Dagur - 16.06.1992, Side 6

Dagur - 16.06.1992, Side 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 16. júní 1992 Deildarmót Í.D.L. verður haldið á Breiðholtsvelli dagana 19.-21. júní. Mótið hefst kl. 18 föstudaginn 19. júní. Keppt verður í öllum hefðbundnum íþróttagreinum. Skráning er í Hestasporti. Nánar auglýst síðar. Í.D.L. Sumarskólinn á Akureyri Sérnámskeið - síðdegis Leikræn túlkun og leikir fyrir 6-7 ára (kl. 16.15-17.25) kr. 7.200,- fyrir 8-9 ára (kl. 17.35-19.00) kr. 8.300,- Tvö tímabil: 19/6.-4/7. og 10/7.-25/7. Leiðbeinendur: Rósa Rut Þórisdóttir, Ásta Arnardótt- ir og Örn Ingi. Upplýsingar og skráning í síma 22644. Verslun með reyrvörur Reyrhúsgögn - Stakir stólar. Úrval af gjafavöru og bast körfum. Nýjar vörur - Komið og skoðið Bíeiiri fíiiinn Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 12025. ... -4 Breytt afgreiðsla viðskiptaráðuneytisins Skv. ákvörðun forsætisráðherra hafa starfslið og húsnæði iðnaðar- og viðskiptaráðuneytanna verið sameinuð frá 2. júní sl. að telja. Afgreiðsla viðskiptaráðuneytisins hefur því verið flutt og sameinuð afgreiðslu iðnaðarráðuneytisins, sem er á 3. hæð í austurenda Arnarhvols, gengið inn frá Lindargötu. (Inngangur við hliðina á húsi Hæstarétt- ar.) Símí beggja ráðuneytanna er 609070 og bréfsími 621289. Viðskiptaráðuneytið 12. júní 1992. Til sölu á Dalvík Neðangreindar eignir úr þrotabúi Ríkarðs Björns- sonar (Víkurbakarí Dalvík) eru til sölu. 1. Fasteignin Hafnarbraut 5, Dalvík. Eignin er sam- tals 463 m2. í hluta eignarinnar hefur verið rekin brauðgerð sem möguleiki er að selja sérstaklega ásamt tækjum. Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi til að skipta eign- inni. 2. Fasteignin Drafnarbraut 2, efri hæð, Dalvík sem er 199.6 m2 ásamt 28.9 m2 bílskúr. 3. Bifreiðin G-8655 Daihatsu Híjet árgerð 1987. Tilboðum skal skilað til Árna Pálssonar hdl., bústjóra til bráðabirgða, Brekkugötu 4, Akureyri fyrir 1. júlí n.k. sem jafnframt veitir allar nánari upplýsingar í síma 96-11200. Opna nýja gistingu innan Ferðaþjónustu bænda: Minnka kartöfluræktina og snúa sér að þjónustunni við ferðamenn - spjallað við Gunnar Val Eyþórsson og Sveinu Jóhannesdóttur á Öngulsstöðum III í Eyjaíjarðarsveit Gunnar Valur í öðru herberginu. Alls geta sex manns gist í einu en gistiher- bergin eru tvö. Ungt par á Öngulsstöðum III í Eyjafjarðarsveit, Gunnar Val- ur Eyþórsson og Sveina Björk Jóhannesdóttir, er þessa dag- ana að opna nýja ferðaþjón- ustu sem starfrækt er innan Ferðaþjónustu bænda. Um er að ræða húsnæði sem þau hafa standsett í hluta af gömlu íbúð- arhúsi og geta þar gist 6 manns í einu í tveimur herbergjum. Þau Gunnar og Sveina eru í félagsbúskap á Öngulsstöðum en Sveina ætlar að hafa þjón- ustuna við ferðamenn að sum- arstarfi. „Þetta var leið til að nýta hér pláss sem annars var notað sem geymslur en um leið létum við verða af því að fara út í ferða- þjónstu sem hefur verið draumur lengi,“ sögðu þau Gunnar og Sveina í spjalli við Dag. Þau segja að framan Akureyr- ar sé enginn aðili innan Ferða- þjónustu bænda ef frá eru talin sumarhúsin á Hrísum. í upphafi fór Ferðaþjónusta bænda af stað sem möguleiki fólks til gistingar heima á sveitabæjum og um leið möguleiki til kynningar á lífi og störfum í sveit. Innan Ferðaþjón- ustu bænda hafa í seinni tíð kom- ið aðilar sem reka sumarhúsa- byggðir í tengslum við