Dagur - 26.01.1993, Síða 6

Dagur - 26.01.1993, Síða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 26. janúar 1993 GLERÁRGÖTU 36 SÍMI 11500 ★ Seljahlíð: 3ja herb. raðhús, tæpl. 75 fm. Hagstæð áhvílandi lán. Laus eftir samkomulagi. ★ Grenivellir: 5 herb. efri hæð og ris ásamt rými í kjallara. Áhvílandi langtímaián um 4 millj. Laus eftir samkomulagi. ★ Hrísalundur: 2ja herb. íbúð á 3. hæð - ca. 62 fm. Gengið inn af svölum. Laus 1. febrúar. ★ Keilusíða: Mjög falleg sem ný 3ja herb. íbúð á 3. hæð ca. 83 fm. Áhvílandi húsnæðislán um 4.7 millj. Laus eftir sam- komulagi. ★ Móasíða: 4ra herb. raðhús ásamt bílskúr samtals um 149 fm. Ekki alveg fullgert. Áhvílandi húsn.lán um 7.5 millj. ★ Langahlíð: 3ja-4ra herb. raðhús ásamt bflskúr, samtals um 133 fm. Áhvílandi húsn.lán um 2 millj. Skipti á 3ja herb. íbúð koma til greina. HUTBGWtM swmsuaSSI HORÐURLANDS íl Glerárgötu 36, sími 11500 Opi& virka daga kl. 13-17 og á morgnana eftlr samkomulagi. Sölustjóri: Pétur Jósefsson Lögmaður: Benedikt Ólafsson hdl. Hvaðan Hvert Póstbíllinn stráöi út erindum sín- um og afgreiðslustörfum, um hundrað kílómetra langa leið til meira en eitt hundrað bæja. Þetta er leiðin frá Skjálfandaflóa að norðan til óbyggða öræfanna að sunnan, þar sem mannabyggð þrýtur í Bárðardal. Póstbíllinn sem rennur hér með bæjum nýtur stjórnar hins úrræðagóða önd- vegisdrengs Jóns Ingasonar. Virðist nafn hans síst tengjast óhöppum í starfi eða forsjá hans, þó nafnar hans sumir hverjir á valda- og trúnaðarstólum séu sem eftir óhöppum undir slíkri nafngift, en blöð í pósti greina frá. Póstbíllinn tróðst með erfiðis- munum hér heimundir hinn 4. desember s.l. og færði í póstkass- ann fullan hin fjölbreyttustu gögn því nú liggur mikið við. Menn kalla þetta Aðventutíma ellegar undirbúning, því meira stendur til. Ekkert er ráð nema í tíma sé tekið. Aðeins þrjár vikur þangað til við eignumst enn og endurlif- um þá einustu jólasögu sem okk- ur kristnum mönnum var boðin, gefin og beðnir fyrir til gæslu, líkt og þegar hirðir gætir hjarðar sinnar svo hún skuli bera ávöxt. Því eins og boðað var: Óttist ekki því ég boða yður mikinn fögnuð. Það var að hefjast nýtt landnám, svona löngu fyrir daga búnaðar- sambandsins. Mitt á meðal þess ofboðs sem treðst heim á friðsæl heimili, undir skikkju boðskapar, fagur- gala eða fláttskapar. í áróðri og undirróðri. (Ertu vanur að stinga ár - sagði eitt sinn ferjumaður við okkur á bát yfir Fnjóská, þar sem kunnáttumaður gat orðið ferju- manni að liði.) Lottótilboðum endalausum, sem orðabókin vill ekki einu sinni skoða eða skýra, enda felst þar máski einn lúmsk- asti tilviljana boðskapur um mis- munun og hlutdrægni gagnvart lífskjörum fólks eða lífsvali fólks. En upp úr klökugum póstkassa SKATTFRAMTÖL FYRIR EINSTAKLINGA OG MINNIFYRIRTÆKI - Alhliða bókhaldsþjónusta - Launavinnsla - VSK uppgjör - Ársuppgjör - Tölvuþjónusta - Tölvuráðgjöf - Aðstoð við bókhald og tölvuvinnslu - Hugbúnaðargerð - Innheimta Rolf Hannén, Norðurbyggð 15. Sími 27721. •jjÉt; Auglýsing um próf JjfP fyrir skjalþýðendur og domtulka Þeir, sem öðlast vilja réttindi sem skjalþýðendur og dómtúlkar, eiga þess kost að gangast undir próf, er hefjast væntanlega 26. mars nk. ef þátttaka verður nægjanleg. Fyrir þá sem vilja þreyta prófið verður haldið undir- búningsnámskeið dagana 18., 19. og 20. febrúar og tilkynnist þátttaka í því til dóms- og kirkjumálaráðu- neytisins eigi síðar en 12. febrúar og jafnframt ósk- ast tilkynnt í hvaða máli umsækjendur hyggjast þreyta prófið. Námskeiðsgjald er kr. 12.000. Frestur til innritunar í próf rennur út 5. mars 1993 og skal skila umsóknum um þátttöku í prófinu til ráðu- neytisins á sérstökum eyðublöðum, sem þar fást. Löggildingargjald er kr. 25.000. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 24. janúar 1993. kemur það allt saman? er því ætlað að fara? „þar sem öllum hafís verri er hjartans ís sem heltekur skyld- unnar þor, ef grípur hann þjóð þá er glötun vís.