Dagur


Dagur - 20.03.1993, Qupperneq 4

Dagur - 20.03.1993, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 20. mars 1993 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639 ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, (íþrótlir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON. LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Spor í rétta átt Atvinnulífið á Akureyri varð vissulega fyrir þungu áfalli í síðustu viku, þegar niðursuðuverksmiðja K. Jónssonar & Co. hf. var úrskurðuð gjaldþrota. Þótt fyrirtækið hefði um langt skeið átt við rekstrarörðug- leika að etja, áttu fáir von á að það væri komið að fótum fram. Fyrirvaralaust misstu 70 starfsmenn fyrirtækisins atvinnu sína og horfur voru á að þeir bættust á langan lista atvinnulausra í bænum. Á hinn bóginn hef- ur framvinda málsins síðan verið afar ánægjuleg. Viðræður um stofnun nýs hlutafélags um reksturinn hófust daginn eftir að úrskurður um gjaldþrot var kveðinn upp. Þessar við- ræður hafa nú borið tilætl- aðan árangur. Vinnsla í verksmiðjunni hófst að nýju í gær undir merkjum rekstr- arfélagsins Strýtu hf., sem Samherji hf., Landsbanki íslands og Kaupfélag Ey- firðinga standa að. Atvinna allflestra starfsmanna hinn- ar gjaldþrota lagmetisverk- smiðju er þar með tryggð, um sinn að minnsta kosti. Leigusamningur hins nýja rekstrarfélags gildir að vísu aðeins í fjóra mánuði en á þeim tíma mun framtíð fyrirtækisins væntanlega ráðast. Óskandi er að rekst- urinn gangi það vel að nýju eigendurnir sjái ástæðu til að halda honum áfram um ókomna tíð. Það skiptir atvinnulíf á Eyjafjarðarsvæðinu mjög miklu máli að hið nýja félag um rekstur lagmetisverk- smiðjunnar nái að halda velli. í febrúarmánuði síð- astliðnum voru 484 skráðir atvinnulausir á Akureyri og hafði þeim fækkað nokkuð frá mánuðinum á undan. Leiðin verður að liggja upp á við hér eftir og Akureyr- ingar verða því að afstýra frekari áföllum í atvinnulífi bæjarins með öllum tiltæk- um ráðum. Áframhaldandi rekstur lagmetisverksmiðj- unnar er spor í rétta átt. Sömuleiðis eru kaup Útgerð- arfélags Akureyringa á meirihlutanum í þýska útgerðarfyrirtækinu Mecklenburger Hochsee- fisherei GMBH ánægjuleg tíðindi, því kaupin eru lík- leg til að treysta hag Útgerðarfélagsins og þar með atvinnulífs á Akureyri, þegar til lengri tíma er litið. Ennfremur eru fréttir af góðri verkefnastöðu Slipp- stöðvarinnar-Odda hf. ánægjulegar, því þær gefa til kynna að sameining fyrirtækjanna tveggja, Slippstöðvarinnar og Vél- smiðjunnar Odda, hafi bor- ið tilætlaðan árangur. Sú endurreisn, sem þegar er hafin á atvinnulífinu á Akureyri, er ánægjuleg og eykur mönnum bjartsýni. Ekki veitir af eins og nú árar í íslensku samfélagi. BB. A IÐAVELLI Valdimar Andrésson. Veraldlegur kveðskapur Hallgríms Péturssonar Sóra Hallgríms Péturssonar er venjulega minnst sem trúar- skálds og ekki að ófyrirsynju. Sálmar hans og önnur trúarljóð eru flest ort af mikilli íþrótt og hugans sannfæringu, enda vissa skáldsins um guðlega forsjá og eilífa sælu hinna rótt- trúuðu samofin l(fi hans og starfi. Hitt vita færri að Hailgrímur orti margt veraldlegra vísna og kveðlinga. Frá barns- og ungl- ingsárum Haligríms hafa varð- veist nokkrar lausavísur og bera þær flestar höfundi sínum gott vitni, bæði hvað varðar ytra form og meðferð efnis. Vel gæti eftirfarandi vísa verið ort af ungmenni, hafandi vökul augu