Dagur - 26.01.1993, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - Þriðjudagur 26. janúar 1993
Þriðjudagur 26. janúar 1993 - DAGUR - 9
ÍÞRÓTTIR
Halldór Arinbjarnarson
Enska knattspyrnan
Þorleifur Ananíasson
Úrvalsdeildin
Grinduvík-Snæfell 80:81
KR-SkaUagríniur 70:67
Tindastóll-UBK 102:91
Njarðvík-Haukar 91:101
Staðan:
A-riðill:
ÍBK 16 15 1 1694:1434 30
Haukar 1613 3 1464:1314 26
Njarðvík
Tindastóll
UBK
B-riðill
Valur
Snæfell
Grindavík
Skallagr.
KR
8 8 1463:1430 16
611 1450:1615 12
1 15 1382:1556 2
16 9 7 1305:1293 18
16 9 7 1377:1415 18
17 8 9 1432:1398 16
16 6 10 1344:137112
16 6 10 1276:1351 12
Körfuknattleikur, úrvalsdeild:
Stólamir unnu loks sigur
á botnliði Breiðabliks
Það var langþráður sigur í höfn
hjá Tindstóli þegar flautað var
til loka leiks þeirra við UBK á
sunnudaginn. Sigurinn var lið-
inu mjög mikilvægur, ekki síst
andlega, eftir slæmt gengi á
þessu ári. Úrslitin voru sann-
- Foster kemur vel út
gjörn þegar á heildina er litið
og staða Breiðabliks er nú orð-
in verulega alvarleg á botni A-
riðils.
Fyrri hálfleikur var jafn og
spennandi og skiptust liðin á um
að leiða. Vörnin var í aðalhlut-
íþróttamaður Þórs 1992:
Hlynur Birgisson valinn
Kjöri íþróttamanns Þórs 1992
var lýst á föstudagskvöldið í
Hamri. Jafnframt var tilkynnt
um val á íþróttamönnum
einstakra deilda. íþróttamaður
Þórs 1992 er knattspyrnumað-
urinn Hlynur Birgisson. Val
Hlyns þarf ekki að koma nein-
um á óvart. Hann átti mjög
gott sumar með Þór og stóran
þátt í velgengni liðsins. Hann
var sl. haust valinn knatt-
spyrnumaður Akureyrar og
hafnaði í 5. sæti í kjöri Dags á
íþróttamanni Norðurlands
1992.
Þetta var í 3. skipti sem
íþróttamaður Þórs er valinn með
þessum hætti en Ragnar Sverris-
- Sigurpáll Árni í 2. sæti
son kaupmaður í JMJ gaf á sín-
um tíma glæsilegan farandbikar
sem sigurvegarinn varðveitir í 1
ár. Ragnar gefur einnig eignabik-
ara sem íþróttamaður hverrar
deildar fær. íþróttamaður Þórs
1990 var Guðmundur Benedikts-
son en í fyrra varð Haukur Eiríks-
son skíðamaður fyrir valinu.
Reglur kjörins eru þær að hver
deild innan félagsins útnefnir 2
einstaklinga en síðan fer fram
leynileg atkvæðagreiðsla hjá sér-
stakri kjörnefnd. Þeir sem til-
nefndir voru að þessu sinni voru:
Frá skíðadeild: Eva Jónasdótt-
ir og Rögnvaldur Ingþórsson.
Rögnvaldur var kjörinn skíða-
maður ársins. Frá körfknattleiks-
deild: Konráð Óskarsson og Haf-
Hlynur Birgisson með viðurkenningar sínar sem fylgja nafnbótinni íþrótta-
maður Þórs. Mynd: ha
Körfuknattleikur:
Útlendingur til Þórs
Körfuknattleikslið Þórs hefur
fengið nýjan leikmann til liðs
við sig. Sá heitir Azuolas
Seduikis og er 27 ára gamall
Lithái.
