Dagur - 04.12.1992, Side 11
Föstudagur 4. desember 1992 - DAGUR - 11
HÉR & ÞAR
í þrjár klukkustundir lá John
Shane fastur i braki flutningabíis
sem valt, en það sem verra var,
bílinn hafði verð að flytja fimm
milljónir býflugna sem sluppu út
við slysið og réðust að John þar
sem hann lá bjargarlaus í flakinu.
„Flugurnar komu í stórum
hópum,“ sagði John, „og í hvert
skipti sem þær stungu var það
eins og ég væri stunginn með
mjórri nál. Ég reyndi að drepa
eins margar og ég gat með berum
höndunum, sem voru útataðar í
olíu, en þetta virtist vera vonlaus
barátta - einn gegn fimm milljón-
um! Loksins þegar mér var bjarg-
að úr prísundinni hafði ég verið
stunginn um hundrað sinnum en
mér hafði verið sagt að 200 stung-
ur geti verið banvænar. Ég hef
ekkert á móti býflugum, og ég
hef þegar brett upp ermarnar og
mun snúa mér aftur að býflugna-
flutningi!
Einn gegn
milljón - býf
Hraðsveitakeppni í bridds:
Sveit Sigurbjörns efst
Sveit Sigurbjörns Þorgeirsson-
ar er efst eftir 1. umferð í
Hraðsveitakeppni Viking
bruggs og Bridgefélags Akur-
eyrar. Sveitin hefur hlotið 317
stig en sveit Kristjáns Guð-
jónssonar er í öðru sæti með
303 stig.
Sveit Ragnhildar Gunnarsdótt-
ur er í þriðja sæti með 286 stig,
sveit Unu Sveinsdóttur í því
fjórða með 279 stig og sveit
Stefáns Vilhjálmssonar í fimmta
sæti með 273 stig.
Næsta umferð mótsins verður
spiluð í Hamri nk. þriðjudags-
kvöld og eru keppendur beðnir
um að mæta stundvíslega. -KK
Beðist
velvirðingar
Þau leiðu mistök urðu á baksíðu
blaðsins í gær að stafur féll niður
í fyrirsögn í föðurnafni Ingu
Björnsdóttur læknis á Akureyri.
Hlutaðeigandi og lesendur blaðs-
ins eru beðnir velvirðingar á
mistökum þessum. ój
Dynheimabridds:
Hörður og Öra efstir
Dynhcimabridds var að venju 2. Soffía Guðmundsdóttir-
spilaður sl. sunnudagskvöld í Hjalti Bergmann 124
Dynheimum á Akureyri. Úrslit 3. Skúli Skúlason-
urðu sem hér segir: Sigurbjörn Þorgeirsson 122
1. Hörður Steinbergsson- 4. Kolbrún Guðveigsdóttir-
Örn Einarsson 131 Sveinbjörn Sigurðsson 117
Myndlistarmenn frá Akureyri
opna sýningu í Frakklandi
í dag, föstudaginn 4. desem-
ber, opna þrír myndlistarmenn
frá Akureyri myndlistarsýn-
ingu í Strasbourg í Frakklandi.
Listamennirnir eru Birgir Snæ-
björn Birgisson, Sigtryggur
Bjarni Baldvinsson og Róbert
Róbertsson.
Þeir þremenningar hafa síðast-
liðin tvö ár verið við nám í lista-
háskóla í Strasbourg og útskrifast
þaðan næsta vor. Þeir hófu
myndlistamám sitt við Myndlista-
skólann á Akureyri en útskrif-
uðust síðan frá Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1989 og
1990.
Á sýningunni gefur að líta
málverk, höggmyndir og ljós-
myndir. Sýningin verður haldin í
sýningarsal sem ber heitið Le
Faubourg, 39 rue du Faubourg
de Pierre 67000 Strasbourg
France. Sýningin verður opin
daglega frá kl. 17.00-20.00 til 13.
desember nk. BB.
POLRRI5
Opnum laugardaginn 5. desember
hluta af glæsilegum sýningarsal
í nýju húsnæði að Undirhlíð 2
(við hringtorgið í Glerárhverfi).
Sýnum Polaris vélsleða árgerð '93,
fatnað og allt sem til þarf.
Opið frá kl. 10-17.
Polarisumboðið
- Hjólbarðaþjónustan
Undirhlíd 2 — Sími 22840 — 603 Akureyrí.
Aila daga fram að jólum bjóðum við
rjúkandi kakó, heitar vöfflur með rjóma
og lummur ásamt öðru góðgæti.
Bjóðum til fyrirtækja:
Snittur, smurt brauð,
smurbrauðs- og rjómatertur,
heitan og kaldan mat.
★
VEITINGASALIR II. HÆÐ.
Einstaklingar, starfshópar, fyrirtæki,
verðum með JÓLAHLAÐBORÐ
dagana 11., 12., 18. og 19. desember.
Borðapantanir í síma 22200.
★
Laugardagskvöldið 5. desember.
Lokað vegna einkasamkvæmis.