Dagur - 04.12.1992, Side 10
10 - DAGUR - Föstudagur 4. desember 1992
Dagdvelja
Stjörnuspá
eftlr Athenu Lee *
0
Vatnsberi
(20. Jan.-18. feb.]
Þú þráir tilbreytingu frá dagleg-
um störfum og fólki sem þú
umgengst daglega. Það líður hjá
ef þú hefur kröftuga líkamsrækt.
m Fiskar
Wí (19. feb.-20. mars)
)
Skoðaðu fjölskyldumálin vel en
gættu að og farðu hinn gullna
meðalveg. Stysta leiðin er ekki
alltaf best og gæti leitt til leið-
inda.
)
Hrútur
(21. mars-19. aprfl)
Þú ert snillingur í samskiptum við
fólk; snilligáfan felst í að tala,
skrifa og þræta. En ekki stofna til
styrjaldar ( dag því einhver ná-
kominn tæki það nærri sér.
Naut
(20. aprIl-20. maí)
)
Þú hefur mikla þörf fyrir útiveru
og hreyfingu eftir slenið upp á
síðkastið. Eyddu líka tíma með
einhverjum sem þú hefur van-
rækt. Happatölur eru 5,15 og 26.
(jjl
Tvíburar
(21. maí-20. Júnl)
)
Þú ert óvenju árásargjarn í dag
en gættu þess að særa ekki við-
kvæmar sálir. Haltu líka hrokan-
um í skefjum.
d
Krabbi
(21. Júnl-22. Júll)
)
( dag togast á í þér bæði löngun
til athafna og að kúra þig undir
hlýrri sæng. Þessi togstreita gerir
þig önugan og leiðinlegan í sam-
skiptum við fólk.
IJón
(23. Júlí-22. ágúst)
)
Á skömmum tíma hefur þú safn-
að ótrúlegum skuldum og nú ertu
orðinn verulega áhyggjufullur
vegna þess. Huggaðu þig þó við
það að þú ert ekki einn um þetta.
d
Meyja
(23. ágúst-22. sept.)
)
Stjörnurnar sýna að breytingar
eru í vændum, annað hvort á
búsetu eða i atvinnu. f nánustu
framtíð muntu þó sjá eftir að
hafa breytt til. Haltu samt áfram.
(Vog
(23. sept.-22. okt.;
D
Þú verður fyrir örvandi reynslu (
dag en farðu þér samt hægt. Ást-
arsamband, ekki endilega þitt
eigið, veldur spennu í kringum
Þ'g-
(¥
Sporödreki)
(23. okt.-21. nðv.) J
Afleiðing einhverra gjörða kemur
í Ijós, hvort sem hún verður til
góðs eða ills. Þú munt læra að
gera ekki sömu mistökin tvisvar
og vonandi lærir þú af reynsl-
unni.
(x{\. Bogmaönr )
V (22. nðv.-21. des.) J
Hópvinna kemur sér best ( dag
)v( þú kemur litlu í verk einn
j(ns liðs. Þetta ertími samvinnu;
meira að segja keppinautanna.
r
v
Steingeit )
(22. des-19. jan.) J
dag togast á i þér að gera
eitthvað fyrir sjálfan þig eða fyrir
aðra. Þú ættir að vera eigingjarn
en verður það ekki. Happatölurn-
ar eru 3, 23 og 30
Viö ætlum aö tengja tvö þúsund
hestafla mótor við bátinn, ná 180
mílna hraöa og skótast 250 fet
yfir brúna.
C Th» «M DMnn Company - 8
ðta
jgH ::
§É
Bókasafniö i Mauskúpuhelli... þar sem saga
Skugga ættarinnar er skráð og ævintýrin líka...
17di Skuggi... bókin hans langa, langa,
langafa... hérna er það........Donaii"...
'Sérðu þá líka? Gott... ég hélt um tíma að ég væri drukkinn
Hljóðfæraleikur
Hjá lækninum:
Sjúklingurinn: „Heyrðu læknir, heldurðu að ég geti leikið á píanó eftir
uppskurðinn?"
Læknirinn: „Ja, ég veit það ekki - en eitthvert hljóðfæri geturðu örugg-
lega leikið á. Sko, sjáðu til, síðasti sjúklingurinn minn var farinn að
leika á englahörpu 24 tímum eftir að ég skar hann upp...“
Framundan er ævintýraár. Þú
tekur að þér ólíklegustu verkefni
og sjálfstraustið eykst. Það mun
opna þér fleiri tækifæri til þekk-
ingaröflunar og rómantíkin verð-
ur ekki langt undan. Líklega
muntu ferðast til fjarlægra landa.
