Dagur - 01.04.1993, Síða 15
•Fimmtudagur 1. apríl 1993 - DAGUR - 15
M
r
{
é
4
l
Í
3
a
a
i
*
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild:
Jafiitefli eftir darraðadans
- góður endasprettur Þórs dugði ekki til
Leikur Þórs og HK var dæmi-
gerð viðureign liða sem bæði
þurfa nauðsynlega á sigri að
halda. Þórsarar fengu gullið
JÚdÓ:
KA-menn leggjast
ívíking
Um næstu helgi halda 2 júdó-
menn úr KA, þeir Vernharð
Þorleifsson og Freyr Gauti Sig-
mundsson, til Englands og
taka þátt í Opna breska meist-
aramótinu.
Um aðra helgi taka síðan 4
júdómenn úr KA þátt í unglinga-
móti í Skotlandi, ásamt fleiri
íslendingum, en þjálfari ungl-
ingalandsliðsins er Jón Óðinn
Óðinsson. Akureyringarnir sem
fara eru Sævar Sigurjónsson,
Rúnar Snæland, Max Jónsson og
Vernharð, sem dvelur við æfing-
ar í Englandi milli mótanna. Fyr-
ir dyrum stendur Evrópumótið í
júdó, fyrstu helgina í maí og
stefna Freyr Gauti og Vernharð á
að ná lágmörkum fyrir það.
íslandsmótið verður haldið 17.
apríl.
tækifæri til að tryggja sér sigur
í leiknum þar sem þeir fengu
vítakast þegar leiktíminn var
útrunninn og staðan jöfn
Staðan
Úrslit í 19. umferð:
Þór-HK 23:23
Stjarnan-IBV 18:19 Fram-Haukar 19:24
FH-Valur 18:27
ÍR-Selfoss 29:22
Víkingur-KA 26:25
Staðan:
Valur 19 11-6- 2 457:406 28
Stjarnan 19 12-4- 3 466:438 28
FH 19 12-2- 5 501:463 26
Haukar 19 10-1- 8 506:464 21
Víkingur 19 10-1- 8 508:470 21
Selfoss 19 9-3- 7 488:477 21
ÍR 19 8-3- 8 456::458 19
KA 19 7-3- 9 440:447 17
ÍBV 19 6-3-10 444:471 15
Þór 19 5-3- 11 453:497 13
HK 19 4-2-13 443:499 10
Fram 19 3-3-13 452:489 9
23:23. Bjarni Frostason
varði frá Ole Nielsen og var
það 3. vítakast Þórs sem fór
forgörðum.
Þórsarar byrjuðu afar illa,
vörnin var lek og sóknarleikurinn
ráðleysislegur. Það lagaðist þó
þegar á leið og höfðu þeir yfir í
leikhléi 12:10. Síðari hálfleikur
var barátta frá upphafi til enda.
Þórsarar voru 2 mörk undir þegar
tæplega 5 mínútur voru eftir en
þá komu 3 mörk í röð og þeir
voru komnir yfir. HK jafnaði
23:23 þegar 30 sekúndur voru eft-
ir og þar við sat.
Gangur leiksins: 1:3, 4:7, 8:8, 12:10,
15:13, 18:18, 20:22, 23:23.
Mörk Þórs: Sigurpáll Árni Aðalsteins-
son, 6/3, Finnur Jónasson, 5, Ole Nielsen
5/2, Atli Már Rúnarsson 2, Rúnar Sig-
tryggsson 2, Andrés Magnússon 1, Saevar
Árnason 1 og Jóhann Samúelsson 1.
Hermann varði 11 skot.
Mörk HK: Michal Tonar 11/2, Hans
Guðmundsson 7, Rúnar Einarsson 3, Jón
Ellingsen 1 og Frosti Guðlausson 1
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Rögn-
vald Erlingson og dæmdu vel.
Skíðamót íslands í Hlíðarflalli:
Keppm hefst í dag
Keppni á Skíðamóti Islands
hefst í Hlíðarfjalli í dag og er
dagskrá mótsins hér á síðunni.
Keppni lýkur á sunnudag og þá
verður einnig lokahóf í boði
bæjarstjórnar Akureyrar.
Mótssetningin sjálf verður í
Akureyrarkirkju í kvöld
A setningarathöfninni sem
hefst kl. 20, mun Blásararsveit
æskunnar leika, formaður SKÍ
mun halda stutt ávarp, sr. Þór-
hallur Höskuldsson verður með
bænastund, hornaflokkur Roar
Kvam leikur og Halldór Jónsson
bæjarstjóri setur mótið. Eins og
fram hefur komið er flest okkar
besta skíðafólk mætt til leiks og
má búast við spennandi keppni.
Einungis vantar Kristin Björns-
Þýska knattspyrnan:
Leverkusen í úrsKt
Á þriðjudagskvöldið fór fyrri
leikurinn í undanúrslitum
þýsku bikarkeppninnar fram í
Frankfurt. Þar mátti lið heima-
manna játa sig sigrað gegn
Bayer Leverkusen, 0:3.
I fyrri hálfleik voru leikmenn
Frankfurt miklu sterkari aðilinn
en þrátt fyrir fjölmörg færi tókst
þeim ekki að nýta neitt þeirra.
