Dagur - 16.06.1992, Page 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 16. júní 1992
Iþróttir
2. deild
4. umferð:
Þróttur R.-IR 1:2
Fylkir-Grindavík 3:0
Selfoss-Leiftur 0:3
BÍ-ÍBK 0:1
Víðir-Stjarnan 1:1
Staðan:
Fylkir 4 4-0-0 11:2 12
ÍR 4 2-2-0 6:4 8
Leiftur 4 2-1-1 8:1 7
ÍBK 4 2-1-1 5:4 7
Þróttur R. 4 2-0-2 7:10 6
Víðir 4 1-2-1 6:7 5
Stjarnan 4 1-1-2 5:6 4
Selfoss 4 0-2-2 3:7 2
Grindavík 4 0-2-2 4:9 2
BÍ 4 0-1-3 5:10 1
Markahæstir:
Þorlákur Árnason, Leiftri 7
Hlynur Jóhannsson, Víði 4
Óli Þór Magnússon, ÍBK 3
Kristján HaUdórsson , ÍR 3
Haukur Magnússon, Þrótti R. 3
3. deild
4. umferð: Þróttur N.-Ægir 0:0
KS-Haukar 1:3
Grótta-Skallagrímur 2:1
Tindastóll-Dalvík 3:1
Magni-Völsungur 0:1
Staöan: Tindastóll 4 4-0-0 12:6 12
Völsungur 4 3-1-0 7: 110
Grótta 4 3-0-1 9: 5 9
Þróttur N. 4 2-2-0 9: 3 8
Magni 4 2-0-2 8: 3 6
Haukar 4 2-0-2 9: 8 6
Dalvík 4 1-0-3 7: 5 3
Ægir 4 0-2-2 2: 6 2
Skallagrímur 4 0-1-3 5:10 1
KS 4 0-0-4 2:16 0
Markahæstir:
Kristján Brooks, Gróttu 7 Sverrir Sverrisson, Tindastóii 5
Þór Hinriksson, Haukum 4
Goran Micic, Þrótti N. 4
Bjarki Pétursson, Tindastóli 3 Pétur Pétursson, Tindastóli 3
4. deild
2. umferð:
HSÞb-Kormákur
Þrymur-SM
Neisti-Hvöt
0:2
1:1
1:3
Staðan:
Kormákur
Hvöt
HSÞb
SM
Þrymur
Neisti
2 2-0-0 8:0 6
2 1-0-0 7:2 6
2 1-0-1 4:4 3
2 0-1-1 2:5 1
1 0-1-1 1:7 1
2 0-0-2 2:6 0
Markahæstir:
Sigurður Ágústsson, Hvöt 3
Gísli Gunnarsson, Hvöt 2
Rúnar Guðmundsson, Kormáki 2
Albert Jónsson, Kormáki
Samskipadeildin, KA-KR 1:1
, AUt of seinir í gaiig“
- segir Gunnar Gíslason þjálfari KA
Steingrímur Birgisson cinbeittur á svip í leiknum gegn KR.
KA-menn tóku á móti KR-ing-
um í Samskipadeildinni á laug-
ardag og skildu liðin jöfn, 1:1.
KR hafði yfír í leikhléi, 1:0,
eftir að KÁ-menn höfðu fært
þeim markið á silfurfati. Heima-
menn byrjuðu frekar illa og lá
talsvert á þeim framan af, án
þess þó að umtalsverð hætta
skapaðist upp við markið. KA-
menn jöfnuðu á 56. mínútu
með marki Gunnars Más Más-
sonar.
„Við erum allt of seinir í
gang,“ sagði Gunnar Gíslason,
þjálfari KA-manna, eftir leikinn.
„Menn eru í ágætu formi, sem
sést best á því að við leikum á
fullu í endann á leiknum. Það
tekur allt of mikla orku að vera
sífellt að vinna upp einhverja vit-
leysu. Við verðum að leika á
fulllu í 90. mínútur, öðruvísi
gengur þetta ekki upp,“ sagði
Gunnar. Aðspurður um næsta
leik, sem er gegn ÍA, sagði
Gunnar að þeir yrðu að koma
með þrjú stig heim af Skaganum.
„Þetta er ekki óvinnandi lið og
það ætlum við okkur að sýna.“
Bjarni Jónsson, fyrirliði KA,
var óánægður með jafnteflið.
