Dagur - 20.03.1993, Side 13
Laugardagur 20. mars 1993 - DAGUR - 13
Ljóðasamkeppni um ástina
Öldrunaráð íslands efnir til Ijóðasamkeppni aldraðra í tilefni af
Ári aldraðra í Evrópu 1993. Yrkisefnið er „Ástin".
Skilafrestur á efni er til 15. maí nk. og utanáskrift dómnefndar er:
„Ljóðasamkeppni" Öldrunarráðs íslands, Kleppsvegi 54, Reykjavík.
Reiknað er með, að þátttakendur séu 60 ára og eldri og að ort verði undir dulnefni,
en rétt nafn höfundar og heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi.
Formaður dómnefndar verður Benedikt Bragason, verkmenntaskólakennari
á Akureyri, en aðrir í dómnefnd verða Jón Björnsson og Bjarni Friðþórsson.
Eftir að val hefur farið fram verður allt efni endursent, en stefnt er að því að
gefa úrval Ijóðanna út á þessu ári.
Glæsileg verðlaun eru í boði:
Ferð fyrir tvo til Dublin með Samvinnuferðum Landsýn.
Helgarferð fyrir tvo til Akureyrar.
Helgarferð fyrir tvo til ísafjarðar.
Bændur í Mývatnssveit, sem vinna að uppgræðslu á „Féþúfu Iandgræðslunnar“, talið frá vinstri: Árni Halldórsson
í Garði, Eysteinn Sigurðsson á Arnarvatni, Hjörleifur Sigurðarson frá Grænavatni, Eyþór Pétursson frá Baldurs-
heimi og Kári Þorgrímsson í Garði. Fremst á myndinni er Sigurður dóttursonur Árna bónda í Garði.
Mynd: Atli Vigfússon
Mývatnssveit:
ÁR ALDRAÐRA
í EVRÓPU 1993
Unnið að uppgræðslu á sandöld
unni syðst í Dinunuborgum
Á leið inn að sandöldunni í Dimmuborgum.
Að undanförnu hafa fimm
bændur í Mývatnssveit flutt
140 heyrúllur inn á sandskafl
syðst í Dimmuborgum og flutn-
ingum verður haldið áfram ef
veður leyfa. Ætlun fimmmenn-
inganna er að græða upp
örfoka land, þ.e. sandöldu sem
mikið hefur verið rætt um í
fréttum blaða, sjónvarps og
útvarps.
„í fyrra kom sú hugmynd upp
hjá okkur bændum að fá þyril-
vængju til að flytja ónýtar hey-
rúllur inn á sandölduna. Af því
varð ekki, en á hinn bóginn réðst
Landgræðslan í að gera ýtuslóð
þvert í gegnum gróið land í
Dimmuborgum. Slóð þessi var
lögð þvert á ráðleggingar bænda
og bíður hættunni heim. Eftir
slóðinni flutti Landgræðslan
heyrúllur, sem komust aldrei á
leiðarenda. Okkur bændum
blöskraði vinnubrögðin og því
réðumst við í að flytja heyrúll-
urnar, sem voru á Hverfjalls-
sandi, inn á sandskaflinn syðst í
Dimmuborgum, Sandskaflinn
köllum við „Féþúfu Landgræðsl-
unnar“ og við erum nú búnir að
fara nokkrar ferðir inneftir með
heyrúllur frá bændum í Mývatns-
sveit og í Reykjadal. Einnig ætl-
um við að lagfæra önnur svæði,
sem eru tekin að blása upp eftir
50 ára friðun," segir Eysteinn
Sigurðsson, bóndi að Arnarvatni,
og vill að skýrt komi fram að
verkið er ekki unnið í samvinnu
við Landgræðslu ríkisins, heldur
aðeins með vitund stofnunarinn-
ar. ój
MERKISMENNHF