Dagur - 19.02.1993, Page 1
Sauðárkrókur:
Starfsfólki Qölgað
- vaktavinna hefst í næstu viku
Vaktavinna mun hefjast í
Fiskiðjunni á Sauðárkróki í
næstu viku. Unnið verður á
tveimur vöktum og því þarf að
bæta við fóiki. Svipað fyrir-
komulag var prófað í fyrra og
þótti gefast vel.
Húsavíkurhöfn:
Verktryggingar
á haftiar-
framkvæmdum
Eins og áður hefur verið greint
frá í blaðinu stendur til að taka
upp vaktavinnu í frystihúsi Fisk-
iðjunnar á Sauðárkróki. Fjölgað
verður um allt að 30 manns til að
manna vaktirnar. Vaktir verða
tvískiptar, frá kl. 6-14 og 14-22.
Slík vaktavinna var reynd um
tveggja mánaða skeið í fyrra og
mun standa í þrjá mánuði að
þessu sinni. Ráða á fólk víðsveg-
ar að úr sýslunni, sem ætti þá að
fækka á atvinnuleysisskrám.
M.a. er talað um að ráðið verði
fólk úr sveitunum, t.d. kringum
Varmahlíð. Einar Svansson
framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar
segir hráefnið koma frá togurun-
um, bátum, fiskmörkuðum og
erlendis frá. sþ
Þemavika fer þessa dagana fram í Barnaskóla Akureyrar og er hún tileinkuð verndun umhverfisins. Þessir sveinar
voru þátttakendur í „ómyndræni myndgerð“. Mynd: Robyn
„Það eru verktryggingar á
verkinu sem tryggingafélag
ábyrgist,“ sagði Jón Levy,
forstöðumaður tæknideildar
Vita- og hafnamálastofnunar,
aðspurður hvort Húsavíkur-
bær yrði fyrir skakkaföllum
færi svo að Hagvirki/Klettur
yrði gjaldþrota. Fyrirtækið var
yfirverktaki við hafnarfram-
kvæmdir á Húsavík á síðasta
ári og gerður hefur verið við-
bótarsamningur um fram-
kvæmdir á þessu ári, sem eiga
að hefjast í vor.
Jón Levy sagði að fyrri hluti
verksins væri uppgerður, svo þar
væru ekki útistandandi skuldir.
Byrjað væri að undirbúa fram-
kvæmdirnar í sumar og Hagvirki/
Kletti hefðu því verið greiddar
nokkrar milljónir, en tryggingar
næmu líklega um þrefalt hærri
upphæð. „Það á því allt að vera
vel tryggt,“ sagði Jón Leví.
Aðilar frá Vita- og hafnamála-
stofnun hafa verið á ferð um
Norðurland eystra til að kynna
sér það tjón er orðið hefur á
hafnarmannvikjum í undan-
gengnum vetrarveðrum. Jón
Levy sagði að á flestum stöðum
hefði verið um minniháttar tjón
að ræða, en á hafnargarðinum í
Bakkafirði þyrfti að gera meiri-
háttar lagfæringar eftir brimið.
IM
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
Fímm daga öldnmarlækningadeild
starfrækt tíl reynslu í 3 mánuöi
- athyglisverð nýjung í öldrunarþjónustu hér á landi
Þann 1. mars nk. hefst á Krist-
nesi á vegum Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri tilrauna-
verkefni í öldrunarmálum sem
tekur til reksturs öldrunar-
lækningadeildar fímm daga
vikunnar. Verkefnið, sem er
nýjung í öldrunarþjónustu hér
á landi, mun taka þrjá mánuði
og er gert ráð fyrir fímm legu-
rúmum. Miðað er við að við-
komandi fímm einstaklingar
verði á öldrunarlækningadeild-
inni fímm virka daga, en í
heimahúsum um helgar.
Fjórðungssjúkrahúsið sótti um
og fékk fyrirgreiðslu úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra til að fjár-
magna verkefnið á móti Fjórð-
ungssjúkrahúsinu. Ráðnir verða
tveir sjúkraliðar og tveir hjúkr-
unarfræðingar sem munu ein-
göngu vinna að því. Starfsfólk
Fjórðungssjúkrahússins mun
einnig koma að verkefninu, m.a.
læknar, sjúkraþjálfarar og iðju-
þjálfar.
„Við setjum verkefnið upp
eins og vísindalega rannsókn
þannig að við eigum að fá niður-
stöðu úr því og munum geta sagt
til um kosti þess og galla. Við
vonum að verkefnið verði mikil-
vægt innlegg í umræðu um þróun
öldrunarmála hér á landi í fram-
tíðinni,“ sagði Magna F. Birnir,
hjúkrunarforstjóri FSA.
En hvað felst í verkefninu?
