Dagur - 26.01.1993, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 26. janúar 1993
MlNNING
Ý Hjörtur Hjartar
framkvæmdastjóri
Fæddur 9. janúar 1917 - Dáinn 14. janúar 1993
Hjörtur Hjartar fyrverandi fram-
kvæmdastjóri Skipadeildar Sam-
bands ísl. samvinnufélaga lést á
Landspítalanum þann 14. janúar
sl. 76 ára að aldri, eftir langa og
erfiða sjúkdómslegu.
Hjörtur fæddist 9. janúar 1917
á Þingeyri við Dýrafjörð. For-
eldrar hans voru Ólafur R. Hjart-
ar járnsmiður f. 1892, og Sigríður
Egilsdóttir f. 1893. Var Olafur
sonur hjónanna Hjartar Bjarna-
sonar og Steinunnar Guðlaugs-
dóttur og Sigríður dóttir Egils
Jónssonar og Sigríðar Bergsdótt-
ur.
Hjörtur Hjartar ólst upp í for-
eldrahúsum á Þingeyri og hóf
störf hjá Kaupfélagi Dýrfirðinga
aðeins 14 ára gamall. Skömmu
eftir að Hjörtur gerðist starfs-
maður kaupfélagsins, réðst þang-
að sem kaupfélagsstjóri Eríkur
Þorsteinsson, síðar alþingismað-
ur. Var Eiríkur umsvifamikill
athafnamaður og hefur vistin hjá
honum eflaust verið góður skóli
og þroskað manndóm unglings
sem hafði þann eðlisþátt að gera
ætíð miklar kröfur til sjálfs sín.
Hjörtur gekk í Samvinnuskól-
ann, var þar tvo vetur og út-
skrifaðist vorið 1937, þá tvítugur
að aldri. Gat hann sér góðan
orðstír í skóla, sem sést best á
því, að hann er kallaður frá próf-
borðinu af þáverandi forstjóra
Sambansins, Sigurði Kristinssyni,
til þess að taka við forstöðu
Kaupfélags Önfirðinga á Flat-
eyri, en það félag átti þá í mikl-
um rekstrarerfiðleikum og óein-
ing ríkti meðal ráðamanna
félagsins. Aðkoman þar var því
erfið fyrir Hjört aðeins tvítugan
að aldri. Þar þurfti mikinn dugn-
að til að ráða fram úr erfiðleikum
félagsins. Kom það fljótt í ljós að
Hjörtur var vandanum vaxinn. Á
ótrúlega skömmum tíma tókst
honum að leysa vandamál félags-
ins enda gerði hann ekki aðeins
miklar starfskröfur til sjálfs sín,
heldur hafði líka til að bera mik-
Vinningstölur laugardaginn (8Vl9) (33X§ 23. jan. ’93
(24) 8) (7)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 1 6.157.430,-
162.383,-
3. 4al5 169 6.629,-
4. 3af5 5.035 519.-I
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 10.540.428.-
uppiÝsiNGAR:SÍMSVAni91 -681511 lukkul!na991002
inn metnað að standa sig vel í því
ábyrgðarmikla starfi sem honum
hafði verið trúað fyrir.
Hjörtur veitti Kf. Önfirðinga
forstöðu á árunum 1937 til 1945.
Á Flateyri gegndi hann ýmsum
öðrum trúnaðarstörfum, sat í
hafnar- og skólanefnd, Lýðveld-
ishátíðarnefnd V-ísafj arðarsýslu,
var í skólanefnd, var fulltrúi á
þing- og héraðsmálafundum í
sýslunni. Þá var Hjörtur félagi í
Framsóknarfélagi V-ísafjarðar-
sýslu. Það hlóðust þannig ýmis
störf á Hjört utan kaupfélags-
stjórastarfsins, enda var hann
mjög félagslega sinnaður og
kunni vel til verka á því sviði, var
vel máli farinn á fundum og átti
létt með að semja fundarefni.
Árið 1945 verða aftur kafla-
skipti í lífi hans og starfi. í annað
sinn er leitað til hans að leysa
vandamál kaupfélags. í þetta
sinn er það Kaupfélag Siglfirð-
inga sem átti í miklum rekstrar-
erfiðleikum og innan félagsins
voru þá miklir flokkadrættir. Er
Hjörtur ráðinn kaupfélagsstjóri á
Siglufirði árið 1945 í lok seinni
heimsstyrjaldarinnar.
