Dagur - 20.10.1992, Page 16
II
Kodak ^
Express
Gæöaframköllun
FYEIR ÞA SEM GERA KROFUR
k cPedí6myndir'
Skipagötu 16 * Sími 23520
Á laugardag var haldin afmælishátíð Ungmennasambands Eyjafjarðar og Búnaðarsambands Eyjafjaröar. Hátíðin
var í tilefni af 70 ára afmæli UMSE og 60 ára afmæli Búnaðarsambandsins. Þessi ungmenni frá Dalvík sýndu dans
við mikinn fögnuð á fjölskylduhátíö sem haldin var í íþróttahúsinu á Hrafnagili en á laugardagskvöld var kaffísam-
sæti í félagsheimilinu Freyvangi. Mynd: jóh
Stór og falleg loðna fannst norður af Horni:
Bárðardalur:
Kindur gengu úti á
Fljótsheiði í fyrravetur
í haust komu fram ein vetur-
gömul ær og veturgamall hrút-
ur frá Jarlsstööum í Bárðardal
og ein veturgömul ær frá Lyng-
holti í Bárðardal, sem gengu
úti uppi á Fljótsheiði í allan
fyrravetur.
Ærnar voru báðar með lömb
þegar þær komu fram, sem hafa
vitaskuld orðið til með dyggilegri
„aðstoð" hrútsins.
Hermann Baldvinsson, bóndi á
Jarlsstöðum, segir að allt bendi
til að kindurnar hafi verið uppi á
Fljótsheiði sl. vetur. Hann segist
ekki hafa heyrt um að fé hafi
áður gengið þar veturlangt, en
tíðarfarið sl. vetur hafi eins og
kunnugt er verið mjög hagstætt.
óþh
Vélsmiðjan Oddi á Akureyri:
Samið um smíði á
frystikerfi í Sléttanes
Engin loðna finnst milli
Jan Mayen og íslands
Aðeins 4138 tonn fengust af
loðnu frá miðvikudeginum 14.
október til mánudagsins 19.
október en heildarloðnuaflinn
á vertíðinni er nú kominn upp í
101835 tonn. Grindvíkingur
GK landaði 311 tonnum á
Vopnafirði og er það fyrsta
loðnulöndunin þar á haust-
vertíðinni.
Flestir bátarnir voru nyrst á
Rifsbanka en einnig voru nokkrir
norður af Kolbeinsey. Mest var
landað áðurnefnda daga á Rauf-
arhöfn, 1136 tonnum, og í Krossa-
nesi, 540 tonnum. Aðrir lönd-
unarstaðir voru Grindavík með
Vegagerðin hefur látið lagfæra
ellefu snjóþyngslastaði á Kísil-
vegi. Til þessa verks hafði
Vegagerðin 1,5 milljón króna.
Af þekktum snjóastöðum sem
gert var við í þessari atrennu má
nefna Langavatnsbrekku, Aust-
ariás og Nyrðri- og Syðri-Sand-
brotshæð.
Sigurður Oddsson, umdæmis-
tæknifræðingur hjá Vegagerðinni
á Akureyri, sagði að því miður
hafi ekki verið nægilega mikil
fjárveiting til þess að lagfæra alla
snjóastaðina, t.d. hefði þurft
O VEÐRIÐ
Veðurstofa (slands spáir held-
ur hlýnandi veðri á Norður-
landi í dag. Víðáttumikið hæð-
arsvæði er suður af landinu en
í dag er væntanleg lægð inn á
landið af Grænlandshafi. Suð-
austlæg átt verður á Norður-
landi vestra í dag en gengur
síðan í breytilega átt og rign-
ingu. Á Norðurlandi eystra
ætti að verða sunnan gola
framan af degi og víða súld
eða rigning.
170 tonn, Reykjavík 170 tonn,
Þórshöfn 268 tonn, Seyðisfjörður
190 tonn, Neskaupstaður 499
tonn, Eskifjörður 195 tonn og
Vestmannaeyjar 359 tonn.
Hæstu löndunarhafnirnar á
vertíðinni eru Siglufjörður með
30909 tonn, Raufarhöfn með
17318 tonn, Akranes með 9862
tonn og Krossanes með 9719
tonn.
Rannsóknaskipið Árni Frið-
riksson er statt norður af Horni
og fann í gær stóra og fallega
loðnu um 60 mílur norður af
Horni. Töluvert virðist vera af
loðnu á þessum slóðum en ekki
fimm til sjö milljónir til þess að
gera nauðsynlegar endurbætur á
Sandvatnsbrekku. „Nú á að vera
búið að lagfæra flesta snjóastaði
frá Langavatnsbrekku og upp-
undir Sandvatnsbrekku. Segja
má að eftir séu tveir þekktir
tálmar,“ sagði Sigurður. óþh
vitað enn hvernig hún hagar sér
og eins virðist nokkuð vera þar af
smáloðnu. Nokkrir loðnubátar
voru í gær á leiðinni þangað vest-
ur frá svæðinu norður af Mel-
rakkasléttu, þ.á.m. Guðmundur
Ólafur ÓF og Víkingur AK.
Hjálmar Vilhjálmsson leiðang-
ursstjóri á rannsóknaskipinu
Bjarna Sæmundssyni, sem statt
er liðlega miðja vegu milli Jan
Mayen og íslands, þ.e. norður
undir 69. breiddargráðu og 18.
gráðu vestlægrar lengdar, segir
að þar hafi ekki fundist nein
loðna. Bjarni Sæmundsson mun
halda áfram í austurátt og síðan
væntanlega suður með Austur-
landi en það ræðst þó væntanlega
af því hvort einhverja loðnu er að
finna á þeim slóðum þar sem
skipið er nú statt.
