Dagur - 22.04.1993, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 22. apríl 1993
" " —___hi»
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
Kaffibrennsla Akureyrar
Tryggvabraut 16, sími 23800
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
^Peóíomyndir
Hafnarstrœti 98
Hofsbót 4
——----------—fifc—-——*
Óskum starfsfólki okkar og
viðskiptavinum
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
Glerárgötu 32 . Akureyri
s
Gleðilegt sumar
og góða veiði!
Sumardagurinn fyrsti er í dag.
Langur vetur er að baki og
senn fara laxveiðimenn á stúf-
ana. Fluguboxið er orðið fullt
af veiðiflugum, framleiðsla
vetrarkvöldanna er litskrúðug.
Nokkrar nýjar tegundir skal
reyna í sumar og vonandi ieyn-
ist meðal þeirra nýju hin eina
sanna „stórlaxafluga“. - Já,
laxveiðitíminn er skammt und-
an og ég minnist orða gamals
vinar er hann sagði: „Þeir sem
vilja öðlast alla þá ánægju,
sem veiðiferðir og annað hlið-
stætt samneyti við náttúruna
getur veitt, verða að opna hug
sinn og hjarta fyrir áhrifum
umhverfisins, leyndardómum
þess, lífí og litum“. I raun á
hver árstíð sína töfra og kunn-
ur rithöfundur, íslenskur, hef-
ur sagt að það sé mikil gæfa,
að vera fæddur í fögru landi og
að okkur gleymist allt of oft að
þakka og meta þau hnoss sem
okkur eru veitt.
íslenskar laxveiðiár eru perlur
og sumarlönd skammdegis-
draumanna eru ennþá bjartari en
fegurstu sólskinsheimar veruleik-
ans. Að þessu hef ég komist í vet-
ur með lestri greina um lax- og
silungsveiði. Mikinn fróðleik er
að finna í skrifum eidri veiði-
manna og ljóst er að eitt pund af
reynslu er stundum verðmætara
en tonn af fræðisetningum.
Vorflugan
Þegar veiðimaðurinn vindur inn
línuna til þess að athuga girnið og
hreinsa af flugunni slý eða annað,
sem kann að hafa sest á hana,
liggja fjaðrirnar klesstar aftur með
öngulleggnum; en af þessu dreg-
ur veiðimaðurinn þá ályktun, að
svona séu þær einnig þegar flug-
an er í vatninu. Margir þeir sem
hnýta flugur vilja ekki sjá háls-
fjaðrir af kvenfugli til fluguhnýt-
inga, telja þær alltof linar, segja
að þær klessist utan um öngulinn
og sýnist steindauðar í vatninu,
svipi ekki vitund til lífvera, sem
geta freistað fossbúans. Ekkert
nema stífar steggfjaðrir af göml-
um fuglum eru nothæfar að
þeirra dómi. f raun er þessu ekki
á þann veg farið. Eftirfarandi
greinir þar um: „Ég hnýtti ein-
falda flugu úr mjúkum dúnkennd-
um fjöðrum, sem ég tók innan úr
væng af starra, en þær eru miklu
linari en kvenfuglsfjaðrir. Ég bar
ekkert á þær til þess að herða þær
eða lyfta þeim.
Síðan fékk ég mér skál með
vatni, lét hana á borðið hjá mér,
hélt í nylonspottann, sem ég
hafði hnýtt fluguna við, ýtti henni
niður í vatnið, dró hana hring eft-
ir hring um skálina, fram og
aftur, dró hana upp og sökkti
henni, fór yfirleitt svo hranalega
með hana sem mér hugkvæmdist,
en svo lengi sem hún var niðri í
vatninu voru þessar linu fjaðrir
blátt áfram ófáanlegar til þess að
leggjast saman. Um leið og ég
dró hana upp úr vatninu klesstist
hver trefja upp að önglinum. Hér
var aðeins lögmál orsaka og af-
leiðinga að verki eins og á öllum
öðrum sviðum.
Þrýstingurinn, sem myndast
við að flugan er dregin upp úr
vatninu, nægði til þess að fjaðr-
irnar legðust saman og litu út sem
lífvana. Án þess að gefa fjöðrun-
um augnabliks tækifæri til að
þorna, fleygði ég flugunni renn-
andi blautri aftur ofan í skálina,
kippti henni svo eilítið til, einu
sinni eða tvisvar, og sjá! Væng-
irnir breiddu strax úr sér og
blöktu alveg eðlilega, nákvæm-
lega eins og þeir myndu hafa gert
í straumvatninu, ef flugan hefði
flotið niður ána“.