Á þessum árum var það síldin
sem setti svip sinn á Siglufjörð.
Mikil gróska var þar í atvinnulíf-
inu og var Siglufjörður á þessum
tíma mikill atvinnubær. Tókst
Hirti fljótt að ná tökum á stjórn
kaupfélagsins og þótt hann gæti
verið harður í horn að taka þegar
svo bar undir, þá auðnaðist hon-
um að setja niður deilur innan
félagsins og fá víðtæka samstöðu
um kaupfélagið. Hann jók um-
svif félagsins og færði kvíarnar út
í atvinnulífið. Þannig starfrækti
félagið síldarsöltun, oft með góð-
um árangri. Hjörtur Hjartar
gerðist uppfinningamaður við
hagræðingu síldarsöltunar og
fékk fyrir það viðurkenningu frá
opinberum aðilum. Á Siglufirði
tók Hjörtur að sér ýmis aukastörf
líkt og á Flateyri. Meðal annars
sat hann í hafnarnefnd og var í
stjórn Framsóknarfélags Siglu-
fjarðar.
Hjörtur stýrði Kf. Siglfirðinga
í sjö ár og segja má að félagið
hafi á þessum tíma haft traustan
og góðan rekstur. Það eignaðist
góða aðstöðu fyrir starfsemi sína
og hafði stóra markaðshlutdeild á
Siglufirði. Fór það ekki á milli
mála, að þakka mátti Hirti Hjart-
ar fyrst og fremst framgang
félagsins á þessum árum.
Árið 1952 verða aftur þáttaskil
í lífi og starfi Hjartar. í þriðja
skipti er til hans leitað af for-
stjóra Sambandsins og í þetta
sinni af Vilhjálmi Þór, til þess að
taka að sér vandasamt stjórnun-
arstarf innan Sambandsins.
Skipareksturinn var enn í mótun
en nú var talið tímabært að setja
þessa starfsemi undir sjálfstæða
deild innan Sambandsins, Skipa-
deild, og var Hjörtur Hjartar
ráðinn framkvæmdastjóri deild-
arinnar.
Aðalfundur
Knattspyrnudeildar KA
verður haldinn í KA-heimilinu sunnudaginn 31.
janúar og hefst kl. 20.30 e.h.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Það sýnir glöggt, hve mikið
traust Hjörtur hafði áunnið sér,
að honum skyldi falið að taka við
Skipadeildinni. Hann hafði ekki
áður kynnst að ráði rekstri kaup-
skipa og þurfti því að lesa sér til
og læra þetta nýja fag. Á ótrúlega
skömmum tíma náði Hjörtur
tökum á skiparekstrinum. Hann
var vakinn og sofinn að fylgjast
með rekstri skipanna, daga sem
nætur. Þegar skipstjóri þurfti að
taka meiriháttar ákvörðun var
hringt í Hjört, hvenær sem var
sólarhringsins. Álagið varð strax
mikið, trúlega of mikið. Á besta
aldri í blóma lífsins getur verið
viss hætta á því, að menn kunni
sér ekki hóf. Hjörtur hafði vanist
því í kaupfélagsstjórastarfinu á
Flateyri og á Siglufirði, að hlífa
sér í engu og þegar hann kom í
Sambandið tók það sama við. í
ofanálag fékk hann oft langar og
strangar samningalotur er hann
sem varaformaður í Vinnumála-
sambandi samvinnufélaganna
hafði forystu í kjarasamninga-
gerð fyrir samvinnufélögin.
Vinnuþrek Hjartar á þessum
árum var útrúlega mikið. Sjálfur
hafði hann skömm á lélegum
vinnubrögðum, gerði miklar
kröfur, þó mestar til sjálfs sín.
Lítið var hins vegar um sumarfrí
hjá Hirti á þessum árum og ein-
hvern veginn hefi ég það á tilfinn-
ingunni að jaðrað hafi við, að
honum hafi innst inni fundist
það, að fara í sumarfrí, vera það
sama og að svíkjast um í störfum.
Kynni okkar Hjartar byrja í
alvöru í ársbyrjun 1955, þegar ég
tók við forstjórastarfi Sambands-
ins. Ég tók strax upp þann sið, að
hin nýja framkvæmdastjórn, sem
stjórn Sambandsins kaus í des-
ember 1954, skyldi koma saman
til fundar vikulega og voru fundir
fyrstu árin haldnir á föstudögum.