“ En jafnvel í slóð ófarnaðar dregst oft hið velmeinta boð, máski í umkomu- leysi frá undirdjúpi hugans. Þeg- ar dregur að jólum og þá reikn- ingsskilum áramóta og uppgjöri. Uppúr hinum snjóhrakta póst- kassa dró ég merkilegt blað „Dags“ á Akureyri frá 3. des. 1992, þar sem hinn ungi bóndi á Laxamýri, kennari og nýlega kos- inn formaður Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga, vekur eftir- tekt sem verður nánar að vikið síðar. Fyrst verð ég þó að hafa nokkur „millispil" sem mjög er tíðkað, sér í lagi hjá fjölbreyttum samböndum nútímans sem virð- ast í eðli sínu vera með nokkrum hætti spilverk - milligerðir - skil- rúm - stía - hrófatildur, svo lengi má telja fram, og síðast, hljóð- færaleikur sem tekur kannski sýnu mest í. Allt eru hér milli- gerðir sem sífellt er lítið hald í og endalaust reynt að hoppa yfir eða smjúga í gegnum, og þarf síst að nefna bara fjárhús í sveit til vitnis um. Varla hefði Jónas Þorbergsson einn af forvígismönnum og fyrstu ritstjórum „Dags“ órað fyrir því að litla blaðið hans yrði svo vöxtulegt dagblað sem orðið er og láhrifamikið í boðskap og trútt sínum fyrsta ásetningi um vöxt og viðgang kaupfélaganna og sam- vinnu, sem rekstrarforms í verslun og öðrum vinnubrögðum þar sem hentar. Einnig hefur blaðið stað- ið á verði um stefnu Framsóknar- flokksins frá fyrstu tíð þó hann hafi ekki sem slíkur gefið blaðið út. Annað mál er hitt að það má æra fleiri en óstöðuga að verja allt frá þeim búðum. Þar sem svo létt er skoppað yfir milligerðir sem menn ætluðu að héldu, og „hagræðingu" sína í skoðun hverja muna má, þar sem hjáseta þingmanna getur auðveldlega verkað sem samþykki manns þar sem minnstu munar í örlaga- afgreiðslum. Hér er einmitt um slíkt að ræða á líðandi dögum þar sem á Alþingi ganga á víxl orð- færni manna, landráð ellegar þjóðarvernd. Samtök bænda eru ekki spilverk til að stökkva yfír Búnaðarsamband Suður-Þingey- inga var stofnað að Laxamýri 20. nóv. 1928 af ellefu kjörnum full- trúum frá 7 búnaðarfélögum sýsl- unnar. Fyrsti formaður sam- bandsins var kosinn Jón H. Þor- bergsson bóndi á Laxamýri og með honum í stjórn bróðir hans Hallgrímur Þorbergsson á Hall- dórsstöðum í Laxárdal og Bald- vin Friðlaugsson á Hveravöllum. Jón var þá nýfluttur frá Bessa- stöðum þar sem hann hafði búið, og starfað sem ráðunautur Bún- aðarfélags íslands og í fleiri trún- aðarstörfum meðal sunnlenskra bænda, en nú keypt Laxamýri og hafið búskap. Má vísa til merki- legrar yfirlitsfrásagnar um Bún- aðarsambandið og búskap Þing- eyinga og félagsmál aftur í aldir, sem finna má í merkilegu bók- inni: Aldarminning Búnaðarsam- taka í Suður-Þingeyjarsýslu, gef- in út árið 1963 en þó miðuð við staði og stund 1960. Þetta stór- virki sem bókin er, vannst undir stjórn hins fágæta og djarfa for- manns sambandsins Hermóðs Guðmundssonar bónda í Árnesi sem lengi verður minnst og þá þess framtaks hans og margra | Jón Jónsson Fremstafelli. ágætra manna sem gáfu héraðs- búum þessa bók. Áður hafði komið út mikið brautryðjanda- verk Jóns Sigurðssonar í Ysta- felli: Ritsafn Þingeyinga, Lýsing Þingeyjarsýslu, samin að tilhlut- an Sögunefndar Þingeyinga, en Helgafell gaf út 1954. Þemavika um landbúnaö ,Orðabókin segir: „Þema, uppi- staða - viðfangsefni, meginhug- mynd listaverks“, svo lítið orð gert að svo miklu táknmáli. En upp á vegg Borgarhólsskólans á Húsavík var innrammað skjal sem útskýrði hvað var um að jVera, og hér er aftur komið að Ihinu merkilega dagblaði sem ég dró upp úr póstkassanum klökugt hinn 4. desember, og prentað var það sem hér er á vegg Borgar- hólsskólans svohljóðandi: „Viðurkenning: Hér með viður- kennist að þriðji bekkur í fjórðu stofu Borgarhólsskóla á Húsavík hefur tekið þátt í þemaverkefn- inu: Ég les reikna og skrifa um sveitina, dagana 9.