Dagur - 20.01.1993, Page 3

Dagur - 20.01.1993, Page 3
Miðvikudagur 20. janúar 1993 - DAGUR - 3 Fréttir Leikfélag Húsavíkur: Fjölþjóðleg samviima við uppsetningu á Ronju Leikfélag Húsavíkur stefnir að frumsýningu á Ronju ræningja- dóttur eftir Astrid Lindgren uppúr næstu mánaðamótum. Bæjarsjórinn á Húsavík, Einar Njálsson, þýddi verkið fyrir leikfélagið. Brynja Benedikts- dóttir leikstýrir. Það vekur athygli hve alþjóðlegt yfir- bragð er við undirbúninginn því fólk er óvenju víða að sem á einhvern hátt kemur að sýn- ingunni; tveir Grænlendingar munu fylgjast með uppsetning- unni, maður frá Sviss vinnur við leikmynd, kona frá Hong Kong leikur ásamt danskri konu og dóttur hennar og Mývetningur semur texta. Ása Gísladóttir formaður leik- félagsins sagði að margt skemmtilegt kæmi fram í þýðingu Einars á verkinu. Um 20 manns koma fram í sýningunni. Með aðalhlutverk fara: Júlía Sigurðar- dóttir, sem fer með titiihlutverk- ið, Birki Bjarkason leikur Eiður Pétursson, Ingimundur Jónsson er í hlutverki Matthfasar og Bjarni Sigurjónsson í hlutverki Skalla-Péturs, en Lovísu móður Ronju leikur Anna Ragnarsdótt- ir. Nokkrir unglingar sem ekki hafa starfað áður með leikfélag- inu taka þátt í sýningunni. Það er nýjung hjá leikfélaginu að brúðuleikhús kemur við sögu í sýningunni og sagði Helga Amalds félögum til við uppsetningu þess. Ása sagði að sviðsmyndin væri vandasöm að gerð, ef ævintýrið ætti að skila sér vel, þar sem verkið gerðist á mörgum stöðum, en leikfélagið hefði góða sviðs- menn og í þeirra hóp hefði bæst Manfred Lemke frá Sviss. Hann kennir við Stórutjarnaskóla og er leikhúsáhugamaður af lífi og sál, að sögn Ásu. Leikstjórinn, Brynja Benedikts- dóttir, hefur starfað á Grænlandi og fyrr í vikunni komu tvö frá grænlenska Ieikhópnum í n.k. þjálfun til Húsavíkur. Þau ætla að fylgjast með uppsetningu Brynju á verkinu hjá leikfélag- inu. Ása sagði að hér væri greini- lega um hæfileikafólk að ræða sem kynni ýmislegt fyrir sér og myndi kenna leikfélagsfólkinu húsvíska margt í staðinn. Helgi Pétursson hefur samið tónlist við verkið, sem hann leik- ur á sýningum ásamt eldri lögum. Friðrik Steingrímsson frá Gríms- stöðum gerði texta við tónlistina. Natalia Chow, söngkona frá Hong Kong, sem nú býr á Húsa- vík, kemur fram sem undir- heimavera í sýningunni. Það má því segja að fjölþjóðlegt and- rúmsloft er yfir undirbúnings- vinnu við sýninguna, og ekki að efa að vel mun til takast sam- kvæmt venju hjá hinu metnaðar- fulla leikfélagi á Húsavík. IM Steingrímur Björnsson, deildarstjóri hjá KEA, afhendir Þórdísi R. Trampe frá Ólafsfirði vinninginn, fjölhrærivél af gerðinni AEG KM21. Á innfelldu myndinni er Hrönn Sigurðardóttir, starfsstúlka í auglýsingadeild Dags, að draga út lausnarseðilinn sem Þórdís reyndist eiga. Myndír: Robyn Dregið í jólakrossgátu Dags: Fjölhrærivélin fór til ÓlafsQarðar - yfir 500 lausnarseðlar bárust víðs vegar af landinu í gær var dregið í jólakrossgátu Dags en skilafrestur rann út 18. janúar og var þátttaka með eindæmum góð. Alls bárust 517 lausnarseðlar frá lesendum um nánast allt land og áttu fæstir von á svo góðum viðtök- um. Fyrsti seðillinn sem dreg- inn var út úr bunkanum var merktur Þórdísi R. Trampe, Ægisgötu 18 í Ólafsfirði, og þar með var Ijóst að hún fær fyrstu verðlaun, AEG fjöl- hrærivél frá Heimilistækja- og búsáhaldadeild KEA að verð- mæti 11.595 krónur. Þá voru dregnir út fjórir lausn- arseðlar til viðbótar og handhafar þeirra fá að launum geisladisk að eigin vali frá Hljómdeild KEA að verðmæti 1.990 krónur. Eftirtald- ir fá senda ávísun á geisladisk: Rannveig Karlsdóttir, Hríseyjar- götu 16 á Akureyri, Birna Þor- björnsdóttir, Hvammstangabraut 20 á Hvammstanga, Jóhann Jóhannsson, Oddeyrargötu 4 á Akureyri, og Helga Geirmunds- dóttir, Rauðumýri 4 á