Dagur - 05.08.1992, Blaðsíða 3

Dagur - 05.08.1992, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 5. ágúst 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Jafnt ungir sem gamlir fylgdust með því sem fram fór í miðbænum um heigina. Hér er ein þeirra hljómsveita sem tróðu upp í miðbænum sl. sunnudags- Grillveislan sl. sunnudagskvöld kvöld. þóttist takast með miklum ágætum. Akureyri: „Gekk framar björtustu vonum“ „Þetta gekk framar björtustu vonum. Þaö sem viö ætluðum okkur gekk allt upp,“ sagði Jakob Jónsson, einn meðlima hljómsveitarinnar Skriðjökla og aðstandenda hátíðarinnar „Halló Akureyri“ um verslun- armannahclgina. „Það hefði mátt vera fleira fólk í miðbænum, en hins vegar var mikil aðsókn að dansleikjum á skemmtistöðum bæjarins og dæmið með pakkhúsið gekk mjög vel upp og í það heila fór þetta allt mjög vel fram. Ég veit ekki annað en fólk hafi verið mjög ánægt með þetta,“ sagði Jakob. Hann sagði að fjöldi Akureyr- inga hefði tekið þátt í gleðinni, en utanbæjarfólk hafi ekki síður verið áberandi. „Ég held að menn geti verið mjög sáttir við útkomuna og vonandi verður hægt að endurtaka þetta að ári,“ sagði Jakob. Flestir lögðu leið sína í miðbæ- inn við opnun hátíðarinnar sl. föstudag og á sunnudagskvöld þegar efnt var til grillveislu. óþh Töluvert margir lögðu leið sína í miðbæinn á útimarkað að morgni laugar- dags. Það kennir margra grasa á þessum borðum tveggja sölumanna frá Dalvík. Myndir: Golli. Siglu^örður: Við enun alveg í skýjimum - sagði Theodór Júlíusson, fram- kvæmdastjóri Sfldar- ævintýrisins „Við erum alveg í skýjunum,“ sagði Theodór Júlíusson, framkvæmdastjóri Síldar- ævintýrisins á Siglufírði, þegar hann var inntur eftir því hvern- ig til hefði tekist um helgina. í gær var unnið að því að taka til í bænum og sagði Theodór umgengni hafa verið til hreinnar fyrirmyndar. „Það var ótrúlegt að fara um tjaldsvæðin eftir að fólkið fór. Ég get varla sagt að þar hafi sést sígarettustubbur,“ sagði Theodór. Talið er að fast að tíu þúsund manns hafi tekið þátt í Síldar- ævintýrinu þegar flest var sl. laugardag. Þetta telja forsvars- menn hátíðarinnar sig hafa fund- ið út með því að skoða fjölmarg- ar ljósmyndir sem voru teknar f miðbænum þann dag. „Við klipptum saman ljósmyndir til þess að sjá mannmergðina í einni heild og við teljum okkur geta fullyrt að hér voru ekki undir tíu þúsund manns,“ sagði Theodór. Þrátt fyrir þennan gífurlega mannfjölda héldu menn sér á mottunni og til marks um það gistu aðeins sjö fangageymslur lögreglunnar. „Það er gaman að geta þess að um 650 manns, að börnum undanskildum, tóku þátt í messu uppi í Hvanneyrarskál að morgni sunnudags," sagði Theodór. óþh Nikkurnar þandar og Landleguvalsinn sunginn með tilþrifum! Eldgleypirinn mætti á staðinn og sýndi listar sínar. Síldarsöltunarkonurnar drógu ekkert af sér við söltunina, enda ball um kvöldið og því um að gera að koma silfri hafsins í tunnurnar sem fyrst. Mikiil fjöldi fólks fylgdist með sfldarsöltuninni á Drafnarplani bæði á laug- ardag og sunnudag. A laugardag er talið að hafi verið hátt í 10 þúsund manns í miðbænum og óhætt er að segja að Siglufjörður hafi iðað af mannlífi. Myndir: ÁS/Siglufirði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.