Dagur - 22.04.1993, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 22. apríl 1993
Fréttir
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
FLUGLEIÐIR
Akureyri, sími 12200
i,//
Þökkum fróbœra verslun f vetur
og óskum ykkur öllum
gleðilegs sumars
Blómabúðin Laufás
Hafnarstrœti 96, sími 24250
Sunnuhlíð 12, sími 26250
Óskum landsmönnum og
viðskiptamönnum okkar
um land allt
gleðilegs sumars
og hafið þökk fyrir veturinn
; BUNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Geislagötu 5, sími 27600
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
HS-VÖRUMIÐAR SF
HAMARSTlG 25 ■ 602 AKUREYRI
SlMI 96-24101 • PÓSTHÓLF 109
Hjúkrunarforstjórar þinguðu á Akureyri:
Vilja viðhalda gæðum hjúknmarinnar
þrátt fyrir niðurskurð fjárveitinga
- gæðastjórnun var megin viðfangsefni ráðstefnunnar
Gæðastjórnun við hjúkrun var
umfjöllunarefni á ráðstefnu
um 80 hjúkrunarforstjóra og
hjúkrunarframkvæmdastjóra,
sem haldin var á Akureyri í
gær og í fyrradag. Á ráðstefn-
unni tjölluðu hjúkrunarfræð-
ingar um á hvern hátt unnt
væri að viðhalda gæðum þeirr-
ar þjónustu sem veitt væri á
sjúkrahúsum og heilsugæslu-
stöðvum þrátt fyrir aðhalds-
aðgerðir stjórnvalda í fjárveit-
ingum til heilsugæslunnar.
Á ráðstefnunni voru rædd ýmis
málefni er höfða til stjórnenda í
heilsugæslu annarsvegar og
stjórnenda sjúkrahúsa og öldrun-
arheimila hinsvegar. Einnig voru
til umræðu þær kröfur sem þjóð-
félagið gerir til heilbrigðisþjón-
ustunnar og einnig hvaða áhrif
berast hingað frá öðrum löndum
- einkum Norðurlöndunum og
öðrum Evrópuríkjum. Pá var
fjallað um þátt hjúkrunarinnar í
þróun gæðastjórnunar í heil-
brigðisþjónustunni og þýðingu
hennar fyrir heilbrigðisþjónust-
una ahnennt. Hjúkrunarfræðing-
arnir fjölluðu einnig um inntak
altækrar gæðastjórnunar en hug-
myndir um hana hafa rutt sér til
rúms innan hinna ýmsu atvinnu-
greina að undanförnu.
Rakel Valdimarsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri Landakotsspítala
og formaður deildarhjúkrunar-
forstjóra og hjúkrunarfram-
kvæmdastjóra innan Hjúkrunar-
félags íslands, sagði í samtali við
Dag að mikill áhugi væri á meðal
hjúkrunarfræðinga um að leita
leiða til að viðhalda gæðum þeirr-
ar þjónustu er veitt væri á sjúkra-
húsum og heilsugæslustofnunum
þrátt fyrir niðurskurð á fjárveit-
ingum til flestra þátta heilbrigðis-
þjónustunnar. Stjórnendur í
hjúkrun leggðu nú enn meiri
áherslu á en áður að minnka
útgjöld vegna hjúkrunar, auka
hagkvæmni hennar og standa
vörð um gæði þeirrar þjónustu
sem hjúkrunarfræðingar veita.
Pær Rakel Valdimarsdóttir og
Ida Atladóttir, hjúkrunarfor-
stjóri á Hrafnistu í Hafnarfirði,
sögðu að hjúkrunarfræðingar
væru vel undir það búnir að fást
við skipulagningu á störfum sín-
um í samræmi við gæðastjórnun
og ná þeim markmiðum fram er
þeir hefðu sett sér. Hjúkrunar-
fræðingar nytu kennslu í stjórnun
á námsferli sínum auk þess sem
mörgum stjórnendum í hjúkrun-
Þessa dagana er verið að ganga
frá ráðningu landvarða á veg-
um Náttúruverndarráðs og að
sögn Þórodds Þóroddssonar,
framkvæmdastjóra Náttúru-
verndarráðs, verða engar sér-
stakar áherslubreytingar á
þeirra starfl í sumar. Eins og
undanfarin vor verður sérstak-
ur eftirlitsmaður með íslenska
fálkanum og mun Ingi Yngva-
son í Skjólbrekku sinna því
starfi eins og undanfarin ár.
Sú breyting verður þó gerð á
starfi landvarða í Mývatnssveit í
sumar að þeir verða staðsettir
ákveðinn hluta dagsins f Skútu-
staðagígum, Dimmuborgum og á
Hverarönd austan við Náma-
skarð upp undir Leirhnjúk og
Björgvin EA landar
206 tonnum:
„Þetta er
bölvað nag“
Björgvin EA, togari Utgerðar-
félags Dalvíkinga hf., kom til
löndunar laust upp úr hádegi í
gær eftir tuttugu og einn dag
að veiðum. Áætlað aflaverð-
mæti er um 42 milljónir króna.
