Dagur - 04.03.1993, Blaðsíða 1

Dagur - 04.03.1993, Blaðsíða 1
76. árgangur • Fimmtudagur 4. mars 1993 • 43. tölublað Venjulegir og GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs Sæplast hf. á Dalvík: ll,4milljónahagn- aður á síðasta árí Eins og sjá má á myndinni, sem tekin var í gær, er Torfunefsbryggjan illa útleikin. Mynd: Robyn Unnið að bráðabirgðaviðgerð á Torfunefsbryggju á Akureyri: Ástand bryggjunnar mun verra en talið var Sæplast hf. á Dalvík skílaði 11,4 milljóna króna hagnaði eftir skatta á síðasta ári, en heildartekjur félagsins voru 298.7 milljónir króna. Árið 1991 var rekstrarhagnaður Sæplasts 33,7 milljónir og 81,6 milljónir árið 1990. Bókfært verð heildareigna Sæplasts í árslok 1992 nam 378,5 milljónum króna og þar af voru veltufjármunir 132,7 milljónir króna og aðrar eignir 245,8 millj- ónir. Heildarskuldir voru 139,3 milljónir króna í árslok, en voru 160.7 milljónir í ársbyrjun og var eigið fé því rúmar 239 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall í árslok var því 0,63 og veltufjárhlutfall 2,49, sent er umtalsverð hækkun frá fyrra ári. Að sögn Sigurðar B. Stefánssonar, forstöðumanns Verðbréfamarkaðar íslands- banka, er þetta eiginfjárhlutfall í hærri kantinum miðað við önnur fyrirtæki á hlutabréfamarkaði. „Eðlilegt og öruggt eiginfjárhlut- fall er talið vera í kringum 40%. Allt sem er ofan við það er annað hvort vegna þess að menn telja sig vera í áhættusamari rekstri og telja sig þurfa meira eigið fé þess vegna, eða af einhverjum öðrum ástæðum," sagði Sigurður. Utflutningsverðmæti fiskkera jókst um tæplega 40% á milli ára og er nú 47% af heildarveltu Sæplasts hf. Útflutningur á fisk- kerum og trollkúlum nam 54% af heildarsölunni og er það 9% aukning frá árinu 1991. Að sögn Kristjáns Aðalsteins- sonar, framkvæmdastjóra Sæ- plasts hf., eru horfur í rekstri fyrirtækisins á þessu ári þokka- legar og hefur að hans sögn verið góð sala fyrstu mánuði ársins. í byrjun ársins voru seld fyrstu 'Sæplastkerin til Kamtsjatka, sem er nýtt og áhugavert markaðs- svæði. Kristján sagði að Evrópu- markaðurinn hefði verið lang stærsti erlendi markaðurinn á síðasta ári, sem mætti rekja til breyttra reglna um aðbúnað í fiskvinnslu og kröfu um bætta meðferð hráefnis. Hluthafar í Sæplasti hf. voru 332 um síðustu áramót og hefur þeim fjölgað um 54 á síðasta ári. Aðalfundur Sæplasts verður haldinn að tæpri viku liðinni, miðvikudaginn 10. mars. óþh Þessa dagana er unnið að við- gerð á Torfunefsbryggju á Akureyri en að sögn Guð- mundar Sigurbjörnssonar, hafnarstjóra, er ástand bryggj- unnar mun verra en talið var. „Stálþilið í bryggjunni, sem er um 45 ára gamalt, er farið að gefa sig. Það hafa tærst á það göt og því rennur fyllingarefn- ið úr bryggjunni. Við erum að rjúfa þekjuna af bryggjunni til þess að komast að götunum innan frá og loka þeim.“ Guðmundur segir að hér sé aðeins um bráðabirgðaviðgerð að ræða. Eftir að gert hefur verið við götin, þarf að fylla upp aftur og steypa nýja þekju. „Við höf- um verið að vinna að fram- kvæmdaáætlun, hvaða verkefni verður ráðist í á næstu árum og þá í hvaða röð. Hins vegar getur slæmt ástand Torfunefsbryggju breytt þeim hugmyndum sem nú eru í gangi um framkvæmdaröð- ina.“ Guðmundur segir að bráða- birgðaviðgerðin geti enst í ein- hver ár en þó sé Ijóst að þarna þurfi að taka duglega til hendinni áður en langt um líður. Hann segir þessa viðgerð ekki mjög dýra en hún hlaupi þó á einhverj- um hundruðum þúsunda króna. Guðmundur gat ekki sagt um það í gær, hversu langan tíma við- gerðin tekur. -KK Frystihús KEA í Hrísey: Auglýsir eftir fólki Akureyri: Flotkvíastarfshópur skipaður Frysfihús Kaupfélags Eyfirð- inga í Hrísey hefur óskað eftir vönu fólki til starfa við snyrt- ingu og segir Ari Þorsteinsson, framkvæmdastjóri þess, að ætlunin sé að bæta við fólki í fjögur heilsdagsstörf. Ári segir að tvær ástæður séu fyrir því að auglýst sé eftir fólki. Annars vegar vanti fleira fólk í vinnu við snyrtingu og hins vegar séu útrunnin atvinnuleyfi hjá nokkrum Pólverjum, sem hafa á undanförnum misserum unnið í ftystihúsinu, og vegna þess hafi verkalýðsfélagið farið fram á að þessi störf yrðu auglýst laus til