Dagur - 22.04.1993, Qupperneq 4
I - DAGUR - Fimmtudagur 22. apríl 1993
Orlofsferðir
Vlf. Einingar
sumarið 1993.
ORLOFSFERÐ:
Sex daga ferö um Borgarfjörö, Suöurlandsundirlendi,
Reykjanes og Reykjavík veröur farin dagana 19. til 24. júlí
ef næg þátttaka fæst.
Gist verður í svefnpokaplássum á sumarhótelum og gisti-
heimilum í tveggja og þriggja manna herbergjum.
Verö kr. 22.000 pr. mann.
Innifalið í veröi: Akstur, gisting, morgunveröur og kvöld-
verður öll kvöldin nema seinna kvöldið í Hafnarfiröi.
FJALLAFERÐ:
Fjögurra daga ferö í Þórsmörk verður farin dagana 8. til
11. ágúst ef næg þátttaka fæst.
Verö kr. 8.000 pr. mann.
Innifalið í verði: Akstur og grillkjöt eitt kvöld.
Að ööru leyti veröur fólk aö nesta sig sjálft.
Gist verður í skála F.í. í Þórsmörk.
Hámarksfjöldi er 40 manns í hvora ferö.
Óafturkræft staðfestingargjald kr. 1.000 greiðist innan
fimm daga frá skráningu í ferðirnar.
FERÐ ALDRAÐRA:
Dagsferö aldraðra veröur farin laugardaginn 14. ágúst um
Húnavatnssýslur og fyrir Vatnsnes.
Allar nánari upptýsingar um ferðatilhögun og skrán-
ing í ferðirnar er á aðalskrifstofu félagsins, Skipa-
götu 14, Akureyri, sími 23503.
Tekið verður á móti pöntunum frá og með
mánudeginum 3. maí nk.
Ferðanefnd Einingar.
Menningarhátíð
í Eyjafjarðarsveit
dagana 17.-25. apríl 1993
22. apríl — fimmtudagur (sumardagurinn fyrsti)
Kl. 10.00# Hestaíþróttamót Funa á Melgerðismelum.
Kl. 13.30 Kaþólsk messa að Munkaþverá.
Kl. 20.30 Tónleikar Tónlistarskóla Eyjafjarðar í Sólgarði.
Kl. 20.30 Leikfélag Vopnafjarðar sýnir „Músagildruna"
í Laugarborg.
23. apríl — föstudagur.
Kl. 20.30 Freyvangsleikhúsið sýnir „Ljón í síðbuxum" í
Freyvangi.
Kl. 21.00 Rokktónleikar fyrir unga fólkið í Laugarborg.
„Helgi og hljóðfæraleikararnir" og „Hún andar".
24. apríl — laugardagur.
Kl. 21.00 Söngur og dansleikur í Laugarborg.
Tjarnarkvartettinn. Baldvin Kr. Baldvinsson og Juliet Faulkner.
Hljómsveit I. Eydal leikur fyrir dansi.
25. apríl — sunnudagur.
Kl. 15.00 Söngur og helgistund í Grundarkirkju.
Jón Þorsteinsson og Gígja Kjartansdóttir.
Sr. Hannes Örn Blandon.
Myndlistar- og listiðnaðarsýningar verða opnar í
Vín alla daga frá kl. 11-22 og á skrifstofu Eyjafjarð-
arsveitar virka daga kl. 9-16 og um helgar 14-18.
1
i
m
Rey kdæl i ngar!
Almennur stjórnmálafundur á Breiðumýri kl. 20.30
föstudagskvöldið 23. apríl.
Þingmenn Framsóknarflokksins í kjördæminu koma á
fundinn.
Fjölmennum og ræðum landsmálin!
Hvað er að gerast?
Rokkbandíð
á Hótel KEA
Hljómsveitin Rokkbandið leikur
fyrir dansi á Hótel KEA á laugar-
dagskvöld. Hótel KEA minnir á
vikulega sunnudagsveislu. í boði
er prinsessusúpa ásamt salatbar og
desserthlaðborði fyrir kr. 1.050.
Frítt fyrir böm 0-6 ára og hálft
gjald fyrir böm 7-12 ára.
Síðasta sýning á
Evítu á
laugardagskvöld
Hinn vinsæli söngleikur Evíta eft-
ir Andrew Lloyd Webber og Tim
Rice verður sýndur í síðasta skipti
í Sjallanum á Akureyri á laugar-
dagskvöld. Að sýningu lokinni
leikur hljómsveitin Ný dönsk fyrir
dansi. í kvöld, að kvöldi sumar-
dagsins fyrsta, verða tónleikar
með hljómsveitinni Sniglaband-
inu. Annað kvöld verða Skriðjökl-
ar á Sjallakránni og Pálmi Gunn-
arsson og Magnús Eiríksson taka
létta sveiflu í Kjallaranum.
