Dagur - 20.01.1993, Síða 12

Dagur - 20.01.1993, Síða 12
Póstur og sími með útboð á póstflutningum: Pósti verður dreift fimm daga í vilai í Svarfaðar- dal og á Árskógsströnd Gert er ráð fyrir að tíu manns búi í Skólastíg 5 og verður rekstur þessa nýja sambýlis með sama sniði og sambýlis fyrir aldraða við Bakkahlíð. Mynd: Robyn Sambýli fyrir aldraða að Skólastíg 5 á Akureyri: Breytingar heflast innan skannns Stefnt er að því að frá og með 1. maí nk. verði pósti dreift í Svarfaðardalshreppi og Ár- skógshreppi fímm sinnum í viku, en til þessa hafa Svarf- dælingar fengið póst þrisvar í viku. Póstur og sími er þessa dagana að auglýsa eftir tilboðum í land- þjónustu á pósti frá póststöðinni á Dalvík um Svarfaðardalshrepp og Árskógshrepp og mun pósti verða dreift fimm sinnum í viku. Útboðsgögn verða afhent frá og með nk. mánudegi hjá stöðvar- stjóra Pósts og síma á Dalvík og verða tilboð opnuð á sama stað mánuði síðar, miðvikudaginn 24. febrúar. Útboðið er til tveggja ára. Unnar Þóröarson, hjá póst- máladeild Pósts og síma, segir að með þessu útboði sé verið að bæta þjónustuna við íbúa Svarf- aðardalshrepps og jafnframt vænti Póstur og sími þess að unnt verði að lækka kostnað við póst- dreifingu á þessu svæði. Pósti hefur verið dreift fimm sinnum í viku í Árskógshreppi og á því verður því ekki breyting. Unnar segir að útboðið sé mið- að við að einn aðili sjái um alla póstdreifingu í Svarfaðardals- og Árskógshreppi. Póstur og sími flytur póstinn til Dalvíkur þaðan sem honum verður dreift út í sveitirnar. „Pað verður líka sú breyting að Árskógshreppur, sem hefur haft póstnúmer 601 Akureyri, flyst til póststöðvar- innar á Dalvík og fær póstnúmer- ið 621 Dalvík. Við teljum eðlilegt að Árskógshreppur sé með Dal- víkinni, ekki síst vegna þess að margir íbúar á Árskógsströnd sækja þjónustu til Dalvíkur," sagði Unnar. Póstur og sími hefur í auknum mæli farið út í útboð á póstdreif- ingu á landsbyggðinni. Unnar segir að stefnan sé sú að í stað þess að menn sinni þessu í hluta- störfum séu póstdreifingarsvæðin stækkuð og starfsmenn í fullu starfi sjái um póstdreifingu. „Við viljum bæta þjónustuna og lækka kostnað. Það sýnir sig að því stærri sem póstdreifingarsvæðin eru, því meiri er hagræðingin,“ sagði Unnar. óþh Nauðsynlegar breytingar á Skólastíg 5 á Akureyri, sem Akureyrarbær hefur fest kaup á fyrir sambýli fyrir aldraða, heljast á næstunni. Á fjárhags- áætlun yfirstandandi árs eru 10 milljónir króna í þessar breyt- ingar. Rekstur sambýlisins hefst að þeim loknum. Bjarni Reykjalín, arkitekt, og Páll Alfreðsson, húsasmíða- meistari, hafa unnið hönnunartil- lögur að húsnæðinu til notkunar fyrir sambýli aldraðra. Ýmsu þarf að breyta þannig að húsnæðið standist kröfur, m.a. þarf að koma fyrir lyftu. Gert er ráð fyrir að viðhaldsdeild Akureyrarbæjar annist innréttingasmíði og aðra verkstæðisvinnu, byggingadeild bæjarins sjái um innkaup á efni og kaup á lyftu og samið verði við Pál Alfreðsson um aðra verk- þætti á grundvelli tilboðs hans. Ágúst Berg, deildarstjóri bygg- ingadeildar Akureyrarbæjar, seg- ist vænta þess að framkvæmdir hefjist fljótlega og þær gangi hratt og vel fyrir sig. Björn Þór- leifsson, deildarstjóri öldrunar- deildar bæjarins, segir að rekstur þessa nýja sambýlis verði í sama farvegi og rekstur sambýlisins við Bakkahlíð. Gert er ráð fyrir að Skólastígur 5 rúmi 10 manns. Björn segir að íbúum í Skjaldar- vík gefist kostur á að flytja í Skólastíg. Sigríður M. Jóhannsdóttir mun veita sambýlinu forstöðu. óþh Húnaþing: Athugasemdir við skipulags- tiilögu Svínavatnshrepps - m.a. frá Blönduósbæ Þann 15. jan. sl. rann út frest- ur til að skila inn athugasemd- um við tillögu að aðalskipulagi Svínavatnshrepps. Oddviti hreppsins sagði 5-6 athuga- semdir hafa borist, en vildi að öðru leyti ekkert segja um málið. Ein athugasemdanna barst frá Blönduósbæ, vegna hugmyndar um breytingu á þjóðvegi 1. Ófeigur Gestsson bæjarstjóri á Blönduósi segir að bærinn hafi sent athugasemd vegna hug- myndar um breytta legu þjóðveg- ar 1 sem fram kemur í tillögunni. Það eru hugmyndir um að vegur- inn liggi frá Stóru-Giljá eftir Reykjabraut að