Dagur - 20.01.1993, Side 1
76. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 20. janúar 1993
12. tölublað
Vel klæddur
í fötum frá
©rrabodiin
HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 • BOX 397
BERNHARDT
The Taik>r-I.iK>k
Norðurland vestra:
Viirna í frystihúsum
liggur víða niðri
- ótíðin setur strik í reikninginn
Málað í stillunni.
Mynd: Robyn
Hólanes hf.:
Sala hlutabréfa í Skag-
strendingi í imdirbúningi
Hólanes á 9% af heildarhlutafé
Næg vinna er hjá Fiskiðju
Sauðárkróks hf. bæði á Sauð-
árkróki og á Hofsósi. Þar voru
Akureyri:
Þrír árekstrar
Þrír árekstrar urðu á Akureyri
síðdegis á mánudag og voru
alls 10 bflar í þeim. Lögreglan
telur að kenna megi um óvar-
kárni, hálku og að allt of stutt
bil er oft á milli bfla þannig að
ef stöðvað er skyndilega verð-
ur aftanákeyrslu ekki forðað
eins og tilfellið var í öllum
þessum árekstrum.
í Glerárgötu urðu tveir af þess-
um árekstrum, fjórir bílar í öðr-
um árekstrinum en þrír bílar í
hinum og í Þingvallastræti lentu
þrír bílar í aftanákeyrslu. Einn
maður hlaut minni háttar áverka
á andliti en að öðru leyti sluppu
bílstjórar og farþegar við meiðsl
sem telja má mestu mildi. Eigna-
tjón varð þó töluvert í þessum
þremur árekstrum. GG
Bæjarstjórn Akureyrar:
Skiptar skoðanir
irni götunafii
Á fúndi bæjarstjómar Akur-
eyrar í gær urðu töluverðar
umræður um þá tillögu bygg-
inganefndar að breyta nafni
Kaupvangsstrætis vestan
Hafnarstrætis að Þingvalla-
stræti í Grófargil.
Fram kom andstaða fjögurra
fulltrúa Framsóknarflokks við
þessa tillögu og Sigurður J.
Sigurðsson (D) taldi að bæri
að athuga að breyta nafni allr-
ar götunnar, þ.e. frá Glerár-
götu að Þingvallastræti, í Gróf-
argil. Að tillögu Sigríðar
Stefánsdóttur, forseta bæjar-
stjórnar, var þessu máli aftur
vísað til bygginganefndar.
óþh
Heimiluð stækkun
á Hagkaupslóð
Bæjarstjóm Akureyrar sam-
þykkti í gær með 6 atkvæð-
um meirihluta Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðubandalags
að heimila stækkun lóðar
Hagkaups við Furuvelli.
Fjórir fulltrúar minnihluta
voru á móti.
Bæjarstjórn staðfesti þá
samþykkt meirihluta skipulags-
nefndar að heimila lóðarstækk-
un um allt að 5 metra til norð-
austurs og götustæði Hjalteyr-
argötu hliðrist sem því nemur.
Hins vegar var bæjarstjórn á
einu máli um að heimila ekki
innkeyrslu á lóð Hagkaups af
Hjalteyrargötu. óþh
engar uppsagnir á fólki, en
lokað á milli jóla og nýárs.
Hins vegar var fólki sagt upp
hjá Skildi hf. á Sauðárkróki og
Særúnu hf. á Blönduósi og er
vinna ekki hafín þar ennþá.
Ekki er búið að ákveða upp á
dag hvenær vinnsla hefst á ný hjá
Skildi hf. á Sauðárkróki. Ekki
náðist í Árna Guðmundsson
framkv.stjóra Skjaldar, en Ólaf-
ur H. Marteinsson forstjóri
Þormóðs Ramma á Siglufirði
sagði ótíðina undanfarið hafa sett
strik í reikninginn og auk þess
fiskist illa. Hann kvaðst þó búast
við því að það verði á næstu dög-
um og örugglega fyrir mánaða-
mótin.
