Dagur - 22.04.1993, Síða 3
Fimmtudagur 22. apríl 1993 - DAGUR - 3
Fréttir
Slökkviliðsmenn á íslandi:
Krefjast þess að samnmgsréttur
þeirra verði að Mu virtur
Slökkvilidsmcnn á Isiandi hafa
látið frá sér fara yfiriýsingu þar
sem þeir mótmæla afstöðu
fjármálaráðuneytis, Reykja-
víkurborgar og Sambands
íslenskra sveitarfélaga til
samningsréttar slökkviliðs-
manna í landinu. Slökkviliðs-
menn á Akureyri afhentu Sig-
ríði Stefánsdóttur, forseta
bæjarstjórnar Akureyrar, bréf
þess efnis fyrir fund bæjar-
stjórnar á þriðjudag.
Ennfremur segir í yfirlýsingu
slökkviliðsmanna: Með þessari
afstöðu sinni eru þessir aðilar að
gera lítið úr þeim kröfum sem
gerðar eru til starfsstéttar slökkvi-
liðsmanna bæði í lögum og reglu-
gerðum svo og er að engu höfð
sérstaða starfanna sjálfra.
Slökkviliðsmenn krefjast þess
að samningsréttur Landssam-
bands slökkviliðsmanna verði
þegar að fullu virtur. Slökkviliðs-
menn áskilja sér rétt til að beita
tiltækum ráðum til að ná fram
samningsrétti starfsstéttarinnar.
Deildir atvinnuslökkviliðs-
manna innan LLS eru á Akur-
eyri, hjá Brunavörnum Suður-
nesja, hjá Brunavörnum á Hér-
aði, á Keflavíkurflugvelli, í
Reykjavík og á Reykjavíkurflug-
velli. -KK
Jósep Hallsson, slökkviliðsmaður á Akureyri, afhenti Sigríði Stcfánsdóttur,
forseta bæjarstjórnar Akureyrar, yfirlýsingu Landssambands slökkviliðs-
manna fyrir fund bæjarstjórnar sl. þriðjudag. Fyrir aftan þau situr Halldór
Jónsson, bæjarstjóri. Mynd: Robyn
Sparisjóður Pórshafnar:
Ellefu milljóna króna hagnaður af rekstri
- samdráttur í innlánum um 2,9% en 4,8% útlánsaukning
Aðalfundur Sparisjóðs Þórs-
hafnar og nágrennis var hald-
inn 15. apríl sl. Hagnaður varð
af rekstri sjóðsins 1992 að upp-
hæð 11,2 milljónir króna og
var honum ráðstafað til hækk-
unar á varasjóði sem þá nemur
48,7 milljónum króna. Hreinar
fjármunatekjur jukust milli
áranna 1991 og 1992 um 8,3%,
þóknanir og aðrar þjónustu-
tekjur um 0,2% og rekstrar-
kostnaður um 1,2%. Annar
rekstrarkostnaður en laun
Menningarhátíð í
EyjaQarðarsveit:
Fjölbreytt
dagskrá 1 dag
og á morgun
A dagskrá Menningarhátíðar í
Eyjafjarðarsveit fimmtudaginn
22. apríl, sumardaginn fyrsta,
er hestaíþróttamót Funa á
Melgerðismelum, kaþólsk
messa að Munkaþverá, tón-
leikar Tónlistarskóla Eyja-
Ijarðar í Sólgarði og sýning
Leikfélags Vopnafjarðar á
Músagildrunni í Laugarborg.
Gestirnir frá Vopnafirði sýna
Músagildruna eftir Agöthu
Christie í leikstjórn Arnar Inga
Gíslasonar, fjöllistamanns frá
Akureyri. Örn Ingi sagði í sam-
tali við Dag að leikritið hefði ver-
ið sýnt fimm sinnum við góðar
undirtektir, nú síðast á Raufar-
höfn.
„Þetta er spennandi en jafn-
framt mjög skemmtilegt og marg-
ar persónur æði kyndugar. Og
auðvitað kemur alltaf jafn mikið
á óvart hver er morðinginn,"
sagði Örn Ingi, en þetta er í
fyrsta sinn sem hann leikstýrir
verki eftir annan höfund en hann
sjálfan. Sýningin hefst kl. 20.30.
Föstudaginn 23. apríl sýnir
Freyvangsleikhúsið Ljón í síð-
buxum í Freyvangi og rokktón-
leikar verða í Laugarborg. Par
koma fram hljómsveitirnar Hún
andar og Helgi og hljóðfæraleik-
ararnir. SS
jókst um 3,6% en til gjalda eru
m.a. færðar gjafir til líknar-
mála.
