Dagur - 07.07.1992, Síða 7

Dagur - 07.07.1992, Síða 7
Þriðjudagur 7. júlí 1992 - DAGUR - 7 Mjólkurbikarinn: Bikarslagur Akureyrarliðanna Sigmundur Þórisson, formaður KA: KA vinnur að sjálfsögðu, en sú spurning. Gunnar Már og Arni Hermanns skora. Þetta er engin spurning. Erlingur Kristjánsson: Það er leiðinlegt fyrir Þór að lenda strax á okkur KA-mönnum því við vinnum í vítaspyrnukeppni. Þeir eiga ekki séns í okkur í vítunum. Hinrik Þórhallsson, liðsstjóri KA: Við komum brjálaðir í leikinn og ætlum að sýna að við erum 1. deildar lið, og stöndum undir merkjum. Nei, ég vil ekki ræða vítaspyrnukeppnina 1987. Við skulum frekar tala um veðrið. Magnús Sigurólason, dómari: KA vinnur 3:2, ekki spurning. Hverjir skora? Ormarr, Gunnar Már og Bjarni Jóns. Bjarni Sveinbjörns og Júlíus Tryggva skora fyrir Þór. - ráðast úrslitin í vítaspyrnukeppni eins og 1987? Erkifjendurnir, Þór og KA, mætast í 16-liða úrslitum í Mjólkurbikarnum í kvöld. Það lið sem tapar er úr leik og því er óhætt að búast við að hart verði harist og allt lagt í sölurn- ar til þess að knýja fram sigur. Liðin mættust í sömu úrslitum árið 1987 og þá höfðu Þórsarar betur eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni. Leikurinn hefst klukkan 20 á Akureyrar- velli. Þegar Dagur ræddi við þjálfara liðanna, eftir að ljóst var að þau myndu spila saman, voru þeir sammála um að það væri kostur að þurfa ekki að fara úr bænum. Leikir liðanna eru ávallt miklir stemmningsleikir, jafnt í herbúð- um leikmanna sem áhorfenda. „Þetta verður jafn og spenn- andi leikur og væntanlega dæmi- gerður stressleikur eins og allir þessir KA og Þórs leikir. Við vinnum með einu marki. Ég held að við ættum ekki að vera að þreyta okkur á því að spila fram- lengingu og því klárum við þetta í leiknum sjálfum," sagði Halldór Áskelsson, leikmaður Þórs. „Þetta leggst mjög vel í okkur KA-menn,“ sagði Bjarni Jóns- son, fyrirliði KA. „Þetta verður fjörugur leikur eins og allir bikar- leikir og okkur finnst vera kom- inn tími á það að við rífum okkur uppúr því sleni sem verið hefur á okkur. Við gerum allt til þess að knýja fram sigur. Það er kominn tími á okkur,“ sagði Bjarni. Eins og áður sagði hefst leikur- inn klukkan 20 í kvöld og er ástæða til þess að hvetja fólk til þess að mæta snemma til þess að standa ekki í biðröð langt fram eftir leik. SV „Ég flutti að vísu úr bænum“ - sagði Friðfmnur Hermannsson sem brenndi af vítaspyrnu fyrir KA, þegar Þór og KA léku síðast í bikarnum Eins og fram hefur komið spil- uðu KA og Þór í Mjólkurbik- arkeppninni í 16-Iiða úrslitum árið 1987. Þá var staðan jöfn eftir venjulegan leiktíma og þurfti framlengingu og að henni lokinni vítaspyrnukeppni. Þórsarar skoruðu úr öllum sín- um en einn var sá maður í KA- liðinu sem ekki náði að skora og KA þar með úr keppni. Friðfinnur Hermannsson lék þá með liðinu og lét Baldvin Guðmundsson, sem þá var í marki Þórs, verja frá sér. „Þetta eru sérlega ljúfar endurminningar sem þú ert að fá mig til þess að kalla fram,“ sagði Friðfinnur, þegar blaðamaður sló á þráðinn til hans og bað hann að rifja þetta atvik upp. „Ég held að ég hafi tekið ann- að vítið, Árni Þór Freysteinsson tók það fyrsta og fékk að endur- taka vegna þess að Baldvin var búinn að hreyfa sig í markinu. Þegar ég skaut þá hreyfði hann sig u.þ.b. 15 sinnum meira og varði þessa líka glæsilegu spyrnu frá mér,“ sagði Friðfinnur og hló við. Hann sagði þetta ekki hafa verið neitt rosalegt áfall fyrir sig. „Ég flutli að vísu úr bænum eftir þetta og sé ekki alveg fyrir mér að ég setjist hér að í bráð. Að öðru leyti hefur þetta ekki haft áhrif á líf mitt.“ Aðspurður út í það hvernig leikur liðanna fari í kvöld sagði Friðfinnur að staðan yrði jöfn eftir venjulegan leik- tíma og framlengingu, 2:2 en KA myndi ná að sigra eftir víta- spyrnukeppni, 7:6. „Það verður að öllum líkindum Dóri Áskels sem brennir af í síðustu spyrn- unni í leiknum," sagði Friðfinnur og bætti því við að hann vonaði að Dóri myndi fyrirgefa sér þenn- an spádóm. SV Friðfinnur Hcrinannsson æflr af kappi ef hann yrði fenginn til að taka víti í kvöld. Mynd: sv Aðalstcinn Sigurgeirsson, for- niaður Þórs: Það kemur enginn á völlinn ef ég segi bæði hverjir skora og hvernig leikurinn fer. Jæja þá, Þór vinnur. 3:1 og það verður 1:1 í leikhléi. Bjarni Sveinbjörns, Júlíus Tryggva og Dóri Áskels skora fyrir Þór. Nói Björnsson: Ég hef fulla trú á mínum mönnum og þeir vinna 3:1. Bjarni Sveinbjörns skorar öll. Oddur Óskarsson, liðsstjóri Þórs: Þór vinnur 3:1 og Bjarni og Dóri skora fyrir Þór og Palli Gísla fyrir KA. Nei, ég held að það verði engin vítaspyrnukeppni. Sigurbjörn Viðarsson: Þetta verður hörkuleikur en Þór vinnur 2:1. Bjarni og Orri skora fyrir Þór.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.