Hann hefur dvalið hér á landi
frá áramótum og æfði með Þórs-
urum í síðustu viku. Um helgina
var síðan tekin ákvörðun um að
fá hann til liðs við Þór. Azuolas
er lipur og skemmtilegur
leikmaður, 1,87 cm á hæð og með
mikinn stökkkraft. Fyrsti leikur
hans með Þórsliðinu verður gegn
toppliði ÍA á föstudagskvöldið og
þá kemur í Ijós hvernig hann fell-
ur að leik liðsins.
steinn Lúðvíksson, sem valinn
var körfuknattleiksmaður ársins
1992. Frá knattspyrnudeild:
Sveinbjörn Hákonarson og Hlyn-
ur Birgisson. Hlynur var valinn
knattspyrnumaður ársins. Frá
handknattleiksdeild: Hermann
Karlsson og handknattleiksmað-
ur ársins var valinn Sigurpáll
Arni Aðalsteinsson.
Þegar búið var að útnefna
íþróttamenn einstakra deilda var
komið að því að tilkynna röð
fæirra þriggja efstu í kjöri1
þróttamanns Þórs 1992. í 3. sæti
hafnaði skíðagöngumaðurinn og
Ólympíufarinn, Rögnvaldur Ing-
þórsson. í 2. sæti handknattleiks-
maðurinn Sigurpáll Árni Aðal-
steinsson og íþróttamaður Þórs
1992 var sem fyrr segir kjörinn
Hlynur Birgisson.
Hlynur sagði að útnefningin
hefði komið sér þægilega á óvart.
Hann dvelur nú í Reykjavík en
kvaðst koma norður með vorinu.
Aðspurður sagðist hann æfa mik-
ið sjálfur, en einnig æfir hann
með landsliðinu einu sinni í viku.
Hann gat ekki neitað því að byrj-
unin á árinu hafi verið glæsileg.
„Ég held það sé ekki hægt að
byrja betur og virkilega gaman
að krækja í íslandsmeistaratitil-
inn. Síðan er maður óneitanlega
farinn að hlakka til sumarsins,"
sagði íþróttamaður Þórs 1992,
Hlynur Birgisson.
verki í byrjun leiksins en sóknar-
leikurinn var ekki sérstaklega
góður að sama skapi. Bæði lið
þyrsti í sigur og bar leikurinn
þess nokkur merki. Gengi Stól-
anna á þessu ári hefur ekki verið
upp á það besta og UBK var í
mun að bjarga andlitinu þar sem
liðið hefur aðeins náð að sigra í
einum leik á keppnistímabilinu.
Síðari hálfleikur var í öllum
aðalatriðum líkur þeim fyrri.
Þegar 10 mínútur voru eftir
hrukku Stólarnir loksins í gang
og allt small saman. Lokatölur
voru 102:91 fyrir heimamenn og
sá sigur var sanngjarn. Breiða-
blik virðist einfaldlega ekki hafa
nægilega sterku liði á að skipa.
Utlendingarnir í liðunum voru
bestu menn vallarins og þeir sem
skoruðu mest. Valur Ingimund-
arson var einnig sterkur hjá Stól-
unum og David Grissom var
mjög góður í liði UBK. Stólarnir
hafa nú 12 stig að loknum 16
leikjum en UBK sem fyrr á botn-
inum með 2 stig. GBS
Gangur leiksins: 4:3, 10:8, 17:21, 21:27,
44:36, 48:46, 57:62, 77:67, 94:88 og
102:91.
Stig Tindstóls: Raymond Foster, 37, Val-
ur Ingimundarson 28, Hinrik Gunnars-
son 10, Páll Kolbeinsson 8, Pétur V. Sig-
urðsson 6, Karl Jónsson 5 og Ingi P. Rún-
arsson 2.
