Dagur - 22.01.1993, Blaðsíða 12
Akureyri, föstudagur 22. janúar 1993
Fjölskylduþorrablót
á Bautanum
föstudagskvöld, laugardag og sunnudag
Þorrinn er genginn í garð. I dag er bóndadagurinn. Starfsfólk Kjötiðnaðarstöðvar KEA hefur haft í mörgu að snúast
að útbúa þorrabakka. Mynd: Robyn
Hitaveita Ólafsfjarðar:
Átta metra þykkt snjó-
farg á aðveituæðinni
Óhemju snjór hefur bæst við á
því svæði frammi á Skeggja-
brekkudal við Ólafsfjörð þar
sem snjóflóð féll í haust og tók
sundur aðveituæð hjá Hita-
veitu Ólafsfjarðar. Lögnin var
endurnýjuð sumarið 1989 eftir
aurskriðurnar sem féllu í
Ólafsfirði haustið 1988 og var
hún sett á stöpla en sópaðist af
þeim í haust.
Gripið var til þess ráðs nú að
flytja hana til bráðabirgða á
gömlu brúna sem lá þarna yfir en
þegar vorar verður lögnin færð
aftur á upprunalegan stað.
Óhemju snjór er nú frammi á
Skeggjabrekkudal, en ofan á píp-
Verði atvinnuleysi 5% á árinu vantar Atvinnuleysistryggingasjóð 1 milljarð:
Menn verða að hætta þeirri vit-
leysu að flytja hráefiiið úr landi
- segir Pétur Sigurðsson, formaður stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs
„Við vitum auðvitað ekki á
þessari stundu hvort það fjár-
magn sem Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði var tryggt á fjárlög-
um þessa árs nægir. Það fer
eftir því hversu mikið atvinnu-
leysið verður,“ segir Pétur Sig-
urðsson, formaður stjórnar
Atvinnuleysistryggingasjóðs.
Að viðbættum 500 milljónum
frá sveitarfélögum til atvinnu-
skapandi verkefna hefur sjóð-
urinn 1900 miUjónir króna til
ráðstöfunar á þessu ári.
„Samkvæmt þumalputtareglu
dugar þessi fjárhæð ef atvinnu-
leysið verður á bilinu 3-4%. Sam-
kvæmt þjóðhagsspá verður
atvinnuleysið 5%, en ég trúi
þeirri tölu ekki. Ég trúi ekki að
ætlunin sé að halda áfram þeirri
bölvuðu vitleysu að flytja hráefn-
ið og þar með vinnuna úr landi.
Vinna í öðrum atvinnugreinum
kemur sem afleiðing af vinnu í
fiskinum. Grunnurinn er fisk-
veiðar og íslendingar búa ekki til
atvinnu í neinum öðrum greinum
sem einhverju nemur. Ef hins
vegar spá Þjóðhagsstofnunar
gengur eftir, þá sýnist mér fjár-
þörf Atvinnuleysistryggingasjóðs
á þessu ári vera um einn milljarð-
ur króna,“ sagði Pétur.
í Degi í gær var greint frá því
að þess hefði orðið vart hjá ungu
atvinnulausu fólki á Akureyri að
það sætti sig frekar við að þiggja
atvinnuleysisbætur heldur en að
VEÐRIÐ
í dag gerir Veðurstofa íslands
ráð fyrir allhvassri norðaustan-
átt með éljagangi um allt
Norðurland. Er líður á nóttina
fer að lægja og frost verður
um 10 stig.
þiggja vinnu, sem það teldi vera
leiðinlega og lítt skapandi. Pétur
Sigurðsson sagði að þetta væri
skelfileg þróun. „Eigum við að
ala upp slíka kynslóð?" spurði
Pétur. „Þá eigum við að búa okk-
ur undir að fá erlend lán til að
fjármagna Atvinnuleysistrygg-
ingasjóð. En hver vill lána okkur
og hversu lengi eru lánardrottnar
tilbúnir til að lána okkur? Nei, ef
þetta er raunin, þá erum við
komnir út á slíkar villigötu að það
tekur ekki nokkru tali,“ sagði
Pétur Sigurðsson. óþh
íslenskur skinnaiðnaður hf.:
Horftun fram á svipaða sölu og í fyrra
- segir Bjarni Jónasson, framkvæmdastjóri
„Við sjáum fram á að selja
svipað magn og á síðasta ári.
Hins vegar hefur gengisþróun
verið okkur afar óhagstæð en
við erum að leita leiða til að
bregðast við því,“ segir Bjami
Jónasson, framkvæmdastjóri
Islensks skinnaiðnaðar hf. á
Akureyri um horfur hjá fyrir-
tækinu í ár.
Bjarni segir fyrirsjáanlegar
breytingar á sölumynstrinu hjá
fyrirtækinu, afskipanir dreifist
yfir styttra tímabil sem helgist af
breyttu innkaupamynstri hjá
verslununum. „Menn eru varkár-
ari og sjá fram á erfiðari efna-
hagsaðstæður. Vörurnar eru því
teknar inn seinna en áður var,“
sagði Bjarni og bætti við að þess-
arar breytingar gætti á öllum
mörkuðum.
