Dagur - 16.06.1992, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 16. júní 1992 - DAGUR - 5
Sjómannadagurinn
á Akureyri:
Fjölmenni
tók þátt
í hátíða-
höldunum
Fjölbreytt hátíöahöld
voru a
Akureyri á sjómannadaginn og
tók fjöldi fólks þátt í þeim
þrátt fyrir að veðurguðirnir
hafi ekki sýnt sínar bestu
hliðar. Mikill fólksfjöldi safn-
aðist saman við Sundlaug
Akureyrar um daginn og fjöl-
mennur sjómannadansleikur
var haldinn í íþróttahöllinni
um kvöldið.
Akureyringar voru reyndar
snemma í því og byrjuðu á að
keppa í kappróðri og knatt-
spyrnu á laugardaginn. Á sunnu-
dag voru dregnir fánar að húni og
sjómannamessur haldnar í Akur-
eyrar- og Glerárkirkju. Síðdegis
var heilmikil dagskrá við sund-
laugina þar sem flutt voru ávörp,
sjómenn heiðraðir og keppt í
ýmsum greinum, s.s. stakkasundi
og fleiru.
Um kvöldið var haldinn sjó-
mannadansleikur í íþróttahöll-
inni og var hann mjög vel sóttur.
Um 800 manns mættu í matinn
og á eftir var stiginn dans við
undirleik Stjórnarinnar.
Golli, ljósmyndari Dags, var á
ferð og flugi á sjómannadaginn
og tók myndirnar sem hér sjást.
JHB
» mm ' M
« wm *
' ■
mmstaxi
Jjjiir k <. Æjjjip
1 || j
f .fA
| ffim M
I
I