Dagur - 14.01.1993, Side 3
Fimmtudagur 14. janúar 1993 - DAGUR - 3
Fréttir_________________________________________________
Hjálparstofnun kirkjunnar og Rauði kross íslands:
Fatasöftmn í dag vegna stríðs-
hijáðra í fyrrum Júgóslavíu
- á Akureyri verður söfnunin í anddyri íþróttahallarinnar kl. 14 til 22
í dag efna Rauði kross íslands
og Hjálparstofnun kirkjunnar
til fatasöfnunar til hjálpar
stríðshrjáðum í fyrrum Júgó-
slavíu. Fötin verða send í
næstu viku áleiðis til Rotter-
dam og þaðan verða þau flutt
landleiðina niður á Balkan-
skaga.
Söfnunin verður um allt land
og eru fjölmargir móttökustaðir á
Norðurlandi. Pörf er fyrir hvers
kyns fatnað, innri sem ytri flíkur,
er. skófatnað þarf ekki að senda.
Fötin þurfa að vera heil og hrein
og er áríðandi að fólk komi með
þau flokkuð þannig að hægt verði
að setja þau beint í kassa sem
fara síðan í gáma við móttöku-
stöðvarnar. Um er að ræða fjóra
flokka; í fyrsta lagi kvenföt, í
öðru lagi karlmannaföt, í þriðja
lagi smábarnaföt að 5 ára aldri og
í fjórða lagi barnaföt 5-14 ára.
Eins og áður segir verður tekið
við fötum víða á Norðurlandi en
móttakan á hverjum stað er
skipulögð af forráðamönnum
Rauða kross deilda og sóknar-
nefndarmönnum. Á Akureyri
verður tekið á móti fötum í and-
dyri íþróttahallarinnar frá kl. 14
til 22. Að sögn Úlfars Hauksson-
ar, formanns Akureyrardeildar
Rauða krossins, verður þar fjöldi
sjálfboðaliða við störf í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rauða krossi íslands verður föt-
um veitt móttaka á öðrum þétt-
býlisstöðum á Norðurlandi sem
hér segir: Björgunarskýlinu á
Húsavík, Safnaðarheimili Ólafs-
fjarðarkirkju, Björgunarsveitar-
húsinu á Hofsósi kl. 14-20,
Löngumýri í Skagafirði kl. 14-20,
Safnaðarheimilinu á Sauðárkróki
kl. 14-20 og Slysavarnahúsinu
Þormóðsbúð á Siglufirði.
Jóhannes Tómasson hjá Hjálp-
arstofnun kirkjunnar sagði að
ríkisstjórnin hafi heitið fimm
milljónum króna til að koma
fatasendingunum áleiðis til hinna
þurfandi svæða og samið hafi ver-
ið við Samskip hf. um að annast
flutninga á gámum með fatnaði
til Rotterdam í Hollandi þaðan
sem sendingarnar yrðu sendar
áfram. Starfsfólk Rauða krossins
á Balkanskaga mun veita fata-
sendingunum viðtöku og sjá um
að deila fatnaðinum til þeirra
sem þess þurfa með. Jóhannes
sagði að mikið skorti af hlýjum
fatnaði á stríðssvæðunum í ríkj-
um fyrrum Júgóslavíu. Bæði
væru vetrarhörkur þar viðvarandi
á þessum árstíma og einnig væri
mjög erfitt með upphitun húsa
vegna eldsneytisskorts. óþh/ÞI
Rennslistruflanir í Laxá:
Miklar stíflur við Mývatn
- en neytendur fengu nóg rafmagn
„Þaö líða engir notendur þó
ástandið sé svona hjá okkur,“
sagði Héðinn Stefánsson,
stöðvarstjóri Laxárvirkjunar,
aðspurður um áhrif mikilla
rennslistruflana í Laxá. Eigin-
lega er einsdæmi að svo miklar
truflanir hafi orðið undanfarin
30 ár, en á þriðjudag var
rennsli í ánni aðeins um fjórð-
ungur þess sem venjulegt er,
sökum klakastíflna við
Mývatn. Kröfluvirkjun var
keyrð á fullu og framleiddi 30
Aðfaranótt föstudagsins 8.
janúar sl. var farið inn í bifreið
sem stóð við Fögrusíðu 9 á
Akureyri og stolið úr henni
rauðri möppu, merktri Júdó-
deild KA og Jóni Óðni Óðins-
syni, en í möppunni voru 90
þúsund krónur. Heitið er 20
þúsund króna fundarlaunum
fyrir upplýsingar sem leiða til
þess að peningarnir komi
fram.
Þjófnaðurinn var kærður til
rannsóknarlögreglunnar á Akur-
Skipverjar á Skafta SK-3 frá
Sauðárkróki komu heim með
flugi austan af fjörðum í gær,
en togarinn komst ekki lengra
en á Seyðisfjörð vegna óveð-
ursins.