Leverkusen fékk hins vegar að-
eins eitt færi sem Andreas Thom
nýtti til fullnustu. í upphafi síðari
hálfleiks var Bindevald, leik-
manni Frankfurt, vikið af leik-
velli og eftir það var aldrei spurn-
ing hvar sigurinn mundi lenda. Á
71. mínútu bætti Kirsten öðru
marki við og þremur mínútum
síðar rak Thom smiðshöggið eftir
mistök Uli Stein markvarðar.
Eftir leikinn tilkynnti Stepano-
vic þjálfari Frankfurt að hann
væri hættur að þjálfa liðið en
mun á næsta keppnistímabili taka
við Leverkusen af Reinard
Saftig. Síðari leikur undanúrslit-
anna fór fram milli áhugamanna-
liðs Herta Berlin og Chemnitz í
gærkvöldi og verður greint frá
úrslitum hans á morgun.
Árni Hermannsson, Þýskalandi.
Lið 3. flokks KA ásamt Árna Stefánssyni þjálfara. Liðið skipuðu: Birkir
Magnússon, Flóki Ólafsson, Atli Þór Samúelsson, Sverrir Björnsson, Tómas
Jóhannesson, Óli Björn Ólafsson, ísleifur Einarsson, Heimir Harðarson,
Halldór Sigfússon, Matthías Stefánsson, Óskar Bragason, Þórhallur Hinriks-
son, Bjarni Bjarnason og Arnar Árnason. Mynd: ha
son og Ástu Halldórsdóttur, en
aðrir „útlendingar“ mæta.
Dagskrá mótsins
Fimmtudagur: Skíðaganga: Piltar 17-19 ára, 15 km kl. 13
Fullorðnir, 30 km kl. 14
Mótssetning í Akureyrarkirkju kl. 20
Föstudagur: Stórsvig karla kl. 10
Svig kvenna kl. 11
Skíðastökk kl. 12
Norræn tvíkeppni (ganga) kl. 15
Laugardagur: Stórsvig kvenna kl. 10
Svig karla kl 10:45
Skíðaganga konur, 5 km kl. 11
Skíðaganga 17-19 ára kl. 12
Skíðaganga karla kl. 13
Sunnudagur: Boðganga kl. 11
Forkeppni samhliðasvig kl. 11
Urslit samhliðasvig kl. 12
Lokahóf í Sjallanum kl. 17
Handbolti, Akureyrarmót:
KA sigraði í 3. flokki
Akureyrarmótinu í handbolta
lauk á þriðjudagskvöldið með
leik 3. flokks karla. Lið frá KA
hafa verið sigursæl á mótinu og
svo var einnig í þessum leik.
Leikar fóru 20:15 fyrir KA,
sem einnig vann fyrri leik lið-
anna. Baldvin Hermannsson
skoraði 6 mörk fyrir Þór, Heið-
mar Felixsson og Ingólfur
Björnsson 4 hvor og Ragnar
Ragnarsson 1. Atli Þór Samúels-
son var markahæstur í liði KA
með 10 mörk, Sverrir Björnsson
skoraði 4, Matthías Stefánsson 2,
Þórhallur Hinriksson 2, Heimir
Haraldsson 1 og Óskar Bragason
1. Þjálfari Þórs er Rúnar Sig-
tryggsson en Árni J. Stefánsson
þjálfar KA.
Halldór Arinbjarnarson
Sigurpáll Árni svífur inn úr horninu og skorar eitt að 6 mörkum sínum í leikn
um. Mynd: Robyn
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild:
KA tókst ekki
að tryggja
sér jafntefli
Víkingur vann KA í 1. deild
íslandsniótsins í handknattleik
þar sem jafntefli var sanngjörn
niðurstaða en dómararnir,
Gunnar Kjartansson og Óli
Ólsen, dæmdi víti á KA vegna
brots á Bjarka Sigurðssyni sem
var fráleitur dómur og auk
þess eftir að leiktíma lauk enda
gerði eftirlitsdómari athuga-
semdir við það.
Víkingar höfðu frumkvæðið í
leiknum framan af en KA náði að
jafna jafnharðan og í hálfleik var
staðan 12:12.
í fyrri hálfleik gekk sóknin
nokkuð vel hjá KA þrátt fyrir að
Alfreð Gíslason væri tekinn úr
umferð og góð markvarsla Iztok
Race sem varði 10 skot í fyrri
hálfleik en nokkur vandæðagang-
ur var oft á varnarleiknum.
Seinni hálfeikur var mjög jafn
og spennandi framan af og jafnt á
öllum tölum upp í 19:19 en þá
kom góður kafli hjá Víkingum
meðan ekkert gekk hjá KA og
staðan breyttist í 24:21, síðan
25:25 eftir að Alfreð jafnaði með
eina marki sínu í leiknum eftir að
varnaleikurinn small saman.
Örvar Arngrímsson spilaði
sinn fyrsta 1. deildarleik fyrir KA
og stóð sig mjög vel. Markahæst-
ir hjá KA voru Erlingur með 10
mörk, Alfreð 1, Jóhann G. 5,
Ármann 1, Óskar Elvar 3, Pétur
1 og Örvar 2. Markahæstur hjá
Víkingi var Dagur Jónasson með
6 mörk. SV/GG
ftrnir' 9 3
Leiktækja-
keppni
fyrirtækja
Nií sfmwém við okfiur rákqa
Komið og sjáið starfsfólk Kjarnafæðis og íslandsbanka spreyta sig á
ýmsum leikjum s.s.: Trivial Persuit, Pictionary, Actionary og Twister í
Kjallaranum fimmtudagskvöldið 1. apríl (ekki gabb) kl. 22.00
SIALLINN
11
11