Akureyri. Dagur færir gefanda vinning- anna, Vöruhúsi KEA, bestu þakkir fyrir stuðninginn. Einnig vill Dagur koma á framfæri þakk- læti til allra sem brutu heilann yfir jólakrossgátunni og sendu inn lausnir. Þátttakan var óvenju glæsileg og það vakti athygli hve víða af landinu lausnir bárust. Lausnin var fólgin í vísu sem langflestir fóru rétt með: Allharður árekstur varð á Húsavík á mánudagskvöldið um klukkan átta er bifreiðar tveggja ungra ökumanna lentu allharkalega saman. Árkestur- inn varð á gatnamótum Mið- garðs og Stóragarðs. Bifreið sem ekið var norður Jólin draga úr heimsins harmi, hugans vekja betri part. Þá er eins og bjartur bjarmi brjótist gegnum myrkrið svart. Vinningshafinn, Þórdís R. Trampe, átti leið til Akureyrar í gær og var hún boðuð á fund Steingríms Björnssonar, deildar- stjóra í Heimilistækja- og bús- áhaldadeild KEA, sem afhenti henni verðlaunin. SS Miðgarð var ekið á móti bið- skyldu og í hlið bifreiðar sem var á leið austur Stóragarð. Öku- maður annars bílsins kvartaði um eymslu í síðu og var fluttur á sjúkrahús en meiðslin reyndust ekki alvarleg. Báðar bifreiðarnar eru töluvert skemmdar en öku- færar. IM/GG Harður árekstur á Húsavík - ungir ökumenn við stýrið Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð verður með sunnudagskaffi í Lóni v/Hrísalund, sunnudaginn 24. janúar kl. 15-17. Harmonikutónlist við borðhaldið. ★ AHir velkomnir. Stjórnin. Styrkur til Noregsfarar Stjórn sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna Noregs- ferða 1993. Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur sjóðsins „að auðvelda íslendingum að ferðast til Noregs. í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum, og skipulegum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum, eða kynnisferðum, sem efnt er tii á tvíhliða grund- velli, þ.e.a.s. ekki eru veittir styrkir til þátttöku í samnorrænum mótum, sem haldin eru tii skiptis á Norðurlöndunum. Ekki skal úthlutað ferða- styrkjum til einstaklinga, eða þeirra sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum.“ í skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til ferðakostnaðar, en umsækjendur sjálfir beri dvalarkostnað í Noregi. Hér með er auglýst eftir umsóknum frá þeim aðilum, sem uppfylla framangreind skilyrði. í umsókn skal getið um hvenær ferð verður farin, fjölda þátttak- enda og tilgang fararinnar. Auk þess skal tilgreina þá upphæð, sem farið er fram á. Umsóknir óskast sendar til stjórnar sjóðsins, For- sætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu, Reykjavík, fyr- ir 23. febrúar 1993. Forsætisráðuneytið, 18. janúar 1993. ^ LANDVERND Landgræðslu- og náttúruverndarsamtök íslands Styrkir til umhverfismála Á næstunni verður úthlutað styrkjum úr Pokasjóði Landverndar. 1. Um styrk geta sótt: Félög, samtök, stofnanir og einstaklingar. 2. Úthlutun er bundin verkefnum á sviði umhverfis- mála, svo sem landgræðslu, skógrækt, friðun, verndun, fegrun og snyrtingu lands og til fræðslu og rannsókna. Skilyrði er að verkefnin séu í þágu almennings. 3. Verkefni, sem sótt er um styrk til, þurfa að vera vel afmörkuð og skilgreind. 4. Farið er fram á að styrkþegar leggi af mörkum mótframlag, sem getur falist í fjárframlögum, vélum, tækjum, efni eða vinnu. 5. Styrkþegar skuldbinda sig til að skila skýrslu um framkvæmd og árangur verkefnisins fyrir lok út- hlutunarárs. 6. Styrkumsóknir þurfa að berast skrifstofu Land- verndar fyrir kl. 17.00 þann 22. febrúar 1993. Þeir sem eiga eldri umsóknir í Pokasjóðinn þurfa að endurnýja þær í samræmi við þessa auglýsingu. Umsóknum ber að skila á þar til gerðum eyðublöð- um, sem fást á skrifstofu samtakanna. LANDVERND, Skólavörðustíg 25,101 Reykjavík, sími 25242, myndsendir 625242.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.