Dagur - 20.03.1993, Blaðsíða 22
22 - DAGUR - Laugardagur 20. mars 1993
Popp
Mcignús Geir Guðmundsson
Rage Against The Machine kveöur sér hljóðs:
Mótmælt í bræði
Blökkumannaleiðtogamir Martin
Luther King og Malcolm X, óeirð-
irnar í Los Angeles vegna máls
Rodneys King (sem nú hefur aft-
ur verið tekið upp), vandræðin
með lce-T og Bocy Count vegna
lagsins Cop Killer, stuðningur
Bandaríkjastjórnar á sínum tíma
við Contraskæruliða í Nicaragua,
hatur, græðgi grimmd, eru meðal
annars sem orðið hefur hljóm-
sveitinni Rage Against The
Machine að yrkisefni á hennar
fyrstu samnefndu plötu.
Rage Against The Machine kem-
urfrá Los Angeles vel að merkja,
er skipuð fjórum ungum mönnum
og hefur starfað í um eitt og hálft
ár. Hefur hljómsveitin vakið mikla
athygli með þessari fyrstu plötu
sinni og hún fallið vel í kramið hjá
plötukaupendum, ekki hvað síst
hér á landi eftir fregnum að
dæma. Er tónlistin bræðingur
kraftmikils rokks, fönks og hip
hopps/rapps, sem þykir mjög
árásargjörn með sínum áleitnu
og rammpólitísku textum. Hafa
sumir verið að líkja RATM við
hljómsveitir á borð við Red Hot
Chili Peppers og fleiri slíkar og er
sá samanburður sjálfsagt eitt-
hvað réttlætanlegur að sumu
leyti.
Þó er bakgrunnur félaganna í
Rage... gerólíkur t.d. Red Hot
Chili Peppers meðlima, sem eru
upprunnir úr fátækrahverfum Los
Angeles m.a. Þeir Tom Morello
gítarleikari, Zack de la Rocha
söngvari, Timmy C bassaleikari
og Brad Wilk trommuleikari koma
nefnilega frá nokkuð velstæðum
millistéttarheimilum þar sem
örbirgð og vesöld er víðs fjarri.
Sú staðreynd hefur þó greinilega
ekki lokað augum þeirra fyrir
vandamálum smærri samborg-
ara sinna nema síður væri, því
Heilsugæslusamlag
Hvammstangaumdæmis
Útboð 2
Endurinnrétting
Sjúkrahúss Hvammstanga
Forval verktaka.
Heilsugæslusamlag Hvammstangaumdæmis auglýsir hér
með forval verktaka til að bjóða í endurinnréttingu Sjúkra-
húss Hvammstanga, sem er tveggja hæða hús, samtals
709 m2.
Lýsing:
Vegna skipulagsbreytinga er nánast allt tréverk fjarlægt
úr byggingunni, söguð ný göt í steypta eða hlaðna veggi,
þar sem þess þarf með, en hlaðið upp í óþörf eldri göt og
síöan innréttað upp á nýtt. Raflögn og lágspennulagnir
eru mikið til endurnýjaðar, svo og frárennslislagnir, hita-
kerfi er lagfært og nýtt loftræstikerfi er sett í húsið. Húsið
er allt málað upp á nýtt, öll gólfefni endurnýjuð svo og
innréttingar og innihurðir.
Tillit skal tekiö til þess við framkvæmd verksins að húsið
verður í fullum rekstri og skal verkið unnið á virkum dög-
um á tímabilinu frá kl. 8.00 til 19.00.
Fjöldi bjóðenda.
Fjöldi bjóðenda verður takmarkaður við flóra.
Greiöslur.
Þeir verktakar sem valdir verða til að taka þátt í útboðinu
eftirforval, en hljóta ekki verkið, fá greitt fýrirtilboðsgerð
sína kr. 50.000,-.
Eftirfarandi upplýsinga er óskað um væntanlega
bjóðendur.
1. Nafn, heimilisfang og kennitala verktaka.
2. Nafn, heimilisfang og kennitala undirverktaka.
3. Lýsing starfsferils verktaka og undirverktaka.
4. Ársuppgjör fyrir starfsemi verktaka og undirverktaka sl.
þrjú ár.
5. Aðrar upplýsingar sem verktaki telur að gagni koma við
val á verktaka.
Frestur til að skila forvalsgögnum.
Forvalsgögnum skal skila á skrifstofu framkvæmdastjóra
Sjúkrahúss Hvammstanga, Spitalastíg 2, 530 Hvamms-
tanga, fyrir kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 24. mars
1993.
Á sama stað eru allar nánari upplýsingar veittar í síma
(95) 12348, en á kvöldin hjá Guðmundi H. Sigurðssyni í
síma (95) 12393.
Hvammstanga 15. mars 1993.
F.h. framkvæmdanefndar,
Guðmundur H. Sigurðsson.
Bræöinnar postular. Rage Against The Machine.
bræðin og ádeilan sém birtist í
textum sveitarinnar er engu
minni en hjá þeim sem þolað
hafa mátt fátækt og kúgun.