Björgvin EA hóf veiðar á mið-
um útifyrir Austurlandi og lauk
veiðiferðinni fyrir vestan á
Hampiðjutorgi. Á Hampiðju-
torgi var togarinn að grálúðu-
veiðum. Djúpt er á gráluðunni á
þessum slóðum, allt að 600 faðm-
ar af vír eru úti þar sem dýpst er.
Aflasamsetnig Björgvins EA er
grálúða og karfi, 206 tonn fryst.
Vigfús Jóhannesson, skipstjóri,
sagði veiði ekki mikla, þá er hann
yfirgaf miðin. Skipin eru að fá 2
til 3 tonn í hali. „Þetta er bölvað
nag,“ sagði skipstjórinn. ój
arstétt hafi gefist kostur á að
sækja námskeið um stjórnun og
fylgjast þannig með þeirri þróun
er ætti sér stað á þeim vettvangi
og auka við þekkingu sína. ÞI
geti þannig verið í betri og bein-
um tengslum við ferðamennina.
Ekki er um beina fjárveitingu til
landvörslu að ræða heldur fjár-
magnar Náttúruverndarráð land-
vörsluna af tekjulið sem heitir
Þjóðgarðar og friðlýst svæði sem
að mati framkvæmdastjórans
mætti vera verulega rausnarlegri.
GG
Veðrið verður
gott í sumar
- ef frýs í nótt
„Ég spái bara fyrir veturinn,
þú verður að tala við veður-
fræðingana“, sagði Sigurlaug
Jónasdóttir, Lauga á Kára-
stöðum í Hegranesi í Skaga-
firði. Hún sagðist þó athuga
hvort frýs saman vetur og
sumar, en það boði gott.
Lauga spáir í kindagarnir á
haustin og segir þá fyrir um veður
vetrarins. Hún spáði fyrir um
slæma veðrið í desember og
einnig spáði hún hvelli í janúar,
sem gekk eftir eins og menn
muna væntanlega. Hins vegar
segist hún ekki beita neinni sér-
stakri tækni við að spá fyrir um
sumarveðrið. Hún segist athuga
hvernig Vorjafndægrin (20.
mars) séu. „Ef hann er stilltur þá
þótti það nú góðs viti“, sagði hún
og sagði að svo hefði verið í þetta
sinn. En annars kvaðst hún
athuga hvort frjósi saman vetur
og sumar, en það boði sérstak-
lega gott. „Þá hlýnar oft á eftir“,
sagði hún, en ef ekki þá verði
kuldatíð framundan. Nú er bara
að sjá hvort ekki hefur verið næt-
urfrost í nótt og þá vitum við að
ágætt sumar er í vændum, sam-
kvæmt gamalli þjóðtrú. sþ
Náttúruverndarráð:
F álkaeftirlitsmaður til starfa
Óskum starfsfólki okkar og
viðskiptavinum
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
rZT\ A.FINNSSON hf
.. h“! BYGGINGAVERKTAKI & TRÉSMIÐJA
" Furuvöllum 5, Akureyri, sími 21332.
"~~7--—>
Skógræktardaguriim er í dag
- um 3,5 milljónir plantna hafa verið gróðursettar
á síðustu þremur árum á vegum Landgræðsluskóga
Skógræktardagurinn er í dag.
Þrjú undanfarin ár hefur
sumardagurinn fyrsti verið val-
inn skógræktardagur og notað-
ur til þess að vekja athygli á
þeim verkefnum, sem tengjast
Landgræðsluskógum. Á þessu
vori hefst fjórða ár gróðursetn-
ingar Landgræðsluskóga á veg-
um Skógræktarfélags Islands,
Landgræðslu ríkisins og Land-
búnaðarráðuneytisins en verk-
efnið hófst árið 1990 í tilefni af
60 ára afmæli Skógræktarfélags
íslands.
Á síðustu þremur árum hafa
verið gróðursettar um 3,5 millj-
ónir plantna í 80 afgirt, valin
svæði víðs vegar um landið á veg-
um Landgræðsluskóga. Á þessu
ári er gert ráð fyrir að gróðursett-
ar verði 1,2 milljónir plantna í
sjálfboðastarfi á vegum verkefn-
isins og vænst er góðrar þátttöku
í því starfi.
Árangur gróðursetningar-
starfsins hefur verið framar öllum
vonum þessi síðustu ár því mörg
þeirra svæða er tekin hafa verið
til skógræktar eru erfið til rækt-
unar. Af þeim sökum hefur mikil
áhersla verið lögð á vönduð
vinnubrögð og valdar harðgerðar
og nægjusamar trjátegundir tii
ræktunar. f>i
Næsta blað kemur út
laugardaginn 24. apríl.