Dagur - 01.04.1993, Blaðsíða 5

Dagur - 01.04.1993, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 1. apríl 1993 - DAGUR - 5 Fréttir Þórhallur Arnórsson, eigandi Listhússins Þings, og Kristinn G. Jóhannsson, myndlistarmaður, í nýja sýningarsaln- um að Hólabraut 13. Flestir þekkja húsið undir nafninu Zion og þar fór fram trúarlegt boðunarstarf allt frá árinu 1933. Mynd: Robyn. Kristniboðshús á Akureyri fær nýtt hlutverk: Breyttur opnunartími Frá 1. apríl verður opið virka daga frá kl. 10-18. Zion breytist í Listhúsið Þing - fyrsta myndlistarsýningin opnuð nk. laugardag Kristniboðshúsið Zion við Hóiabraut á Akureyri hefur nú skipt um hlutverk og þar verð- ur í framtíðinni rekið Listhúsið Þing, auk þess sem starfrækt verður verslun í kjallaranum. Þórhallur Arnórsson keypti húsið og gerði það upp. Á efri hæðinni er kominn glæsilegur 90 fermetra sýnigarsalur en neðri hæðin hefur verið leigð út og þar verður væntanlega sett upp gjafavöruverslun. Það er hinn góðkunni listmál- ari Kristinn G. Jóhannsson sem ríður á vaðið í nýja galleríinu og verður sýning hans á 30 olíumál- verkum opnuð næstkomandi laugardag. Sýninguna nefnir hann „Málverk um langholt og lyngmó“. Svo skemmtilega vill til að Kristinn átti heima í Zion frá árinu 1938 og fram yfir stríð, þannig að vel fer á því að hann verði fyrstur til að sýna verk sín þar. Þórhallur Arnórsson sagði í samtali við Dag að hann hefði frétt það fyrir tilviljun að Zion væri til sölu en húsið hafði staðið autt um tíma. Leitað hafði verið eftir því við Akureyrarbæ að hann keypti húsið en þegar ekk- ert varð af því ákvað Þórhallur að kaupa það. Hann sagði að stofnkostnaður- inn hefði ekki verið mikill en endurbæturnar hefðu verið tölu- vert kostnaðarsamar, enda erfitt að stoppa þegar byrjað væri á breytingum. Skipt var unt raf- lagnir, ofna, glugga og einangrun og sýningarsalurinn innréttaður. Þá er verið að innrétta herbergi á loftinu, sem geymslu og vistar- veru fyrir listamenn. íbúðin niðri var alveg tekin í gegn. „Ég var búinn að ganga með þennan draum í tíu ár og þegar tækifærið gafst ákvað ég að láta vaða. Salurinn er bæði hugsaður til sýninga á verkum listamanna sem starfa í dag og til að hengja upp eldri verk. Sjálfur er ég mest í gömlu mönnunuin og alyngstu listamönnunum en Óli G. Jó- hannsson verður mér innan handar með þau sambönd sem hann hefur frá því hann rak Gall- erý Háhól á sínum tíma,“ sagði Þórhallur Arnórsson, eigandi Listhússins Þings. SS Áskriftargetraun Dags og Flugleiða: Helgarferðir til tveggja áskrifenda á Akureyri Síðastliðinn þriðjudag voru dregin út nöfn vinningshafa marsmánaðar í áskriftarget- raun Dags og Flugleiða. Vinn- ingshafarnir eru báðir búsettir á Akureyri, þeir Ingvar Teits- son, Norðurbyggð 23 og Þor- steinn Ingvarsson, Áshlíð 1. Þetta er í þriðja sinn sem dreg- ið er í áskriftargetrauninni, sem efnt var til í tilefni af 75 ára afmæli Dags þann 12. febrúar sl. I lok hvers mánaðar allt þetta ár, verða dregin út nöfn tveggja skuldlausra áskrifenda blaðsins og þeim gert að svara tveimur laufléttum spurningum, tengdum fréttum líðandi stundar. Séu svörin rétt, fá þeir að launum helgarferð fyrir tvo til Reykjavík- ur. í desember nk. hlýtur síðan einn heppinn áskrifandi blaðsins helgarferð fyrir tvo til Amster- dam. Nöfnin eru valin úr áskrif- endaskrá, með aðstoð tölvufor- rits. Athygli skal vakin á því að allir skuldlausir áskrifendur Dags, núverandi og nýir, eru sjálfkrafa þátttakendur í leikn- um. í hverri helgarferð til Reykja- víkur felst flug fyrir tvo með Helen Teitsson. Flugleiðum, gisting í tvær nætur á Hótel Esju eða Hótel Loftleiðum og bílaleigubíll frá Bílaleigu Flugleiða meðan á dvölinni stendur. Vinningshafarnir brugðust að vonum glaðir við tíðindunum. Reyndar var Ingvar Teitsson staddur á læknaráðstefnu í Eng- landi og veitti kona hans, Helen Teitsson, vinningnum viðtöku Þorsteinn lngvason. fyrir hans hönd. Þorsteinn Ingv- arsson er skipverji á Harðbaki og hélt á sjóinn í gærmorgun. Hann kom þó við á ritstjórnarskrifstof- unum áður, veitti vinningnum við- töku og óskaði blaðinu alls hins besta. Dagur óskar vinningshöfunum til hamingju í von um að þeir njóti ferðarinnar. BB. sönaLMURinn MATSEÐIU: iaxadúett «/W^°SU innbakað lawbafiue m/MNNEPSSÓSU 06 FYUTRl KARTOFLU desertterta rúnar í KJALLARANUM fim-föhau MIÐAVERÐ Á SÝNINCU MEÐ KVÖLDVERÐI OG DANSLEIK 3.900.- MIÐAVERÐ Á DANSLEIK 1.200,- FORSALA AÐÚÖNCUMIÐA FIMMTUDAG KL. 13-19 STJÓRNIN LEIKUR FYRIR DANSI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.