Dagur - 07.07.1992, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 7. júlí 1992
A-lið KA sigraði á Pollamóti
Þórs og Flugleiða sem fram fór
á grasvöllum félagsins við
Hamar sl. föstudag og laugar-
dag. KA sigraði lið ÍR í
bráðabana í vítaspyrnukeppni
5:4. B-lið Þróttar úr Reykjavík
hafnaði í þriðja sæti eftir sigur
á B-liði KR 2:1. Pollamótið er
fyrir 30 ára og eldri og var því
slitið formlega i Sjallanum á
laugardagskvöld, þar sem voru
samankomnir hátt í 500 gestir í
mat, leikmenn, konur og að-
stoðarmenn. Þar voru einnig
útefndir bestu menn mótsins
og persónuleiki mótsins.
Veislustjóri var Bjarni Hafþór
Helgason, fréttamaður og
leikmaður með A-liði Þórs.
Fáir þátttakendur á Pollamót-
um hafa lagt eins hart að sér að
:
Pollamót Þórs og Flugleiða í knattspyrnu:
A-lið KA sigraði lið ÍR í úrslitaleik
- um 450 knattspyrnumenn mættu til leiks að þessu sinni
Völsungar mættu með harðskeytt lið til leiks og hér eru þeir í baráttu við C-
lið Þcrs, sem einnig var skipað miklum harðjöxlum.
verða markakóngur og Bjarni
Hafþór en samkvæmt því Dag-
ur kemst næst, skoraði hann
aðeins tvö mörk að þessu sinni
og voru þau bæði af ódýrari
gerðinni. Þó má geta í fram-
hjáhlaupi að Bjarni Hafþór
varð markakóngur á fyrsta
Pollamótinu og var þá jafn-
framt valinn besti sóknarmað-
urinn. Síðan þá hefur mikið
vatn runnið til sjávar, þó hann
hafi sjálfur verið á öðru máli í
veislustj órahlut verkinu.
Árni Stefánsson úr Tindastóli,
var valinn besti markvörður
mótsins, Erlingur Kristjánsson úr
KA var valinn besti varnarmað-
urinn og Páll Rafnsson úr ÍR
besti sóknarmaðurinn. Marka-
kóngur mótsins varð hins vegar
Bjarni Kristjánsson úr Austra á
Eskifirði en hann skoraði 13
mörk.
Séra Pétur Þórarinsson var val-
Talið er að á milli 750-800 manns hafi mætt í grillveisluna við Hamar á föstu-
dagskvöld og var mikill handagangur í öskjunni.
Þátttakendur eru misjafnlega miklir
um miðjuna og Hafsteinn Ellerts-
son, Haukamaður, lét sér nægja að
stjórna liði sínu frá hliðarlínunni.
Séra Pétur Þórarinsson var valinn „Persónuleiki mótsins“ ásamt félögum
sínum í B-liði Þórs. Gínan á myndinni var staðgengill Péturs á mótinu og
stóð hún fyllilega fyrir sínu.
inn „Persónuleiki mótsins" ásamt
félögum sínum i B-liði Þórs,
þrátt fyrir að hafa komið frekar
lítið við sögu í eigin persónu.
Hins vegar sá staðgengill Péturs
(uppáklædd gína) til þess að
hann hlyti þessa nafnbót ásamt
félögum sínurn.
Um 40 lið mættu til leiks að
þessu sinni, með um 450 kepp-
endur, eða fleiri en nokkru sinni í
fjögurra ára sögu mótsins. Leikið
var í 6 riðlum og komust 32 lið
áfram og var leikið með útslátt-
arfyrirkomulagi fram að undan-
úrslitum. Liðin sem sfðan töpuðu
í undanúrslitum léku um þriðja
sætið en sigurliðin um það fyrsta.
Sem fyrr sagði var það KA sem
hampaði Pollameistarabikarnum
að þessu sinni.
A föstudagskvöld var haldin
heljar mikil grillveisla við Hamar
og þar voru mættir um 750-800
manns, bæði börn og fullorðnir.
Næsta ár, á fimm ára afmæli
Pollamótsins er stefnt að því að
bjóða einnig upp á sérstakan riðil
fyrir 40 ára og eldri. -KK
Oddur Halldórsson, markvörður B-liðs Þórs var með réttu græjurnar en
hann fékk þó sennilega fleiri mörk á sig en nokkur annar markvörður á mót-
inu. Hér hallar hann sér upp að staðgengli sr. Péturs, eftir stórtap gegn A-
liði KR.
Bjarni Hafþór Helgason, leikmaður með B-liði Þórs og veislustjóri á Ioka-
hófínu, í harðri baráttu við Andrés Pétursson leikmann Breiðabliks.
Ellert B. Schram, forseti ISI, lét sig ekki vanta á Pollamótið. Hann stjórnaði
A-liði KR (sem var dulbúið á mótinu sem B-lið) sem hafnaði í fjórða sæti á
mótinu. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem Ellert kemst ekki á verðlaunanall
n DnllnmAi: *