Stig UBK: Joe Wright 45, David Grissom
24, Hjörtur Arnarsson 8, Egill Viðarsson
6, Ivar Webster 4, Björn Hjörleifsson 3
og Ingvi Logason 1.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Vígl-
undur Sverrisson og dæmdu þokkalega.
rnmmm
Raymond Foster fellur vel að leik Tindastóls og er mikill baráttujaxl. Hann skoraði 37 stig á
sunnudaginn og var besti maður vallarins. Mynd: pib 1
Útivistardagur í Hlíðarfjalli:
Þóttí takast með miklum ágætum
Formlegur opnunardagur skíða-
vertíðarinnar í Hlíðarfjalli var
á laugardaginn. Þá var ýmis-
legt í boði fyrir almenning og
einnig var frítt í allar lyftur og
fríar ferðir upp í Fjall. Veður
Azudlas Seduikis hinn nýi leikmað-
ur Þórs. Mynd: HA
Afmælismót Júdósambands íslands:
KA með 3 gull
Afmælismót Júdósambands
íslands var haldið um helgina.
KA-menn voru að venju sterk-
ir og komust allir keppendur
frá félaginu á verðlaunapall.
Tveir sigrar komu í hlut KA-
manna í fullorðinsflokki og
einn í U-21 flokki. Þá kræktu
þeir í þrenn silfurveðlaun og
eitt brons.
í U-21 flokknum voru 2 kepp-
endur frá KA. Rúnar Snæland
sigraði með yfirburðum í -60 kg
flokki og Friðrik Pálsson varð í 2.
sæti í -78 kg flokki. Friðrik glímdi
til úrslita og var yfir allt fram á
lokasekúndurnar er honum urðu
á afdrifarík mistök sem kostuðu
hann gullið. Þeir félagar kepptu
einnig í sömu þyngdarflokkum í
fullorðinsflokki. Rúnar glímdi til
úrslita og tapaði þar naumlega.
Friðrik fékk uppreisn æru, sýndi
geysilega keppnishörku og náði
3. sæti eftir mikil átök.
Baldur Stefánsson, Freyr
Gauti Sigmundsson og Jón
Óðinn Óðinsson kepptu allir í
fullorðinsflokki. Baldur keppti í
-65 kg flokki og vann öruggan
sigur. Hann hefur verið í nokkr-
um sérflokki í þessum þyngdar-
flokki undanfarin 4-5 ár og eng-
inn náði að þessu sinni að ógna
veldi hans. Sama má segja um
íþróttamann Norðurlands 1992,
Frey Gauta Sigmundsson. Hann
vann samkvæmt venju yfirburða-
sigur í -78 kg flokki. Friðrik
krækti í bronsið í þessum flokki
eins og fyrr segir. Jón Óðinn
keppti í -86 kg flokki. Hann
brákaðist á öxl í fyrstu glímu
sinni en hélt engu að síður áfram
og keppti til úrslita þar sem hann
tapaði naumlega.
Að sögn Jóns Óðins er árangur
KA-manna góður og mótshaldið
gekk vel fyrir sig. Eins og áður
stendur fjárskortur júdósam-
bandinu fyrir þrifum og því alls
óvíst um þátttöku norðanmanna í
mótum erlendis á næstunni. Þau
mál ættu þó að skýrast innan
skamms, en ætli menn að vera í
fremstu röð er þátttaka í erlend-
um mótum alger nauðsyn.
Það getur verið gott að hafa smá stuðning af mömmu
þegar skíðin vilja endilega fara á undan manni.
Mynd: Robyn
var skaplegt fram eftir degi og
þótti þessi útivistardagur tak-
ast vel.
Að sögn ívars Sigmundssonar,
forstöðumanns Skíðastaða, kom
talsvert margt fólk í Fjallið.
Hann gat sér þess til að fjöldinn
hefði verið nálægt 1000 manns í
heildina. Ekki var annað að
heyra á fólki en því hefði líkað sú
dagskrá vel sem boðið var upp á.
Dagskráin gekk vel fyrir sig að
því undanskyldu að veðrið versn-
aði um 4 og þá varð að loka. ívar|
bjóst jafnvel við að dagskráin
yrði endurtekin seinna í vetur.