Heilsudagar í KEA-
Sunnuhlíð
Dagana 23. og 24. apríl leggur
KEA-Sunnuhlíð áherslu á heilsu
og heilsuvörur. Boðið er upp á
ýmiskonar kynningar og tilboð á
heilsuvörum ásamt uppákomum
sem tengjast líkamsrækt og íþrótt-
um. Á morgun, föstudag, kl. 16-
18 og laugardag kl. 15-19 verður
Júlía Linda Ómarsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur, í versluninni og leið-
beinir fólki um innkaup og mat-
reiðslu með hollustu að leiðarljósi.
Einnig mun hún kynna bókina í
toppformi eftir Harvey og Marlyn
Dimond.
Aðalfundur
læknaritara
Aðalfundur Félags íslenskra
læknaritara verður haldinn á Hótel
KEA á Akureyri nk. laugardag.
Námsstefnur og fyrirlestrar verða
haldnir í tengslum við aðalfundinn
og verða fyrirlesarar á námsstefn-
unni, þeir Pétur Pétursson, heilsu-
gæslulæknir við Heilsugæslustöð-
ina á Akureyri og Jónas Franklín,
kvensjúkdómasérfræðingur við
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Fyrirlestur um
fískihagfræði
Næstkomandi laugardag, 24. aprfl,
kl. 14 heldur dr. Rögnvaldur
Hannesson fyrirlestur fyrir al-
menning um markaðsbúskap og
sjávarútveg í Háskólanum á Ákur-
eyri í stofu 25 á 2. hæð. Dr. Rögn-
valdur er prófessor í fiskihagfræði
við Verslunarskólann í Bergen í
Noregi. Hann ólst upp á Höfn í
Homafirði og stundaði nám við
Menntaskólann á Akureyri, Há-
skóla íslands, Háskólann í Lundi í
Svíþjóð og víðar um heim.
Man trouble
í Borgarbíói
Borgarbíó á Akureyri sýnir um
helgina kl. 21 myndimar A few
good men og Sneakers. Klukkan
23 verða sýndar myndimar Rese-
voir dogs og Man trouble. Á
bamasýningum á sunnudag kl. 15
verða sýndar myndimar Burknagil
og Og þú hélst að foreldrar þínir
væru ruglaðir.
Hreinsunarátak í
Eyjaíirði a
laugardag
Að fmmkvæði Náttúmvemdar-
nefndar Eyjafjarðarsýslu verður
efnt til sameiginlegs hreinsunar-
átaks á þann hátt að allir sem
vettlingi geta valdið fari út og
hreinsi msl og drasl af sinni land-
areign kl. 11-12 nk. laugardag, 24.
aprfl. Nefndarmenn ætlast til þess
að þessi hreinsun kom í viðbót við
hreinsanir sem menn hafa ráðgert,
ekki í þeirra stað.
Bólumarkaður á
laugardag
Bólumarkaðurinn Eiðsvallagötu 6
á Akureyri verður á sínum stað á
laugardaginn kl. 11-15. Að venju
verður mikið úrval allskyns vam-
ings og eru alltaf að bætast við
nýjar vömr. Að þessu sinni má
nefna handofin veggteppi og
mottur og vörur söluaðila úr Kola-
portinu í Reykjavík. Þá má nefna
spennandi nýjar keramikvömr frá
Kollu á Hauganesi.
Þriðji bekkur MA
með markað
Þriðji bekkur Menntaskólans á
Akureyri stendur fyrir markaði á
laugardag kl. 14-17 í Möðruvalla-
kjallara, raungreinahúsi skólans.
Meðal annars verður seldur fatn-
aður, kökur og lakkrís.
Höldur sýnir nýja
Galantinn
Höldur hf. og Hekla hf. verða með
bflasýningu í sýningarsal Hölds
við Tryggvabraut á Akureyri á
laugardag og sunnudag kl. 13-17
báða dagana. Sýndur verður nýi
Galantinn (Galant 2000 GLSi
sjálfskiptur, Galant 2000 GLSi 4
Wd og Galant V6 24 ventla) og
2Wd Caravella frá VW. Boðið
verður upp á reynsluakstur og
veitingar.