búskapinn en segja má að nýja gistingin á Öngulsstöðum byggi á upphaf- legu kveikjunni að Ferðaþjón- ustu bænda því hefðbundinn búskapur er stundaður á Önguls- stöðum. Gunnar og Sveina segja að byrjað hafi verið að standsetja húsnæðið í vetur en þessi gisting sé þegar komin inn í auglýsinga- kerfi FB fyrir komandi sumar. „Við ákváðum að minnka kart- öfluræktina og reyna að láta ferðaþjónustuna vega að ein- hverju leyti upp á móti henni en auðvitað gerist það ekki á einu sumri. Svona lagað þarf lengri tíma til að auglýsa sig upp. Þetta verður bara að vaxa hægt og bít- andi.“ Eins og áður segir eru gisti- möguleikar fyrir 6 manns í tveim- ur herbergjum en auk þess er setustofa, eldunar- og hreinlætis- aðstaða auk þess sem sérstakur inngangur er að gistiaðstöðunni. JÓH Gunnar Valur Eyþórsson og Sveina Jóhannesdóttir með soninn Baldur Þór í setustofunni í gistihúsnæðinu. Myndir: JÓH. 100 nemenda fækkun í VMA næsta skólaár: Breytt viðhorf almeimings gagnvart skólum og kennurum nauðsynlegt I skólasiitaræðu Bernharðs Haraldssonar skólameistara Verkmenntaskólans sagði m.a. að allir væru sammála um að hafa skóla og skólakerfi og enginn andmælti því og reynd- ar hefðu verið sett lög þar sem allir sem óska geti sótt um vist í framhaldsskóla. Fjárlög væru líka til og því miður væru þessi tvenn lög ekki ætíð sam- hljóma, þau stönguðust á og það ylli oft vandræðum. Reyndar væru flestir þeirrar skoðunar að þjóðin hefði ekki efni á að hætta að mennta sig, menntun væri flestum lífsnauð- syn og framtíð þjóðarinnar væri undir því komin að eiga sem best menntaða einstaklinga á sem flestum sviðum fræða og verk- menningar. Nú hafa skipast svo veður í fjárhag Verkmenntaskólans á Akureyri að verulega verður að draga saman seglin. Þegar hefur verið sagt upp leiguhúsnæði í íþróttahöllinni, alls fjórum bók- legum stofum og það þýðir um eitthundrað nemenda fækkun frá síðasta hausti. Einnig þarf að draga saman íþróttakennslu vegna þess að fleiri kennslu- stundir hafa verið bak við eining- una en í öðrum greinum. íþrótta- braut verður ekki í boði næsta vetur vegna fjárskorts. Búast má við að hópar verði stækkaðir til að draga úr útgjöldum, bóklegir sem verklegir, kenna og á alls ekki í fámennum hópum nema brýna nauðsyn beri til. En hvað þýðir þetta? Er ekki verið að lengja náms- tímann og hver hagnast á því þegar upp verður staðið, nem- endurnir eða samfélagið? Það skyldi þó ekki verið að kasta krónunni og geyma eyrinn? Breytt viðhorf nauðsynlegt Hægt er að bæta skólakerfið með því að breyta hugarfarinu gagn- vart skólunum og líta ekki á þá sem geymslur frá átta til fjögur, staði, sem hafa ofan af fyrir fólki, heldur skóla, skóla þar sem lært er fyrir lífið. Breyta þarf viðhorfi gagnvart kennurum, ekki líta á þá sem einstaklinga sem standa bara upp við töflu og tala og skrifa í fjörutíu mínútur í senn, lausir frá skyldum sínum allt sumarið, heldur sem sérfræðinga hvern á sínu sviði og launa þeim eftir því, gera það eftirsóknarvert virðingarstarf að vera kennari. Yfirvöld þurfa líka að hætta þeirri leiðu iðju sinni að reikna kennslukostnað eftir hinni frægu þríliðu, því nemendur eru ekki lífvana tölur á blaði, þeir eru fólk af holdi og blóði. Þá fyrst munum við heyra samhljóm laga um framhaldsskóla og meðferð opin- bers fjár til varanlegs gagns. GG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.