Dagur - 04.12.1992, Síða 7
Föstudagur 4. desember 1992 - DAGUR - 7
Hvað er að gerast?
TÓlllÍSÍ
Píanódeild
með tónleika
Píanódeild Tónlistarskólans á
Akureyri heldur tónleika í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju á
morgun, laugardaginn 5. desember,
kl. 15. Þar koma fram nemendur
píanódeildarinnar jafnt yngri sem
eldri og leika verk frá ýmsum tímum
tónlistarsögunnar. Aðgangur að tón-
leikunum er ókeypis og allir
velkomnir.
Myndlist
Sigurður sýnir í
Safnahúsinu
í dag, föstudag, kl. 16 verður opnuð
sýning í Safnahúsinu á Húsavík á
verkum Sigurðar Þóris, myndlistar-
manns. A sýningunni verða 40
myndir, olíumálverk, olíupastel-
myndir og pennateikningar. Sigurð-
ur Þórir hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga hér heima og erlendis.
Sýningin verður aðeins opin um
þessa helgi. Á morgun, laugardag,
og nk. sunnudag verður sýningin
opin kl. 14 til 20.
Gamli Elgur
sýnir í Vín
Á morgun, laugardag, verður opnuð
málverkasýning Gamla Elgs í
Blómaskálanum Vín í Eyja-
fjarðarsveit. Á sýningunni verða 16
rammíslenskar olíumyndir. Gamli
Elgur var með sína fyrstu sýningu
fyrir ári síðan í Vín. Sýningin stend-
ur fram undir jól.
Bridds-skák
Kvennabridds í
Dynheimum
Næstkomandi mánudagskvöld
verður síðasta kvennabridds í Dyn:
heimum á Akureyri fyrir jól. Konur
eru hvattar til að mæta. Þá verður
Dynheimabridds að vanda nk.
sunnudagskvöld kl. 19.30.
Mikið teflt hjá
Skákfélagi
Skákfélag Akureyrar heldur 10
mínútna mót í kvöld kl. 20 og eru
allir velkomnir. Á morgun og sunnu-
dag verður teflt í sveitakeppni, eldri
sem yngri nemendur, og má búast
við mikilli þátttöku.
Kvikmyndir
íslandsfrumsýning
á Miðjarðarhafinu
Á morgun, laugardaginn 5. desem-
ber, kl. 17 stendur Kvikmynda-
klúbbur Akureyrar fyrir íslands-
frumsýningu á ítölsku
Óskarsverðlaunamyndinni Mediterr-
aneo í Borgarbíói á Akureyri. I
íslenskri þýðingu hefur hún fengið
nafnið Miðjarðarhafið. Myndin
verður aftur sýnd nk. sunnudag kl.
17.
Steiktir tómatar í
Borgarbíói
Aðalmynd Borgarbíós á Akureyri
um helgina er Steiktir grænir
tómatar (Fried Green Tomatoes),
sem var tilnefnd til tveggja Ósk-
arsverðlauna. Þessi mynd verður
sýnd kl. 21 og á sama tíma í hinum
salnum verður sýnd grínmyndin
Hvítir geta ekki troðið. Klukkan 23
verða sýndar myndimar Lygakvend-
ið og Lostæti. Á bamasýningum á
sunnudag kl. 15 verða sýndar mynd-
imar Prinsessan og durtamir og
Öskubuska.
Fundir
Bændaklúbbsfund-
ur á Hótel KEA
Næstkomandi mánudagskvöld kl. 21
verður Bændaklúbbsfundur á Hótel
KEA á Akureyri. Aðalefni fundarins
er kynning á niðurstöðum kúa-
sýninganna sem fram fóru á sl.
sumri. Ráðunautamir Jón Viðar Jón-
mundsson og Guðmundur Stein-
dórsson hafa framsögu. Veittar
verða viðurkenningar fyrir bestu
kýmar.
Jólafundur
Framtíðarinnar
Kvenfélagið Framtíðin heldur jóla-
fund í Hlíð nk. mánudag, 7. desem-
ber, kl. 20.30. Stjómin minnir á jóla-
pakkana og er konum bent á að
mæta stundvíslega og taka með sér
gesti.
Aðalfundur TBA í
íþróttahöllinni
Aðalfundur Tennis- og badminton-
félags Akureyrar verður haldinn nk.
miðvikudagskvöld, 9. desember, kl.
20 í kaffiteríu íþróttahallarinnar.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
verða afhent verðlaun fyrir
Akureyrarmót í badminton árið
1992.
Basarar-markaðir
Köku- og muna-
basar í Laugarborg
Árlegur köku- og munabasar Kven-
félagsins Iðunnar í Eyjafjarðarsveit
verður haldinn í Laugarborg í Eyja-
fjarðarsveit nk. sunnudag, 6. desem-
ber, kl. 15. Margir eigulegir munir
eru í boði. Kaffisala verður á
staðnum. Allir em velkomnir.
Bólumarkaður
um helgina
Bólumarkaður verður að venju
opinn að Eiðsvallagötu 6 á Akureyri
um helgina. Á morgun verður opið
kl. 11 til 16 og á sunnudag kl. 13 til
16. Að vanda verður fjölbryttur
vamingur í boði. Má þar nefna
laufabrauð, ýmsan jólavaming,
brodd, borð- og gólfkertastjaka, og
Haddýar-brauð.
Aðventukvöld
Akureyrarkirkja
Næstkomandi sunnudagskvöld, 6.
desember, kl. 20.30 verður árlegt
aðventukvöld í Akureyrarkirkju.
