Dagur


Dagur - 24.07.1992, Qupperneq 6

Dagur - 24.07.1992, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Föstudagur 24. júlí 1992 Hvað er að gerast? Tónlist Akureyri - Dalvík: Gítartónleikar Kristins og Einars Kristinn H. Árnason og Einar Kr. Einarsson, gítarleikarar, halda tón- leika í kapellu Akureyrarkirkju í kvöld, föstudaginn 24. júlí kl. 20.30. Annað kvöld kl. 21 heldur Kristinn tónleika í Dalvíkurkirkju. Á efnisskránni eru verk eftir Milan, Bach, Henze, Giuliani, Martin og Rodrigo. Sigurður, Óskar og Þórir á Fiðl- aranum í kvöld Þeir Sigurður Flosason, saxafón, Óskar Einarsson, píanó og Þórir Jóhannsson, kontrabassa, leika fyrir matargesti Fiðlarans á Akureyri í kvöld. Á matseðlinum er graflax með hunangssinnepssósu, súpa saxafónleikarans, lambagrillsneiðar með gráðostsósu, skelflettir humar- halar í brauðdeigskænu, svínarifja- steik að hætti píanistans og kontra- bassa hnetu- og kirsuberjaís með núggatbitum. Frjálst val er um þrjá rétti, forrétt, aðalrétt og eftirrétt fyrir kr. 2.400. Þúsund andlit í Tjamarborg Hljómsveitin Þúsund andlit ásamt söngkonunni Sigrúnu Evu Ár- mannsdóttur verður með barna- og fjölskyldutónleika í félagsheimilinu Tjarnarborg í Ólafsfirði annað kvöld, laugardagskvöld, kl. 20. Frá kl. 23 til 03 verður hljómsveitin síð- an með dansleik í Tjarnarborg. Norðurland: CapeUa Media á sumartónleikum Sumartónleikar á Norðurlandi halda fjórðu tónleikaröð sína um helgina. Að þessu sinni sér tónlistar- hópurinn Capella Media um tónlist- Lesendahornið arflutninginn. Capella Media er hópur fimm hljóðfæraleikara og söngvara sem flytja verk frá renaissance-tímabil- inu á upprunaleg hljóðfæri. í hópn- um eru þau Rannveig Sif Sigurðar- dóttir, sópran, Sverrir Guðjónsson, kontratenór, Christine Heinrich, víóla da gamba, Klaus Hölzle, lúta og Stefan Klar, lúta, therorba og blokkflauta. Þau hafa starfað í einni og annarri mynd frá árinu 1987 og þrjú þeirra léku á Sumartónleikum á Norðausturlandi árið 1989. Capella Media verða í Húsavík- urkirkju í kvöld, föstudaginn 24. júlí kl. 20.30, í Reykjahlíðarkirkju við Mývatn annað kvöld kl. 20.30, í Lundarbrekkukirkju í Bárðardal á sunnudag kl. 14 og kl. 17 sama dag í Akureyrarkirkju. í næstu viku verð- ur Capella Media einnig með tón- leika á Egilsstöðum og í Reykjavík. Efnisskráin ber yfirskriftina: „Ensk tónlist frá 17. öld“ og m.a. eru þar verk eftir tónskáldin Dowland, Hume, Coperario og Batlet. í tengslum við tónleikana í Lund- arbrekkukirkju verður kaffihlað- borð að Hótel Kiðagili í Bárðardal kl. 15 og ennfremur býður Hótel KEA á Akureyri upp á sérstakan tónleikamatseðil að kvöldi sama dags. Aðgangur eru ókeypis á alla tón- leikana. Geirmundur á Hótel KEA Sveiflukóngurinn Geirmundur Val- týsson og hljómsveit hans sjá um fjörið á Hótel KEA á Akureyri ann- að kvöld. Arnhildur Valgarðsdóttir leikur Ijúfa dinnertónlist fyrir mat- argesti. Borðapantanir í síma 22200. Stjórnin í SjaUanum annað kvöld í dag kl. 9 árdegis hefst útsending úr Sjallanum á þætti þeirra fóstbræðra Jóns Axels Ólafssonar og Gunn- laugs Helgasonar á Bylgjunni. Hús- ið verður opið þeim sem áhuga hafa að kynna sér störf þessara vinsælu útvarpsmanna. í kvöld stjórna síðan þeir