Uthlutað hefur verið um 78%
af loðnukvótanum, eða 390 þús-
und tonnum, en árangur leiðang-
ursins á Bjarna Sæmundssyni
undir leiðangursstjórn Hjálmars
Vilhjálmssonar og leiðangursins
á Árna Friðrikssyni, þar sem
Sveinn Sveinbjörnsson er leið-
angursstjóri, ræður miklu um
mögulega aukningu á loðnukvót-
anum á þessari vertíð. GG
Vélsmiðjan Oddi á Akureyri
hefur samið við útgerðarfyrir-
tækið Fáfnir á Þingeyri um
smíði á frystikerfi í togarann
Sléttanes en skipið fer í breyt-
ingar í Póllandi í nóvember og
verður breytt í frystiskip. Fáfn-
ir bauð frystikerfisþáttinn sér-
staklega út í lokuðu útboði og
átti Oddi næstlægsta tilboðið.
Torfi segir að tilboð Odda hafi
verið um 30 milljónir króna en
um er að ræða vélar sem keyptar
verða hjá samstarfsaðila í Dan-
mörku, sem raunar átti lægsta til-
boðið í útboðinu, en auk þess er
smíði á búnaði hjá Odda. Verkið
er hafið og mun Sléttanesið taka
þann búnað sem smíðaður verð-
ur hjá Odda um borð þegar skip-
inu verður siglt til Póllands,
væntanlega 12. nóvember næst-
komandi. Pólverjar munu sjá um
uppsetningu undir eftirliti frá
Odda.
í frystikerfið í Sléttanesi bárust
tilboð frá helstu kælifyrirtækjum
á markaðnum. Torfi segir tilboð
Odda það eina íslenska þar sem
hönnun og framleiðsla var
innlend.
„Við erum að breyta um takt
varðandi markaðssetningu á
kæli- og frystibúnaði. Hingað til
höfum við aðallega unnið sem
undirverktakar hjá erlendum
fyrirtækjum en nú erum við að
taka sjálfir við því að vera aðal-
verktakar og sjá sjálfir um alla
hönnun. Þetta var fyrsta stóra
verkefnið á því sviði og okkur
tókst að ná því. Fáfnir mat það
þannig að ráðlegast væri að
skipta við okkur,“ sagði Torfi og
benti á að fyrir utan mikilvægi
þess að hluti búnaðarins í Slétta-
nes verði smíðaður hér heima þá
sé hönnunin öll unnin af fyrirtæk-
inu. „íslenskar útgerðir hafa ver-
ið sakaðar um að senda öll verk
úr landi en þetta er dæmi um að
það er ekki algilt,“ sagði Torfi.
JÓH
Akureyri:
Tíðir árekstrar
íhálkuimi
Alls urðu 10 árekstrar á Akur-
eyri síðustu þrjá daga. í tveim-
ur þeirra urðu meiðsl á fólki en
hálka er orsök árekstranna í
öllum tilfellunum.
Að sögn varðstjóra hjá Akur-
eyrarlögreglunni eru þessir fyrstu
dagar dæmigerðir um umferðina
fyrstu hálkudagana. Merkjanlegt
er þó að æ algengara er að bif-
reiðaeigendur eigi vetrardekkin á
felgum og geti skipt um með stutt-
um fyrirvara en engu að síður
verða alltaf allmargir árekstrar
fyrstu dagana. Lögreglan telur að
í öllum árekstrunum 10 hafi bún-
aður til vetraraksturs ekki verið
nægilega góður og því fór sem fór
JÓH
Viðgerð Búrfells:
Mótmæli málm- og skipasmiða bárn árangur
- gert verður við skipið hér á landi
Halldór Blöndai, samgöngu-
ráðherra, hefur ákveðið að
viðgerð á MS Heklu - síðasta
skipi Skipaútgerðar ríkisins -
fari fram hjá Stálsmiðjunni í
Reykjavík en áður hafið ver-
ið ákveðið að senda skipið til
viðgerðar í Póllandi. Skipið
hefur að undanförnu verið
rekið af Samskip og siglt und-
ir nafninu Búrfell. Vegna
mótmæla og kyrrsetningarað-
gerða af hálfu Málm- og
skipasmíðasambandsins og
skipasmiða var þessi ákvörð-
un tekin og ákveðið að sigla
skipinu til Reykjavíkur.
Astæður þess að ákveðið var
að taka tilboði hinnar pólsku
skipasmíðastöðvar í viðgerð
skipsins var sjö milljón króna
munur á tilboði hennar og
lægsta tilboði innlendrar
skipasmíðastöðvar. Tilboð
hinnar pólsku stöðvar hjóðaði
uppá sex milljónir króna en til-
boð Stálsmiðjunnar var um 13
milljónir króna. Mismunur til-
boðanna er fyrst og fremst kom-
inn til vegna mikilla niður-
greiðslna pólska ríkisins á
skipaiðnaði. Vegna ógnvæn-
Iegrar stöðu íslensks skipa-
iðnaðar og ntikils atvinnuleysis í
greininni brást Málm- og skipa-
smtðasambandið hart við og
lauk þeirri viðureign með
framangrcindum afleiðingum.
Viðgerð skipsins fer fram hér á
landi.
Örn Friðriksson, forntaður
Málm- og skipasmíðasam-
bandsins, hefur látið hafa eftir
sér að hér sé fremur um
skynsantlega ákvarðanatöku að
ræða en sigur. Þegar stjórnvöld
taki ákvarðanir um að flytja
atvinnu fólks úr landi hljóti að
vera réttmætt aö mæla slíkum
ákvörðunum í móti. ÞI
Vegagerð ríkisins:
Kísilvegur greiðfærari