Dagur - 22.04.1993, Side 13

Dagur - 22.04.1993, Side 13
Fimmtudagur 22. apríl 1993 - DAGUR - 13 Nokkrir ásar úr klúbbnum á vettvangi á Húsavík. Ljósmyndaferð klúbbs ábugaljósmyndara Allt frá stofnun klúbbs áhuga- ljósmyndara á Akureyri hefur verið á dagskránni að fara í ljós- myndaferð. Einhvern veginn hef- ur aldrei fundist tími til þess að fara þessa ferð. Það varð því að ráði að setja þetta ferðalag á dagskrá fram í tímann og fara þá hvernig sem á stæði. Enginn hafði hugsað út í það að tíma- setningin lenti á líklegum páska- hretstíma. Laugardagurinn 3. apríl rann upp með norðanátt og rigningu og var satt að segja ekki álitlegur til þess arna. Við mætt- um níu félagar við Iðynheima kl. 9.30 um morguninn og vorum ákveðnir í að fara þó ekki væri veðrið hvetjandi. Haldið var til Húsavíkur og þar tók á móti okkur Ríkharður áhugaljósmyndari og lögreglu- maður og var hann með okkur þessa klukkutíma sem við vorum í bænum. Ég hefði ekki viljað missa af þessari ferð svo skemmtileg var luin og vel lukkuð. Myndir voru teknar í bænum og á leiðinni í hrauninu og virtist aldrei skorta ntyndefni. Áhugi manna var óþrjótandi og entist klukkutímum saman. And- inn var góður og mikið hlegið og gert að gamni sínu. Þetta er ótrúlega skemmtilegt áhugamál og sérstaklega að vera svona með öðrum á vettvangi við mynda- töku. í svona samstarfi græðist manni alltaf einhver vitneskja, eitthvað sem maður vissi ekki áður í tækni ljóss og skugga. Þetta er gott starf sem unnið er þarna í klúbbnum og margir þungavigtarmenn, framkvæmd- arlega séð, sem taka þar til hendi. Félagar eru um fimmtíu og eru þeir flestir á góðum aldri en þó eru þarna eldri menn og er ég þeirra elstur. Klúbburinn hefur aðstöðu til fundahalda í Dynheimum og þar er einnig myrkraherbergi með góðum tækjum til þess að fram- kalla og stækka myndir. Þarna er hægt að vinna bæði í svart/hvítu og lit. Fundir og opið hús eru þarna tvisvar í mánuði og eru mjög oft myndasýningar á þeim kvöldum. Félagsgjald er þúsund krónur á ári og eru afnot af aðstöðu í Dyn- heimum endurgjaldslaus umfram það. Félagsskírteini í klúbbnum fylgir afsláttur af ákveðinni versl- un og þjónustu í Ijósmyndavöru- verslunum, er það töluverð búbót. Ríkharður lögreglumaður á Húsavík er félagi í klúbbnum og sést á því að þátttaka er ekki bundið búsetu á Akureyri. Rík- harður hefur verið ótrúlega dug- legur við að sækja fundi í vetur og er mikils metinn félagi í klúbbnum. Tilgangur minn með þessum skrifum er að vekja athygli á starfsemi klúbbsins og þeim möguleika sem hann gefur til tómstundastarfs. Það er ekki nauðsynlegt fyrir þá sem vilja vera í klúbbnum að kunna mikið fyrir sér í ljósmyndun og óþarfi að vera með minnimáttarkennd út af vankunnáttu. Þeir sem vilja afla sér meiri kunnáttu á þessu sviði geta gert það þarna á auðveldan hátt. Sá sem hyggst leita sér frekari upp- lýsinga um klúbbinn ætti að snúa sér til Þórhails í Pedrómyndum og gefur hann svör við því sem spurt er um. í klúbbnum eru bæði karlar og konur. Brynjólfur Brynjólfsson. \ I/ Samband íslenskra rafveitna 50 ára Af því tilefni hefur Rafveita Akureyrar opið hús að Þórsstíg 4, laugardaginn 24. apríl kl. 13-18, þar sem starf- semi Rafveitunnar verður kynnt. Ferðir frá Þórsstíg á klukkutíma millibili um bœinn og helstu raforkuvirki sýnd. Rafmagns- fyrirtæki á Akureyri kynna framleiðslu sína og þjónustu í serstökum sal. \ i / Rafveita Akureyrar Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn Hvannavöllum 14 b, sími 27222 Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn WA HITA- OG VATNSVEITA AKUREYRAR Rdngórvöllum, sími 22105, 12110 ------------ Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn Matvörumarkaðurinn Kaupangi v/Mýrarveg, sími 21234 Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn Tryggvabraut 18-20, sími 22500 Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn Bifreiðaverkstœðið þÓRSHAMARHF. Tryggvabraut 5, sími 22700

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.