Dagur - 04.03.1993, Qupperneq 11
Fimmtudagur 4. mars 1993 - DAGUR - 11
Liðið sem var viðstatt æfíngu á Evitu á dögunum. Þessi uppfærsla er mun viðameiri en hefðbundnar skemmti-
dagskrár á veitingahúsum þótt söngleikurinn sé reyndar skorinn dálítið niður til að hann rúmist í Sjallanum og verði
hæfilega langur. Mynd: Robyn
Skemmtanalíf Akureyrar tekur kipp:
Söngleikurimi Evita í SjaJlanum
- mikil eftirvænting og uppselt á fyrstu sýningarnar
Söngleikurinn sívinsæli Evita
verður frumsýndur í Sjallanum
næstkomandi föstudagskvöld
5. tnars. Mikill áhugi er fyrir
söngleiknum sem sést best á
því að uppselt er á fyrstu sýn-
ingarnar, á föstudags- og laug-
ardagskvöld, og mikið er
spurst fyrir um Evitu. Eftir því
sem Dagur kemst næst er þetta
fyrsta uppfærsla Evitu hér á
landi í íslenskri þýðingu.
Jónas Friðrik var fenginn til að
þýða söngleikinn. Leikstjóri er
Gestur Einar Jónasson og tónlist-
arstjóri Jón Ólafsson. Helstu
söngvarar eru Rut Reginalds sem
syngur hlutverk Evitu. Baldvin
Kr. Baldvinsson í hlutverki Per-
ons og Pálmi Gunnarsson í hlut-
verki Che Guevara.
Af öðrum söngvurum má
nefna Huldu Garðarsdóttur og
Þórhildi Örvarsdóttur. síðan eru
-fjölmargir í hópatriðum og átta
dansarar og hljómsveit. Jón
Ólafsson er tónlistarst jóri en
hljómsveitina skipa Kristján
Edelstein. Karl Olgeirsson. Jón
Haukur Brynjólfsson. Sigfús Ótt-
arsson og Geir Gunnarsson.
Ólöt' Matthíasdóttir sér um
búninga og Jóhann Arnarson
hefur umsjón með dansatriðum.
„Umfangsmeira en ég
átti von á“
Eins og sjá rná á þessari upptaln-
ingu er Evita viðamikil uppsetn-
ing og Gestur Einar Jónasson
leikstjóri var spurður að því
hvort ekki væri í of mikið ráðist.
..Þetta er eflaust með því
stærra sem hefur verið æft og sett
upp í veitingahúsum hér um slóð-
ir og reyndar umfangsmeira en ég
átti sjálfur von á. Ég hef séð
Evitu á tveimur stöðum. í Eng-
landi og Ameríku. og þar voru
auðvitað tugir aukaleikara. dans-
ara og söngvara sem ekki er hægt
að hafa hér og stór hljómsveit í
gryfju. En leikmyndin sjálf er alls
ekki stór í sniðum og af þeirn
sökum ekkert sérstakt vandantál
\ið uppsetninguna. Hún byggist
mest á þeim sem eru á sviðinu.
hreyfingunt þeirra. og tónlistin
stendur svo vel fyrir sínu. Ég hef
alla tíð haldið ntikið upp á tón-
listina í Evitu." sagði Gestur Ein-
ar.
Andrew Lloyd Webber samdi
Evitu eins og marga aðra söng-
leiki. s.s. Jesus Christ Superstar
sem Freyvangsleikhúsið setti upp
í fyrra. Cats og Phantom of the
Opera. Af þekktum lögum úr
Evitu má nefna Don't cry for nte
Leikarinn og útvarpsmaðurinn vin-
sæli Gestur Einar Jónasson er leik-
stjóri og hann hefur haft í mörg
horn að líta að undanförnu, enda
umfang sýningarinnar meira en
hann átti von á.
Argentina. sem fjölmargir söngv-
arar af báðum kynjunt hafa
spreytt sig á.
Eva Perón vinsæl
meðal alþýðunnar
Gestur Einar sagði að það væri
bvsna strembið að setja svona
viðamikið stykki upp í húsi eins
og Sjallanum. Þó er verkið ekki
tekið í heild sinni. vissum atrið-
um er sleppt úr eins og tóndæm-
um sem eru lítt aðlaðandi. að
sögn leikstjórans.
..Við megum heldur ekki líta á
þetta sem leikhús. en uppfærslan
á Evitu er þó mun viðameiri en
eitthvert lítið skemmtiprógramm
sem oft er sett upp á veitinga-
stöðum. Fvrir mig er þetta mjög
áhugavert verkefni." sagði Gest-
ur Einar.