Nægur snjór er á skíðasvæðinu
en veðrið hefur þó ekki verið upp
á það besta eins og algengt er á
þessum árstíma. Opið er til kl 21
á þriðjudags-, miðvikudags- og
fimmtudagskvöldum, en til kl. 19
hin kvöld vikunnar. Meðan sól er
ekki hærra á lofti er jafnvel betra
að fara á skíði á kvöldin, en þá er
brautin flóðlýst og því ekki eins
blindað og yfir miðjan daginn.
Landsliðið á Lottómótinu:
••
sigur í gær
Alfreð Gíslason var valinn bestur íslendinga í þriðja leik handknattleikslandsliðs-
ins gegn Rússum á Lottómótinu í Noregi í gær. íslandingar áttu frábæran leik en
Rússar náðu þriggja marka sigri, 28:25. Markahæstur íslendinga í leiknum í gær
var Sigurður Sveinsson með 9 mörk.
íslendingar töpuðu í fyrsta leiknum í mótinu gegn Norðmönnum með minnsta
mun 21:20. Markahæstur í þeim leik var Valdimar Grímsson með 9 mörk.
Markvarsla Guðmundar Hrafnkelssonar hélt íslenska liðinu á floti gegn
Hollendingum. Hann varði 19 skot og lagði grunninn að tveggja marka sigri
íslendinga 20:18. Sigurður Sveinsson var markahæstur með 7 mörk. í dag mæta
Islendingar Rúmenum og síðasti leikurinn verður á morgun gegn ítölum.
Fátt óvænt í FA-bikamum
- glæsimark Ryan Giggs kom Man. Utd. áfram
Dwight Yorke skoraði fyrir Aston Villa í upphafi leiks gegn Wimbledon, en
það dugði ekki til sigurs.
Laugardagurinn fór að mestu
undir 4. umferð FA-bikar-
keppninnar á Englandi og
aldrei þessu vant var mjög lítið
um óvænt úrslit í leikjunum.
Aðeins einn leikur fór fram í
Úrvalsdeildinni, en við skulum
þá renna stuttlega yfír úrslitin í
leikjum laugardagsins.
■ Aston Villa fékk óskabyrjun í
leik sínum á heimavelli gegn
Wimbledon er Dwight Yorke
skoraði með skalla strax á 3. mín.
Leikmenn Wimbledon eru hins
vegar þekktir fyrir allt annað en
að gefast upp og svo fór að liðinu
tókst að jafna og tryggja sér ann-
an leik. Það var Gary Elkins sem
jafnaði fyrir Wimbledon með
skoti úr aukaspyrnu á 35. mín.
sem fór í stöng og inn. Þrátt fyrir
mikla baráttu í síðari hálfleikn-
um tókst hvorugu liðinu að
skora.
■ Leikmenn Crewe fengu
Úrvalsdeildarlið Blackburn í
heimsókn og þrátt fyrir 3:0 tap er
ekki hægt að segja annað en
smáliðið hafi veitt stórliðinu
harða keppni. Roy Wegerle náði
þó forystu fyrir Blackburn strax á
8. mín. eftir sendingu frá Colin
Hendry, en á eftir fylgdi góður
kafli hjá Crewe og liðið var
óheppið að skora ekki. En undir
lokin gerði Blackburn út um leik-
inn með tveim mörkum. Mike
Úrslit
FA-bikarinn
4. umferð
Aston Villa-Wimbledon 1:1
Crewe-Blackbum 0:3
Huddersfield-Southend 1:2
Luton-Derby 1:5
Manchester Utd.-Brighton 1:0
Nottingham For.-Middlesbrough 1:1
Q.P,R,-Manchester City 1:2
Rolherham-Newcastle 1:1
Sheffield Utd.-Hartlepool 1:0
Tranmere-Ipswich 1:2
Swansea-Grimsby frestað
Barnsley-West Ham 4:1
Norwich-Tottenham 0:2
Sheffield Wed.-Sunderland 1:0
Wolves-Bolton 0:2
Arsenal-Leeds Utd. mánudag
Úrvalsdeild
Coventry-Oldham 3:0
1. deild
Cambridge-Oxford 2:2
Portsmouth-Brentford 1:0
Leicester-Notts County 1:1
Birmingham-Peterborough 2:0
Úrslit í vikunni:
FA-bikarinn
3. umferð
Luton-Bristol City 2:0
Bristol Rovers-Aston Villa 0:3
Bamsley-Leicester 5:4
Deildabikarinn
fjórðungsúrslit
Ipswich-Sheffield Wed. 1:1
Úrvalsdeild
Q.P.R.-Manchester Uld. 1:3
1. deild
Southend-Newcastle 1:1
Newell renndi boltanum í autt
markið eftir frábæran undirbún-
ing Jason Wilcox á 78. mín. og
Kevin Moran gerði síðan þriðja
markið á 84. mín. af stuttu færi
eftir baráttu við markvörðinn.