Lét sér einn nægja
Sumir veiðimenn eru þannig
gerðir, að þegar einhver nýr
maður bætist í hópinn, hafa þeir
yndi af að draga úr bjartsýni hans
og helst ræna hann allri von.
Þannig er málum ekki varið í
þeirri frásögn er hér fer á eftir.
„Gestgjafi okkar var einn
þeirra góðhjörtuðu manna, sem
hvers manns vandræði vill leysa.
Þegar hann komst að því að einn
veiðimannanna var án veiðileyfis
og hafði aldrei sett í lax, þá
hringdi hann í kunningja sinn,
eiganda bifreiðaverkstæðis í
þorpinu, og bað hann að sjá aum-
ur á þessum tilvonandi veiði-
manni, að lofa honum að renna
einn dag á einkasvæði hans. Þetta
var auðsótt, enda hafði hann
sjálfur fyrir nokkrum vikum veitt
eina laxinn, sem talið var að
gengið hefði á veiðisvæðið það
sem af var sumrinu! Og þar sem
hann var ágætis náungi, eins og
áður var sagt, bauðst hann til að
aka með gestinn að veiðistaðn-
um, enda fékk hann upp í
bensínkostnaðinn með því að
selja vini okkar ýmsar tegundir
gervibeitu og fleira, sem hann
vanhagaði um, til þess að útbún-
aðurinn væri í fullkomnu lagi.
Hver vanur veiðimaður á nú að
geta ímyndað sér hvað gerðist -
a.m.k. byrjunina. Þegar vinur
okkar hafði kastað í fáeinar
mínútur festi hann í laxi, en auð-
vitað vissi hann ekki hvað hann
átti að gera. Og ekkert gerðist
næsta klukkutímann, annað en
að laxinn synti um hylinn í róleg-
heitum og lagðist öðru hvoru við
botninn. En eftir því sem tíminn
leið fór að renna upp fyrír vini
okkar að hann hafði engin ráð til
að ná laxinum á land. Hann hafði
skilið ífæru eftir heima á hótel-
inu.
Og þar sem laxinn virtist stað-
ráðinn í að fara að engu óðslega,
taldi vinur okkar óhætt að leggja
frá sér stöngina, fara upp á veg
og reyna að ná í einhvern til
---------------------
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
Skóverslun M.H. Lyngdal
Hafnarstrœti 103, sími 23399
Sunnuhlíð 12, sfmi 26399
Gleðilegt sumar
þökkum viðskiptin í vetur
B0KABÚÐ iHbD^ÍV bS «
JONASAR slJlll\\||~
Hafnarstræti 108 - 602 Akureyri - Sími 96-22685
Varmahlíðarskóli:
Nemendur skólans koma úr
8 hreppum í Skagafirði
- segir Páll Dagbjartsson, skólastjóri
I lok mars var starfskynning
hjá 9. bekk í Varmahlíðar-
skóla. Nemendur fóru víðs
vegar um land en þó langflestir
til Reykjavíkur. Margir
nemendur sóttu starfsfræðslu
sína í fjölmiðla t.d. Ríkissjón-
varpið, Stöð 2, Morgunblaðið
og Dag. Undirrituð fór á Dag á
Akureyri og fékk m.a. það
verkefni að taka viðtal við
skólastjórann í Varmahlíðar-
skóla, Pál Dagbjartsson.
Páll Dagbjartsson, skólastjóri.
Páll skólastjóri var fyrst spurð-
ur nokkurra spurninga í sam-
bandi við skólann. „Við Varma-
hlíðarskóla starfa 10 kennarar,
sjö konur og þrír karlar. Skólinn
er heimavistarskóli og koma
nemendur úr átta hreppum í
Skagafirði og eru um 30 nemend-
ur á heimavist. 115 nemendur eru
í skólanum í 6 bekkjardeildum
þ.e. 1.-7. bekkur er saman í
þremum deildum,“ sagði Páll.
Hann sagði þó nokkurt félags-
líf starfrækt í skólanum í samráði
nemenda og kennara t.d. bingó,
félagsvist, diskótek, íþróttir o.fl.
Aðspurður hvort laun kennara
væru góð, var svar hans: „Þau
hafa nú ekki þótt það hingað til.“
Páll segir að verksvið skóla-
stjóra sé að halda skólastarfinu
gangandi og gera áætlanir fram í
tímann í sambandi við skólastarf.
Aðstæður fyrir kennara eru
sæmilegar en mættu þó vera
betri.
Aðalheiður Lilja Ulfarsdóttir,
nemandi í 9. bekk
Varmahlíðarskóla.