Dagur - 24.07.1992, Side 3

Dagur - 24.07.1992, Side 3
Föstudagur 24. júlí 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Jarðskjálftinn úti fyrir Norðurlandi sl. miðvikudagskvöld: Hugsanleg tengsl við öflugan jarð- skjálfla norður á Svalbarða á dögunmn Ragnar Stefánsson, jarðskjálfta- fræðingur, útilokar ekki að tengsl séu á milii jarðskjálftans sem varð á Norðurlandi sl. miðvikudagskvöld og kröftugs jarðskjálfta norður á Sval- barða á dögunum. Þá segir hann heldur ekki hægt að úti- loka að einhver tengsl séu á milli skjálftans og umbrota í Hveragerði og nágrenni og Kötlu að undanförnu. Nákvæmlega kl. 22.41 sl. mið- vikudagskvöld skalf jörð á Norðurlandi og samkvæmt upp- lýsingum jarðskjálftadeildar ÓlafsQörður: Iisa María farín á veiðar Fjölveiðiskipið Lísa María ÓF- 26 sem legið hefur í heimahöfn í Ólafsfirði á annan mánuð hélt fyrir nokkrum dögum til línu- veiða austur með landinu og hefur verið „kropp“ að sögn Núma Jóhannssonar skip- stjóra. Skipið getur einnig ver- ið á togveiðum eða á snurvoð. Lísa María er búin þremur fiskvinnslulínum sem allar geta verið í gangi í einu og þær eru heilfrysting, flakafrysting og saltfiskvinnsla. Fyrst um sinn verður aflinn flakaður og frystur. Áhöfnin mun einbeita sér að þeirri vinnsluað- ferð á meðan verið er að læra handbrögðin, en nánast engin af áhöfninni hefur unnið í frystihúsi utan matsmaðurinn. Skipið hefur nú um 400 þorskígildis kvóta en unnið hefur verið að því að útvega kvóta með kaupum á trill- um og bátum en þeim málum er ekki öllum lokið. Útgerðin keypti m.a. Stakka- vík frá Eyrarbakka, sem var síð- an úreltur og fékkst með honum svokallaður „aumingjakvóti" auk einhverra uppbóta, alls um 50 tonn. GG - segir Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðingur Veðurstofu íslands í gær eru upptök skjálftans, sem mældist 4,5 stig á Richter-kvarða, talin vera um 30 kílómetra norðvestur af Siglufirði. Skjálftinn fannst víða á Norðurlandi og sagði Ragnar Stefánsson að tilkynning- ar hafi komið allt frá Húsavík í austri til Hvammstanga í vestri. Þá hafi skjálftinn fundist langt inni í Eyjafjarðardölum, um 30 km suður af Akureyri, en trúiega hafi hann verið hvað snarpastur á Siglufirði, Ólafsfirði og í Fljótum. Ekki hafa borist neinar fréttir af skemmdum af völdum skjálftans, enda var hann ekki það kröftugur að búast mætti við tjóni. Margir snarpir kippir á þessum slóðum fyrr á öldinni Þann 27. mars 1963 varð kröftug- ur jarðskjálfti (sjö stig á Riehter) á svipuðum slóðum. Upptök þess skjálfta voru þó ívið vestar en skjálftans sl. miðvikudagskvöld. í heimildum af skjálftanum 1963 segir að fólk næst upptökunum hafi margt orðið óttaslegið og sumir hafi flúið hús sín af þeim sökum. „Skjálftinn á miðviku- dagskvöldið var ósköp venjuleg- ur brotaskjálfti, en miklu minni en árið 1963. Hafsvæðið fyrir norðan land er þekkt spennu- svæði og þar virðist mega greina þrjár skásprungur, ef svo má að orði komast, með vestnorðvest- læga stefnu. Ein línan gengur frá Skagafjarðarsvæðinu og með stefnu á Dalvík, önnur er meira fyrir niynni Eyjafjarðar og inn á Skjálfanda og þriðja línan er svo frá Grímsey austur í Öxarfjörð," sagði Ragnar. Vitað er um fjöldann allan af snörpum skjáftum fyrir Norður- landi. Kópaskers-skjálftinn árið 1976 var 6,5 á Richter og aðrir snarpir skjálftar á þessari öld voru við Dalvík 1934, 7,1 stiga skjálfti norður af Tjörnesi árið 1910, 6,25 stiga skjálfti norður á 65. breiddargráðu árið 1921 og 6 stiga skjálfti á Richter árið 1913 djúpt úti fyrir Skagafirði. „Það var reyndar skjálftahrina á svip- uðum slóðum norður af Siglufirði árið 1947 og var stærð þcirra á bilinu 4-4,5 stig á Richter. Árið 1921 var einnig skjálfti á þessu svæði og stærð hans var um 4,8 stig,“ sagði Ragnar. Spurningalisti verður sendur út Jarðskjálftadeild Veðurstofunnar mun senda út spurningalista til fjölda fólks á Norðurlandi, sem valið er í handahófsúrtaki, þar sem það verður beðið að gefa ýmsar upplýsingar um skjálftann sl. miðvikudagskvöld. Þetta er gert til þess að vísindamenn geti fengið eins glögga mynd og unnt er af þessum jarðhræringum, ekki síst til þess að bera saman við fyrri skjálfta á þessum slóðum. Ragnar sagði að þessi skjálfti þyrfti ekki að boða „eftirmála“, en reyndar fylgdi oft annar skjálfti í kjölfarið slíks brota- skjálfta. „En það hefur ekkert borið á framhaldi af þessum skjálfta og það dregur úr líkun- um þegar frá líður. Reyndar