■ Graham Mitehell náði forystu
fyrir Huddersfield á 27. mín. í
leiknum gegn Southend, en það
dugði þó skammt. Stan Collymore
sem Southend keypti nýlega frá
Crystal Palace á £ 150.000 tryggði
sínu nýja félagi sigurinn með
tveim mörkum á 45. og 52. mín.
■ Luton fékk háðulega útreið á
heimavelli gegn Derby og tapaði
1:5 þrátt fyrir að Paul Telfer næði
forystu fyrir liðið á 24. mín. Það
var fyrrum leikmaður Luton,
Mark Pembridge sem reyndist
sínum gömlu félögum erfiður og
skoraði þrennu í leiknum fyrir
Derby. Þeir Marco Gabbiadini
og Craig Short bættu hvor sínu
markinu við fyrir Derby.
■ Margir áttu von á því að
Manchester Utd. myndi bursta
lið Brighton á Old Trafford, en
ekkert slíkt var uppi á teningn-
um. Eina mark leiksins og sigur-
mark Man. Utd. var þó glæsilegt
A sunnudag voru leiknir fjórir
leikir í 4. umferð FA-bikarsins
og að þeim loknum var síðan
dregið til 5. umferðar. Hér
koma helstu punktarnir úr
leikjunum og á eftir fylgir síð-
an drátturinn.
■ Bolton liðið sem sló Liverpool
úr keppni í 3. umferð sýndi að sá
sigur var engin tilviljun með því
að sigra Úlfana á útivelli 2:0. Það
er greinilegt að framkvæmda-
stjóri þeirra Bruce Rioch er að
gera góða hluti með liðið. Bæði
mörkin komu í fyrri hálfleik og
sigur liðsins var fyllilega verð-
skuldaður. Scott Green á 11.
mín. og John McGinlay á 24.
mín. skoruðu mörk liðsins og
þrátt fyrir þunga sókn Wolves í
síðari hálfleik var sigur liðsins
aldrei í hættu.
og verðugt úrslitamark. Ryan
Giggs skoraði með glæsilegu
skoti beint úr aukaspyrnu á 76.
mín. og þeir eru margir sem telja
liðið líklegt til að sigra bæði í
deild og bikar í ár.
■ Ekki tókst hinu mikla bikar-
liði Nottingham For. að knýja
fram sigur á heimavelli sínum
gegn Middlesbrough og varð að
sættast á 1:1 jafntefli. Willie
Falconer náði raunar forystu fyrir
Middlesbrough 2 mín. fyrir hlé,
en Neil Webb jafnaði fyrir Forest
á 58. mín. með glæsilegu skalla-
marki.
■ Leikur Q.P.R. gegn Manchest-
er City var sýndur í sjónvarpinu
og gat þar hver dæmt fyrir sig um
ágæti þessara liða. Úrslitin komu
þó nokkuð á óvart, 2:1 fyrir City
og öll mörkin skoruð undir lokin.
