Dagur - 16.02.1993, Síða 7

Dagur - 16.02.1993, Síða 7
Þriðjudagur 16. febrúar 1993 - DAGUR - 7 Körfubolti, 1. deild karla: Þórsarar með yfirburði gegn Hetti og sigruðu með 54 stiga mun - Azuolas stigahæstur Þórsara Þeir voru aðeins 6 leikmenn Hattar frá Egilsstöðum sem heimsóttu Þórsara í íþrótta- höllina á Akureyri á laugadag- inn þegar liðin áttust við í 1. deildinni í körfubolta. Gestirn- ir náðu að standa í Þórsurum í fyrri hálfleik en í þeim síðari brustu allar varnir, Þórsarar gengu á lagið og sigruðu með 54 stiga mun, 136:82. Leikurinn fór rólega af stað. Þórsarar fengu dæmdar á sig margar klaufalegar villur í byrjun leiksins og eftir aðeins um 9 mín- útna leik voru Hattarmenn komnir með skotrétt við hvert brot Þórsara. Um miðjan hálf- leikinn fóru Þórsarar að síga fram úr og í leikhléi var staðan 53:42. Fljótlega í síðari hálfleik var munurinn á liðunum orðinn 20 stig og greinilegt hvert stefndi. Kristján Rafnsson, besti maður Hattar, fór þá útaf og sat mest á bekknum það sem eftir var. Þreyta hjá leikmönnum liðsins fór fljótlega að segja til sín á meðan Þórsarar fóru á kostum. Var á köflum um hreina sýningu að ræða af þeirra hálfu enda mót- spyrnan lítil. í lokin var munur- inn orðinn 54 stig, 136:82, sem er óvenju mikið skor í 1. deildar leik. Körfubolti, 1. deild karla: UFA-menn heillum horfiiir - og töpuðu fyrir Hetti Leikmenn UFA máttu bíta í það súra epli að tapa fyrir Hetti þegar liðin mættust í 1. deildinni á föstudagskvöldið. Leikmenn UFA voru langt frá sínu besta og tapið gerði vonir liðsins um að komast úr botn- sætinu að engu, að sinni í það minnsta. Höttur hafði eins stigs forystu í leikhléi, 46:45 og góður kafli UFA í upphafi síðari hálfleiks dugði ekki til að vinna sigur. Lokatölur urðu 76:88 fyrir Hött og eflaust vilja leikmenn UFA sem fyrst gleyma þessum leik. Stig UFA: Ágúst Guðmundsson 20, Jó- hann Sigurðsson 20, Matthías Jónasson 18, Guðmundur Björnsson 9, Þórður Kárason 4, Nick Caraiglia 3 og Jón G. 'Guðlaugsson 2. HM í norrænum greinum: Haukur og Sigurgeir famir til Falun Skíðagöngumennirnir Haukur Eiríksson og Sigurgeir Svavars- son héldu á sunnudaginn til Falun i Svíþjóð til að taka þátt í HM í Norrænum greinum sem þar fer fram. Fins og fram hefur komið í Degi fara þeir á vegum sinna félaga, þ.e. SRA og Skíðadeildar Leifturs og þurfa sjálfír að sjá um fæði og uppihald. SKÍ borgar þátt- tökugjald. íslenski keppandinn, Daníel Jakobsson frá ísafirði. Haukur og Sigurgeir keppa fyrst á laugardaginn, 20. febrúar, en þá er 30 km gangan á dagskrá. Á mánudaginn 22., er 10 km ganga og þá verða allir íslensku keppendurnir meðal þátttak- enda, eins og miðvikudaginn 24. febrúar þegar gengnir verða 15 km. Sunnudaginn 28. er keppt í 50 km göngu og þar verður Haukur Eiríksson að öllum lík- Azuolas Zeduikis lék sinn fyrsta leik með Þór og stóð sig vel. Hann fellur vel að leik liðsins, er lipur og með gott auga fyrir samspili. Konráð Oskarsson naut sín einnig vel og skoraði grimmt. Kristján Rafnsson var yfirburðarmaður hjá Hetti í fyrri hálfleik, en lék lítið með í þeim síðari og Mike Nelson var drjúgur. Gangur leiksins: 2:3, 7:8, 18:16, 31:18, 41:34, 53:42, 56:44, 70:50, 85:54, 96:58, 104:60, 114:71, 124:76 og 136:82. Stig Þórs: Azuolas Zeduikis 36, Konráð Óskarsson 35, Örvar Erlendsson 17, Arnsteinn Jóhannesson 