Togarinn var að koma úr sigl-
ingu, en hann seldi afla sinn í
Hull fyrir viku síðan. Aftaka-
veðrið sem gekk yfir landið
undanfarna daga gerði að .verk-
megawött. Krafla sá Austfirð-
ingum fyrir 20 megavöttum á
dögunum, er miklar línubilanir
urðu þar.
Héðinn var í gær bjartsýnn á
að rennsli Laxár ykist og kæmist í
viðunandi horf með kvöldinu.
Rennslistruflanirnar hófust á
mánudag, voru hvað verstar á
þriðjudag og aðfaranótt miðviku-
dags, en fóru síðan að lagast í
gær. Á þriðjudag voru þrjár vélar
í gangi. Þó þær framleiddu ekki
rafmagn var reynt að halda vatns-
vegum opnum og í lagi þegar
eyri og biður hún hugsanleg vitni
að gefa sig fram.
Að sögn Jóns Óðins var bíllinn
læstur nema hvað skottið virðist
hafa verið ólæst því þar komst
þjófurinn inn.
„Þessir peningar voru afrakst-
ur fjáröflunar sem Júdódeildin
hefur staðið í og mjög bagalegt
fyrir blanka deild að verða fyrir
svona tjóni. Til að freista þess að
fá peningana aftur höfum við
heitið fundarlaunum og vonum
að þessi aðferð beri árangur,"
sagði Jón Óðinn. SS
um að skipið fór ekki lengra en til
Seyðisfjarðar. Flogið var með
skipverja á miðvikudag með
leiguflugi frá Flugfélagi Norður-
lands, en að sögn Gísla S. Einars-
sonar útgerðarstjóra Skagfirðings
hf. er oft brugðið á þetta ráð þeg-
ar svona stendur á, þó dýrt sé að
leigja flugvél sé þetta tímasparn-
aður. Skipverjar ná þó ekki
fullu leyfi heima hjá sér, því þeir
fara í næsta túr á föstudag. sþ
vatnið kæmi. Allar veitur austan
Akureyrar fengu rafmagn um
línu milli Akureyrar og Laxár-
virkjunar og var rafmagninu
dreift í gegn um spennistöðvar
hjá virkjuninni. „Það hefði getað
farið illa ef Akureyrarlínan hefði
bilað á sama tíma, þá hefði þurft
að skammta rafmagn,“ sagði
Héðinn.
Útrennslið úr Mývatni stíflað-
ist svona heiftarlega, að sögn
Héðins. Að megninu til kemur
vatnið fram í þremur kvíslum. í
Geirastaðakvísl, þeirri nyrstu, er
Laxárvirkjun með lokuvirki til að
jafna útrennsli úr Mývatni, en
skurðurinn að því stíflaðist upp
við vatnið og sáralítið vatn kom
um hinar kvíslarnar. Kráká stífl-
aðist og reiknar Héðinn með að
heilmikið flóð sé við Grænavatn,
undir ís og snjó. „Það er kannski
best fyrir okkur að þetta sé þarna
uppfrá, því þegar vatnið fer að
éta sig fram dempast allt á leið-
inni niðureftir svo að við fáum
ekki flóð á okkur. Við erum
vongóðir um að það verði ekki
núna,“ sagði Héðinn, en flóð
vegna klakastíflna í Laxárdal
hafa oft valdið skemmdum við
virkjunina. IM
Vélsleðaslysið í
Svarfaðardal:
Tilkynningin barst
seint til lögreglu
Á þriðjudag var sagt frá vélsleða-
slysi sem varð við Hánefsstaði í
Svarfaðardal síðastliðinn laugar-
dag. Vegna fréttarinnar vill lög-
reglan á Dalvík að fram komi að
henni barst ekki tilkynning um
slysið fyrr en kl. 12 á hádegi
þennan dag. Slysið varð um kl.
10 og klukkutíma síðar fannst
maðurinn og var þá hringt á
sjúkrabíl en sjúkraflutningar eru
ekki í höndum lögreglu. Lög-
reglumönnum var svo ekki til-
kynnt um slysið fyrr en klukku-
tíma eftir að vélsleðamaðurinn
fannst. JÓH
Akureyri:
90 þúsund krónum
stolið úr bfl
- Júdódeild KA heitir fundarlaunum
Skipverjar á Skafta SK-3:
Komu heim með leiguflugi
1
Skíðagöngufólk
Kjamamótið í skíðagöngu verður haldið
laugardaginn 16. þ.m. oghefstkl. 13.00.
Keppt verður í öllum aldursflokkum.
í mótslok verður verðlaunaafliending,
boðið verður upp á hressingu og viður-
kenningar veittar öllum keppendiun.
Um kl. 14.00 verður brautin opnuð öllum
þeirn sem vilja trimma án tímatöku.
Nánarl upplýsingar veittar
í símum 24047 og 24599.
Skógræktarfélag Eyfirðinga.