Jón Axel og Gunnlaugur dúnd- urdansleik fram á nótt. Annað kvöld leikur Stjórnin fyrir gesti Sjallans. Ýmislegt Björn Ágústsson, fulltrúi kaupfé- lagsstjóra Kaupfélags Héraðsbúa (t.v.) og Hermann Níelsson, for- maður knattspyrnudeildar Hattar, handsala styrktarsamning kaupfé- lagsins við knattspyrnudeildina. Pollamót í Hallormsstaðaskógi Laugardaginn 25. júlí og sunnudag- inn 26. júlí nk. verður haldið í Hall- ormsstaðaskógi knattspyrnumót 6. flokks, Pollamót Kaupfélags Hér- aðsbúa. Mótið er opið öllum íþróttafélögum og búist er við liðurn víðs vegar af landinu. Náttúrufeg- urð Hallormsstaðaskógar er óþarfi að kynna og verður án efa mikið ævintýri að keppa í slíku umhverfi. Mótið hefst kl. 11 á laugardaginn. Um kvöldið verður haldin kvöld- vaka við Lagarfljót þar sem grillað verður og farið í leiki. Kaupfélag Héraðsbúa, sem hefur styrkt fþrótta- og félagsstarf á Egils- stöðum á liðnum árum, er stuðn- ingsaðili mótsins. Vonast er til að um árvissan viðburð verði að ræða. Sósarinn ’92: Úrslitin fást á Akureyri Úrslit í uppskriftasamkeppni Bylgj- unnar/Stöðvar 2, Sósaranum ’92, fást í göngugötunni á Akureyri á laugardaginn kl. 14-15. Tíu manna dómnefnd mun smakka þær ellefu grillsósur sem komust í úrslit og kveða upp dóm. Einhverjar uppá- komur verða samhliða og munu Jón Axel og Gulli Helga slá á létta strengi. Fyrstu verðlaun í Sósaranum '92 er tíu manna grillveisla frá Argen- tína-steikhúsi. Af öðrum verðlaun- um má nefna fullkomið grill, árs- birgðir af Hunt’s sósum og grísa- körfur. Bylgjan og Stöð 2 verða sem sagt fyrir norðan um helgina og ætti það ekki að fara framhjá neinum. Hátíðisdagar hestamanna á Melgerðismelum Hátíðisdagar hestafólks verða á Melgerðismelum í Eyjafjarðarsveit um helgina. Á morgun verður for- keppni í A og B-flokk gæðinga og yngri og eldri flokki unglinga. Klukkan 16.30 verða kappreiðar, 350 m stökk, 250 m stökk, 150 skeið og 300 m brokk. Klukkan 18.30 verður kvöldvaka, grillveisla, sveitakeppni, reiðtúr og síðan verð- ur dansað fram eftir nóttu. Á sunnudag verður tölt og for- keppni kl. 13. Tveim tímum síðar verða úrslit í A og B-flokki gæð- inga, í báðum unglingaflokkum og tölti. Hátíðisdögunum lýkur síðan um kl. 17. Skemmtisiglingar Fagranessins um Ejjaflörð M/S Fagranes verður í skemmtisigl- ingum um Eyjafjörð um helgina. I kvöld, föstudagskvöld, og annað kvöld kl. 20 verður boðið upp á þriggja tíma skemmtisiglingu um Eyjafjörð. Á sunnudag kl. 14 og 17 veröur boðið upp á fjölskylduferð, sem samanstendur af skemmtisigl- ingu og sjóstangaveiði. Kynningar- afsláttur verður þennan dag, 500 krónur fyrir börn og 900 krónur fyr- ir fullorðna. Brottför verður frá Torfunefs- bryggju á Akureyri. Upplýsingar eru veittar í síma 985-3Í735 og á ferðaskrifstofum, hótelum og gisti- heimilum. Skákfélag Akureyrar: Júlíhraðskákmót Júlíhraðskákmót Skákfélags Akur- eyrar verður haldið í skákheimilinu við Þingvallastræti næstkomandi sunnudag og hefst kl. 14. Allir eru velkomnir. Þá er á döfinni hjá Skákfélaginu að halda útihraðskákmót í göngu- götunni og gæti það orðið í dag ef veður verður gott, annars einhvern góðan föstudag í náinni framtíð. Kvikmyndir íslands- frumsýning á Varnarlaus í Borgarbíói