Bjarni segir að hvað varðar
afkomu fyrirtækisins þá horfi
forsvarsmenn þess fram á betri
afkomu en á síðasta ári en segir
að mesta ógnin stafi af gjaldeyris-
þróuninni en fyrirtækið varð fyrir
barðinu á óróanum sem varð á
gjaldeyrismörkuðunum sl. haust.
Helstu sölugjaldmiðlar fyrir-
tækisins eru lírur og pund og er
ítalski markaðurinn lang stærstur
markaða íslensks skinnaiðnaðar.
Laxós hf. í Ólafsfirði: Revnt a5 trevsta reksturimi
Ákveöið hefur verið að halda áfram rekstri laxeldisfyrir- tækisins Laxóss hf. á Ólafs- firði. Á aðalfundi félagsins síð- ast á árinu 1992 var ákveðið að boða til framhaldsaðalfundar og freista þess í millitíðinni að fá meira hlutafé inn í fyrirtæk- ið til að treysta stöðu þess sem var orðin mjög bág. Nýtt hlutafé mun koma frá heimaaðilum og hugsanlega ein- hverjum viðskiptaaðilum og að einhverju leyti frá stærstu hlut- höfunum, Kaupfélagi Eyfirðinga, Veiðifélagi Olafsfjarðarár og Ólafsfjarðarbæ. Fljótlega verður boðað til framhaldsaðalfundar þar sem þessi mál verða skýrð og hluthöfum gerð ítarleg grein fyrir stöðu fyrirtækisins. Nýlega fékk stöðin töluvert magn af hrognum frá Kollafirði. GG
Um starfsmannahald hjá fyrir-
tækinu í ár segir Bjarni að gæta
verði ítrasta aðhalds, eins og í
öllum þáttum rekstrarins. „En
við erum þokkalega bjartsýnir á
árið, miðað við allar aðstæður,“
segir hann. JÓH
unni var snjóþykktin frá 5 til 8
metrar og síðan hefur tölu-
vert snjóað á þessum slóðum og
snjódýptin aukist. GG
Sauðárkrókur:
Fleira fólk
í fískinn
- Fiskiðjan bætir við fólki
Þó vinna í frystihúsum liggi
víða niðri á Norðurlandi vestra
um þessar mundir þá er næg
vinna í Fiskiðju Sauðárkróks.
Nýverið var auglýst eftir fólki
til vinnu í saltfiskverkuninni og
í frystihúsinu og er um a.m.k.
15 störf að ræða.
Að sögn Sigurðar Helgasonar
hjá saltfiskverkuninni bárust
nálægt 25 umsóknir. Búið er að
ráða í 5 störf, en þau verða hugs-
anlega 6-7. Umsóknirnar voru að
mestu leyti frá fólki í Skagafirði.
Sigurður segir mikla vinnu þessa
dagana, unnið a.m.k. 10 tíma á
dag og oft um helgar. Sagðist
hann búast við framhaldi á því, ef
vel fiskast.
Hjá frystihúsi Fiskiðjunnar var
auglýst eftir fólki í snyrtingu og
pökkun. Erling Ólason hjá frysti-
húsinu sagði þetta vera „hefð-
bundin kvennastörf" og ynnu
eingöngu konur við þau. Hins
vegar hefðu nokkrir karlmenn
spurst fyrir um þessi störf og tals-
vert um að skólastúlkur leiti eftir
hlutastarfi. Hugsanlega verður
farið að vinna á vöktum og því
var auglýst eftir fólki. Erling
sagði að algengt sé að hreyfing sé
á fólki um áramót og því líklegra
að fá vant fólk nú, enda hefði það
tekist. Um var að ræða 8 heils-
dagsstörf og líklegt að enn frekar
verði bætt við fljótlega. Nóg er
að gera í frystihúsinu að sögn
Erlings og sagði hann bjart fram-
undan. sþ
Jón Amþórsson ráðinn
tíl að kynna Akureyri
- reynt að ná til ferðamanna
„Þau eru ekki mörg bæjarfé-
lögin á íslandi sem eru betur
búin en Akureyri til að þjóna
almenningi sem ferðamanna-
staður,“ segir Jón Arnþórs-
son, framkvæmdastjóri Utfar-
arþjónustunnar á Akureyri,
sem nú hefur tekið að sér tíma-
bundið verkefni, þ.e. að kynna
Akureyri sem ferðamannabæ.
Að sögn Jóns hafa ýmis fyrir-
tæki á Akureyri, sem tengjast
ferðaþjónustu hrint af stokkun-
um átaksverkefni, sem þjónar
þeim tilgangi að kynna lands-
mönnum Akureyri sem unaðsreit
ferðamannsins.
„Kynningarefni er í vinnslu.
Starf mitt er tímabundið, raunar
bundið við tvo mánuði. Ég mun
ferðast um allt land og kynna
ferðamannabæinn Akureyri. Við
höfum margt uppá að bjóða,
jafnt sumar sem vetur. Aðstaða
öll til útiveru er sem best verður á
kosið. Hér eru vönduð hótel,
góðir matsölustaðir, blómlegt
skemmtana- og menningarlíf og
flugfélög halda uppi reglubundn-
uni ferðum. Hvað viðkemur
Útfararþjónustunni, sem ég hef
veitt forstöðu, þá verður hún
starfrækt áfram í sama heimilis-
fangi, en sinnt af öðrum þá tvo
mánuði sem átaksverkefnið
stendur,“ segir Jón Arnþórsson.
ój