Dagur - 05.08.1992, Qupperneq 12
Akureyri, miðvikudagur 5. ágúst 1992
li
Kodak ^
Express
Gæöaframköllui
FYRffi ÞA SEM GERA KROFUR
^ ^Pedíomyndir^
Skipagötu 16 - Sími 23520
Hótel Húsavík:
Arinbjarnarson tók sæti Einars
Helgasonar sem varamanns í
stjórn. óþh
Húnaþing:
Tveir óku út
af um helgina
Að sögn lögreglunnar á Blöndu-
ósi urðu sex umferðaróhöpp
nú um helgina. Þar af voru í
tveimur tilfellum slys á fólki.
Bíll fór út af vegi í Víðidal,
tvær voru í bílnum og meiddust
báðar lítillega. í Langadal ók bif-
hjól út af veginum og slasaðist
farþegi sem var á hjólinu
nokkuð. Önnur óhöpp voru
minniháttar. Árekstur varð sunn-
an við Víðigerði og á Hnausabrú
í Þingi. Ekið var á lamb í
Langadal og hestakerra valt aftan
í bíl í Víðidal. sþ
Blönduós:
Meira en sjö
tugir keyrðu
of hratt
Töluverð umferð var um helg-
ina og líklega meiri en oft áður
um verslunarmannahelgi að
sögn Iögreglunnar á Blöndu-
ósi. Allt gekk þó stórslysalaust
fyrir sig.
75 manns voru teknir fyrir of
hraðan akstur og er það ekki
óeðlilega há tala miðað við þá
umferð sem var þessa helgi. Einn
var tekinn fyrir ölvunarakstur.
Umferðin var mjög mikil og að
sögn lögreglu meiri en oft áður
um verslunarmannahelgina. Það
tengist líklega „síldarævintýrinu"
á Siglufirði en þangað streymdi
mikill fjöldi manns um helgina.
sþ
[ dag er spáö hægri vestan-
átt um norðanvert landið.
Hitinn verður um 16 gráður
til dala en ögn svalara verð-
ur með ströndinni. Á morg-
un og föstudag verða áfram
hægir vestlægir vindar sam-
kvæmt spá Veðurstofunnar
og hitinn á svipuðum nótum
sem í dag.
- Baldvin Ari Guðlaugsson sýndi hryssuna fyrir dómi
Fimmtíu og fjögur hross voru
dæmd fyrir kynbótadómi um
sl. helgi á Vindheimamelum í
Skagafírði. Hrafntinna frá
Dalvík, í eigu Heimis Guð-
laugssonar frá Akureyri, hlaut
8,84 fyrir hæfíleika, sem er
hæsta hæfíleikaeinkunn gefín á
þessu ári.
Kristinn Hugason, hrossarækt-
arráðunautur segir að kynbóta-
sýningin á Vindheimamelum hafi
verið sú besta á sumrinu og svo
virðist sem síðsumarssýningarnar
henti betur fyrir hryssur. „Tvær
sex vetra hryssur báru af öðrum
hryssum sýningarinnar, þó svo að
aðrar tvær hafi einnig fengið yfir
átta. Venus frá Keldudal stóð
efst með 8,25 í aðaleinkunn og
Hrafntinna frá Dalvík hlaut 8,24.
Hæfileikaeinkunn Hrafntinnu,
8,84, er hæsta hæfileikaeinkunn
sumarsins. Hrafntinna er undan
Hervari frá Sauðárkróki, sem er
úr ræktun Sveins Guðmundsson-
ar, og Hrafnkötlu frá Marbæli,
sem er í eigu Rafns Arnbjörns-
sonar frá Dalvík. Baldvin Ari
Guðlaugsson frá Akureyri sýndi
Hrafntinnu fyrir dómi,“ sagði
Kristinn Hugason.
Nánar verður fjallað um kyn-
bótasýninguna á Vindheimamel-
um á morgun sem og kappreiðar
og gæðinga- og íþróttakeppni
hestamannamótsins. ój
Hrafntinna og Baldvin Ari Guð-
laugsson á mótsstað í Lögmannshlíð
fyrr í sumar. Mynd: ój
Tap af rekstri Hótels Húsavík-
ur hf. á síðasta ári að teknu til-
liti til afskrifta og fjármagns-
gjalda nam 1,4 milljón króna.
Þetta kom fram á aðalfundi
hótelsins sl. miðvikudag.
Þetta er öllu lakari útkoma en
síðustu tvö ár. Árið 1990 nam
hagnaður af rekstrinum 2,5 millj-
ónum króna og um 2 milljónum
árið 1989.
Brynjar Sigtryggsson, formað-
ur stjórnar Hótels Húsavíkur,
segir að þrátt fyrir lítilsháttar tap
sé staða fyrirtækisins mjög sterk.
