Dagur - 01.04.1993, Síða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 1. apríl 1993
Spáð allt að 30 mílljón tonna
aukningu til ársins 2010
- hlutur íslands í heildarfiskframleiðslu heimsins fer sífellt lækkandi
Fiskeldi:
Ólafur Halldórsson, framkvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarðar.
Verður físketdið endurreist - á
það eftir að verða verutegur
atvinnuvegur hér á landi í
framtíðinni? Þessum spurning-
um myndu eflaust margir kjósa
að svara neitandi eftir þá erfíð-
Ieika og ógöngur sem upphaf
þessarar atvinnugreinar hefur
ratað í á undanfömum árum.
En málið er ekki svo einfalt.
Þótt mistök hafí verið gerð og
fórnarkostnaðurinn sé óneit-
anlega mikill er ekki þar með
sagt að víxlspor liðinna ára
þurfí að fæla íslendinga frá
frekara starfí að þessum
málum. Samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem fyrir liggja um
framtíð fískveiða og fískeldis í
heiminum er nauðsynlegt fyrir
okkur að huga nú þegar að
þeim möguleikum, sem gert er
ráð fyrir að fískeldi skapi fyrir
matvælaframleiðslu á komandi
árum. Að öðrum kosti er Ijóst
að hlutfall íslands í framleiðslu
fískafurða til manneldis fari
stöðugt minnkandi í framtíð-
inni.
Fyrir nokkru lögðu tíu þing-
menn úr öllum þingflokkum fram
tillögu til þingsályktunar á
Alþingi um rannsóknir og þróun
fiskeldis fram til aldamóta.
Markmið þessarar tillögu er að
mótuð verði heildarstefna í mál-
inu þannig að fyrir næstu aldamót
verði íslendingar í fremstu röð
þjóða hvað varðar þekkingu á
eldi fiska og annars sjávarfangs.
Tillögunni fylgir athyglisverð
greinargerð um þróun fiskeldis
og framtíðarspár um neyslu
fiskafurða í heiminum fram til
ársins 2010, þar sem frekara starf
íslendinga á sviði fiskeldis er
rækilega rökstutt. Ólafur Hall-
dórsson, fiskifræðingur og fram-
kvæmdastjóri Fiskeldis Eyja-
fjarðar, var flutningsmönnum til-
lögunnar til aðstoðar við samn-
ingu þessarar greinargerðar. En
af hverju eigum við að taka ræki-
lega til við fiskeldið að nýju?
Fiskneysla í heiminum um
100 milljónir tonna árið
2010 - fiskveiðar 60
milljónir tonna - mis-
munurinn úr eldi
Ólafur sagði að frá árinu 1970 til
ársins 1990 hafi árleg neysla á
fiski aukist um 2,5%. Samkvæmt
spám Efnahags- og framfara-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
og einnig Matvælastofnunar
sömu samtaka sé gert ráð fyrir að
árleg eftirspurn eftir fiski muni
aukast um 1,8% til ársins 2010.
Gert sé ráð fyrir að neysla á fiski
verði orðin um 100 milljónir
tonna á ári um það leyti. Ef fisk-
veiðar séu bornar saman við
þessa neysluspá komi í ljós að á
sama tímabili - frá árinu 1970 til
ársins 1990 - hafi veiðar á neyslu-
fiski aukist úr 42 milljónum
tonna í um 60 milljónir tonna. Á
næstu 20 árum sé gert ráð fyrir
óverulegri aukningu á veiðum á
neyslufiski eða aðeins um 0,4% á
ári, sem sé langtum minna en
þörfin fyrir fiskafurðir gefi til
kynna.
Eldisframleiðsla talin
verða allt að 30 milljónir
tonna árið 2010
Ólafur benti einnig á þær stað-
reyndir að á undanförnum 20
árum hafi framleiðsla á eldisfiski
aukist um 9% á ári og á árinu
1990 hafi 11 milljónir tonna verið
framleiddar í eldi, sem verið hafi
um 15% af allri fiskneyslu í heim-
inum. Því til viðbótar sé gert ráð
fyrir að eldisframleiðsla muni
aukast í allt að 30 milljónir tonna á
næstu 20 árum þannig að árið
2010 muni um 30% af öllum
neyslufiski í heiminum vaxa upp í
eldisstöðvum.
Hlutlall fiskeldis þre-
faldaðist á 20 árum - mun
það sexfaldast á
fímmtíu árum
Ef hlutfall eldisfisks af fiskneyslu
jarðarbúa er athugað á árunum
frá 1970 til okkar tíma og síðan
spár til ársins 2010 kemur í ljós
að það hefur þrefaldast á tuttugu
árum - vaxið úr 5% árið 1970 f
15% árið 1990. Ef gert er ráð fyr-
ir að þetta hlutfall verði orðið
30% að tæpum tuttugu árum
liðnum hefur það sexfaldast frá
því 1970 og tvöfaldast frá árinu
1990.
