Dagur - 20.10.1992, Side 1
HERRADEILD
VerÖ frá kr. 9.900,-. Gránuftla8S^t™
Akureyri • Simi 23599
75. árgangur Akureyri, þriðjudagur 20. október 1992 199. tölublað
Sauðárkrókur:
Bflvelta á suunudag
Á sunnudag valt bifreið á
Sauðárkróksbraut á móts við
flugvöllinn og slasaðist öku-
maðurinn nokkuð.
Atburðurinn átti sér stað um
hádegi á sunnudag. Grunur er á að
ökumaðurinn hafi verið ölvaður.
Hann slasaðist nokkuð við velt-
una, en þó minna en á horfðist í
fyrstu. Bíllinn er talinn ónýtur.
sþ
Hrísey:
Rekstur KÞ fyrstu átta mánuði ársins:
Iitilsháttar afgangur
„Reksturinn er í jafnvægi og
með lítils háttar afgangi. Þetta
er ekkert til að hrópa húrra
fyrir en ekkert til að væla
yfir,“ sagði Hreiðar Karlsson,
kaupfélagsstjóri, aðspurður
um átta mánaða uppgjör á
rekstri Kaupfélags Þingeyinga
sem nú liggur fyrir.
Sláturtíð er að mestu lokið hjá
kaupfélaginu.
Verslanir Kaupfélags Þing-
eyinga hafa ekki verið opnaðar á
sunnudögum, í kjölfar á lengri
opnunartíma verslana á Akureyri
um helgar. „Þetta hefur ekki orð-
ið okkur til neinna vandræða
ennþá, það var söluaukning um
20% í Matbæ í september miðað
við sama tíma í fyrra. Við höfum
mætt samkeppninni með breytt-
um áherslum í verði og auknu
framboði í tilboðsgerð," sagði
Hreiðar. IM
„Ekkert svart-
sýmshjaT*
- segir Jóhann Þór
Halldórsson, útibús-
stjóri KEA
Útgerð og fískverkun í Hrísey
hefur gengið með ágætum hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga fyrstu
níu mánuði ársins. í lok sept-
ember var Súlnafellið EA búið
að físka liðlega 1300 tonn að
aflaverðmæti 79,2 milljónir. Á
sama tíma í fyrra var aflinn
1265 tonn að aflaverðmæti
75,5 milljónir.
Jóhann Þór Halldórsson, úti-
bússtjóri Kaupfélags Eyfirðinga,
segir að frystihúsinu hafi borist
3168 tonn fyrstu níu mánuði ársins
á móti 2871 tonni á sama tíma
í fyrra. Aukningin er 10,3%.
Auk afla frá Súlnafelli EA hefur
fiskur borist frá heimabátum,
bátum frá Grímsey og af
mörkuðum á Snæfellsnesi og
Reykjanesi.
„Framleiðsluverðmætið var 1.
október 340,2 milljónir á móti
328 milljónum þann 1. október
1991. Framleiddar vörur frá
frystihúsi voru 1253,2 tonn á móti
1087,8 tonnum í fyrra, þ.e. aukn-
ing um 15% milli ára. Mun meira
var unnið úr þorski. Magntölur í
vörum litið til þorsks eru 986,5
tonn á móti 763 tonnum árið áður.
Aukning 29%. Aukning varð í
hausaframleiðslu um 9%, en í ár
hefur ekkert verið verkað í salt.
Vörumagn frá Frystihúsinu í
Hrísey var orðið 1383,4 tonn
þann 1. október á móti 1265,3
tonnum í fyrra á sama tíma sem
er aukning um 9%. Við erum
ánægðir með útkomuna það sem
af er. Tölur lofa góðu og menn
eru ekki með svartsýnishjal í
Hrísey," segir Jóhann Þór Hall-
dórsson, sem senn lætur af störf-
um sem útibússtjóri og hverfur til
framkvæmdastarfa austur á
landi. ój
Annríki var á hjólbarðaverkstæðum í gær og um helgina enda minnti vetur
konungur á nærveru sína. Mikil hálka var á götum á Akureyri og urðu marg-
ir árekstrar sem raktir eru beint til hennar. Mynd: Robyn
Skagaijörður:
Tófa hljóp fyrir bíl
- var aflífuð á staðnum
Á föstudagskvöldið lenti
Sigurður Dalmann Skarphéð-
insson í þeirri einstæðu reynslu
að tófa hljóp fyrir bílinn hjá
honum. Hann þurfti að aflífa
tófuna.
Þetta gerðist í Vatnsskarði um
10-leytið á föstudagskvöld. Tófan
hljóp skyndilega og á miklum
hraða í veg fyrir bíl Sigurðar og
lenti á framhjóli og undir aftur-
hjól bílsins. Sigurður var í sam-
floti við tengdason sinn og urðu
þeir að aflífa tófuna. Sigurður
kvaðst aldrei hafa lent í slíku, en
hann er hagvanur í Skagafirði
þótt hann sé búsettur í Reykja-
vík. sþ
Aðalfundur Miklalax h.f. í Fljótum s.l. laugardag:
Tapaði 134 milljónum á
reglulegri starfsemi
- eldislax hefur hækkað verulega og bjartara yfir rekstrinum
Fiskeldisstöðin Miklilax hf. í
Fljótum var rekin með 31
milljóna króna tapi á síðasta
ári. Samkvæmt rekstrarupp-
gjöri fyrstu níu mánuði þessa
árs stefnir í betri afkomu fyrir-
tækisins á þessu ári. Þetta kom
fram á aðalfundi Miklalax sl.
laugardag.