Kári Snorrason framkv.stjóri
Særúnar hf. á Blönduósi sagði
ekki enn ákveðið hvenær vinna
hefjist á ný í fiskiðjunni, en
kvaðst vonast til að það geti orð-
ið fljótlega eftir helgi. Hann
sagði togarann Nökkva HU-15
vera stopp vegna viðgerða og auk
þess fara nú fram endurbætur á
húsnæði frystihússins.
Vinna hjá Fiskiðjunni á Sauð-
árkróki og Hofsósi stöðvaðist
ekki nema dagana á milli jóla og
nýárs. Hjá Hólanesi hf. á Skaga-
strönd hefur vinna í frystihúsinu
legið niðri um tíma eins og kunn-
ugt er. Verið er að athuga hvort
bátar fáist til að veiða 500 tonna
þorskígildiskvóta sem Skag-
strendingur hf. bauð Hólanesi og
munu þau mál væntanlega skýr-
ast á næstunni. sþ
Endurskipuleggja þarf starfs-
mannahald á dvalarheimilinu
Skjaldarvík. Eins og komið
hefur fram er miðað við að
starfrækslu dvalarheimilis þar
verði hætt þó engin tímasetn-
ing sé á þeirri breytingu en nú
þarf að breyta starfsmanna-
haldi vegna þess hve vistmönn-
um á stofnuninni hefur
fækkað. Björn Þorleifsson,
deildarstjóri öldrunardeildar
Akureyrarbæjar, segir enga
ákvörðun liggja fyrir um
hvernig að breytingu á starfs-
mannahaldi verði staðið en lík-
legast verði grípið til uppsagna
alls starfsfólks og síðan endur-
ráðninga.
Björn segir að fyrirsjáanlega
verði að flytja hluta af vistmönn-
um í Skjaldarvík á hjúkrunar-
deildir. Frá því að sú ákvörðun
var tekin að draga smátt og smátt
úr rekstrinum í Skjaldarvík hefur
vistmönnum fækkað en starfs-
mannafjöldi er sá sami og var
Enn er verið að leita leiða til
að bjarga rekstri Hólaness hf.
á Skagaströnd. Á fundi sveit-
arstjórnar Höfðahrepps í des-
ember s.I. kom fram að Hóla-
nes hf. hefði kannað mögu-
leika á sölu hlutabréfa sinna í
Skagstrendingi hf., en þar á
Hólanes 9% af heildarhlutafé.
Landsbréf hf. í Reykjavík eru
nú að undirbúa sölu hlutabréf-
þegar vistmenn voru rúmlega 70
talsins, þ.e. 28 stöðugildi. íbúar í
Skjaldarvík eru nú 52 og þörf er
fyrir að hluti þeirra fái inni á
hjúkrunardeildum. „Til þess að
hagræða í rekstri þarna þá verð-
um við að fækka starfsfólki því
það er fleira en reksturinn ber.
Okkur er því uppálagt af bæjar-
yfirvöldum að fækka,“ segir
Björn.
Vandkvæðin á endurskipu-
lagningu starfsmannahaldsins
segir Björn þau að á sínum tíma
hafi fólk verið ráðið í ákveðin
störf. Til að unnt sé að breyta
starfssviðum og sameina störf
geti þurft að grípa til uppsagna á
öllu starfsfólki og síðan endur-
ráðninga. „Þetta er hugmynd
sem er verið að meðhöndla hjá
Akureyrarbæ, en komi til þess að
við þurfum að láta einhverja
hætta í Skjaldarvík þá er fullur
vilji til þess hjá öllum sem að
málinu koma að láta það fólk
hafa forgang á önnur störf hjá
bænum,“ segir Björn Þorleifsson.
anna. Lárus Ægir Guömunds-
son framkvæmdastjóri Hóla-
ness vill ekkert láta hafa eftir
sér um þetta mál.