í framkvæmdastjórn Sambands-
ins áttu þá sæti auk mín: Helgi
Þorsteinsson sem var varafor-
maður framkvæmdastjómar,
Hjörtur Hjartar sem var ritari,
Helgi Pétursson, Harry Frederik-
sen og Hjalti Pálsson. Hjörtur
Hjartar var ritari til ársins 1967
og á þessum tíma voru bókaðir
446 fundir. Sagan mun varðveita
þessar fundargerðir sem ritarinn
skráði með sinni skýru hugsun,
en Hjörtur var framúrskarandi
ritari. Við fráfall Helga Þor-
steinssonar var Hjörtur kjörinn
váraformaður framkv.stjórnar-
innar.
Hjörtur Hjartar lét af störfum í
Sambandinu í árslok 1976, en
brestur heilsu hafði þá byrjað að
gera vart við sig, þótt það virtist
ekki alvarlegt í byrjun. Að baki
voru 46 ár frá því hann hóf störf í
Kaupfélagi Dýrfirðinga þá fjórtán
ára gamall. Æfistörfin voru
margþætt og ótrúlega mikil að
vöxtum enda var Hjörtur mikill
afkastamaður.
Hér áður hefur verið minnst
nokkuð á aðalstörf Hjartar en
auk þeirra má nefna eftirfarandi,
sem hann gegndi í lengri eða
skemmri tíma: í stjórn verk-
smiðja Sambandsins á Akureyri
var hann árin 1949-51, í stjórn
Samvinnusparisjóðsins frá stofn-
un 1954 og síðar í bankaráði
Samvinnubankans frá stofnun
1963, í stjórn Áburðarverksmiðj-
unnar hf., í stjórn Olíufélagsins
frá 1967 og stjórnarformaður þar
í mörg ár, í stjórn Vinnumála-
sambands samvinnufélaganna, í
stjórn Dráttarvéla hf., í stjórn
Regins hf., í stjórn Fiskimjöls
Njarðvík hf., í stjórn Framsókn-i
arfélags Reykjavíkur, í stjórn
Bæjarútgerðar Reykjavíkur eitt
kjörtímabil. Hér að ofan hefur
verið minnst á helstu félagstörf
Hjartar. Eitthvað mun þó vanta í
þessa upptalningu.
Hjörtur Hjartar var mikill
gæfumaður í einkalífi. Hann átti
því láni að fagna að eignast
traustan lífsförunaut, Guðrúnu
Jónsdóttur kennara. Þau giftu sig
þann 21. sept. 1939. Guðrún er
dóttir hjónanna Jóns Jónssonar
bónda og alþingismanns í Stóra-
dal og konu hans Sveinbjargar
Brynjólfsdóttur. Guðrún er gáf-
uð og glæsileg kona, mikil hús-
móðir sem ekki aðeins bjó manni
sínum og börnum fagurt heimili,
heldur reyndist hún einnig færsæl
við uppeldi barnanna.
Þau Hjörtur og Guðrún eign-
uðust fjögur börn þau eru: Jóna
Björg, kennari, gift Paul van
Buren háskólakennara. Þau eru
búsett í Hollandi og eiga tvo syni,
- Sigríður Kristín, lyfjafræðing-
ur, gift Stefáni Guðbergssyni
verkfræðingi og eiga þau þrjá
syni, - Elín, hjúkrunarfræðingur,
gift Davíð Á. Gunnarssyni verk-
fræðingi og eiga þau þrjár dætur,
- Egill raftæknifræðingur, giftur
Maríu Gunnarsdóttur tæknifræð-
ingi og eiga þau þrjú börn. Lang-
afabörnin eru fjögur talsins.
Það var mikil gæfa Hjartar að
eignast Guðrúnu. Fáar konur
hefðu sætt sig við slíkt álag hús-
bóndans. Það var þó bót í máli,
að Guðrún og Hjörtur báru sömu
taugar til starfsins. Þau áttu sömu
hugsjónir varðandi framgang
samvinnustefnunnar og einlægni
þeirra á því sviði var samofin.
Þau voru mjög samrýmd og
menningarlega sinnuð.
Eftir að Hjörtur lét af störfum
í Sambandinu ritaði hann fjölda
greina sem birtust í Tímanum
undir nafninu Samvinnumaður.
