Dagur - 22.04.1993, Blaðsíða 1
76. árgangur • Fimmtudagur 22. apríl 1993 • 75. tölublað
asw
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Gleðilegt sumar. “
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Akureyri:
Vaktavinna hefst
hjá Strýtu
í næstn viku
Vaktavinna hefst eftir helg-
ina hjá niðursuðuverksmiðj-
unni Strýtu hf. á Akureyri
og jafnframt hefur starfs-
fólki fyrirtækisins verið
fjölgað.
Teknar verða upp tvær
vaktir, fyrri vaktin verður frá
kl. 6 til 14 og síðari vaktin
stendur til kl. 22.
Strýta hf. auglýsti á dögun-
um eftir fólki og voru upplýs-
ingar einungis vcittar milli kl.
17 og 19 sl. þriðjudag. Aðal-
stcinn Helgason, fram-
kvæmdastjóri Strýtu. segir að
margir hafi hringt og því sé
ekki vandkvæðum bundið að
manna í þau 25 störf sem bæt-
ist við hjá fyrirtækinu vegna
vaktavinnukerfisins. óþh
Enn er heitt í kolunum í skuldabréfamáli Eiríks Sigfússonar gegn ljórum bændum:
Blönduós:
Serkjáhúsið
selt í gær fyrir
10 milljónir
Sigurður Forsteinsson
keypti í gær á framhalds-
uppboði húseign þrotabús
pappírspokaverksmiðjunnar
Serkja hf. á Blönduósi fyrir
10 milljónir króna.
Fyrrum eigcndur Serkja
kcyptu húsið á sínum tíma af
Sigurði, en þar rak hann
bifreiöaverkstæði til skamms
tíma. Sigurður' átti þriðja
veörétt, framarlega í röö veð-
réttarhafa.
Þorsteinn Hjaltason, bú-
stjóri þrotabús Serkja, óskaði
eftir nauðungarsölu húscign-
arinnar, en áður höfðu vélar
pappírspokaverksntiðjunnar
verið scldar til Suður-Amer-
íku. óþh
Kæra og beiðni til Raimsóknar-
lögreglunnar um opinbera rannsókn
Jón Oddsson, lögmaður, hefur
fyrir hönd Sigurðar Stefáns-
sonar, Fornhólum í Fnjóska-
dal, og Jóhanns Benediktsson-
ar, Eyrarlandi í Eyjafjarðar-
sveit, kært sparisjóðsstjóra
Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps
og Eirík Sigfússon, bónda á
Sílastöðum í Glæsibæjar-
hreppi, vegna „refsiverðrar
háttsemi“ í skuldabréfamáli
sem Eiríkur hefur höfðað gegn
Sigurði, Jóhanni, Tryggva
Stefánssyni, Hallgilsstöðum í
Fnjóskadal, og Sveini Sigur-
björnssyni, Ártúni í Grýtu-
bakkahreppi. Jafnframt hefur
Jón Oddsson óskað eftir opin-
berri rannsókn Rannsóknar-
lögregla ríkisins á þessu máli.
Áður hafði Bankaeftirlit
Seðlabanka íslands hafnað
beiðni Tómasar Gunnarssonar,
lögmanns Tryggva og Sveins, um
að kanna hjá Sparisjóði Glæsi-
bæjarhrepps tilurð kröfu í
umræddu skuldabréfamáli.
Með vísan til erindis til Rann-
sóknarlögreglunnar um opinbera
rannsókn hefur Jón Oddsson
jafnframt óskað eftir því að frest-
að verði málflutningi í nefndu
skuldabréfamáli fyrir Héraðs-
dómi Norðurlands eystra, sem
hafði verið ákveðinn á morgun.
Ásgeir Pétur Ásgeirsson, hér-
aðsdómari við Héraðsdóm
Norðurlands eystra, sagði í sam-
tali við Dag í gær að hann hafi að
svo stöddu hafnað beiðni Jóns
Oddssonar um frestun, en ef Jón
haldi frestunarbeiðni til streitu
niuni væntanlega koma lil
úrskurðar um hana fyrir dóm-
Frekari könnun á gasútleiðslu við Skógarlón í Öxarfirði:
Endurkastmælingar framkvæmdar í sumar
Árið 1992 var boruð um 450
metra djúp hola við jarðhita-
svæðið nærri Skógarlóni í
Öxarfirði í tengslum við fisk-
eldisrannsóknir og var einnig
reynt að grafast fyrir um upp-
runa jarðgass með kjarnabor-
uninni niður í setlögin í því
skyni að fá mat á hvort um
hugsanlega orkulind gæti verið
að ræða í formi olíu eða gass í
setlögum á Norðausturlandi.
Næsta skrefið í málinu er það
að skýrsla um þær niðurstöður
sem þegar eru þekktar verður
þýdd á erlend tungumál og
send utan til umsagnar ýmissa
þekktra sérfræðinga í olíuiðn-
aðinum, þá sérstaklega norsk-
um.
Endurkastsmælingar (jarðlaga-
rannsóknir) verða gerðar í sumar
á söndunum í nágrenni Skógar-
lóns í Öxarfirði en nýlega fékkst
aukafjárveiting til þess verkefnis.
Þessar mælingar eru framkvæmd-
ar með sérbúnum bíl sem fram-
kallar jarðskjálfta sem síðan er
lesið af á sérstökum mælum.