„Það var klúður að kíára þetta
ekki í seinni hálfleiknum. Fyrri
hálfleikurinn var nokkuð jafn,
færi á báða bóga, en við gáfum
þeim markið,“ sagði Bjarni.
Ragnar Margeirsson, sóknar-
maður KR-inga, sagðist vera
sáttur við stigið á móti KA. „Við
höfum ekki riðið feitum hesti frá
leikjum hérna fyrir norðan á
undanförnum árum, eitt stig er
ágætt fyrir okkur,“ sagði Ragnar.
Leikurinn byrjaði fjörlega og
voru KA-menn nálægt því að
skora strax á 2. mínútu. Gunnar
Már komst þá einn í gegn en
Ólafur Gottskálksson, mark-
vörður KR-inga, náði að verja.
Eftir þetta má segja að KR-ingar
hafi ráðið gangi mála lengst af í
hálfleiknum. KA-menn misstu
tökin á miðjunni og því var press-
an talsverð á þeirra svæði. Bæði
lið fengu ágæt færi, þótt KA-
menn hafi verið mun nær því að
skora þegar Gunnar Már átti skot
í stöng um miðbik hálfleiksins.
Mark KR-inga kom á 25. mín-
útu. KA-menn voru með boltann
á eigin vallarhelmingi og engin
hætta virtist á ferðum. Pavel fær
þá boltann og hlýtur að hafa ætl-
að að senda aftur á Hauk í mark-
inu. Ekki vildi þó betur til en svo
að Steinar Ingimundarson fær
boltann, þar sem hann stendur
talsvert fyrir innan KA-vörnina,
leikur framhjá Hauki og skorar.
Ótrúlega klaufalega að verki
staðið hjá Pavel.
Pað var mjög einkenríandrfyrir
leik KA-liðsins í fyrri hálfleikn-
um hversu lítið boltinn fékk að
ganga með jörðinn á imilli
manna. Lítil tengsl voru á milli
varnar og sóknar og því of mikið
um að varnarmenn kæmu isér í
vandræði þegar átti að fafla að
bera upp boltann. KA-rfienn
sóttu gegn stífri norðanátt,' sem
hafði talsverð áhrif á gang leiks-
ins.
Seinni hálfleikur fór líkí af stað
og sá fyrri nema hvað fyrstu færin
voru KR-inga. Eftir það tóku
KA-menn leikinn í sínar hendur
og uppskáru mark á 56. mínútu.
Aukaspyrna var þá dæmd á KR
við miðlínu. Boltinn barst inn í
teiginn og datt fyrir fætur Gunn-
ars Más sem skoraði gott mark
framhjá Ólafi í markinu. Vel að
verki staðið hjá Gunnari.
Það sem eftir lifði af hálfleikn-
um skiptust liðin á að sækja og
voru KA-menn ntun frískari upp
við markið. Þeir fengu hættulegri
færi og geta nagað sig í handar-
bökin fyrir að nýta þau ekki
betur. Pegar upp er staðið og
leikurinn skoðaður í heild, geta
bæði lið nokkuð vel við unað því
í raun hefði hvort liðið sem er
getað farið með sigur af hólmi.
Gunnar Gíslason lék manna best
fyrir KA í þessum leik, auk þess
sem Ormarr er alltaf hættulegur
þegar hann kemst á skrið. Hjá
KR spilar Atli Eðvaldsson stóra
rullu sem gríðarlega sterkur
skallamaður.
Lið KA: Haukur Bragason, Gunnar
Gíslason, Steingrímur Birgisson, Örn
Viðar Arnarson, Bjarni Jónsson, Gauti
Laxdal, Páll Gíslason (Árni Hermanns-
son 71. mín.), Pavel Vandas, Ormarr
Örlygsson (gult spjald), Sigþór Júlíusson
(Árni Þór Freysteinsson 82. mín.),
Gunnar Már Másson.
Lið KR:Ólafur Gottskálksson, Óskar
Þorvaldsson, Gunnar Oddsson, Þormóð-
ur Egilsson, Atli Eðvaldsson, Rúnar
Kristinsson, Heimir Guðjónsson, Sigurð-
ur Eyjólfsson (Einar Daníelsson 67.
mín.), Gunnar Skúlason, Ragnar Marg-
eirsson (gult spjald) (Sigurður Ómarsson
86. mín.), Steinar Ingimundarson.
Dómari:Gylfi Orrason.