Þetta
Lengsta trúlofunin
Lengsta trúlofun sem sögur fara
af stóð yfir í 67 ár!
Eftir þennan óvenjulanga
umþóttunartíma giftu þau sig
loksins, hjónaleysin Octavio
Guillen og Adriana Martinez,
82ja ára að aldri. Athöfnin fór
fram í Mexíkóborg í júní 1969.
Fjandinn úr
sauðarleggnum
Orðtakið, eitthvað kemur eins og
fjandinn (skrattinn) úr sauðarleggn-
um, merkir að eitthvað komi óvænt.
Orðtakið á rætur að rekja til þeirrar
þjóðtrúar, að hægt væri að ginna
drauga inn (leggi, hross- eða sauð-
arleggi, reka tappa í opið og binda
síðan líknarbelg fyrir. Stundum bar
það við að leggurinn var opnaður
aftur og kom þá fjandinn (draugur-
inn) úr sauðarleggnum.
Nú á tímum heyrist oft sagt að
eitthvað komi „eins og skrattinn úr
sauðalæknum“.(!) Sú afbökun er
óskiljanleg og stafar af þekkingar-
leysi á uppruna orðtaksins.
Henging
„Mörg góð henging hefur komið í
veg fyrir slæmt hjónaband."
Shakespear.
&/
STORT
500 lítrar á dag
á ASÍ-þinginu
Eins og allir vita
var þing Alþýðu-
sambands ís-
lands haldið í
[þróttahöllinni á
Akureyri fyrir
skömmu. Sam-
kvæmt fréttum
tókst þinghaldið
vel, en það var
Lionsklúbburinn Hængur sem sá
um undirbúning og framkvæmd
þinghaldsins. Að afloknu þingi ber
ýmislegt á góma í sambandi við
þinghaldið, t.d. er talið, sam-
kvæmt nokkuð áreiðanlegum
heimildum, að þingfulltrúar hafi
drukkið um 500 lítra af kaffi á dag
þá daga sem þinghaldið stóð, en
það þýðir 2500 lítrar á fimm
dögum. Geri aðrir betur. Senni-
lega hefur þetta verið Braga kaffi
sem drukkið var á þinginu, eða
skrautfjöðurin Rúbín, því þingfull-
trúar vildu auðvitað bara íslenskt,
enda verður verkalýðshreyfingin
að vera sjálfri sér samkvæm.
Veljum íslenskt
Eins og alþjóð
veit, hefur verka-
lýðshreyfingin
auglýst ótæpi-
lega í Ijósvaka-
miðlunum und-
anfarið og skor-
að á landsmenn
að velja íslensk-
ar vörur til að
reyna að slá á atvinnuleysið. Ekk-
ert er nema gott um það að segja,
en heyrst hefur að þessi auglýs-
ingaherferð kosti a.m.k. tvo tugi
milljóna króna. Vonandi taka
landsmenn viðvaranir verkalýðs-
hreyfingarinnar til greina og velja
íslenskar vörur fremur en er-
lendar. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum gerðist það á fyrsta
degi ASl-þingsins að þingfulltrú-
um var boðið upp á útlent sæl-
gæti, en þeir kvörtuðu strax og
spurðu hvort ekki væri verksmiðja
á Akureyri sem framleiddi slíkar
vörur. Það reyndist auðvitað rétt
og Linda naut því góðs af við-
skiptum við þingfulltrúa. Þetta litla
dæmi sýnir best, að talsvert er
hægt að gera til að slá á atvinnu-
leysið ef landsmenn taka sig sam-
an og velja íslenskar vörur frekar
en erlendar.
„Eins og hundur
fell ég flatur“
Það er að verða
algengt I þess-
um pistlum að
enda á vísu. Að
þessu sinni er
leitað fanga I
bókinni Ljóð og
lausavísur eftir
Harald Hjálm-
arsson frá
Kambi I Deildardal I Skagafirði,
en þriðja prentun er nú I gangi og
hefur bókinni greinilega verið vel
tekið. Haraldur var kunnastur fyrir
brennivlnsvísur sínar og hér
koma tvær:
Á sunnudögum sýp ég vín
samkvæmt manna lögum.
Þess vegna er ég miður mín
á mánu- og þriðjudögum.
Brennivín er besti matur,
bragðið góða svíkur eigi.
Eins og hundur fell ég flatur
fyrir því á hverjum degi.