umsóknar. Ari segir að það fari eftir viðbrögðum við atvinnu- auglýsingum hvort Pólverjarnir fái áframhaldandi atvinnuleyfi. Reynsla af þeim hafi verið mjög góð, en Islendingar hafi forgang, hafi þeir „sömu hæfileika" og Pólverjarnir.. Ari sagði að ætlunin væri að spara í rekstri á þessu ári og liður í því væri að draga úr yfirvinnu og jafnframt auka vinnsluna í dagvinnu. óþh Gert er ráð fyrir að starfshóp- ur, sem ætlað er að skoða möguleikann á byggingu flot- kvíar á Akureyri, hefji störf í næstu viku. Atvinnumála- nefnd Akureyrarbæjar hefur skipað Guðmund Stefánsson (B) og Birnu Sigurbjörnsdótt- ur (D) í starfshópinn óg hafn- arstjórn hefur skipað Guð- mund Sigurbjörnsson, hafnar- stjóra, í hann. Slippstöðin- Oddi hf. hafði ekki tilnefnt sinn fulltrúa þegar Dagur spurðist fyrir um það. Starfshópur þessi er skipaður í framhaldi af jákvæðri afgreiðslu atvinnumálanefndar og bæjar- stjórnar Akureyrar á tillögu Guðmundar Stefánssonar (B) og Kolbrúnar Þormóðsdóttur (B) um þetta mál. Starfshópnum verður ætlað í fyrsta lagi að skilgreina þörf og heppilega stærð flotkvíar, í öðru lagi að gera kostnaðaráætlun og í þriðja lagi að kanna möguleika á fjár- mögnun. Fyrir liggur skýrsla Hafna- málastofnunar þar sem fram kemur að þurrkví myndi kosta frá 430 til 950 milljónum króna. Verð á flotkvíum er hins vegar talið vera frá 42 milljónum (1.500 tonn) upp í 340 milljónir króna (5.100 tonn). óþh „Þetta leggst mjög vel í mig“ - segir Eysteinn P. Yngvason, eigandi Árness, um Eyjafjarðarflutningana Vegagerð ríkisins hefur gert munnlegt samkomulag við Ey- stein Þ. Yngvason, eiganda flutningaskipsins Árness, um sjóflutninga á Eyjafirði frá og með 1. apríl nk. í dag verður fundur á Akureyri þar sem væntanlega verður endanlega ákveðin ferðatilhögun og mun Eysteinn sitja hann ásamt for- svarsmönnum Hríseyjar- og Grímseyjarhrepps og fjórum fulltrúum Vegagerðar ríksins. Rætt hefur verið öðru fremur um feröatilhögun 1, sem gerir ráð fyrir ferðum á mánudög- um, miövikudögum og flmmtu- dögum, en frá þessu verður væntanlega gengið á fundinum í dag. „Petta leggst mjög vel í mig,“ sagði Eysteinn í samtali við Dag. „Árnes er mjög gott skip. Það er útbúið tveim aðalvélum og sjálf- stæðum skrúfum. Skipið er nýlega sandblásið, vélar yfirfarn- ar og í því eru ný siglingatæki. Það er því í nyjög góðu standi," sagði Eysteinn. Eysteinn sagðist hafa heyrt af óánægjuröddum í Hrísey með að við hann væri sarnið urn þessa flutninga. Hann sagðist alls ekki geta fallist á að flutningar með Árnesi væru afturför frá því sem nú er. „Þegar þessi bátur var i rekstri í Stykkishólmi flutti hann um 1500 bíla á ári og það segir töluvert um góðan útbúnað skipsins. Varðandi þá gagnrýni að það þurfi að hífa vörur um borð og frá borði, þá verð ég að segja að ég skil ekki hvaða máli það skiptir fyrir vörurnar hvort þær eru hífðar upp með bómu eða teknar með lyftara. Ég vil líka benda á að þetta skip er með staðlaðan farþegasal fyrir 45 manns, sem Sæfari hefur ekki," sagði Eysteinn. Árnes hefur undanfarin tvö sumur meðal annars verið gert út á útsýnisferðir með ferðafólk og sjóstangaveiðiferðir frá Reykja- vík og segist Eysteinn ákveðinn í að bjóða upp á slíkar ferðir frá Akureyri um helgar á komandi sumri. Um borð verði 35 sjó- veiðistengur, sem þýði að hægt verði að bjóða töluvert stórum hópum upp á sjóstangaveiðiferð- ir. Þá segir Eysteinn að hugmynd- ir séu uppi um frekari nýtingu á skipinu. Meðal annars vilji hann skoða möguleikann á því að flytja fisk lengra að á fiskmarkað á Dalvík. Skipstjóri á Árnesi verður Sig- urjón Sigurjónsson, sem hefur stýrt skipinu syðra, og er gert ráð fyrir að auk hans verði þrír menn í áhöfn. Eysteinn sagðist búast við að norðanmenn yrðu ráðnir í áhöfnina. óþh Ókuofhratt Tveir ökumenn voru sföðv- aðir í gær á Ólafsfjarðarvegi vegna hraðaksturs. Að sögn Guðna Aðalsteins- sonar, lögreglumanns í Ólafs- firði, en lögreglan í Ólafsfirði og á Dalvík stóðu sameigin- lega að radarmælingum í gær, mældist önnur bifreiðin á 125 km hraða en hin á 114 km hraða. Önnur bifreiðin var stöðvuð á Hámundarstaða- hálsi en hin skammt frá Fagra- skógi. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.