Línuverðir:Ari Þórðarson og Þorsteinn
Árnason. SV
Úrslit:
Meistaramót íslands
í fijálsum íþróttum
- Sveinn Margeirsson UMSS setti íslandsmet
15,04 sek., l,61m, 9,66m, 26,98 sek., 5,46m,
Knattspyrna 3. deild:
Stólamir með Mt hús stiga
eftir sigur á Dalvíkingum
Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum (fyrri hluti) fór fram
á Varmárvelli í Mosfellsbæ
13.-14. júní.
Keppt var í tugþraut karla,
sjöþraut kvenna, 4x800 m boð-
hlaupi karla, 4x1500 m boðhlaupi
karla og 10000 m hlaupi karla.
Aukagreinar á mótinu voru
þrjár: Spjótkast karla, stangar-
stökk karla og 1500 m hlaup
drengja. Skagfirðingurinn Sveinn
Margeirsson, UMSS, setti
íslandsmet í piltaflokki (13-14
ára). Jón Stefánsson, UFA, sigr-
aði í 10000 m hlaupi karla. Hér
koma úrslit þriggja efstu í hverri
grein mótsins.
Tugþraut
1. Jón Arnar Magnússon, Umf.Gnúpverja
6942 stig
10,77 sek., 7,25m, 14,57m, l,97m, 51,21
sek., 14,72 sek., 39,06m, 4,25m, 53,44m, -
2. Friðgeir Halldórsson, USAH 6201 stig
11,96 sek., 6,48m, 12,61m, l,85m, 55,97 sek.
16,08 sek„ 37,64m„ 4,00m, 50,74m, 5:26,31
mín.
3. Stefán Pór Stefánsson, ÍR 5606 stig
11,75 sek„ 6,35m, 10,94m, l,76m, 54,66
sek„ 15,51 sek„ 31,50m, 3,20m, 44,56m,
5:52,61 mín.
Sjöþraut
1. Þuríður Ingvarsdóttir, Umf.Selfoss
4802 stig
34,32m, 2:25,39 mín.
2 Kristín Markúsdóttir, UMSB 3668 stig
17,41 sek„ l,43m, 8,70m, 28,64 sek„ 4,66m,
33,60m, 2:46,25 mín.
3. Guðný Sveinbjörnsdóttir, HSÞ 3535 stig
18,83 sek„ l,49m, 9,32m, 28,78 sek„ 4,90m,
31,72m, 2:54,10 mín.
4x800 m boðhlaup karla
1. A-sveit FH 8:16,25
2. Sveit ÍR 8:23,76
3. B-sveit FH 8:53,77
4x1500 m boðhlaup karla
1. A-sveit FH 17:27,8
2. B-sveit FH 18:51,4
10000 m hlaup karla
1. Jón Stefánsson, UFA 32:08,4
2. Bragi Sigurðsson, Ármanni 32:09,0
3. Sveinn Ernstsson, ÍR 32:46,8
Spjótkast karla
1. Sigurður Einarsson, Ármanni 78,46m
2. Þorsteinn R. Þórsson, UMSS 57,94m
3. ÓlafurGuðmundsson, Umf.Selfoss
43,94m
Stangarstökk karla
1. Sigurður T. Sigurðsson, FH 5,00m
2. Kristján Gissurarson, UMSE 4,60m
1500 m hlaup drengja
1. Jón Þór Þorvaldsson, UMSB 4:17,8
2. Sveinn Margeirsson, ÚMSS 4:18,6 íslmet.
Heil umferð var spiluð í
þriðju deild um helgina. Ná-
grannaliðin, Magni og Völs-
ungur, mættust á Grenivík og
fóru gestirnir með öll stigin
þaðan, eftir 1:0 sigur. Dalvík-
ingar fóru til Sauðárkróks og
töpuðu 1:3 fyrir heimamönn-
um, Grótta sigraði Skalla-
grím, 2:1, KS tapaði fyrir
Haukum, 0:3 og Þróttur N.
og Ægir gerðu markalaust
jafntefli
Bjarki og Pétur klára
Dalvíkinga
Dalvíkingar urðu að lúta í
lægra haldi fyrir Tindastóls-
mönnum þegar lið þeirra áttust
við á föstudagskvöld, 1:3. Dal-
víkingar byrjuðu heldur betur í
leiknum og komust yfir, 0:1,
með marki Ágústar Sigurðsson-
ar. Pétur Pétursson náði að
jafna eftir glæsilega sókn Stól-
anna og staðan í leikhléi var
1:1. Strax á fyrstu mínútum síð-
ari hálfleiks kom Bjarki Péturs-
son heimamönnum yfir og skor-
aði svo öðru sinni fyrir leiks-
lok.„Þetta eru mjög frískir
strákar hjá Dalvíkingum og
stigin eru ekki auðsótt til þeirra.