er það svo að framhald gæti orðið allt annars staðar. Það er ekki óvenjulegt að orðið hafi jarð- skjálfti á Norður- og Suðurlandi á nokkurn veginn sama tíma. Athyglisvert er að á dögunum varð kröftugur jarðskjálfti norð- ur við Spitzbergen (stærsta eyjan á Svalbarða - innsk. blaðam.), sem var óvenjulega öflugur á þeim slóðum, eða um 6,5 á Richterkvarða. Hugsanlega eru tengsl milli þess skjálfta og skjálftans á miðvikudagskvöldið. Einnig gæti hann tengst skjálft- unum í Hveragerði og hreyfing- unum í Kötlu fyrir skömmu. En það er auðvitað erfitt að ákvarða slík sambönd," sagði Ragnar. óþh Grænlandsflug Flugfélags Norðurlands: „Við erum búnir að rækta svolítinn markað" - segir Sigurður Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Flugfélag Norðurlands hefur um langt skeið flogið til Græn- lands í leiguflugi. Mest er flog- ið að sumrinu, allt að 3-4 ferðir á dag þegar mest er. Einnig er flogið innanlands í Grænlandi. Sigurður Aðalsteinsson fram- kvæmdastjóri Flugfélags Norður- lands segir að þessi markaður sé orðinn nokkuð stöðugur. Flugfé- lagið hóf leiguflug til Grænlands 1971. Það fór hægt af stað, en nú er flogið til Grænlands allan árs- ins hring, mest tvo mánuði að sumrinu og þá oft fleiri en eina ferð á dag. Þeir sem nýta sér þessa þjónustu eru helst opinber- ir aðilar, bæði danskir og græn- lenskir, vísindamenn af ýmsu þjóðerni og „sportleiðangrar" eins og Sigurður nefnir þá, eða hópar ævintýramanna sem fara til að klifra fjöll o.þ.h. Einnig er flogið með vísindamenn innan- lands í Grænlandi. Sigurður kvað ísland liggja vel við flugleið til Grænlands. Það sé þægilegra að fljúga fyrst til ís- lands, heldur en frá Danmörku og á vesturströnd Grænlands, enda séu þær áætlunarferðir strjálar. Oftast er flogið til norður- og austurstrandarinnar, einnig lítils- háttar á vesturströndina. „Við erum búnir að rækta svolítinn rnarkað þar sem hægt er að koma Twin Otter við, því við lendum ekki bara á þessum flugvöllum, sem eru nú mjög fáir á austur- ströndinni, heldur lendum við líka svona hér og hvar, búnir að koma okkur upp smá völlum á mörgum stöðum.“ Twin Otter vélarnar geta lent við nokkuð frumstæðar aðstæður, en Flugfé- lag Norðurlands er með þrjár slíkar í Grænlandsfluginu, auk Metro vélar. sþ Kalduskítur hefur hamlað sjósókn frá Grímsey að undanförnu. í gær var hitastigið um 8 gráður og Prófasturinn, pylsuskúrinn nafntogaði, var baðað- ur sólskini. Vindlundinn hreykti sér á stafninum, en cnginn var við lúguopið. Allir bátar voru á sjó að eltast við þann gula og viðskiptavinirnir því víðs- fjarri. Á miðvikudag bárust á land sjö tonn af þeim fáu bátum er réru. Fyrir brælu voru um 40 bátar að veiðum frá Grímsey, en þeir eru færri nú þar sem allir Eyjafjarðarbátarnir fóru heim er brældi. Mynd: þom Dalvík: Rífandi gangur við sundlaugarbyggingu Rífandi gangur er í byggingu þjónustuhúsnæðis fyrir íþróttasvæðið og vænt- anlega sundlaug á Dalvík. Húsið verður staðsett fyrir vestan nýja íþróttavöll- inn sem tekinn var í notkun á dögunum. Framkvæmdir við sundlaugina sjálfa hefjast á næsta ári. Mynd: Goiii Ólafs^örður: Ný bensínstöð opnuð í dag í dag verður opnuð ný bcnsín- stöð í Ólafsflrði. Stöðin er í eigu Olís og er í sama húsi og Video-skann - við hliðina á bensínstöð Skeljungs. Beint á móti nýju bensínstöðinni, hin- um megin við götuna, eru svo tankar frá Esso. Skúli Pálsson, sölumaður Olís, segist telja að markaður sé fyrir nýja bensínstöð í Ólafsfirði og kvíðir ekki samkeppninni. „Vill ekki fólk hjálpa til við að græða upp landið? Það rennur viss hluti af andvirði allrar bensínsölu Olís til gróðurverndar og það er gott málefni sem ég held að fólk vilji styrkja.“ Skúli neitaði því að í uppsigl- ingu væri „bensínstríð" á staðnum. „Við höfum lifað í sátt og samlyndi við Stína og gerum það eflaust áfram,“ sagði hann og Lögreglan á Húsavík hefur klippt númer af 20 bílum undanfarna tvo daga og hafa eigendur þeirra verið komnir vel yfir frestinn með að færa bíla sína til skoðunar á tilskyld- um tíma. benti yfir til bensínstöðvar Skeljungs. Til stendur að færa þá stöð og verður hún í framtíðinni staðsett við hlið Hótels Ólafs- fjarðar. JHB Á miðvikudag var klippt af 12 bílum í Mývatnssveit, Aðaldal og Reykjadal og í gærmorgun misstu átta bíleigendur á Húsa- vík númer sín í hendur löggæslu- manna. IM Suður-Þingeyj arsýsla: 20 ökutæki úr umferð

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.