lýðræðislegri umræðu. Samstaða telur óeðlilegt að opinberu fé sé eingöngu varið til að fylgja eftir stefnu stjórnvalda varðandi EES en almannasamtök, sem hafa önnur viðhörf, njóti einskis stuðnings af hálfu hins opinbera. í fréttatilkynningu frá Sam- stöðu kemur m.a. fram, að samn- ingurinn um Evrópskt efnahags- svæði sé afdrifaríkasta mál sem íslendingar hafa staðið frammi fyrir í sögu lýðveldisins. Gagn- rýnin og opin umræða um málið er nauðsynleg. Afstaða utanríkis- ráðherra til fjárbeiðni Samstöðu bendir til að ráðuneytið ætli ekki að stuðla að því að svo geti orðið. Samstaða verður áfram að treysta á frjáls framlög almenn- ings til stuðnings við starfsemi sína. -KK Anna Gunnursdóttir, framkvæmda- stjóri Minjagripahússins. Mynd: kk opið alla daga kl. 9-21. Einnig verður opnað fyrir ferðahópum á öðrum tíma ef þess er óskað. Anna sagði í samtali við Dag að hún tryði því að rekstur á slíkri minjagripasölu á Akureyri ætti að geta gengið, en það yrði auðvitað að koma í ljós. Þessi rekstur yrði í sumar til reynslu og í ljósi hennar yrði ákveðið með framhaldið. Anna sagði að hún ætlaði að hafa eingöngu íslenska framleiðslu á boðstólum, minja- gripi, gjafavöru, póstkort, skuggamyndir og fleira. Vitað væri um fjölda fólks sem gerði ýmsa merkilega hluti, sem vert væri að bjóða ferðafólki og áhugi væri fyrir því að komast í sam- band við alla þá sem kynnu að hafa áhuga á að koma fram- leiðslu sinni í umboðssölu í Minjagripahúsinu. Anna vildi benda fólki á að hafa samband við sig í síma 12064 eða Elínu Antonsdóttur í síma 11214. óþh Aðalfundur Verslunar- félags Raufarhafnar hf.: Reksturinn réttu megin við strikið - gistiheimilið hefur líkað vel Aðalfundur Verslunarfélags Raufarhafnar hf. var haldinn 17. maí sl. Reikningar félags- ins voru lagðir fram og sam- þykktir og var niðurstaðan sú að reksturinn skilaði hagnaði á síðasta ári. Félagið tók við rekstri verslunar á Raufarhöfn af Kaupfélagi Langnesinga á síðasta ári og opnaði hana 1. ágúst. „Hagnaðurinn er óverulegur en reksturinn er þó réttu megin við strikið sem er mjög jákvætt og gefur okkur kjark til að halda áfram. Á þessu ári höfum við ráðist í kostnaðarsamar endur- bætur á húsnæðinu en við vonum að þær eigi eftir að skila sér í auk- inni verslun og ánægðari við- skiptavinum," sagði Jón Eiður Jónsson, verslunarstjóri. í versluninni er úrval af helstu nauðsynjavörum en í fámennu samfélagi þýðir ekki að vera með stóran lager og sagði Jón að mik- ið væri pantað fyrir fólk. Verslunafélag Raufarhafnar færði út kvíarnar í lok febrúar og opnaði gistiheimili á efri hæð hússins við Aðalbraut. Jón sagði að reynslan lofaði góðu. „Það eru komnar yfir 60 gisti- nætur frá því við byrjuðum og gestirnir virðast mjög ánægðir. Við bjóðum upp á ódýra gistingu og ýmsa kosti í ferðaþjónustu. Nú fer að styttast í ferðmanna- vertíðina og við vonum að sumarið verði okkur hliðhollt,“ sagði Jón. SS 0RAFVEITA AKUREYRAR ÞÓRSSTÍG 4 . PÓSTHÓLF 518 . 602 AKUREYRI OPNUNARTÍMI: SKRIFSTOFA: | VERKSTÆÐI: Mánud. - Föstud. kl. 8-16 Mánud.-Fimmtud. kl. 7.30 -17.10. Fðstud. kl. 7.30-15.40 VIÐ ERUM FLUTT AÐ ÞÓRSSTÍG 4 E i ni qb Ný símanúmer! Ríkisútvarpid á Akureyii auglýsir ný símanúmer 12300 Fréttastofa 12305 Sjónvarp 12308 Auglýsingar 12310 Fax ' 11646 #M«lf RÍKISÚTVARPIÐ RÍKISÚIVAITPID ÁAKUREYRI Geymld auglýsinguna

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.