Þannig sé eiginfjárstaða þess
86,5%.
Félagsstofnun stúdenta byggir við Klettastíg:
Seinna Mðarhúsið í byggingu
- hús með 12 herbergjum boðið út í mánuðinum
án skattstjóra
Norðurlandsumdæmi eystra
var án skattstjóra í gær.
Fjármálaráðherra hefur
ekki enn skipað nýjan skatt-
stjóra en ráðuneytið hefur
nú fjórar umsóknir um starf-
ið til meðferðar.
Fjármálaráðuneytið veitti
þær upplýsingar í gærmorgun
ð skipun fjármálaráðherra í
nbættið væri á næsta leiti og
meðan sinni Friðgeir Sig-
urðsson störfum skattstjóra,
eu hann var settur skattstjóri
til síðustu mánaðamóta. Á
skattstofu Norðurlandsum-
dærnis eystra var hins vegar
enginn skattstjóri starfandi í
gær enda hafði Friðgeir lokið
störfum á föstudag, síðasta
vinnudegi fyrir mánaðamót.
Síðdegis í gær fengust svo
þær upplýsingar í ráðuneytinu
að skipað yrði í embættið í
síðasta lagi á morgun. JÓH
Síðar í þessum mánuði verða
teknar í notkun fyrstu íbúðirn-
ar sem félagsstofnun stúdenta
á Akureyri byggir við Kletta-
stíg. Fyrsta húsið af þremur
sem byggð verða á þessum stað
verður þá tilbúið en i húsinu
eru níu íbúðir. Framkvæmdir
eru hafnar við annað sams
konar hús og innan tíðar verð-
ur þriðja húsið boðið út.
Valtýr Hreiðarsson hjá félags-
stofnun stúdenta segir að í húsi
númer tvö verði níu íbúðir og
ráðgerir hann að þetta hús verði
tekið í notkun að ári. Fjölnir sf.
byggir húsið eins og það fyrra.
í þriðja húsinu verða 12 her-
bergi og segir Valtýr að þegar
hafi fengist lánveiting til þess
húss. Hann segist vænta þess að
síðar í ágústmánuði verði bygg-
ing hússins boðin út og verði
byggingu þess þá lokið á næsta
ári.
Valtýr segir að fyrstu íbúðun-
um níu sé þegar búið að úthluta
til nemenda í Háskólanum á
Akureyri og flytja þeir fyrstu inn
um 20. ágúst. JÓH
Vindheimamelar:
Hrafntínna sló í gegn
Mesta ntildi er að ökumann sakaði ekki þegar þessi fóiksbifreið fór á toppinn í djúpan skurð við Landamót í Kinn.
Mynd: Baldvin
Kaldakinn:
Gjörónýt bifreið eftir útafakstur
vegna meints ölvunaraksturs,
flestir í Vaglaskógi. Talið er að
um 500 manns hafi gist skóginn
þegar flest var. Nokkrir voru
teknir vegna hraðaksturs, en sé
litið til helgarinnar í heild má
segja að verslunarmannahelgin
hafi verið fremur róleg það er lýt-
ur að löggæslumönnum," sagði
talsmaður lögreglunnar á Húsa-
vík. ój
Umferð um vegi Suður-Þing-
eyjarsýslu var allmikil um
verslunarmannahelgina. Dag-
bækur lögreglunnar á Húsavík
greina frá útafkeyrslu við
Norðurland eystra:
Umdæmið
Landamót í Köldukinn.
Að sögn lögreglunnar á Húsa-
vík var fólksbifreið ekið út af
veginum syðst í Köldukinn
aðfaranótt laugardags. Ökumað-
ur var einn í bifreiðinni, sem fór
á toppinn í djúpan skurð. Bif-
reiðin er gjörónýt en ökumann
sakaði ekki.
„Átta ökumenn voru teknir
Brynjar segir að engar stórar
breytingar hafi verið á rekstri
Hótels Húsavíkur f fyrra miðað
við fyrri ár. Unnið sé að endur-
bótum þess eins og fjárhagurinn
leyfir.
Stærstu hluthafar Hótels Húsa-
víkur eru Húsavíkurbær (tæp
48%), Ferðamálasjóður (rúm-
lega 27%), Kaupfélag Þingeyinga
(tæp 13%) og Flugleiðir (tæp
13%).
Stjórn Hótels Húsavíkur hf.
var endurkjörin. Hana skipa auk
Brynjars, Einar Njálsson, Gunnar
Salomonsson, Ragnar Jóhann
Jónsson, Björn Sigurðsson,»Auð-
ur Gunnarsdóttir og Ólafur
Steinar Valdimarsson. Kolbeinn
VEÐRIÐ
Tapaði 1,4 milljón
á síðasta ári