Sigurinn var sanngjarn en ég er
ekki ánægður með hvernig við
spilum,“ sagði Guðbjörn
Tryggvason, þjálfari Tindastóls.
Guðjón Guðmundsson, þjálf-
ari Dalvíkurliðsins, var ekki
sammála Guðbirni um að sigur-
inn hefði verið sanngjarn. „Við
vorum betri aðilinn í leiknum,
a.m.k. í fyrri hálfleik, og feng-
um færi sem við náðum ekki að
nýta. Ég er ósáttur við tapið en
var ánægður með margt í okkar
leik. Bræðurnir, Bjarki og
Pétur, kláruðu þetta fyrir þá,“
sagði Guðjón.
Völsungssigur á Magna
Völsungar halda áfram að
reita inn stig og í þetta> skipti
sóttu þeir þrjú stig inn á Greni-
vík. Leikurinn var jafn allt þar
til u.þ.b. fimm mínútur voru til
leiksloka að Sveinbjörn
Ásgrímsson skoraði fyrir
Völsung. Völsungar fengu þá
aukaspyrnu sem þeir tóku strax,
sendu inn fyrir og skoruðu.
Magnamenn áttuðu sig ekki fyrr
en markið var komið. Að sögn
Björns Olgeirssonar hefði sigur-
inn hæglega getað orðið mun
stærri. „Við fengum fullt af fær-
um til þess að skora en markið
kom bara alltof seint,“ sagði
Björn.
„Þeir áttu allt sem var í leikn-
um,“ sagði Nói Björnsson,
þjálfari Magna. „Ég er auðvitað
hundsvekktur að ná ekki að
hanga á jafnteflinu úr því sem
komið var en sigurinn hjá þeim
var sanngjarn og hefði getað
orðið stærri.“ Að sögn Nóa var
það helst markvarsla ísaks
Oddgeirssonar sem hélt liðinu á
floti.
Enn tap hjá KS
KS-ingar máttu þola tap í sín-
um fjórða leik í röð í íslands-
mótinu. Liðið fékk Hauka í
heimsókn og tapaði 1:3. Staðan
var 0:1 í leikhléi og þegar u.þ.b.
fimmtán mínútur voru til leiks-
loka skoruðu Haukar sitt annað
mark. Á síðustu mínútum leiks-
ins komu svo tvö mörk. Haukar
skoruðu úr víti en KS minnkaði
síðan muninn þegar venjulegur
tími var útrunninn.
Markaskorari fyrir KS var
Sigurður Benonísson. Guð-
mundur Valur Sigurðsson, Bogi
Pétursson og Þór Hinriksson
gerðu mörk Hauka. “Þetta var
mun betra hjá okkur en undan-
farið,“ sagði Hafþór Kolbeins-
son, leikmaður KS. „Við vorum
a.m.k. að skapa okkur færi. Við
höfum, fram að þessum leik,
ekki átt möguleika en nú var
sigur þeirra of stór,“ sagði Haf-
þór og var ekki bjartsýnn á
gengi liðsins í sumar.
Skallagrímur tapaði 1:2 fyrir
Gróttu og var mark Skallagríms
sjálfsmark. Mörk Gróttu gerði
Kristján Brooks.
Þróttur N. og Ægir gerðu
markalaust jafntefli í Nes-
kaupstað. SV
Þriðjudagur 16. júní 1992 - DAGUR - 9
Jón Haukur Brynjólfsson
Knattspyrna, 2. deild:
Leiftur vann Selfoss
- enn skorar Þorlákur
Þorlákur Árnason heldur áfram að
skora fyrir Leiftur.
Liði Dalvíkinga í 3. deild bætt-
ist góður liðsauki sl. laugardag
er Jónas Þór Guðmundsson
markmaður hjá KA tilkynnti
félagaskipti í UMFS og verður
hann löglegur með liðinu þeg-
ar það leikur gegn Þrótti N. á
Dalvík nk. laugardag. Jónas
sem er 24 ára hefur æft með
liði KA nú í vor en ekki verið í
hópnum.