Efni greinanna varðaði sam-
vinnuhreyfinguna stefnu hennar
og störf, einnig greinar er voru
andsvör við ádeilum á Samband-
ið og samvinnufélögin. Greinar
þessar vöktu verðskuldaða
athygli enda vel skrifaðar eins og
Hirti var von og vísa. Við nokkrir
vinir Hjartar hvöttum til þess, að
greinar úr þessu ritsafni yrðu
gefnar út í bók og var samþykkt
að Samband ísl. samvinnufélaga
gæfi bókina út. Bókin sem ber
nafnið: „Á líðandi stund - nokk-
ur rök samvinnumanna 1977-
1982“, kom svo út í desember
1984. Ég held sérstaklega upp á
þessa bók. Hún er verðmæt fyrir
samvinnuhreyfinguna, ekki síst
sem hvatning fyrir endurreisn
samvinnustarfs á íslandi.
Hjörtur Hjartar háði erfiða
baráttu við ólæknandi sjúkdóma
síðasta áratuginn. Þar reyndi
mikið á Guðrúnu og fjölskylduna
sem gerðu allt hvað þau gátu til
þess að hann mætti þola sem
minnstar þjáningar og hann gæti
verið í stöðugu sambandi við fjöl-
skylduna. í veikindastríðinu kom
berlega í ljós hin mikla umhyggja
Guðrúnar. Nú er þjáningunum
lokið en eftir situr ástvinamissir-
inn. Hann er sár, en gott er þá að
eiga góðar endurminningar lið-
inna ára, sem veita styrk í sorg og
gleði í hjarta.
Þegar Hjörtur er nú kvaddur
hinstu kveðju er mér efst í huga
þakklæti til hans fyrir samstarfið
sem við áttum í Sambandinu um
áratuga skeið, þakklæti fyrir
árangur sem náðist á þeim árum í
uppbyggingarstarfi samvinnu-
hreyfingarinnar. Þess mun ég
minnast með virðingu og þakk-
læti.
Við Margrét færum Guðrúnu
og fjölskyldu hennar okkar inni-
legustu samúðarkveðjur. Blessuð
sé minning Hjartar Hjartar.
Erlendur Einarsson.
Bílasalan Bílaval og Þórshamar:
Samstarfssammngur um sölu
á nýjum og notuðum bílum
Bflasalan Bflaval hefur flutt
starfsemi sína úr Strandgötu 53
aö Glcrárgötu 36 þar sem Bfla-
sala Þórshamars hf. er til húsa
og hafa Bflaval hf. og Þórs-
hamar hf. gert með sér sam-
starfssamning um sölu á nýjum
og notuðum bflum.
Opnað var eftir gagngerar
endurbætur á húsnæðinu þann 8.
janúar sl. Einnig var tekið í notk-
un fullkomið tölvukerfi til að
Leiðrétting
í frétt um andlát Jóns Eðvarðs
Jónssonar, rakarameistara á
Akureyri, sl. laugardag var farið
rangt með föðurnafn Ingibjargar,
eftirlifandi eiginkonu hans. Hún
er Sigurðardóttir en ekki Stefáns-
dóttir. Jón Eðvarð var til heimilis
að Lögbergsgötu 9 á Akureyri en
ekki Lögbergsgötu 8 eins og
ranglega kom fram í andlátstil-
kynningu í Degi á laugardag.
Hlutaðeigandi eru innilega beðn-
ir velvirðingar á þessum mistök-
um.
geta mætt kröfum viðskiptavinar-
ins sem best. Þetta nýja samstarf
verður framvegis auglýst undir
nafninu Bílasalan Bílaval - Þórs-
hamar söluumboð.
Söluumboð fyrir nýja bíla eru:
Volvo, Honda, Daihatsu, Isuzu,
Opel, CM, Hyundai, Lada og
MAN. Framkvæmdastjóri Bíla-
vals hf. er Kári Agnarsson og
sölustjóri Þórshamars hf. er
Ágúst Hilmarsson. Fréttatilkynning
HEILRÆÐI
3? /
ÞEGAR HJÓLAÐ ER MED BARN
ER MIKILVÆGT
AD STÓLLINN SÉ KIRFILEGA FESTUR
Á STERKUM BÖGGLABERA.
SLYSAVARNAFÉLAGÍSLANDS
RAUDI KROSS ÍSLANDS