Dagur - 22.04.1993, Page 5
Hér hefur Þórður Steindórsson í Þríhyrningi (sem í fyrra sló í gegn í hlut-
verki Börs Börssonar) brugðið sér í gervi kjósanda seni er að staulast í
kjörklefann. Við borðið sitja kjörstjórnarmennirnir Arni Arnstcinsson og
Jóhannes Jóhannesson.
Frumsýning á
„Kveðið í daln-
um“ á Melum
annað kvöld
Ungmennafélag Skriðuhrepps
frumsýnir annað kvöld, föstu-
dagskvöld, á Melum í Hörgárdal
kl. 20.30 dagskrá sem hefur hlot-
ið nafnið „Kveðið í dalnum - úr
kistuhandraðanum.“ Dagskráin
er einskonar blanda af leikriti,
revíu og söngleik.
Hér er um að ræða sýningu
sem er algjörlega heimaunnin og
allur texti hennar er eftir fólk
sem býr í sveitarfélaginu eða hef-
ur búið þar. Forsvarsmenn sýn-
ingarinnar segja erfitt að skil-
greina hana, hún sé ekki eiginlegt
leikrit, ekki revía og ekki söng-
leikur; eiginlega sé hún sambland
af þessu öllu. Efnið er fjölbreytt
og skipar söngurinn veglegan
sess. Þótt vissulega tengist nokk-
ur atriði heimahögunum (m.a. er
stuðst við sögulegar heimildir),
þá segjast forsvarsmenn Ung-
mennafélagsins þess fullvissir að
sýningin eigi ekki síður að geta
höfðað til „utansveitarfólks“.
I sýningunni koma fram á milli
20 og 30 manns. Sumir eru „gamlir
refir“ í leiklistinni, en aðrir eru
nú að stíga sín fyrstu spor á leik-
húsfjölum.
Auk frumsýningarinnar annað
kvöld eru einungis ráðgerðar
tvær sýningar á Melum, miðviku-
daginn 28. apríl kl. 20.30 og laug-
ardaginn 1. maí kl. 20.30.
Skátamessa í Glerárkirkju
Að venju munu skátar taka á
móti sumrinu með því að fjöl-
menna í messu í dag, á sumar-
daginn fyrsta. Það er löng hefð
fyrir því á Akureyri sem og fleiri
stöðum að skátar aðstoði við
messu þennan dag. Eftir að Gler-
árkirkja var reist hefur þessi
messa verið haldin til skiptis þar
og í Akureyrarkirkju. í ár verður
messan í Glerárkirkju og hefst
hún kl. 11 í dag, en um kl. 10.30
fylkja skátar liði í kirkju frá
Verslunarmiðstöðinni Sunnu-
hlíð. Að sjálfsögðu verður fána-
borg á undan göngunni og eru
allir velkomnir að koma og taka
þátt í bæði göngunni og mess-
unni. Eftir messuna er öllum 15
ára og eldri skátum boðið að
koma í léttan hádegisverð í Gler-
árkirkju. Ekki þarf að greiða fyr-
ir máltíðina, en þó er tekið á
móti frjálsum framlögum.
Hér fylkja skátar á Akureyri liði á sumardaginn fyrsta á síðasta ári.
Kór Lundarskóla hefur æft kappsamlega fyrir Landsmót barna- og unglingakóra á laugardaginn. Myndin var tekin
á æfingu í vikunni. Mynd: Robyn
Kór Lundarskóla á lands-
mót íslenskra bamakóra
Kór Lundarskóla undir stjórn
Elínborgar Loftsdóttur mun
halda til Reykjavíkur nú um
helgina til þess að taka þátt í
Landsmóti íslenskra barna-
kóra, sem haldið verður í
Laugardalshöllinni í Reykjavík
nk. laugardag, 24. apríl.
í kórnum hafa starfað milli 30
og 40 börn í vetur og hafa þau æft
kappsamlega fyrir mótið, auk
þess sem kórinn hefur staðið fyrir
skemmtunum og kaffisölu til að
afla fjár til ferðarinnar.
Það er Tónmenntakennara-
félag íslands sem stendur fyrir
þessum Landsmótum, en þau
hafa verið haldin annað hvert ár
frá 1977. Tuttugu og níu barna-
og unglingakórar taka þátt í mót-
inu og telja þeir milli 8 og 900
kórfélaga.
Dagskrá mótsins er þannig að
fyrri hluti laugardagsins fer í
æfingar. Klukkan 15 hefjast tón-
leikarnir og þar á eftir munu kór-
arnir skemmta sér saman með
ýmsum hætti fram á kvöld. Sin-
fóníuhljómsveit íslands kemur
nú í fyrsta skipti til samstarfs við
Tónmenntakennarafélagið og
leikur með kórunum. Mun hún
þar að auki flytja nokkur stutt,
þekkt hljómsveitarverk.
Þetta Landsmót er með nokk-
uð breyttu sniði frá því sem verið
hefur. Þannig munu þessir 29
kórar ekki syngja hver fyrir sig,
heldur er þeim skipt í 3 hópa eftir
aldri og kunnáttu. 200 til 350
börn eru í hverjum hópi og flytur
hver hópur nokkur lög með
Sinfóníuhljómsveitinni. I lokin
sameinast allir kórarnir og syngja
4 lög með hljómsveitinni. Stjórn-
andi á tónleikunum verður Jón
Stefánsson og verður tónleikun-
um útvarpað beint. Þeir hefjast
kl. 15.
i
Fimmtudagur 22. apríl 1993 - DAGUFt - 5
Skógræktarfélag Eyíirðinga.
Aðalfundur
Aðalfundur Skógræktarfélags Eyfirðinga verður
haldinn fimmtudaginn 29. þ.m. í Galtalæk, húsi
F.B.S.A., og hefst kl. 20.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Fræðsluerindi um lerkikynbætur,
Þröstur Eysteinsson.
Önnur mál. Stjórnin.
©Ferðafélag
Akureyrar
óskar eftir starfsmanni
á skrifstofu í 75% starf í sumar frá 1. júní til 31.
ágúst.
Umsóknir skulu sendar til Ferðafélags Akureyrar, pósthólf
48, 602 Akureyri, fyrir 29. apríl nk.
Nánari upplýsingar verða gefnar í síma 22720 miðviku-
daga og föstudaga frá kl. 17.00-19.00.
ffTIB ffflDBfW LLOTD WfbbEB ð Tlft PICL
LAUCARDAÚUR
SÍPASTA SÝNINd
MIÐAVERÐ Á SÝNiNCU MEÐ KVÖLDVERÐI
OC DANSLEIK 3.900.-
MIÐAVERD Á DANSLEIK 1.200.-
MIÐAVERP Á SÝNINCU 0C DANSLEIK 2.500.-
FIMMTUDACSKVOLD
TÓNLEIKAR
F0STUDACSKV0LD - SJALLAKRAIN
mhmomm
APCANGUR
ÓKEYPIS
FIMMTUDACSKVÖLD
SAMLAND-VIKINC BRUCÖ