Sparisjóðurinn gaf á árinu 500
þúsund til nýs sjúkrabíls í læknis-
héraðinu og 100 þúsund til skoð-
unarbekks á Heilsugæslustöð
Þórshafnar. Auk þess naut Ung-
mennafélag Langnesinga styrkja
með ýmsu móti. Eiginfjárstaða
sparisjóðsins hélt áfram að
styrkjast en eigið fé í árslok 1992
var 70,7 milljónir og hafði aukist
um 21% milli ára, sem er 20% af
niðurstöðutölu efnahagsreikn-
ings og jókst um 11,3 milljónir
milli ára en það skal nema eigi
lægri upphæð en 8% af áhættu-
grunni í samræmi við svonefndar
BlS-reglur sem nýlega tóku gildi.
Reiknað eignarfjárhlutfall Spari-
sjóðs Þórshafnar og nágrennis
var 30,6% í árslok 1992. Þróun
innlána hjá sparisjóðnum voru
mjög óhagstæð á sl. ári en heild-
arinnlán voru 269 milljónir á
móti 277 milljónum árið 1991 og
drógust því saman um 2,9% en
hjá öðrum 12 sparisjóðum á
Norðurlandi jukust innlán milli
ÓlafsQörður:
Nokkuð um
landanir að
undaniornu
Nokkuð hefur verið um land-
anir skipa í Olafsfirði undan-
farna daga. Sigurbjörg ÓF
landaði um 150 tonnum af
frystum fiski, Árni ÓF landaði
22 tonnum af frystri rækju,
Guðmundur Ólafur landaði
tæplega 40 tonnum af ísaðri
rækju og fór hún til vinnslu hjá
Strýtu hf. á Akureyri.
Sigurfari Óf landaði um 50
tonnum af frystri rækju og Sól-
berg ÓF landaði um 90 tonnum
af ísuðum fiski. Af því var grá-
lúða sett í tvo gáma til sölu
erlendis en annar afli togarans
fór til vinnslu í Ólafsfirði.
Enn er lítli grásleppuveiði og
veldur því mestu ótíðin að
undanförnu. Sveinn
ára, allt frá 6% upp í 21%.
Útlánaaukning varð um 4,8%,
útlán námu alls 286. milljónum
króna. Hjá sjóðnum störfuðu 5
manns á sl. ári, heildarlauna-
greiðslur námu 8,9 milljónum
króna og lætur nærri að um 2,5%
raunlækkun hafi verið að ræða
milli ára. Sparisjóðsstjóri er
Þorkell Guðfinnsson en formað-
ur stjórnar Jóhannes Sigfússon á
Gunnarsstöðum. GG
Akureyri:
Foreldrar mót-
mælanestisbanni
Nokkur hópur foreldra barna
sem sækja gæsluvelli Akureyr-
arbæjar hafa mótmælt þeirri
ákvörðun Dagvistardeildar
Akureyrarbæjar að taka af
nestistíma á gæsluvöllunum.
Að sögn Ingibjargar Eyfells
hefur það staðið til um nokk-
urn tíma af afnema þessa tíma
því sú aðstaða sem boðið er
upp á á völlunum er ekki boð-
leg og þyrfti að gjörbreyta
húsnæðinu til þess að það yrði
framkvæmanlegt. Markmiðið
sé að veita örugga gæslu en
ekki að reka smækkaða útgáfu
af leikvelli eða dagvistar-
heimili.
í mótmælabréfi sem 13 foreldr-
ar skrifa undir lýsa þeir yfir
mikilli óánægju með þá ákvörðun
að leyfa börnunum ekki að hafa
með sér nesti á gæsluvellina. Síð-
an segir: „Við mælumst- til þess að
önnur ráð verði höfð uppi til að
leysa vandann sem kallað hefur
verið á með nestisbanninu. Við
teljum það brýnt að börnin megi
áfram koma með sitt „miklvæga"
og vinsæla nesti á gæsluvellina,
ekki síst vegna þess að börnin
sjálf munu sakna þess mjög að
mega ekki lengur hafa með sér
svolítið nesti á leikvöllinn.
Þeir foreldrar sem setja það
fyrir sig að börn þeirra gætu þurft
að sitja á gólfinu við nestis-
drykkju, eða úti á góðviðrisdög-
um, vinsamlega skrifi EKKI nöfn
sín hér“. GG
Reiðhjólin
eru komin
Barnahjól 16"... 6900
Barnahjól 20".......... 7900
"20 6 gíra ............ 9995
"24 18 gíra .......... 14.900
"26 18 gíra ...........14.900
"26 18 gíra ...........14.900
"26 18 gíra........... 16.900
"26 18 gíra........... 17.900
Mikið úrval af
gasgrillum
Verð frá 14.900
með gaskút
Einnig úrval af
garðh úsgögn um
Fjöldi góðra
tilboða
Braga Santos kaffi 250 gr.. 79
Nýtt blómkál per. kg.......198
Paprikuskrúfur 70 gr....... 59
Kjarnaappelsínumarmilaði... 99
Ávaxtabangsar 300 gr.......169
Wella sjampó og næring.....359
HAGKAUP
Gæði • Úrval • Þjónusta