Á fundi hreppsnefndar í okt-
óber s.l. kom fram að Hólanes
hf. hefði „rætt þann möguleika“
að selja hlutabréf sín í Skag-
strendingi hf., að nafnverði rúm-
ar 15 milljónir kr. og 9% af heild-
arhlutafé. í fundargerðinni kem-
ur fram að hreppsnefndarmenn
hafi af því áhyggjur ef þessi
hlutabréf verði seld úr eign
heimamanna og því lagði Adolf
J. Berndsen það til að því yrði
beint til Hólaness að verði bréfin
seld þá verði þau boðin
hreppnum. Þessi tillaga var
samþykkt.
Á fundi hreppsnefndar í byrj-
un desember kom það fram að
Hólanes hf. hafi samið við
Landsbréf hf. um sölu umræddra
hlutabréfa. í fundargerð segir að
hreppsnefndarmenn telji hrepp-
inn ekki hafa bolmagn til að
kaupa þessi hlutabréf. Adolf J.
Berndsen ítrekaði þá afstöðu
sína að hreppurinn eigi að kaupa
bréfin ef af sölu þeirra verði og
kvað tilganginn með sölu þeirra
þann að létta á fjárhagsvanda
Hólaness. Oddviti hreppsins,
Sveinn S. Ingólfsson, taldi að það
myndi ekki létta fjárhagsvanda
Hólaness að selja bréfin, þar sem
þau væru þegar veðsett og skor-
aði á Hólaness að halda í þau.
Adolf J. Berndsen svaraði því til
að bréfin séu veðsett „að hluta“
til Landsbankans.
Davíð Björnsson hjá Lands-
bréfum hf. staðfesti í samtali við
blaðið að verið sé að undirbúa
sölu hlutabréfa Hólaness í Skag-
strendingi hf. „Virk sala er ekki
hafin en í fullum undirbúningi“,
sagði Davíð og kvað það jafn-
framt frágengið mál að bréfin
verði til sölu.
Þess má geta að Sveinn S. Ing-
ólfsson er framkvæmdastjóri
Skagstrendings hf. og Adolf J.
Berndsen á sæti í stjórn Hóla-
ness hf. Lárus Ægir Guðmundsson
vildi ekkert tjá sig um þetta mál
og kvað það ekki opinbert af
hálfu Hólaness hf. sþ
Eldur í Sunnu SI:
Logskurður kveikti
í einangnm
Eldur komst í einangrun milli
vinnsludckks og efsta dekks
fjölveiöiskipsins Sunnu SI-67
frá Siglufírði í gærmorgun er
verið var að logskera á dekki
skipsins. Slökkviliðinu á Siglu-
fírði var tilkynnt um eldinn
klukkan 08.55 og tók það um
klukkutíma að ráða niðurlög-
um hans, en slökkviliðið vakt-
aði skipið fyrst á eftir ef eldur-
inn léti aftur á sér kræla. Tölu-
vert af einangruninni þurfti að
rífa frá til að komast fyrir
eldinn.
Eldurinn læstist í einangrunina
og varð af þessu mikill reykur en
minni eldur. Strax var hafist
handa að reyktæma skipið en
reykur fór um það allt, þó mest á
vinnsludekki en reykjarlyktar
varð m.a. vart um allar vistarver-
ur skipverja og eldhús. Ólafur
Marteinsson hjá Þormóði ramma
hf., eiganda Sunnu, segist álíta
að reykurinn hafi ekki valdið um-
talsverðum skemmdum eða a.m.k.
sáralitlum. Skoðunarmenn trygg-
ingarfélags skipsins og flokkunar-
félags þess voru væntanlegir til
Siglufjarðar í gær til að kanna
þær skemmdir sem urðu á skip-
inu. GG
Dvalarheimilið Skjaldarvík:
Starfsmannahald endurskipulagt
vegna fækkunar vistmanna