Hlutfall íslensks neyslu-
físks í heiminum var 1,8%
1970 og 1,0% 1990 - sama
hlutfall verður 0,8% árið
2010 ef ekkert eldi
kemur til
Ef afli neyslufisks frá íslandi á
síðustu árum er athugaður kemur
í ljós að á árinu 1970 öfluðust um
770 þús. tonn af neyslufiski hér við
land en aðeins um 720 þús. tonn ár-
ið 1990 og síðan hefur dregið úr aíla
vegna verndunaraðgerða. Ef ís-
lendingar ætla á hinn bóginn að
halda hlutfalli sínu í framleiðslu
sjávarafurða hvað heimsmarkað
varðar þá verða þeir að auka
sjávarafla í um 1100 þúsund tonn
árið 2000 og í allt að 1300 þúsund
tonn árið 2010 ef miðað er við
neysluspár og að ekkert eldi eigi
sér stað hér á landi. Ólafur Hall-
dórsson sagði að miðað við
ástand fiskistofna í dag sé óhugs-
andi að við getum náð þeim afla.
Árið 1970 var hlutfall íslend-
inga tæp 2,0% af framleiðslu á
neyslufiski í heiminum. Síðan
hefur þessi tala farið lækkandi og
var um 1% árið 1990. Ef miðað
er við spá sem miðast við meðal-
afla áranna 1970 til 1990 verður
hlutfall neyslufisks frá íslandi
0,9% árið 2000 og um 0,5% árið
2010 ef eingöngu á að miða við
hugsanlegan sjávarafla.
Þriðjungur af heildar-
framboði neyslufísks úr
eldi árið 2010
Ólafur Halldórsson sagði að mik-
il aukning hafi orðið í fiskeldi í
heiminum á síðustu 20 árum.
Árið 1970 hafi eldi numið um
tveimur milljónum tonna en 20
árum síðar, árið 1990, hafi um 11
milljónir tonna af eldisfiski kom-
ið á markað. Fram til ársins 2010
sé gert ráð fyrir að fiskeldisafurð-
ir aukist um rúm 5% á ári, sem
þýði um 20 milljónir tonna árið
2000 og allt að 30 milljónir tonna
árið 2010. Á móti þessu sé gert
ráð fyrir að fiskveiðar aukist að-
eins um 0,8% á ári fram til ársins
2010 og geti mest skílað um 100
milljónum tonna af fiski á land.
Af því verði veiðar á neyslufiski
um 65 milljónir tonna.
Ástæður vaxandi eftirspurnar
eftir fiskmeti í heiminum eru
einkum raktar til áframhaldandi
fólksfjölgunar, hagvöxtur aukist
á næstu árum, dreifikerfi batni,
geymsluaðferðir verði þróaðar og
áhugi vaxi á hollri og næringar-
ríkri fæðu. Til að anna þeirri
eftirspurn verði að leggja aukna
áherslu á eldi þar sem nýliðun
• fiskitegunda og þar með afkasta-
geta hafsins muni ekki anna þess-
ari auknu þörf. Af þeim sökum
er gert ráð fyrir að allt að því
þriðjungur af heildarframboði á
neyslufiski komi frá eldi árið
2010.
ísland langlægst 15 OECD
landa hvað fískeldi varðar
Ef borið er saman hlutfall eldis-
fisks í framleiðslu fiskafurða 15
helstu landa innan OECD, sem
stunda fiskveiðar, eldi og fram-
leiðslu fiskafurða, kemur í ljós að
ísland stendur öllum hinum
löndunum langt að baki hvað eld-
ið varðar. Þótt ísland sé það
fimmta í röðinni hvað veiðar
varðar, með um 1505 þúsund
tonn miðað við aflamagn ársins
1989 þá er það næst lægst hvað
fiskeldisafurðir varðar. Hlutfall
eldisafurða í íslenskri fiskfram-
leiðslu er aðeins 0,1% af afla-
magni og 1,4% af aflaverðmæt-
um sem er langlægst eldis- og
verðmætahlutfall þeirra 15 ríkja
sem borin hafa verið saman.
Heildarstefna undirstaða
endurreisnar fískeldis
En hvað geta íslendingar gert til
að vekja þessa atvinnugrein að
nýju sem leikið hefur þá svo grátt
sem raun ber vitni og valdið mikl-
um vonbrigðum? I greinargerð
flutningsmanna þingsályktunar-
tillögunnar segir að mikilvæg
forsenda þess að ný atvinnugrein
nái að festa rætur og skila arði sé
að henni verði sett skýr markmið
og um hana mótuð ákveðin
stefna. Skortur á heildarstefnu í
málefnum þessarar atvinnugrein-
ar hafi að vissu leyti orðið til þess
að greinin hafi þróast með öðrum
hætti en æskilegt hefði verið og
oft brugðist seint við ýmsum
vandamálum og með ófullnægj-
andi hætti. Pá segir einnig í álykt-
uninni að til að tryggja verði sem
besta nýtingu þess fjármagns sem
bundið sé í greininni og að við-
gangur hennar verði sem mestur
sé þáttur hinnar opinberu stefnu-
mörkunar afar mikilvægur. Þetta
sé sérstaklega mikilvægt þegar
litið sé til þess að eldi á sumum
nytjafiskum okkar virðist vera að
hefjast og gera verði ráð fyrir að
fiskeldi muni tengjast hefð-
bundnum fiskveiðum og vinnslu
mun meira í framtíðinni en verið
hefur.