Svínavatni og þaðan að Ártúni í Bólstaðahlíð- arhreppi. Ef af því yrði myndi Blönduós færast þó nokkuð frá þjóðvegi 1 og Skagaströnd enn fjær en nú er. í samtali við blaðið í des. sl. sagði Jónas Snæbjörns- son umdæmisverkfræðingur Vega- © VEÐRIÐ Norðaustan hvassviðri og él verður á vestanverðu Norður- landi frameftir degi en fer síð- an að hægja og hlýna. Létt- skýjað verður í fyrstu á Norð- austurlandi en síðan fer að ganga í norðaustanhvass- viðri. Éljagangur verður á mið- um og annesjum er líða tekur á daginn. Hlýna tekur í veðri. gerðarinnar á Norðurlandi vestra að um sé að ræða möguleika en ekki áform, eðlilegt sé að þessi möguleiki sé fyrir hendi. Bæjarráð Blönduóss sam- þykkti í byrjun des. að fela bæjarstjóra að gera athugasemdir við tillöguna. Það var síðan gert og segir Ófeigur Gestsson bæjar- stjóri það staðfest af vegamála- stjóra og áætlanadeild Vegagerð- arinnar að engar hugmyndir séu uppi um breytta legu vegarins. Með vísan til þessa hafi bærinn gert athugasemd við skipulagstil- löguna. Verið er að vinna að aðal- skipulagi Blönduóss og er þar gert ráð fyrir að þjóðvegur 1 liggi í gegnum bæinn eins og nú er. Það er óeðlilegt að ekki sé sam- ræmi í skipulagi þessara byggðar- laga að mati Ófeigs. Sigurjón Lárusson á Tindum, oddviti Svínavatnshrepps, kvað ekki tímabært að ræða málið í fjöl- miðlum og vildi ekki segja hvað- an athugasemdir bárust. Hann sagði hreppsnefndarmenn ætla að athuga málið og taka sér góð- an tíma til þess, ekkert lægi á. sþ Laxárvirkjun: Það er allt komið 99 í eðlilegt horf ‘ „Það er allt komið í eðlilegt horf,“ sagði Héðinn Stefáns- son, stöðvarstjóri í Laxárvirkj- un í gær, aðspurður um vatns- öflun til rafmagnsframleiðsl- Horfur hjá Foldu á nýhöfnu ári: Byijum nýtt ár reynshmni ríkari - segir Baldvin Valdemarsson, framkvæmdastjóri „Eg er ekki svartsýnn á þetta ár. Við förum inn í þetta ár reynslunni ríkari en við fór- um inn í síðasta ár,“ segir Baldvin Valdemarsson, fram- kvæmdastjóri Foldu hf. á Akureyri um horfurnar á nýbyrjuðu ári. Baldvin segir að á síðasti ári hafi verið unnið mikið endur- skipulagningarstarf innan fyrir- tækisins. Starfsmannahald hafi verð endurskipulagt í öllum déildum, sem best sést á því að í upphafi síðasta árs voru starfs- menn um 140 talsins en í árslok 110 og nú eru 12 manns í vinnu á uppsagnarfresti hjá fyrirtæk- inu. Baldvin segir að þessar aðgerðir miði að því að reka fyrirtækið með mun minni kostnaði en á síðasta ári. Jafnframt endurskipulagn- ingu innan fyrirtækisins var mikið markaðsstarf uppi og seg- ir Baldvin að svo verði áfram á þessu ári. Gerður var samstarfs- samningur við skrifstofu Útflutningsráðs í Berlín á miðju sfðasta ári og var tilgangur með honum að vinna nýja markaði í Þýskalandi. Baldvin segir þetta samstarf hafa skilað góðum árangri, fyrst og fremst hafi komist á sambönd við nýja aðila sem vonast sé til að leiði af sér viðskipti í framhaldinu. Eins og komið hefur fram var velta síðasta árs minni en von- ast hafði verið til og afkoma lakari en með áframhaldandi markaðsstarfi, jafnframt árangri af endurskipulagningu innan fyrirtækisins, er vonast til að afkoman verði betri í ár. JÓH unnar. Miklar rennslistruflanir urðu í Laxá í síðustu viku, er kvíslir árinnar stífluðust við Mývatn. Ekkert flóð kom í ána heldur át vatnið sig fram smám saman, að sögn Héðins. Engar skemmdir urðu því á virkjunarmannvirkjun- um í framhaldi af rennslistruflun- unum. Héðinn sagði að vatnið hefði étið sig fram í Geirastaða- kvísl, en þar væru lokur sem hægt væri að jafna rennslið með, þar sem aðrar kvíslir væru ekki komnar nógu vel fram. Víða suð- ur og suðaustur af Mývatni verða menn varir við vatn, þar mun vatn úr Kráka vera á þvælingi, en í henni eru stíflur. „Þetta var allt á rólegu nótun- um, olli ekki tjóni og notendur urðu ekki fyrir truflunum. Það er óvenjulegt að þetta gerist svona, að við fáum ekki ána úr Mývatni. Það er algengara að við verðum fyrir truflunum hérna heima við. Við erum með léleg inntaks- mannvirki frá 1939, þau upphaf- legu, og höfum ekki fengið þau lagfærð,“ sagði Héðinn. IM

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.