Leiftursmenn gerðu góða ferð
til Selfoss um helgina þar sem
þeir báru sigurorð af heima-
mönnum, 0:3 í slökum leik.
Þorlákur Árnason skoraði öll
mörk Leifturs og var besti
maður Iiðsins.
„Við spiluðum ekki vel í leikn-
um og ég get því ekki verið
ánægður með annað en stigin,“
sagði Marteinn Geirsson, þjálfari
Heil umferð fór fram í fjórðu
deild C um helgina. Ungm.f
Neisti tapaði fyrir Hvöt, 1:3,
HSÞb tapaði fyrir Kormáki 0:2
og Þrymur og SM skildu jöfn,
1:1. Hvöt og Kormákur eru
efst með tvo sigra.
Þrymur-SM
“Við vorum mun sterkari og
Það er liði Dalvíkinga mikill
akkur að fá Jónas í sínar raðir en
liðið hefur aðeins haft einn
markmann í vor. Rósberg Ótt-
arsson sem varði mark Reynis á
Árskógsströnd í 3. deildinni í
fyrra var búinn að tilkynna
félagsskipti til Dalvíkur en hefur
ekki verið með í vor sökum
meiðsla. GG
Leifturs. Hann sagði að sínir
menn hefðu spilað ágætlega allt
þar til þeir skoruðu fyrsta markið
um miðjan fyrri hálfleik. „Eftir
að við skoruðum hættu menn að
einbeita sér að því að spila bolt-
anum.“ Baráttan varð allsráðandi
og mörg spjöld fóru á loft. Þor-
lákur Árnason gerði markið.
í síðari hálfleik var Selfossliðið
meira með boltann en náði ekki
4. deild C:
áttum að taka þá,“ sagði Sigur-
björn Viðarsson, þjálfari SM, um
leik þeirra við Þrym. Hann sagði
að leikurinn hefði verið illa leik-
inn og að þeir hefðu átt að skora
meira. Þrymur komst yfir í byrj-
un seinni hálfleiks, með marki
Atla Freys Sveinssonar úr víta-
spyrnu, en SM jafnaði 10 mínút-
um síðar. Donald Kelly skoraði
mark SM.
HSÞb-Kormákur
Kormáksmenn heimsóttu
HSÞb og unnu góðan sigur 0:2
eftir að jafnt hafði verið í leikhléi
0:0. Þegar fimm mínútur voru
liðnar af síðari hálfleik var víta-
spyrna dæmd á markvörð HSÞb-
manna og honum vikið af leik-
velli í kjölfarið. Kormáksmenn
skoruðu úr spyrnunni og bættu
svo við öðru marki eftir miðjan
hálfleikinn. Markaskorarar
Kormáks voru þeir Hörður
Guðjónsson og Albert Jónsson.
Neisti-Hvöt
Ungm.f. Neisti og Hvöt áttust
við um helgina og unnu þeir
að skapa sér færi. Það voru hins
vegar gestirnir sem skoruðu aftur
á 63. mínútu og þriðja markið
kom svo tíu mínútum síðar. Það
var besti maður liðsins í leiknum,
Þorlákur Árnason, sem sá um að
afgreiða knöttinn í netið í bæði
skiptin.
Næsti leikur Leiftursmanna
verður á föstudaginn og fá þeir
þá efsta lið deildarinnar, Fylki, í
heimsókn. SV
Sigurbjörn Viðarsson þjálfari SM.
síðarnefndu 1:3. Staðan var 0:0 í
leikhléi en Hvatarmenn skoruðu
þrjú mörk í seinni hálfleik. Neisti
náði svo að minnka muninn undir
lokin. Mörk Hvatar skoruðu þeir
Sigurður Ágústsson, 1 og Gísli
Gunnarsson, 2. Hasade Mirale
skoraði mark Neista. SV
Dalvíkingar fá liðsauka frá KA:
Jónas Þór Guðmundsson
markmaður hefur félagaskipti
Koraiákur og Hvöt efst
Aflraunameistari íslands:
Keppnisgreinamar kynntar
Eins og kunnugt er verður
keppt um titilinn Afírauna-
mcistari íslands á Akureyri 17.
júní. Verðlaun á mótinu eru
gefín af Gullsmíðastofunni
Skart og er það 30 kflóa silfur-
slegin stuðlabergsstytta.
