Dagur - 05.08.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 5. ágúst 1992
Fréttir
Vaglaskógur eftir verslunarmannahelgina:
Litlar gróðurskemmdir
- en ægilegt rusl að sögn verkstjóra
Blönduós:
Næg vimia fyrir bygg-
ingamenn til áramóta
- en engin verkefni sjáanleg eftir það
Flugleiðir:
Sækja um lækkun
á haustfargjöldum
Flugleiðir hafa sótt um leyfi til
að setja á markaðinn haustfar-
gjöld sem eru I flestum tilfell-
um Iægri en í fyrra og taka gildi
mánuði fyrr en undanfarin ár,
eða frá 1. september nk.
Fáist leyfi verður t.d. einstakl-
ingsfargjald milli Keflavíkur og
Glasgow kr. 21.000, en var kr.
23.940 í fyrra. Til London yrði
einstaklingsfargjald kr. 25.900, en
29.200 í fyrra og kr. 32.900 til
New York samanborið við kr.
39.750 í fyrra. Með nýju fargjöld-
unum kostar helgarpakkinn til
London kr. 32.600, ef miðað er
við tvo í herbergi í þrjár nætur.
Samskonar pakki til Glasgow
kostar frá kr. 26.100. Tveggja
nátta helgarpakki til New York,
miðað við tvo í herbergi, kostar
kr. 35.300. óþh
Öxarfjarðarhreppur:
„Öxi“ skal
hann heita
Fyrir nokkru var auglýst eftir
tillögum um nafn á nýjan fund-
arsal Öxarfjarðarhrepps, sem
áður var í eigu Kaupfélags
Norður-Þingeyinga og ætíð
kallaður Kaupfélagssalurinn.
Fjöldinn allur af tillögum barst
og fyrir valinu varð nafnið „Öxi“.
Hreppsnefndarfundir og minni
samkomur verða því héreftir
haldnir í Öxi. óþh
Frágangi og tiltekt eftir glaum
og gleði í Vaglaskógi um helg-
ina lýkur vonandi í dag að sögn
Þorsteins Arnþórssonar, verk-
stjóra hjá Skógræktinni Vögl-
um í Fnjóskadal. Friður var á
syðri tjaldstæðum þar sem fjöl-
skyldufólk hafðist við á meðan
hundruðir táninga skemmtu
sér á sérstökum svæðum.
„Þetta gekk bara ágætlega; það
er náttúrulega ægilegt rusl á
þessu unglingasvæði. Á fjöl-
skyldusvæðinu sást ekki snitti,"
sagði Þorsteinn og bætti við að
engar skemmdir hefðu verið unn-
ar í skóginum. Þorsteinn gat þess
að einn hefði tognað á fæti og
kannaðist við að stúlka hefði ver-
ið keyrð heim vegna blóðmissis.
„Við vorum með öfluga gæslu
hérna - tvo, þrjá gæslumenn allan
sólarhringinn og björgunarsveitin
var með bíl á svæðinu allan
tímann. Gróðurskemmdir voru
sáralitlar og minni en búast mátti
við,“ sagði Þorsteinn að lokum
en ruslatínsla og tiltekt stendur
nú yfir. GT
Næg vinna hefur verið hjá
byggingamönnum á Blönduósi
að undanförnu og líkur til að
svo verði fram til áramóta en
eftir þann tíma er alls óvíst
hvað við tekur. Verið er að
Ijúka frágangi á nýrri íþrótta-
miðstöð á Blönduósi auk íbúða
fyrir aldraða er taka á í notkun
í október á komandi hausti. Þá
er einnig verið að Ijúka frá-
gangi á sölu- og kaupleigu-
íbúðum fyrir Blönduósbæ og
nokkur vinna hefur verið við
frágang kirkjunnar á staðnum
en bygging hennar er nú komin
á lokastig.
Hilmar Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri trésmiðjunnar
Stíganda á Blönduósi, sagði að
mikið væri að gera þessa dagana
og næg vinna hefði verið að
undanförnu. Útlit væri fyrir verk-
efni fram í desember eða út þetta
ár en algjör óvissa ríkti um hvað
þá tæki við. Þar sem engin ný
verk væru sjáanleg. „Við vitum
ekki á hverju við eigum að lifa á
næsta ári ef engin breyting verður
og engar ákvarðanir teknar um
nýjar framkvæmdir," sagði Hilm-
ar Kristjánsson. Auk framan-
greindra verkefna hefur verið
unnið að nokkrum smáverkefn-
um á Blönduósi auk vinnu við
nýtt flugskýli og eina hlöðu sem
steypt var upp á sveitabæ í
nágrenni Blönduóss í sumar.
Hilmar kvaðst ekki muna eftir
svo erfiðri atvinnustöðu hjá
byggingamönnum eins og við
blasti er komi fram á veturinn -
að minnsta kosti ekki síðan á
árinu 1967 þótt stundum hafi
tæpt staðið yfir vetrartímann.