16, Helgi Jóhannesson 12, Einar Valbergsson 11, Birgir Örn Birgisson 4 og Davíð Hreið- arsson 3. Stig Hattar: Mike Nelson 31, Kristján Rafnsson 22, Birkir Björnsson 12, Magn- ús Jónasson 9, Sigurbjörn Björnsson 4 og Birgir Bragason 4. Dómarar:Erlingur Arnarson og Jón Hreinsson. Höfðu nokkuð góð tök á leiknum. Helgi Jóhannesson átti ágæta spretti í leiknum gegn Hetti og átti sinn þátt í stórsigri liðsins. Knattspyrna, 3. deild: Bjöm Rafhsson til Dalvíkur miklar breytingar fyrirsjáanlegar á liðinu Dalvíkingum hefur bæst góður liðsstyrkur fyrir baráttuna í 3. deild knattspyrnunnar næsta sumar. Björn Rafnsson, sem lengst af hefur leikið með KR, hefur nú ákveðið að flytja til Dalvíkur og leika með liðinu næsta sumar. Miklar manna- breytingar eru fyrirsjáanlegar á Dalvíkurliðinu og a.m.k. 4 úr byrjunarliðinu verða ekki með næsta sumar. Dalvíkingum er mikill fengur í Birni Rafnssyni. Hann þjálf- aði lið Snæfells í 4. deild á síðasta sumri en hafði leikið með KR mörg ár þar á undan. Alls hefur hann leikið 131 leik í 1. deild Björn Rafnsson í leik með KR. með KR og skorað 35 mörk, er 4. markahæsti maður liðsins frá upphafi og einnig í hópi þeirra leikjahæstu. Björn er smiður að atvinnu en mun auk þess þjálfa 5. og 6. flokk Dalvíkinga. Fyrirsjáanlegt er að þó nokkuð miklar breytingar verða á leik- mannahópi Dalvíkinga. Guðjón Guðmundsson þjálfri liðsins f fyrra er farinn og sömuleiðis Valdimar Pálsson. Þá hafa Bjarni Gunnarsson og Gísli Davíðsson ákveðið að leggja skóna á hill- una. Allt eru þetta sterkir leik- menn. Því er ekki óeðlilegt að Dalvíkingar vilji styrkja hóp sinn og ekki loku fyrir það skotið að fleiri eigi eftir að bætast við. Framhaldsskólamót í innanhússknattspyrnu: Laugastrákar skákuðu stóru skólunum Mótið verður sett nk. fimmtu- dag en tímann þangað til munu þeir félagar nota til að kynna sér aðstæður. Fyrir á staðnum er 3. Haukur Eiríksson. indum og jafnvel einnig Sigurgeir Svavarsson. Dagur mun að sjálf- sögðu fylgjast með framgöngu íslendinganna. Sigurgeir Svavarsson. Framhaldsskólinn á Laugum er Framhaldsskólameistari í innanhússknattspyrnu 1993 í karlaflokki. Mótið var haldið um helgina í íþróttahúsi FB við Austurberg og Laugamenn sigruðu MR í úrslitaleik 3:2. Þetta er glæsilegur árangur, ekki síst þar sem hér er aðeins um 120 nemenda skóla að ræða. Laugamenn unnu sigur í sínum riðli í undankeppninni þar sem þeir lögðu Flensborg 8:1 og Fjöl- brautaskólann á Sauðárkróki 11:1, en gerðu jafntefli við heimamenn í FB, 3:3. í undan- úrslitum voru menntskælingar frá Egilsstöðum lagðir að velli og þar með var ljóst að Laugaskóli léki til úrslita. Þar voru MR-ingar andstæð- ingarnir. Þórir Þórisson skoraði fyrsta mark leiksins úr víti fyrir Framhaldsskólann á Laugum og Þröstur Sigurðsson kom liðinu í 2:0 með góðu marki áður en MR- ingar náðu að minnka muninn. Þá kom annað mark frá Þresti og staðan í leikhléi var 3:1. í síðari hálfleik léku Laugamenn sterka vörn og freistuðu þess að halda fengum hlut. Það tókst og titilinn var í höfn. Liðið skipuðu: Þórir Þórisson (kosinn besti maður mótsins), Sævar Pétursson, Þröstur Sig- urðsson, Garðar Geirfinnsson, Elmar Viðarsson, Friðrik Jóns- son, Einar Bragason, Bergmann Guðmundsson, Ragnar Hauks- son og Guðmundur Sigmarsson.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.