Mótið fer fram á þremur
stöðum í bænum og hefst við
íþróttahöllina stundvíslega
klukkan 15.30. Þar fer ein
grein fram. Hálftíma síðar
skeiða tröllin inn í garðinn við
Sundlaug Akureyrar þar sem
keppt verður í fímm greinum.
Að síðustu verður svo farið í
kirkjutröppurnar og endað þar
á einni grein. Hér munum við
kynna keppnisgreinarnar sjö.
1. Trukkadráttur:
Greinin fer fram á planinu við
íþróttahöllina og hefst kl. 15.30.
Hér verður dreginn einn af stóru
Kókbílunum frá Vífilfelli.
Aðeins einn keppandi þreytir
hlaupið í einu og er keppt við
klukkuna. Kraftakarlarnir verða
settir í hlutverk múldýra, verða
beislaðir og eiga að hlaupa litla
30 metra með 5-6 tonna trukkinn
í eftirdragi. Hér er það styrkur í
fótum sem hefur mest að segja.
Keppendum er ráðlegra að
geyma ballskóna heima.
2. Armlyfta:
Þessi grein fer fram í Sundlaug-
argarðinum og hefst kl. 16.00.
Keppnin fer þannig fram að
menn þurfa að halda 25 lítrum af
mjólk út frá sér með beinum
örmum. Rass og herðar verða að
vera upp við stoð og mjólkin má
ekki síga nema 10 sm. Mjólkin
verður í ílátum til þess að hún
sullist ekki um allt.
3. Steinkúluhleðsla:
Hér er þrautin fólgin í því að
lyfta 4 hnöttóttum steinum, sem
Möl og sandur hafa gert, upp á
tunnur. Steinarnir eru misþungir,
fyrsti 90 kg., annar 110 kg., þriðji
130 kg. og fjórði 140 kíló. Þeir
verða að fara upp á tunnurnar í
þessari röð og er keppt við klukk-
una. Aðeins þrír steinar voru
notaðir í fyrra og var Andrés
Guðmundsson fljótastur að vippa
þeim upp á tunnurnar, 7,11 sek.
Sá sem þurfti lengstan tíma í
þetta í fyrra tók sér eina mínútu í
þessa smámuni.
4. Bfldráttur á höndum:
Þessi grein hefst kl. 17.00 og
þurfa kapparnir að draga eitt
stykki Pajero jeppa frá Höldur
sf. Keppendur sitja, spyrna fót-
um í bjálka og þurfa að draga bíl-
inn 30 metra. Hér er mikil áreyn-
sla á handleggi og axlir.
5. Islandsbankaganga:
Þetta er gríðarlega erfið grein þar
sem keppendur þurfa að ganga
með tvo 90 kílóa bauka, sinn í
hvorri hönd. Hér verða gengnar
allar sparileiðir þeirra Islands-
bankamanna og sá sem kemst
lengst í sparnaðinum vinnur.
Menn geta gengið fram og til
baka, svo lengi sem þeir hafa
þrek til þess að spara. Þessi grein
þykir ákaflega hentug fyrir þá
sem hafa stutta handleggi.
6. Hleðslukeppni:
Hér keppa tveir og tveir og hefur
hvor tvö fiskiker frá Sæplasti.
Fiskikerum beggja verður stillt
upp þannig að 10-15 metrar
verða á milli kera hvors um sig. í
öðru keri hvors keppanda verða
fjórir hlutir sem þarf að ferja yfir
í hitt karið. Hlutirnir sem ferja
þarf eru frá Sandfelli: Landfest-
artóg (87 kíló), línubelgur (fyllt-
ur með 75 lítrum af vatni), línu-
balli (63 kíló) og vörubílsdekk af
stærstu gerð frá Gúmmí-
vinnustofunni (70-80 kíló). Hér
þurfa menn, með einhverjum
ráðum, að taka hlutina upp úr
öðru kerinu og hlaupa með þá
yfir í hitt. Líklega er það með
ráðum gert að hafa þessa kepp-
nisgrein á eftir þeirri þar sem
handleggirnir lengjast sem mest.
7. Kirkjutröppuhlaupið:
Þessa grein þarf varla að kynna
nánar en eðli málsins samkvæmt
þarf hún að fara fram í kirkjutr-
öppunum. Greinin er sú síðasta í
mótinu og hefst klukkan 18.45.
Hlaupið er upp allar tröppurnar
með 50 kílóa poka á herðunum.
SV