Magna sagði að gert væri ráð fyr-
ir að í því tækju þátt einstakling-
ar sem væru orðnir ellihrumir eða
veikir, en þó ekki komnir á bið-
lista eftir langleguplássum. „Við
erum að vona að við getum
endurhæft slíka einstaklinga,
hjálpað þeim með búnað heima,
komið reglu á svefn og tekið á
öðrum vandamálum til þess að
þeir fari seinna inn á biðlista eftir
langlegu. Við viljum með öðrum
orðum lengja þann tíma sem
þetta fólk getur verið heima. Til-
gáturnar við þetta verkefni eru
þær að lífsgæði og líkamleg hæfni
sjúklingsins aukist eftir tveggja til
þriggja vikna meðferð á virkri
öldrunarlækningadeild,“ sagði
Magna.
Hún sagði að slík fimm daga
öldrunarlækningadeild hafi ekki
verið reynd áður hér á landi og
því sé afar spennandi að sjá hver
útkoman verði. „Ég er mjög
hamingjusöm með að þetta verk-
efni sé að hefjast. Ég finn fyrir
mjög miklum áhuga hjá heil-
brigðisstéttum hér í bænum fyrir
verkefninu og það finnst mér sér-
lega ánægjulegt,“ sagði Magna.
Að þrem mánuðum liðnum
Indversk skipasmíðastöð leitar tækniþekkingar hjá Slippstöðinni Odda hf.:
„Styrkir okkur í að halda uppi tæknistarii
þó svo að nýsmíðar verði ekld í gangi“
- segir Sigurður G. Ringsted, forstjóri
Mikið annríki er nú hjá Slipp-
stöðinni Odda hf. á Akur-
eyri, sem er óvanalegt á þess-
um árstíma. í næsta mánuði
er ráðgert að tveir tækni-
menn fari til Indlands til
skrafs og ráðagerða við for-
svarsmenn þarlendrar skipa-
smíðastöðvar. Umræðuefnið
er tækniaðstoð frá íslandi.
Að sögn Sigurðar G.
Ringsted, forstjóra Slippstöðv-
arinnar Odda hf., eru verkefni
næg sem stendur í skipasmíða-
stöðinni. Vegna óhappa hafa
skip komið til viðgerðar, nú síð-
ast togarinn Margrét EA eftir
að skipið fékk á sig brotsjó f
Eyjafjarðarál.
„í fyrra var frestað viðgerð og
breytingum á tveimur togurum
frá Útgerðarfélagi Akureyringa
hf., þ.e. þeim Sólbak og
Svalbak. Ákveðið var að taka
skipin í slipp í byrjun árs 1993
og nú er Svalbakur hér í stöð-
inni og Sólbakur er í fyrsta túr
eftir „klössun". Fleiri skip eru
til viðgerðar og nú leitar ind-
versk skipasmíðastöð eftir
tækniaðstoð. Tveir tæknimenn
fara til Indlands í næsta mán-
uði, Slippstöðinni að kostnaðar-
lausu, til að kanna málavöxtu
og án skuldbindinga. Ákjós-
anlegt er að geta miðlað þeirri
þekkingu sem við eigum í fyrir-
tækinu og fá grciðslu fyrir. Sam-
starf sem þetta, ef af verður,
styrkir okkur j' að halda uppi
einhverju tæknistarfi þó svo að
nýsmíðar veröi ekki mikið í
gangi hér heimafyrir,“ sagði
Sigurður G. Ringsted. ój
verður „verkefnið gert upp“, eins
og það er kallað, þ.e. tekin verð-
ur saman skýrsla um hvernig til
hefur tekist og heilbrigðisráðu-
neytinu gerð grein fyrir niður-
stöðunum. óþh
Sauðárkrókur:
Dögunhf.
keyptí Marver
á Stokkseyri
- átti fyrir eignarhluta
Rækjuvinnslan Dögun hf. á
Sauðárkróki hefur nú keypt
útgerðarfyrirtækið Marver á
Stokkseyri, en Dögun var hlut-
hafí í fyrirtækinu. Með kaup-
unum fylgir 150 tonna bátur
sem verður áfram gerður út frá
Stokkseyri, a.m.k. til að byrja
með.
Ómar Þór Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Dögunar staðfesti
þetta í samtali við blaðið. Hann
sagði stöðu Marvers hafa verið
mjög slæma og kaupin hefðu ver-
ið spurning um að bjarga fyrir-
tækinu og jafnframt eignarhlut
Dögunar.
Skipið sem Marver átti er Haf-
örn ÁR-115, 150 tonn. Hann er
nú að halda til veiða frá Stokks-
eyri, á netaveiðar að sögn Ómars
Þórs. Haförninn gerir áfram út
frá Stokkseyri, a.m.k. til að byrja
með. Ómar Þór sagði að hvorki
stæði til að flytja útgerð bátsins
né að Dögun færi út kvíarnar til
Stokkseyrar. „Báturinn er skráð-
ur þarna og hlutafélagið er
þarna. Menn eru bara að reyna
að gera eitthvað rekstrarhæft út
,úr þessu,“ sagði Ómar Þór. sþ