[ viðtali nýlega við þá Tom og
Zack kom fram hjá þeim að e.t.v.
væri þessi reiði þeirra út í sam-
félagið að hluta til sprottin vegna
þeirrar verndar sem þeir sjálfir
hafa notið. Það að horfa upp á
meðferðina á Rodney King t.d.
hafi vakið upp spurningar hjá
þeim eins og fyrir hverja er lýð-
ræðið? Bara fyrir þá hvítu?, eða
þá ríku? Væri tal um að lýðræði
þýddi jafnan rétt þegnanna því
ekki bara tómt rugl? Það væri
með öðrum orðum blekking.
Segja þeir félagar þessar
spurningar og aðrar fleiri leita
sífellt á þá og tónlistin sé besti
kosturinn til að fá útrás frá þeim.
„Vissulega erum við nokkuð
harkalegir í tónlist okkar, en hún
er heiðarleg, vel ígrunduð og
góð, nákvæmlega eins og við
viljum hafa hana. Með henni í
samspili við textana tjáum við
alla okkar reiði og andúð á þjóð-
félagi okkar á rammpólitískan
hátt,“ segir gítarleikarinn Tom,
sem er hálfur Kenyabúi og
. menntaður í einum frægasta
háskóla Bandaríkjanna,
Harvard.
En þótt þeir Tom og Zack séu vel
meðvitaðir um kynjamisrétti og
fleira sem miður fer i heima-
högunum í LA, þá sjá þeir líka
dökkar hliðar á baráttunni fyrir
réttlætinu. Til dæmis finnst Zack
rappið vera að tapa tilgangi
sínum. í stað þess að tjá
aðstæður svartra á raunsæjan
og gagnrýninn hátt sé rappið nú
allt um dauða og dráp. Það kunni
ekki góðri lukku að stýra eins og
lce-T/Body Count dæmið sann-
aði glöggt.
Eins og áður segir hefur Rage
Against The Machine vakið verð-
skuldaða athygli með þessari
beinskeytni á frumburði sínum.
hiafa menn að vísu sumir Rverjir
misjafnar skoðanir á gæðum
tónlistarinnar, en erú þó almennt
sammála um að hljómsveitin sé
athyglisverð. Spursmálið sé
hvort hún muni geta fylgt góðri
byrjun eftir í framtíðinni.
Dickinson söngvari
Iron Maiden hættir
Nú þegartónleikaplöturnartvær,
A Real Live One og A Real Dead
One, eru rétt að líta dagsins Ijós
með Iron Maiden og hljómsveitin
á leið í enn eitt tónleikaferðalag-
ið, berast þær mjög svo óvæntu
fréttir að söngvarinn, Bruce Dick-
inson, ætli að hætta í hljómsveit-
inni eftir að tónleikaferðinni lýkur.
Tilkynnti Dickinson félögum sín-
um í Iron Maiden ákvörðun sína
um að hætta í síðasta mánuði og
kom þeim það jafn mikið á óvart
og öðrum. Segist Dickinson hafa
hugsað sig vel og vandlega um
áður en hann tók þessa ákvörð-
un.
Sú staðreynd að hann hafi sífellt
verið að færast meira í fang auk
söngsins með Iron Maiden, m.a.
að gera sólóplötu, skrifa bækur
og fleira, á seinni árum, eigi stór-
an þátt í niðurstöðunni og að
hann vilji nú alfarið einbeita sér
að eigin verkum. Til að vera
söngvari í Iron Maiden áfram
þýddi ekkert annað en að gefa
sig allan í það. Nú væri hann
hins vegar ekki tilbúinn til þess
lengur. Ákvað Dickinson að
segja félögum sínum í Iron
Maiden að hann ætlaði að hætta
áður en tónleikaferðin hæfist,
þannig að þeir hefðu tíma til að
finna eftirmann í ró og næði, jafn-
framt sem ferðin yrði notuð sem
góður endapunktur á samstarf-
inu.
Hafa Steve Harris og hinir félag-
arnir í Iron Maiden tekið þessum
rökum Dickinsons vel og með
skilningi að sögn, þannig að ekki
er um nein leiðindi að ræða. Seg-
ist Steve Harris reyndar hafa
búist við því að söngvarinn
myndi hætta um síðir til að sinna
eigin hugðarefnum, en hann
hefði ekki búist við því svo skjótt.
Bruce Dickinson var söngvari
Iron Maiden í um 11 ár. Hafa nú
þegar þrír menn verið nefndir
sem hugsanlegir eftirmenn Dick-
inson, en þeir eru hinn þýski
Michael Kiske í Helloween,
Blaze Bayley í Wolfsbane og svo
sá sem Dickinson leysti sjálfur af
hólmi fyrir 11 árum, Paul
Di’Anno. Það er hins vegar alveg
óráðið ennþá hvort einhver
þeirra eða aðrir verða fyrir valinu.
Bruce Dickinson söngvari Iron Maiden hættir að tónleikaferðinni lokinni.