David White og Michael Vonk
komu Man. City í 2:0 með mörk-
um á 71. og 75. mín., en eina
mark heimamanna skoraði Ian
Holloway.
■ Rotherham tókst að hanga á
jafntefli gegn hinu sterka liði
Newcastle og fær því annað tæki-
færi. Robert Lee náði forystu fyr-
■ Sheffield Wed. hafði heppn-
ina með sér á heimavelli er liðið
mætti Sunderland. Mark Bright
skallaði inn eina mark leiksins
fyrir Sheff. Wed. á 89. mín. er
Tony Norman markvörður Sund-
erland missti boltann eftir send-
ingu Nigel Worthington fyrir
markið.
■ Norwich fékk skell á heima-
velli er liðið fékk Tottenham í
heimsókn. Tvö mörk á 5 mín.
kafla í upphafi síðari hálfleiks
tryggðu Tottenham sigurinn.
Teddy Sheringham skoraði bæði
mörkin, það fyrra með góðu
skoti eftir undirbúning Nick
Barmby og það síðara með
skalla.
■ West Ham sótti ekki gull í
greipar Barnsley og tapaði 4:1 á
útivelli. Eina mark West Ham
ir Newcastle eftir hálftíma ieik,
en Nigel Johnson náði að jafna
fyrir Rotherham á 63. mín. af
stuttu færi eftir að boltinn barst
til hans eftir aukaspyrnu sem
small í stönginni hjá Newcastie.
■ Hartlepool sem sló Crystal
Palace úr keppninni og hefur nú
verið lýst gjaldþrota veitti Sheffi-
eld Utd. harða keppni þó á úti-
velli væri. Það kom í hlut Alan
„gamla“ Cork að skora sigur-
mark Sheffield Utd. á 47. mín.
■ Tranmere var eina liðið frá
Liverpool sem var meðal þátt-
tökuliða í 4. umferð þar sem
bæði Liverpool og Everton voru
slegin út í 3. umferð. Og það leit
vel út fyrir liðið er Pat Nevin náði
forystu fyrir liðið gegn Ipswich
strax eftir 17 mín. En í síðari
hálfleik náðu gestirnir betri tök-
um á leiknum og Jason Dozzell
jafnaði og sigurmarkið skoraði
síðan Bontzo Guentchev fyrir
Ipswich.
■ Leik Swansea gegn Grimsby
var frestað vegna veðurs.
Úrvalsdeild
■ Coventry vann öruggan sigur
á heimavelli í eina leiknum sem
leikinn var í Úrvalsdeildinni um
helgina er liðið sigraði Oldham
3:0. Kevin Gallacher skoraði tví-
vegis eftir undirbúning Mick
Quinn og John Williams, en milli
marka hans lagði Quinn upp
mark fyrir Peter Ndlovo. OIl
mörkin komu á fyrstu 18 mín.
leiksins, en Roger Palmer fékk
síðan færi á að minnka muninn
fyrir Oldham en mistókst tvívegis
í ágætum færum.
Þ.L.A.
Ryan Giggs tryggði Man. Utd.
sigurinn gegn Brighton með glæsi-
marki.
skoraði Trevor Morley úr víta-
spyrnu sem hann fiskaði sjálfur,
en Andy Rammell var hetja
Bamsley og skoraði þrjú af
mörkum þeirra. Fjórða markið
skoraði síðian Neil Redfearn.
Og þá er það drátturinn til 5.
umferðar sem fór þannig:
Tottenham-Aston VillaAVimbledon
Manchester City-Bamsley
Blackburn-Rotherham/Newcastle
Sheffield Wed.-Southend
Sheffield Utd.-Manchester Utd.
Derby-Bolton
Arsenal/Leeds Utd,-
Nottingham For/Middlesbrough
Ipswich-Swansea/Grimsby
Leikirnir fara fram 13. og 14.
febrúar.
Þ.L.A.
Bolton heldur sigurgöngunni áfram