í kvöld kl. 21 frumsýnir Borgarbíó á Akureyri á íslandi spennumyndina Varnarlaus. Myndin verður sýnd annað kvöld og á sunnudagskvöldið á sama tíma. Ognareðli, sem heldur áfram að sópa til sín áhorfendum, verður sýnd um helgina kl. 22.45. Á sekúndubroti verður sýnd kl. 21 og Strákarnir í hverfinu kl. 23. A barnasýningum á sunnudag kl. 15 verða sýndar myndirnar Benni og Birta í Ástralíu og Fievel goes west. í tilefni af umdeildum ofaníburði í Mývatnssveit: „Ekki vil ég sitja hjá og þegja“ Hver er konan á myndinni? Böðvar Jónsson, bóndi að Gautlöndum í Mývatnssveit hringdi og sagði eftirfarandi: „Ekki vil ég sitja hjá og þegja þegar vegamál Mývatnssveitar eru rædd. Ég hef haft afskipti af sveitarstjórnarmálum, en er nú hættur vegna aldurs. Náttúru- verndarráð sem sveitarstjórn er hér fór með völd á árunum 1982 til 1986 vildu fá slitlag á vegi Öskureið móðir hringdi og sagð- ist hafa verið að koma frá Anda- pollinum á Akureyri í þeim erindagjörðum að gefa öndunum brauð með ungum syni sínum. Hún sagði að vegna ágangs varg- fugls hafi þessi brauðleiðangur að Andapollinum breyst í hálfgerða martröð. Vargfuglinum hafi fjölgað svo mjög að undanförnu við Andapollinn að ekki væri Mývatnssveitar, sem er algjör forsenda þess að hægt sé að taka á móti öllum þeim fjölda ferða- manna sem hingað koma. Lítið hefur orðið úr framkvæmdum þar sem forráðamenn Vegagerð- ar ríkisins eru andsnúnir fram- kvæmdum. Sveitarstjórn Skútu- staðarhrepps er nú situr hefur staðið sig illa og hefur sett allt ofurkapp á að fá slitlag á Kísil- lengur gaman að fara að gefa öndunum og margir hefðu sömu sögu að segja. Móðirin skoraði á bæjaryfirvöld að grípa til ein- hverra þeirra ráða sem kynnu að duga til að halda vargfuglinum niðri, annars væri fyrirsjáanlegt að Andapollurinn væri úr sög- unni sem eftirsóttur staður fyrir yngri kynslóðina. gúrveginn. Annarleg sjónarmið ráða ferðinni, því umferð um veginn er lítil sé litið til þess ofur- þunga sem vegurinn sunnan vatns verður að bera. í sjónvarpsfréttum kl. 20 áj þriðjudagskvöldið, í sambandi við umferðarslysið í Mývatns- sveit, kom fram ónafngreindur maður sem hélt því fram að, Vegagerð ríkisins væri búin að nota þennan margumtalaða leir sem slitlag síðastliðin tuttugu ár með góðum árangri. Erfitt er að átta sig á hvað maðurinn átti við „með góðum árangri" vegna þess að hægt er að staðfesta að minnsta kosti átta alvarleg bílslys hafa orðið á veginum á síðastliðnum 10 til 12 árum sem rekja má beint til þessa leirburðar í veginn. Auk þessa hefur orðið fjöldi minnihátt-í ar óhappa. Tvö af framangreindum bílslysum ollu ævarandi örkuml- um, slíkur er árangurinn af notk- un leirsins. Svavar Jónsson, vega- verkstjóri á Húsavík, sem þekkir þetta vel, hefur lagst algjörlega gegn notkun leirsins. Vegagerð- armenn á Akureyri bera því þunga ábyrgð á þessari fram- kvæmd og afleiðingum hennar." Guðný Elísdóttir hafði sam- band við blaðið og bað um að meðfylgjandi mynd yrði birt. Ef lesendur hafa einhverjar upp- lýsingar um konuna á myndinni eru þeir beðnir að hafa sam- band við Guðnýju í síma 96- 27091 eða 96-33263. AndapoUurmn að breyt- ast í vargfuglapoll

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.