Kaldsjávarfískar verið
meiri uppistaða í
fískeldi en var
Ólafur Halldórsson benti á að
hluti þeirra mistaka, sem gerður
var þegar laxeldisævintýrið fór af
stað hafi verið sá hvað við vorum
seinir að taka við okkur. Á þeim
tíma hafi Norðmenn framleitt
eldislax í nokkurn tíma - á með-
an hátt verð hafi fengist fyrir
afurðirnar og margir fram-
leiðendur þar í landi hafi náð að
greiða stofnkostnað vegna eldis-
stöðvanna upp þótt sumir hafi
orðið gjaldþrota. íslendingar hafi
hinsvegar verið að byrja á þess-
um tíma - þegar verð var farið að
falla - og því aldrei náð að greiða
neitt af stofnkostnaði. Ölafur
kvaðst telja að hvað fiskeldi
framtíðarinnar varðar verðum
við að snúa okkur að fleiri teg-
undum og leggja meiri áherslu á
kaldsjávarfiska en verið hefur.
Hann nefndi lúðuna sérstaklega
en hann hefur á undanförnum
árum starfað að rannsóknum og
uppbyggingu lúðueldis hér á
landi á vegum Fiskeldis Eyja-
fjarðar.
Eldislúða - hátt verð á
meðan eldið er á
byrjunarstigi en mun síðan
ná jöfnuði
Ólafur sagði að lúðan væri bæði
dýr og eftirsóttur eldisfiskur.
Eftirspurn eftir ferskri lúðu í dag
væri meira en framboðið. Stöðug
og jöfn framleiðsla hennar væri
þó einungis möguleg í fiskeldi.
Lúðan væri kaldsjávartegund og
tilraunir hafi sýnt að hún vaxi vel
við lágt hitastig. í dag væru um
fjögur þúsund tonn af frosinni
veiddri lúðu seld á markaði í Evr-
ópu á hverju ári.
Ólafur sagði ennfremur að
lúðueldi sé raunar enn á byrjun-
arstigi í heiminum. Gera megi
ráð fyrir að eftirspurn eftir ferskri
eldislúðu geti numið allt að 20
þúsund tonnum á ári innan 20
ára. Einnig sé gert ráð fyrir mjög
háu verði á eldislúðunni fyrst eft-
ir að hún komi á markað. Eftir
því sem framleiðslan aukist -
nálgist 20 þúsund tonn - og jafn-
vægi komist á markaðinn megi
gera ráð fyrir að verðlag lækki
nokkuð. Af þeim sökum sé aug-
Ijóst að þeir sem fyrstir verði til að
koma eldislúðu á markað muni
njóta þess frumkvæðis því há
verð í fyrstu muni auðvelda að
greiða niður dýran en jafnframt
nauðsynlegan rannsókna- og
þróunarkostnað.
Stjórnun kynþroska og
hrygning óháð árstíma
eykur möguleika á eldi
kaldsjávarfíska
En getur þorskurinn orðið eldis-
fiskur hér á landi. Þetta er spurn-
ing sem eðlilega mun vakna í
tengslum við umræður um nauð-
syn þess að endurvekja fiskeldið
hér á landi og leggja í því sam-
bandi aukna áherslu á eldi kald-
sjávarfiska. Ólafur Halldórsson
sagði að á síðasta ári hafi farið af
stað þriggja ára samstarfsverk-
efni Fiskeldis Eyjafjarðar, Haf-
rannsóknastofnunar, Hafrann-
sóknastofnunarinnar í Bergen og
Háskólans í Gautaborg. Mark-
mið þessa verkefnis sé að fram-
leiða kviðpokalirfur lúðu, hlýra og
þorsks óháð árstíma og verður
meginhluti þessa verkefnis unn-
inn í tilraunastöð Fiskeldis
Eyjafjarðar á Dalvík þar sem nú
séu um 300 lúður og um 100
hlýrar. Ólafur sagði að nú færu
umfangsmiklar rannsóknir fram á
eldi þorsks í Noregi og ljóst að
innan einhvers tíma hefjist eldi á
honum. Helsti flöskuhálsinn í
eldi kaldsjávarfiska hafi til þessa
verið stöðug framleiðsla á seið-
um. Með því að halda fiski við
mismunandi birtuskilyrði sé hins-
vegar unnt að stjórna kynþroska
og framkalla hrygningu óháð
árstíma. Sá möguleiki leiði til
aukins rekstraröryggis, bæti nýt-
ingu á sérhæfðum búnaði og
lækki framleiðslukostnað seiða.
Aukin þekking á kynþroska fiska
og möguleikar til að stjórna fjölg-
un þeirra muni þannig koma
fiskeldi mjög til góða í framtíð-
inni.
Hlutfall okkar á
mörkuðum mun minnka
ef við gerum ekki neitt
Saga fiskeldis hér á landi þarf því
ekki að vera á enda runnin.
Miklu nær er að segja að við