Allt að 25 manns vinna að
byggingaframkvæmdum hjá Stíg-
anda í sumar en mun fækka í um
15 manns í haust þegar skólar
hefjast en það hefur verið fastur
kjarni ársmanna hjá fyrirtækinu
að undanförnu. ÞI
Stúlka frá Akureyri
lést af slysfórum í Sviss
Tuttugu og eins árs stúlka
frá Akureyri, Unnur María
Ríkarðsdóttir, til heimilis að
Kotárgerði 10, lést á sjúkra-
húsi í Sviss sl. sunnudag.
Unnur María varð fyrir slysi
á alheimsmóti eldri skáta í
Kandersteg í Sviss sl. miðviku-
dag þegar kajak, sem hún reri,
hvolfdi. Hún var flutt meðvit-
undarlaus á sjúkrahús, þar
sem hún lést sl. sunnudag.
Unnur María var fædd 22.
maí 1971. Hún lætur eftir sig
unnusta. óþh
Ábæjarkirkja í Skagafirði:
Á aimað hundruð manns í messu
SI. sunnudag var árleg messa
haldin að Ábæjarkirkju í Aust-
urdal. Aðeins eitt sóknarbarn
er í sókninni, Helgi Jónsson á
Merkigili. Bauð hann fólki í
kaffi að lokinni messu.
Ábæjarkirkja var vígð 6. ágúst
1922 og voru þá þrír bæir í sókn-
inni. Nú er aðeins einn eftir í
byggð, Merkigil, og þar býr einn
maður, Helgi Jónsson. Aðeins
hefur verið messað einu sinni á
ári um langt skeið.
Messan á sunnudaginn var í
tilefni af 70 ára afmæli kirkjunnar
og var prestur sr. Ólafur Hall-
Otruleg
verðlækkun
grímsson á Mælifelli. Organisti
var Anna Guðmundsdóttir frá
Egilsá og tóku kirkjugestir virkan
þátt í messunni með kröftugum
söng að sögn sr. Ólafs. Gestir
voru á þriðja hundrað og hefur
farið fjölgandi ár frá ári, þeir
voru rúmlega hundrað í fyrra.
Við messuna hélt Björn Egils-
son frá Sveinsstöðum erindi um
kirkjuna, og rifjaði upp minning-
ar frá vígslu hennar fyrir 70
árum, en hann var þar viðstaddur
þá 17 ára. Eitt barn var skírt og
hefur ekki verið skírt við messu í
Ábæjarkirkju frá 1956, en bæði
þessi börn eru afkomendur
Moniku á Merkigili. Sagði sr.
Ólafur að þeir sem það mundu
hefðu sagt að veðrið væri mjög
svipað því sem verið hefði fyrir
70 árum.
Helgi Jónsson á Merkigili bauð
gestum í kaffi eftir messu og voru
þar á annað hundrað manns.
Hefur Helgi haft þennan háttinn
á á hverju ári og tjáði blaðinu að
hann myndi halda því áfram.
Sl. sumur stóðu yfir lagfæring-
ar á kirkjunni, hún var múrhúð-
uð og máluð utan og innan og var
það unnið í sjálfboðavinnu. Nú í
sumar er verið að lagfæra kirkju-
garðinn og fleira utanhúss. sþ
Akureyri:
Sirkus Arena
með sýningar
Sirkus Arena verður með sýn-
ingar á Akureyri í kvöld, ann-
að kvöld og föstudagskvöld kl.
20 og laugardag og sunnudag
kl. 15 og 20. Sýningarnar verða
í tjaldi sirkusins á flötinni fyrir
neðan Samkomuhúsið.
Listamennirnir í Sirkus Arena
eru um 40 talsins og koma frá
Ítalíu, Frakklandi, Sviss, Tékkó-
slóvakíu, Ástralíu og írlandi.
í næstu viku, nánar tiltekið 11.
og 12. ágúst verður Sirkus Arena
með sýningar á Húsavík. óþh
Fiskmlðlun Norði irlands á Dalvík - Fisk' rerö á markat 1 vikuna 26 .07-61.681992
Tegund Hámarks- Lágmarks- Meðalverð Magn Verðmæti
verð verð (kr/kg) (kg)
Grálúða 78 75 76,70 4.867 373.284
Hlýri 24 20 20,58 836 17.209
Karfi 26 20 23,30 2.187 50.964
Lúða 200 200 200,00 7 1.400
Steinbítur 24 20 23,75 81 1.924
Ufsi 38 35 37,91 1.159 43.943
Ýsa 115 70 92,11 171 15.750
Þorskur 85 65 75,53 7.924 598.510
Þorskur, smár 53 51 52,85 1.185 62.629
Samtals 63,29 18.417 1.165.613
Ðagur blrtir vlkule( vorblnu »em fékkst myndun islenskra blabsln# kteHtadf) a tóflu yfli f vlkunnl ð ijávarafurbr Igjastmað f)skver& hjá F! umtan. Ntta « hefur vaxlb hn þrbun markabs ,knilblun Norbu r gort 1 IJósl þee >&um skrefum e vorfts á flakl hól rtands a Dahr s ab hlutverk g þvf sjálfsat h Narburlant k og grelnlr þar frá ftekmarkaba 1 vorb- t a& gara lesendum 1.