Söguþráðurinn í E\itu er brot
úr æ\ i Evu Perón. sem einnig var
kölluð Evita. Eva (1919-52) var
argentísk leikkona og síðar
stjórnmálamaður. eiginkona
Juans Peróns frá 1945. Juan Per-
ón varð forseti Argentínu 1946
og hafði kona hans mikil áhrif á
stjórn landsins. einkum á sviði
mennta- og félagsmáia. Eva naut
ntikilla vinsælda meðal alþýðunn-
ar en hún dó aðeins 33 ára gömul
og eftir dauða hennar dró rnjög
úr stuðningi við stjórn Peróns.
Hann var hrakinn í útlegð 1955.
sneri til baka 1972. varð aftur
forseti 1973 en dó ári síðar.
Stórpopparinn nýdanski og bítlavin-
urinn Jón Ólafsson er tónlistar-
stjóri. Hann er ekki ókunnur söng-
leikjum Lloyd-Webbers því hann
var tónlistarstjóri í uppfærslu Frey-
vangsleikhússins á Jesus Christ
Superstar.
Tónlistin í öndvegi
„Eva var bara sveitastelpa sem
átti þann draum að verða leik-
kona. Hún fór til Buenos Aires
og lét drauminn rætast. varð fræg
útvarpsleikkona. Mikil ringulreið
var í stjórnmálunum á þessum
tíma og hver einræðisherrann
steypti öðrum af stóli. Eva kynnt-
ist Perón og hún mótaði ímynd
hans eftir að hann komst til
valda. Þarna voru eiginlega þrjár
stéttir. alþýðan. aðallinn og
herinn. Alþýðan var auðvitað á
móti einræði hersins en hún dáði
Evu og studdi hana en aðallinn
og herinn voru alltaf á móti
henni.
Staða Argentínu út á við var
ekki mjög glæsileg þannig að
forsetahjónin efndu til ferðar til
Evrópu til að reyna að bæta
hana. en ferðin varð hálf enda-
slepp. Á þessum tíma var Eva
orðin veik og hún dó skömmu
seinna. Hún var alþýðunni mikill
harntdauði." sagði Gestur Einar.
En sagan skiptir kannski ekki
meginmáli. enda frjálslega farið
nteð staðrevndir. Til dæmis er
þáttur suður-ameríska bvltingar-
mannsins Che Guevara í Evitu
spunninn upp að mestu. En verk-
ið sjálft og umfram allt tónlistin
er í öndvegi. Hljómsveitin er afar
traust og söngvararnir góðir og
sagðist öestur Einar hafa orðið
var við mikla tilhlökkun hjá fólki
og Evita myndi vonandi ganga
fram á vor. SS
Háskólinn
Akureyri
Fyrirlestur
Tími: Laugardagurinn 6. mars kl. 14.00.
Staður: Háskólinn á Akureyri við Þingvallastræti, ,
stofa 24.
Efni: Fullkomnun.
Flytjandi: Prófessor Nina L. Colwill, Rekstrar- og
viðskiptadeild Manitobaháskóla, Kanada.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.
Öllum er heimill aðgangur eins lengi og
húsrúm leyfir.
Kennarasamband íslands
Uppeldismálaþing
Kennarasambands íslands 1993
í Verkmenntaskólanum á Akureyri
6. mars kl. 9.30-16.00.
ALHLIÐA MENNTUN
í DREIFBÝLU LANDI
Er skólinn á tímamótum?
Dagskrá:
Setning: Svanhildur Kaaber,
forrpaður Kennarasambands íslands.
FLUTNINGUR GRUNNSKÓLA TIL SVEITARFÉLAGA.
Auðnuspor eða öfugþróun.
Rúnar Sigþórsson, skólastjóri.
Hlutverk menntamálaráðuneytis.
Trausti Þorsteinsson, fræðslustjóri.
Viðhorf sveitarfélagsmanna.
Jóhannes Sigfússon, oddviti í Svalbarðshreppi.
Birgir Þórðarson, oddviti í Eyjafjarðarsveit.
Áhrif á skólastarf.
Garðar Karlsson, skólastjóri.
Matarhlé kl. 12.30-13.30.
ÞRÓUN í SKÓLASTARFI.
Mat sem fastur þáttur í skólastarfi.
Börkur Hansen, lektor við Kennaraháskóla (slands.
Listuppeldi og verkþekking í grunnskóla.
Þórleif Drífa Jónsdóttir, kennsluráðgjafi.
Starfsmenntun - framtíðarskipulag.
Brynjar Skaptason, kennslustjóri.
Námsferill í framhaldsskóla.
Tækifæri til fjölbreyttrar framhaldsmenntunar.
Jón Torfi Jónasson, dósent við Háskóla íslands.
Þinggestum gefst kostur á að
kaupa léttan málsverð I hádeginu.
Þingforsetar:
Pétur Garðarsson og Hólmfríður Sigurðardóttir.
Hestamenn!
Látum ekki aka á okkur
í skammdeginu - notum
ENDURSKINSMERKI
HESTAMANNAF6LAGIÐ LÉTTIR
St0ln»ö S no* 1928 o o Bo« 348 • 602 Ak„»ey'