Sumarfagnaður
Hlífarkvenna
Sumarfagnaður Kvenfélagsins
Hlífar á Akureyri verður í dag,
sumardaginn fyrsta, kl. 15-17. í
boði verður veislukaffi, happ-
drætti, tónlist o.fl. Þá verður sýnd
handavinna Jónínu Steinþórsdótt-
ur, sem er heiðursfélagi í Hlíf.
Allur ágóði rennur til tækjakaupa
fyrir bamadeild FSA.
Opið hús hjá
Rafveitunni
Rafveita Akureyrar verður með
opið hús á laugardag kl. 13-15 í
húsakynnum Rafveitunnar að
Þórsstíg 4 þar sem starfsemi henn-
ar verður kynnt. Á klukkutíma
fresti verður boðið upp á ferðir frá
Þórsstíg um bæinn til að skoða
helstu raforkuvirki. Rafmagnsfyr-
irtæki á Akureyri munu kynna
framleiðslu sína og þjónustu í sér-
stökum sal. Á boðstólum verður
kaffi og kökur.
Karlakórsmenn í
Glerárkirkju
Karlakór Akureyrar-Geysir og
gamlir Geysismenn halda sameig-
inlega söngskemmtun í Glerár-
kirkju í dag kl. 17, sumardaginn
fyrsta. Kóramir syngja „í sundur“
og stilla síðan saman strengi í lok
tónleikanna. Á efnisskránni eru
verk eftir m.a. Inga T. Lárusson,
Jón Ásgeirsson, Karl O. Runólfs-
son, Pál ísólfsson og Sigurð Þórð-
arson. Öll þau lög sem kóramir
syngja saman eru við texta eftir
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Stjómandi Karlakórs Akureyrar-
Geysis er Roar Kvam en Ámi
Ingimundarson stjómar gömlum
Geysismönnum. Undirleikari á
tónleikunum verður Richard
Simm.
„Ljónið“ í Freyvangi
Freyvangsleikhúsið verður með
tvær sýningar um helgina á Ljóni í
síðbuxum eftir Bjöm Th. Bjöms-
son. Fyrri sýningin verður annað
kvöld íd. 20.30 og síðari sýningin
á laugardagskvöld á sama tíma.
Upplýsingar og miðapantanir í
síma 31196.
Tvær sýningar á
Leðurblökunni
Leikfélag Akureyrar verður með
tvær sýningar um helgina á Leður-
blöku Jóhanns Strauss. Fyrri sýn-
ingin verður annað kvöld og sú
síðari á laugardagskvöld. Báðar
sýningamar hefjast kl. 20.30. Sími
í miðasölu er 24073.
FA með ferðir á
Kaldbak og í Lamba
í dag, sumardaginn fyrsta, efnir
Ferðafélag Akureyrar til göngu-
og skíðaferðar á Kaldbak. Lagt
verður af stað frá skrifstofunni kl.
9. Næstkomandi laugardag verður
síðan skíða- og snjóbílaferð í
Lamba á Glerárdal. Lagt verður af
stað frá Fálkafelli kl. 10. Skrif-
stofa FA verður opin á morgun,
föstudag, kl. 17-19. Síminn er
22720.
Framsóknarfundur
á Breiðumýri
Þingmenn Framsóknarflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra,
Guðmundur Bjamason, Valgerður
Sverrisdóttir og Jóhannes Geir
Sigurgeirsson, halda almennan
stjómmálafund á Breiðumýri ann-
að kvöld kl. 20.30.
íþróttamót á Mel-
gerðismelum
íþróttamót hestamannafélagsins
Funa verður haldið á Melgerðis-
melum í Eyjafjarðarsveit í dag,
sumardaginn fyrsta. Dagskráin
hefst kl. 9 með hindrunarstökki og
hlýðniæfingum. Klukkan 10 verð-
ur fjórgangur fullorðinna, fimm-
gangur fullorðinna og fjórgangur
bama og unglinga. Að loknu mat-
arhléi verður tölt fullorðinna, tölt
bama og unglinga, úrslit og gæð-
ingaskeið. Skráning verður á
staðnum. Veitingasalan verður op-
in og aðgangur áhorfenda að mót-
inu er án endurgjalds.
Atskák hjá
Skákfélaginu
Skákfélag Akureyrar gengst fyrir
helgarskákmóti í atskák á laugar-
dag og sunnudag í skákheimilinu
við Þingvallastræti. Stefnt er að
því að tefla n.íu umferðir eftir
Monrad-kerfi og verður 2-3 utan-
bæjarmönnum boðin þátttaka.
Auk venjulegra verðlaunapeninga
verða veitt pen ngaverðlaun fyrir
þrjú efstu sætiri. Mótið hefst kl.
13.30 á laugardag.