Petta eru sömu trukkar og hafa
verið notaðir til rannsókna á
Kröflueldasvæðinu en eru sér-
búnir til olíuleitar. Ekki liggur
fyrir hvenær unnið verður úr
niðurstöðum endurkastsmæling-
anna en 4,5 milljóna króna styrk-
ur fékkst til framkvæmdanna
sjálfra en ekkert til rannsókna á
niðurstöðunum. Guðmundur
Óskar Friðleifsson, jarðfræðing-
ur hjá Orkustofnun, segir það
mjög æskilegt að kannað verði
hvort gasútleiðslu væri víðar að
finna og þannig væri hægt að
teikna gasútbreiðslukort. Einnig
þyrfti að kanna frekar setlögin á
Tjörnesi ef ske kynni að þau
lægju einnig undir Öxarfirði en
endurkastsmælingarnar í sumar
gætu varpað einhverju ljósi á
það. Guðmundur telur nauðsyn-
legt að framkvæma einnig rann-
sóknir í Grímsey og á Eyjafirði
til að kanna stærð setlagasvæðis-
ins frá Tjörnesi og vestur fyrir
Eyjafjarðarál og kanna áhrif
Húsavíkurmisgengjanna á það
svæði.
„Olía og eldvirkni þrífast ekki
saman, olían mundi aldrei varð-
veitast undir slíkum kringum-
stæðum heldur brotna niður og
verða að gasi og gasuppstreymið
getur því verið olía sem hefur
verið of nálægt eldvirkni. Olía
getur einnig myndast við moð-
suðu í olíurænum surtarbrandi
vegna jarðhita en ekki sem
afleiðing hans,“ sagði Guðmund-
ur Ó. Friðleifsson. GG
þingi á morgun.
Eins og fram hefur komið í
Degi óskaði Tómas Gunnarsson,
lögfræðingur Tryggva og Sveins,
eftir því við Bankaeftirlit Seðla-
bankans að það kannaði hjá
Sparisjóði Glæsibæjarhrepps til-
urð kröfu í umræddu skulda-
bréfamáli. Því erindi hafnaði
Þórður Ólafsson, forstöðumaður
Bankaeftirlitsins, með bréfi sl.
föstudag. Sama dag sendi Jón
Oddsson bréf til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins þar sem hann lagði
fram kæru og beiðni um opinbera
rannsókn vegna „refsiverðrar
háttsemi“, eins og það er orðað í
bréfinu, sparisjóðsstjóra Spari-
sjóðs Glæsibæjarhrepps og Eiríks
Sigfússonar, bónda á Sílastöðum,
í margumtöluðu skuldabréfa-
máli.
Ekki fengust upplýsingar hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins í
gær um viðbrögð embættisins við
þessu bréfi. óþh
Aíkoma KÞ á síðasta ári:
Tapaði 8,4 milljómim
Kaupfélag Þingeyinga var rek-
iö meö 8,4 milljóna króna
halla á síöasta ári. Afkoman á
árinu 1991 var jákvæð um 1,5
milljónir króna þannig að
heldur hefur hallað undan fæti
í rekstrinum. Hreiðar Karls-
son, kaupfélagsstjóri, segir
þetta ekki viðunandi og raunar
sé strax byrjað að taka í taum-
ana.
„Ég er ekki glaður yfir afkom-
unni því við sjáum fram á 8,4
milljóna króna halla af saman-
lögðum rekstri kaupfélagsins. Ég
er ekki sáttur við taptölu en
skoðað í ljósi umhverfisins þá
þarf maður ekki að vera hissa.
En samt erum við ekki sáttir,"
sagði Hreiðar.
Hann sagði að þrátt fyrir þessa
niðurstöðu hafi verið fjármuna-
myndun í félaginu og skuldir þess
hafi lækkað á árinu, bæði lang-
tímaskuldir og skammtímaskuld-
ir. Því telji menn sig hafa grunn
til að gera þær lagfæringar sem
þurfi. „En við viðurkennum það
líka að svona niðurstaða er stíf
áminning um að gera betur,“
sagði Hreiðar.
Verslunin hjá Kaupfélagi Þing-
eyinga skilaði lakari afkomu en
árið áður en Hreiðar sagði að
gengið hafi betur í iðnaðardeild-
unum. Lítilsháttar veltusam-
dráttur hafi orðið í versluninni en
afkoma hennar eigi líka rætur
að rekja til samkeppni í grein-
inni.
Aðalfundur KÞ er áformaður
4. maí. JÓH
Smábátaútgerðin:
Helmingimeiri
afli en í fyrra
Smábátar gerðir út frá höfnum
á Norðurlandi fengu 648 tonn í
marsmánuði síðastliðnum, sem
er veruleg aflaaukning sé litið
til marsmánaðar fyrir ári. Þá
var aflinn 379 tonn.
Samkvæmt aflatölum Fiski-
félags íslands fengu smábátasjó-
menn á Norðurlandi 1.390 tonn
fyrstu þrjá mánúði ársins, sem er
helmingi meiri afli en í fyrra á
sama tíma. Mestu munar um að
sá guli, þorskurinn, hefur veiðst
betur. Tonnafjöldinn í ár er orð-
inn 1.147, en í lok mars í fyrra
höfðu smábátarnir borið að landi
603 tonn. ój