Dagur - 01.04.1993, Síða 11
Fimmtudagur 1. apríl 1993 - DAGUR - 11
Leikfélag Dalvíkur:
Frumsýnir Strompleik
eftir Laxness í kvöld
Þórarinn Gunnarsson (innilytjand-
inn) t.v. og Sigurbjörn Hjörleifsson
(útflytjandinn).
Leikfélag Dalvíkur frumsýnir í
kvöld kl. 21 í Ungó gamanleik-
inn Strompleik eftir Halldór
Laxness. Um leikstjórn og
hönnun leikmyndar sér Þráinn
Karlsson. Aðstoðarleikstjóri
og sýningarstjóri er Ylva Mist
Helgadóttir. Lýsing er í hönd-
um Kristjáns E. Hjartarsonar,
Ásgeirs Páls Matthíassonar og
Ingvars Björnssonar. Björn
Björnsson og Birkir Bragason
sáu um smíðar og Þórunn
Þórðardóttir um búninga.
Strompleikurinn er gamanleik-
ur sem á löngum köflum fer fram
undir merki fáránleikans. Lax-
ness dregur upp að vanda kostu-
legt safn persóna, sem eiga það
flestar sameiginlegt að lifa eða
reyna að lifa hver á öðrum. Leik-
inn um sníkjulífið nefndi einn
gagnrýnendanna Strompleikinn
jjegar leikritið var fyrst frumsýnt
fyrir 32 árum, en það er margt
annað í verkinu en ádeila á
sníkjulíf og svindilbrask.
Strompleikurinn var frumsýnd-
ur í Þjóðleikhúsinu árið 1961 og
kom samtímis út á bók frá Helga-
felli. Árið 1972 minntist Leikfé-
lag Akureyrar sjötugsafmælis
skáldsins með því að setja
Strompleik upp. Sýninguna á
Dalvík ber að skoða sem síðbúna
kveðju í níræðisafmæli Halldórs
Frá vinstri: Þórarinn Gunnarsson (innflytjandinn), Steinunn Aðalbjarnar-
dóttir (útflytjandafrúin), Sigríður Guðmundsdóttir (saungprófessorynjan),
Elín Gunnarsdóttir (sjógörl), Ingibjörg Ingimundardóttir (sjógörl) og Birkir
Bragason (Lambi). " Myndir: Pröstur.
Laxness sem var í fyrra, en þetta
er í fyrsta sinn sem verk eftir
hann er sett upp hjá Leikfélagi
Dalvíkur.
Alls koma 18 manns fram í
Strompleik, en í stærstu hlut-
verkum eru þau María Gunnars-
dóttir, Steinunn Hjartardóttir,
■Birkir Bragason, Hjörleifur Hall-
dórsson, Sigurður Lúðvígsson,
Sigurbjörn Hjörleifsson og Þór-
arinn Gunnarsson. Alls koma
rúmlega 30 rnanns nærri uppsetn-
ingunni.
Næstu sýningar á Strompleik
verða 2., 3., 6., 7. og 10. apríl, en
fleiri sýningar hafa ekki verið
ákveðnar. Eins og áður segir er
sýnt í Ungó á Dalvík. óþh
Ungir vinstri menn -
félagshyggjufólk ath!
Kynningarfundur á Verðandi; Samtökum ungs
Alþýðubandalagsfólks verður í Lárusarhúsi,
Eiðsvallagötu 18 kl. 18.00 í kvöld.
Fulltrúar úr stjórn Verðandi mæta og kynna samtök-
in og Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður, ræðir
um vinstri stefnuna og framtíðina.
Allir velkomnir.
VERÐANDI.
Leikhúsmatseðill
Grafinn lax með hunangssinnepssósu.
☆
Nautagrillsteik ineð koníaks-
ristuðum sveppum og soðbakaðri kartöflu.
☆
Kaf'fi og konfekt. Kr. 1.980,-
Athugið
Pú getur eiirnig sett samaii þinn eigin
leikhúsmatseðil af Qölbreyttum sér-
réttamatseðli okkar og færð 25% afslátt
Fiðlarinn 4. hæð.
Fyrirtæki og félagasamtök.
ISalir fyrir 10-200 manns.
Tryggið ykkxrr fundar- og/eða
samlwæmissal í tíma.
Borðapantanir í síma 27100
Ingibjörg Ingiinundardóttir (sjógörl), Hjörleifur Halldórssun (Kunstner
Hansen), Elín Gunnarsdóttir (sjógörl) og Sigríður Erla Sveinbjörnsdóttir
(sjógörl).
Steinunn Hjartardóttir (frú Olfer) og María Gunnarsdóttir (Ljóna).
0RUGC 0G ARÐBÆR
F|ARFESTING
Einingabréf og
spariskírteini ríkissjóðs
henta vel til fermingargjafa
éél KAUPÞING________
NORÐURLANDS HF
Kaupvangsstræti 4 • Akureyri • Sími 96-24700.