og gott eyra fyrir brag. Vísan er þannig til komin að köttur sat á kláfi undir palli, en fjalirnar í pallgólfinu voru svo gisnar orðnar að rófan á kettinum kom upp á milli þeirra. Á þá sveinn- inn Hallgrímur að hafa ort: i huganum var ég hikandi, af hræðslu nærri fallinn, er kattarrófan hvikandi kom hér upp á pallinn. Gísli Konráðsson tíndi sam- an margar sögur af Hallgrími og birti þær í Gesti Vestfirðingi V. ári. Þar segir á einum stað frá tilefni þess að Hallgrímur fór að Hólum í Hjaltadal. Sagan segir að Guðbrandur biskup Þorláks- son hafi eitt sinn verið á ferð út Höfðaströnd og sá nokkur börn að leikum. Biskup spurði: „Hvað eruð þið að gera, börnin góð?“ Hallgrímur var einn í hópnum, átta ára að aldri og enn ólæs, og svaraði biskupi samstundis: „Ég er að tína þúfnahnot í þrætukot, mylur málakvörn muðlings- hnöttinn hvörn." Þúfnahnot er ber en þrætu- kotið ílátið, af því að börnin höfðu verið að deila um það. Málakvörnin er þá líklega munnurinn sem mylur berin eða muðlingana. Á yngri árum þótti Hallgrímur nokkuð níðskældinn og fengu ýmsir að kenna á því jafnt háir sem lágir. Frá þeim árum er Hallgrímur sat á skólabekk að Hólum í Hjaltadal er nokkuð varðveitt af kveðskap eftir hann. Tilefni eftirfarandi vísu mætti hugsa sér það að Hall- grímur hafi sofið í sama her- bergi og Arngrímur lærði, offici- alis á Hólum, e.t.v. vegna þess að frændskapur var með Hall- grími og Guðbrandi biskup. Hallgrímur tekur greinilega vel eftir öllu þegar Arngrímur er vakinn á morgnana og honum færður matarbiti og vökvun á sængina: Sefur, vaknar, sér við snýr, sest upp, etur, vætir kvið, hóstar, ræskir, hnerrar, spýr, hikstar, geispar, rekur við. Hallgrímur var af ýmsum tal- inn vera ákvæðaskáld eða kraftaskáld og á mörgum að hafa staðið ótti af honum vegna þessa. Þessarar náttúru er vísa ein er Hallgrímur á að hafa skellt á einhvern fyrirmann er þótti Hall- grímur luralegur og sagði hann mundu vera ágætt böðulsefni: Þegar ég böðuls þjóna stétt, þá verðurðu þjófur, min skal hríslan þung og þétt þinn um skrokkinn ganga slétt. Sögur fara af því að Hall- grími hafi lent saman við Torfa sýslumann Erlendsson. Sýslumaður dæmdi eitt sinn Grím Bergsson, velgerðar- mann Hallgríms, og er ekki ósennilegt að Hallgrímur hafi sagt eitthvað út af því. Hall- grímur hefur líklega reiðst iila Hallgrímur Pétursson. Trérista eft- ir málverki séra Hjalta Þorsteins- sonar i Vatnsfirði í Norður-lsa- fjarðarsýslu sem varðveitt er í Þjóðminjasafni (slands. því að vísan er Ijót. Torfi á að hafa kallað Hallgrím „liðlegan slordóna". Vísan hefur e.t.v. geymst vegna þess að menn hafa greint í henni áhrínsorð er Torfi var dæmdur frá embætti, æru og eignum. Áður en dauður drepst úr hor drengur á rauðum kjóli, feginn verður að sleikja slor slepjaður húsgangs drjóli. Hallgrími Péturssyni var margt annað betur gefið en yrkja níð um menn, þótt að stundum hafi skap hans mein- að honum að sitja á strák sínum. f mansöng að Króka- Refs rímum mælir hann bein- línis gegn níðskáldskap en seg- ir þó: Þó litla hafi eg Ijóðamennt, lofsé Guði, segi eg það enn, aldrei skal ég óforþént yrkja vont um neina menn. Að endingu skrifast hór vísa ein eftir Hallgrím þar sem hann lýsir sjálfum sér svo: Sá, sem orti rímur af Ref, reiknast ætíð glaður, með svartar brýr og sívalt nef, svo er hann uppmálaður.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.