Ræðumaður verður Þorsteinn
Pálsson, kirkjumálaráðherra.
Tveir kórar syngja, annars vegar
Kór Akureyrarkirkju undir stjóm
Bjöms Steinars Sólbergssonar og
hins vegar Kór Menntaskólans á
Akureyri undir stjóm Gordons
Jack. Æskulýðsfélag Akureyrar-
kirkju flytur helgileik undir stjóm
Amalds Bárðarsonar. Þá verður
almennur söngur og að lokum
flytja allir sálminn fagra, „Heims
um ból“.
Grundarkirkja
Aðventukvöld verður í
Gmndarkirkju í Eyjafjarðarsveit
nk. sunnudagskvöld, 6. desember,
kl. 21. Kór Gmndarkirkju syngur
undir stjóm Sigríðar Schiöth.
Undirleikari með kómum verður
Guðjón Pálsson. Böm úr Hrafna-
gilsskóla syngja. Már Magnússon
syngur einsöng. Ræðumaður
kvöldsins verður Haraldur Bessa-
son, háskólarektor. Kristín Páls-
dóttir sér um upplestur.
Stærri-
Árskógskirkja
Árlegt aðventukvöld verður í
Stærri-Árskógskirkju á Árskógs-
strönd nk. sunnudagskvöld, 6.
desember, kl. 20.30. Leikmenn
munu predika og böm flytja
helgileiki
Möðruvallakirkja
Aðventukvöld verður haldið í
Möðmvallakirkju í Hörgárdal nk.
sunnudagskvöld kl. 21. Kór kirkj-
unnar syngur nokkur aðventu- og
jólalög undir stjóm Birgis Helga-
sonar, organista. Lesin verður
jólasaga auk þess sem bamakór
Þelamerkurskóla syngur nokkur
lög. Ræðumaður kvöldsins verður
Þóra Magnúsdóttir frá Fagra-
skógi. Eftir athöfnina verða seld
friðarljós frá Hjálparstofnun
kirkjunnar.
Vallakirkja
Annað kvöld, laugardaginn 5.
desember, kl. 21 verður aðventu-
kvöld í Vallakirkju í Svarf-
aðardal. Gunnlaugur V. Snævarr
flytur hugvekju, Kirkjukór Svarf-
dæla undir stjóm Jóhanns Ólafs-
sonar syngur og böm leika á
hljóðfæri. Þá verður kveikt á að-
ventukertum og helgistund verður
við kertaljós.
Jólamarkaður í
Stórutjarnarskóla
Handverkskonur milli heiða verða
•með jólamarkað í Stómtjamarskóla
nk. sunnudag, 6. desember, kl. 14.
Seldir verða ýmiskonar heimagerðir
munir, jólaskraut, nytjahlutir, heima-
bakaðar kökur og konfekt. Kaffisala
verður og mun ágóðinn af henni
renna í byggingarsjóð handverks-
kvennanna, en þær hyggjast byggja
verslunarhúsnæði að Fosshóli næsta
sumar.
Skemmtanir
Desemberfagnaður
karlakórsmanna
Árlegur desemberfagnaður Karla-
kórs Akureyrar-Geysis verður hald-
inn í Lóni við Hrísalund annað
kvöld, laugardagskvöld, kl. 20. í
boði verður heitur matur, skemmti-
atriði, söngur og dans. Hljómsveit
Rafns Sveinssonar leikur fyrir dansi.
Miðaverð kr. 1500. Þátttaka tilkynn-
ist fyrir föstudagskvöld. Upplýsingar
gefa Ingvi Rafn í síma 26383 og
Hreiðar í síma 22620 eða 23289.
Jólahlaðborð á
Hótel Húsavík
Hótel Húsavík verður samkvæmt
venju með sitt annálaða jólahlaðborð
á laugardögum í desember. Boðið er
upp á gimilega heita og kalda rétti
ásamt jólaglöggi. Húsið verður
opnað kl. 19 laugardagana 5., 12., og
19. desember.
Nýdönsk í
Sjallanum
Mikið verður um að vera í Sjall-
anum. í kvöld standa Modelmynd og
Sjallinn fyrir fyrirsætukeppni herra
(sjá nánar annarsstaðar í blaðinu).
Kynnir verður Jón Axel Ólafsson.
Hljómsveitin Nýdönsk leikur fyrir
dansi í kvöld og annað kvöld. Eins
og venjulega verður Kjallarinn
opinn.
Framsóknarmenn
á Húsavík fagna
Framsóknarfélag Húsavíkur minnist
60 ára afmælis síns með hátíðar-
samkomu og kvöldverði í
Félagsheimili Húsavíkur nk. sunnu-
dag, 6. desember, kl. 17. Stofn-
fundur félagsins var haldinn 9. júlí
1932.
Spilað og dansað
hjáSÁÁN
SÁÁN stendur fyrir spilakvöldi og
dansleik í Húsi aldraðra á Akureyri
annað kvöld, laugardagskvöld.
Spilamennskan hefst kl. 22, en að
henni lokinni leikur hljómsveitin
Kredit fyrir dansi fram eftir nóttu.
Pó nú sé snjór á golfveliinum er-líf í Golfskálan-
um. 1x2 á fullu.
Sprengipottur um helgina.
Stór kerfi, lítil kerfi, tölvuval,
★
Stóri skermurinn frá Radíónaust er alltaf með helstu
íþróttaviðburði heimsins í beinni útsendingu.
Allir með í slaginn um stóra vinninginn.
Golfklúbbur Akureyrar.