Heildarsala á síðasta ári var að
andvirði tæpar 52 milljónir
króna. Rekstrargjöld, þ.m.t.
afskriftir, námu 153 milljónum
króna. Rekstrartap ársins án fjár-
magnsgjalda og -tekna var því
102 milljónir. Fjármagnsgjöld
námu 32 milljónum króna og því
var tap á reglulegri starfsemi upp
á 134 milljónir króna. Á móti
Síldin stendur djúpt:
Tveir bátar með tæp 300 tonn
Bræla var á sfldarmiðunum
fyrir austan um helgina og því
litlar aflafréttir. Sfldin stóð
mjög djúpt en er góð og nokk-
uð um lóðningar en það litla
sem fékkst var á Lónsbugt.
Á laugardag landaði Börkur
NK í Neskaupstað smáslatta til
bræðslu og Þórshamar GK land-
aði svo um 160 tonnum þar í gær
sem fara í söltun. Ennfremur
fékk Gígja VE um 100 tonn sem
landað verður í Vestmannaeyj-
um og nokkrir aðrir bátar voru
með einhverja smáslatta. Bátum
hefur verið að fjölga á síldarmið-
unum, aðallega loðnubátum, en
búast má við að smærri bátarnir
láti sjá sig á miðunum ef veður
helst skaplegt. GG
kom styrkur frá Byggðastofnun
upp á 103 milljónir og var tap árs-
ins því 31 milljón króna.
Fyrstu níu mánuði þessa árs
hefur Miklilax selt afurðir fyrir 44
milljónir króna. Rekstrargjöld að
teknu tilliti til afskrifta, sem eru
um 35 milljónir króna, nema 70
milljónum króna. Rekstrartap án
fjármagnsgjalda er því 26 millj-
ónir. Fjármagnsgjöld fyrstu níu
mánuðina er um 20 milljónir og
því 46 milljóna tap á reglulegri
starfsemi. Styrkur frá Byggða-
stofnun og óreglulegar tekjur eru
4 milljónir króna og tapið er því
42 milljónir króna. Fyrir utan
afskriftir og fjármagnsgjöld er
reksturinn fyrstu níu mánuði árs-
ins hins vegar réttu megin við
strikið.
Að undanförnu hefur verð á
eldislaxi inn á Evrópumarkað
hækkað verulega og nemur
hækkunin um 20%. Þetta þýðir
að skilaverð á laxi framleiddum
hjá Miklalaxi er nú um 216 krón-
ur og hefur hækkað á skömmum
tíma um tæpar 40 krónur. Spár
gera ráð fyrir að hátt verð muni
haldast næstu misserin og á næsta
ári verði skortur á laxi á Evrópu-
markaði, einkum Frakklandi.
Þrátt fyrir hærra verð á eldis-
laxinum og góðar horfur á næsta
ári er fjárhagur fyrirtækisins
mjög erfiður. Unnið er að því að
semja við lánardrottna um
skuldir, en niðurstöður þeirra
samninga liggja að svo komnu
máli ekki fyrir.
Á aðalfundinum sl. laugardag
var kjörin ný stjórn, sem á eftir
að skipta með sér verkum. Úr
stjórn gengu Hannes Baldvinsson
frá Siglufirði og Alfreð Hall-
grímsson, Lambanesreykjum. í
nýkjörinni stjórn eru Heiðar
Albertsson, Lambanesreykjum,
Örn Þórarinsson, Ökrum, Krist-
inn Hermannsson, Molastöðum,
Ríkharður Jónsson, Brúnastöð-
um og Benedikt Guðmundsson,
Akureyri, fulltrúi Byggðastofn-
unar. óþh
Húsavík:
Ölvunarakstur
á laugardag
- framkoma ungl-
inga prúðmannleg
Lögreglan á Húsavík tók
ökumann í bænum vegna
gruns um ölvun við akstur
síðdegis á laugardag. Að
öðru leyti var helgin tíðinda-
lítil hjá lögrcglunni.
Á laugardagskvöld voru
haldnir rokktónleikar og ein-
nig unglingadansleikur og fóru
hið besta fram, eftir því sem
lögreglunni var kunnugt um.
Fjöldi unglinga frá Mennta-
skólanum á Egilsstöðum
dvaldist á Húsavík um helg-
ina, skemmti sér með
nemendum Framhaldsskólans
og keppti við þá í íþróttum.
Þjónustuaðilar í bænum hafa
hælt menntaskólanemunum
fyrir prúðmannlega fram-
komu. Lögreglan sagðist ekk-
ert geta kvartað yfir fram-
komu unglinga um helgina,
hvorki heimamanna eða
aðkomufólks. „Það má hik-
laust hæla ungmennunum.
Yfirleitt hefur unga fólkið á
Húsavík hagað sér vel, með
fáum undantekningum," sagði
lögreglumaður í samtali við
Dag. IM
Þrotabú Árvers hf á Árskógsströnd:
Engin aðgengileg tilboð borist
Söltunarfélag Dalvíkur hf. hef-
ur haft rækjuverksmiðjuna
Árver hf. á Árskógsströnd á
leigu undanfarna mánuði en
leigusamningurinn rennur út
30. nóvember nk. Arnar Sig-
fússon skiptastjóri þrotabús
Árvers hf. segir að reynt hafi
verið að selja eignir búsins en
ekki tekist. Tvö kauptilboð
hafa borist en þau hafa ekki
verið talin aðgengileg.
Óskað hefur verið eftir nauð-
ungaruppboði og ef ekki kemur
néitt aðgengilegt kauptilboð
fljótlega fer uppboð væntanlega
fram fyrir nk. áramót.
Nokkur hópur Árskógsströnd-
unga hefur nú atvinnu við rækju-
vinnsluna og yrði það mikið áfall
fyrir atvinnulífið í hreppnum ef
rækjuvinnsla legðist þar af. GG