-13. nóv. 92. Búnaðarsamband Suður-Þingey- inga þakkar nemendum gott samstarf. Atli Vigfússon formað- ur.“ Það er viðburður í dag að sjá slíkt gerast og myndirnar sem fylgja með og greinargerð IM blaðamanns Dags. Börnin eru að verki frá Húsavík með kennara sínum suður í Reykjahverfi við búskapinn þar. Atli vitnar til reynslu sinnar við nám bæði í Svíþjóð og London og hann segir: „Að þessari til- raun lokinni mun ég hafa sam- band við upplýsingaþjónustuna og leggja ákveðnar tillögur fyrir Stéttarsamband bænda hvort ekki sé í alvöru hægt að skipuleggja og byrja á þessu starfi. Fyrst mætti gera prufur í tveimur þremur héruðum en síðan er draumurinn að hægt sé að sinna þessum þætti um allt land. Ég tel þetta mjög mikilvægt. Námsefni til að sinna þessum þætti þyrfti að gefa út hið fyrsta." - Sagan er alltaf ólýgnust þegar liðin er, líka okkar Atla. Það er hið mikla „Þema, uppi- staða, viðfagsefni og megin hug- mynd listaverks". Hér hefur verið að ýmsu vikið, máski hreyfingu til skoðunar hvar mest er þörf, þegar svo mikil skil hafa orðið - og minnkandi reynslu- samband yngstu kynslóða (máski allra kynslóða) í sveit eða við sjó, hvað varðar lífsafkomu- leiðir í atvinnurekstri og nánast samband við land sitt sem upp- alanda og átrúnað. Hér þarf margt skoðunar við. Víst eru þess dæmi að vinnuhópar skóla- barna með leiðsögn kennara sinna ferðist um landið t.d. í mín- um góða Stórutjamaskóla minn- ist ég barnahóps sem kom heim til mín á sinni vinnuviku, að fræðast um vatnið sem allt bygg- ist á og síst má ofbjóða; örnefni, vöð, vá eða öryggi, líka fóm þau í fiskihús þó ekki veiddu. Ég þakka Atla og öllum þeim sem vilja efla hin náttúrulegu tengsl manns og moldar og samkomu- lagið um leiðina að lifa, hvaðan sem kom og hvert sem fer. 9. janúar 1993. Jón Jónsson Fremstafelli. Félagsfundur Félags bygginga- manna Eyjafirði haldinn 13. janúar 1993 mótmælir harðlega efnahagsaðgerðum ríkisstjórnar- innar og lýsir fullri ábyrgð á hendur henni vegna þess alvar- lega ástands sem þær munu skapa á heimilum launafólks í landinu. Með aðgerðum síðustu vikna hefur ríkisstjórnin hafnað kröfu verkalýðshreyfingarinnar um tekjujöfnun í þjóðfélaginu og raunhæfar aðgerðir t atvinnumál- um. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar leiða til hækkana og kjaraskerð- ingar. Vextir, landbúnaðarvörur, bifreiðakostnaður hækka svo dæmi séu tekin. Þessar verð- hækkanir koma í kjölfar verð- hækkana vegna gengisfellingar, skerðingar barna- og vaxtabóta, lækkunar persónuafsláttar og hækkunar skatthlutfalls einstakl- inga í tekjuskatti. Dregið hefur úr fjárveitingum til velferðarmála og þjónustu- gjöld lögð á opinbera þjónustu án tillits til greiðslugetu þeirra sem á henni þurfa að halda. Þrátt fyrir Ioforð ríkisstjórnar um fjárveitingar til atvinnuupp- byggingar, hafa engar raunhæfar lausnir komið fram í atvinnumál- um þjóðarinnar. Afleiðingar af aðgerðum ríkis- Istjórnarinnar er meira atvinnu- 1 leysi en þekkst hefur hér á landi í marga áratugi og allt bendir til að það muni aukast verulega á næstu mánuðum. Atvinnuleysi er þjóðarböl. Atvinnuleysi ræðst gegn afkomu einstaklinga og fjöl- skyldna, skuldir hlaðast upp og vonleysi blasir við. í síðustu kjarasamningum lagði verkalýðshreyfingin höfuð- áherslu á lága verðbólgu, stöðugt verðlag og lækkandi vexti. Fjöldi íslenskra fyrirtækja nýtti sér ekki þessi hagstæðu efnahagslegu skil- yrði sem þá sköpuðust. Þess í stað þarf nú að færa skatta frá fyrirtækjum yfir á herðar launa- fólks sem þarf að bera auknar byrðar bótalaust. Sterkasta vopn verkalýðshreyf- ingarinnar nú er breið samstaða og sem víðtækast samráð gegn kjaraskerðingu og atvinnuleysi. Knýja verður fram breytta stjórnarstefnu, aukinn kaupmátt og fulla atvinnu. Félag byggingamanna Eyjafirði: Mótmælir efíiahagsað- gerðum ríkisstjómariimar

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.