Dagur - 05.08.1992, Blaðsíða 11

Dagur - 05.08.1992, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 5. ágúst 1992 - DAGUR - 11 Tónlist Tilraun með djass Djasslíf á Akureyri er engan veg- inn það, sem vera mætti - og ætti. í bæ, sem státar af tónlistarskóla, þar sem hundruð nemenda sækja nám í hljóðfæraslætti á vetri hverjum og sem hefur á að skipa kennaraliði, sem í ýmsu hefur sannað ágæti sitt, ætti að vera hægt að gera betur. í bæ, þar sem starfar hljómsveit, sem er í raun á sinfóníustigi og sem er í fram- för ár af ári, ætti að vera unnt að koma á djassflokkum af ýmsu tagi. Það kveður meira að segja svo rammt að deyfðinni á sviði jassins, að stórsveit Tónlistar- skóla Akureyrar hélt enga tón- leika á nýliðnu starfsári skólans. Hún, framvörður jasstónlistar- innar á Akureyri, virðist hafa lagt upp laupana í það minnsta að sinni. Ekki þarf að ræða djass- klúbbinn. Hann hefur ekki látið í sér heyra svo lengi, að menn hljóta að ætla, að hann sé allur. Það er fagnaðarefni, þegar svo er ástatt um djasstónlistina hér í bæ, þegar fréttist af því, að von sé góðra gesta í bæinn. Svo var fimmtudaginn 23. júlí. Þá kom til þess að leika á Fiðlaranum sá ágæti saxafónisti, Sigurður Flosa- son, sem án efa er einn af allra bestu mönnum hér á landi á sitt hljóðfæri. Sigurður hafði sér til fulltingis kontrabassaleikarann Þórir Jóhannsson og Óskar Ein- Smáauglýsingar Dags Ódýrar og áhrifaríkar mm, auglýsingar *SSf 96-24222 Vinning laugarc (X s*°lur 1. áqúst '92 16 26 38jjp (38) ’ VINNINGAR FJÖLDI | VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af5 1 13.099.808,- Z- 4af 5« 12 100.121,- 3. 4af5 242 8.561,- 4. 3a(5 9.327 518.- Heildarvinningsupphæö þessa viku: 21.205.134.- upplvsingaB:SImsvari91 -681511 lukkulIna991002 arsson, píanóleikara. Það þarf ekki að fjölyrða um leik þeirra þremenninga. Hann var góður. Við þá einkunn má bæta því, að tónn Sigurðar Flosa- sonar var flosmjúkur og fagur. Hann hefur mjög gott vald á sax- anum í talsvert öflugum leik og ekki síður í hljóðlátum strófum. Þá var hið melódíska eyra hans iðulega í góðu sambandi í sam- leiknum á Fiðlaranum, en það mátti heyra á því, hve vel tókst gjarnan hjá honum að spinna um hljómagang standardanna, sem þeir félagarnir þrír fluttu. Samverkamenn Sigurðar Flosa- sonar nutu hans í leik sínum. Gott stuð hans vakti þá til dáða, svo að oft mátti heyra fallega gerða hluti jafnt hjá Óskari Einarssyni á píanóið og hjá Þóri Jóhannssyni á bassann. Djassþyrstum djassunnanda eru heimsóknir sem þessi kær- komnar. Ekki svo að skilja að full ördeyða sé á Akureyri í þessu efni; Jón Rafnsson og félgar hafa leikið á Dropanum, en í bæinn skortir mjög þægilegan stað, þar sem unnt er að sitja og njóta tón- listar án þess að eiga á hættu truflanir af óheftum og háværum samræðum eða jafnvel látum; stað, þar sem ríkir sú stemmning, sem jazzinum, vísnasöng eða öðru í þá veru, hæfir, þar sem sitja má yfir glasi eða kaffibolla og láta stundina líða ánægjulega við ljúfa tóna lifandi tónlistar. Hafi Sigurður Flosason þökk fyrir komuna og hann og félagar hans fyrir ánægjulega stund. Þeir hafa ugglaust fundið, að koma þeirra var mönnum gleðiefni. Fiðlarinn var vel sóttur þetta kvöld og þegar undirritaður neyddist til að hverfa af vett- vangi, var fólk að drífa að. Grundvöllurinn er til; áhuginn á því að njóta er til. Það vantar framtakssaman mann - og ef til vill djarfan - til þess að gera til- raun með hóglátan stað fyrir lif- andi tónlist; fyrir djassinn. Haukur Ágústsson. ílfirffífíi ilfnfim i flfmimT (Isa Laus er til iðjuþjt Um er að ræð september 1£ Umsóknarfreí Upplýsingar v Fjórðungssji FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI umsóknar staða álfa við geðdeild a 100% afleysingarstöðu til 1 árs frá 1. )92. 5tur er til 15. ágúst nk. eitir Kristín Sigursveinsdóttir iðjuþjálfi. jkrahúsið á Akureyri, sími 96-22100. VEITINGAHUSIÐ Glerár- götu 20 Delld: Helmllisfang: Staður: slml: Ath.: Vlnsamlegast sklllð þessu skjall tll þjóns vlð komuna, . annars fer fyrlrtæklð/hópurlnn ekkl I hádeglsverðarpottlnn. •-Jap--------------------------------------1 Hádegisverðarleikur Greifans er nýr leikur fyrir starfsfólk fyrirtœkja/hópa, þar sem fimm eða fleiri starfa hjá og koma að borða í hádeginu á Greifanum. Við bjóðum upp á eftirfarandi fyrir ykkur: 5% afslátt fyrir fimm til tíu manns. 10% afslátt fyrir ellefu til tuttugu manns. 15% afslátt fyrir fieiri en tuttugu. Tilboð þetta gildir fyrir öll hádegi, frá nfunda júlí til og með 10. september. Rúsínan í pylsuendanum er að sjálfsögðu að dregið verður eitt fyrirtœki eða hópur úr hádegisverðarpottinum tfunda ágúst og aftur þann tíunda september. Þeir heppnu fá frían hádegisverð f boði Greifans. Einnig fá þeir gefins Greifaboli. Borðapantanlr: Fax 11065 • Síml 26690 sjáumst! starfsfólk creifans alvOru veitingahús. M ák m Frystigámur! 40 feta frystigámur til sölu. Verð um 900.000 án vsk. Upplýsingar í síma 91-78866 á skrifstofutíma. TilbocH Grilloður kjúklingur 489 kr. stk. Djúpsteiktor fronskor kortöflur Heill skommtur 360 kr. Hálfur skammtur 200 kr. Matvöru- markaöurinn Kaupangi Opið virka daga kl. 9-22 Laugardaga og sunnudaga kl. 10-22 Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, fré Litla-Hvammi, Svalbarðsströnd, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Hlíð 1. ágúst. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 7. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjúkrunarheimilið Hlíð. Jónína Halldórsdóttir, Snjólaugur Þorkelsson, Ásgeir Halldórsson, Rósamunda Káradóttir, Helga Halldórsdóttir, Haraldur Karlsson, Svava Halldórsdóttir, Steinar Baldursson, Valdimar Halldórsson, Ingibjörg Bragadóttir, börn og barnabörn. Hjartans þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð, hlýhug 'og vináttu vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, sonar, föður, afa og langafa, HEÐINS ÓLAFSSONAR, Fjöllum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Gjörgæsludeildar og deildar 12 G, Landspítalans. Sjöfn Jóhannesdóttir, Friðný Sigurjónsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.