Dagur - 22.04.1993, Blaðsíða 19
Ætlum við að verða framleiðendur
hráeftiis og þar með láglaunaþjóð?
- spurði Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknar-
ílokksins á fundi á Akureyri
„Vextirnir eru versta málið
sem við er að stríða en þeir
munu ekki lækka fyrr en vextir
af ríkisskuldabréfum hafa ver-
ið lækkaðir. Það hefur verið
erfiðleikum bundið vegna þess
að menn hafa óttast að sala
þeirra myndi dragast saman.
Nú virðast vera að skapast skil-
yrði til lækkunar vaxta á ríkis-
skuldabréfum því forsvars-
menn stærstu kaupenda
þeirra, lífeyrissjóðanna, hafa
látið að því liggja að þeir séu
tilbúnir að kaupa ríkisskulda-
bréf með 5% vöxtum.“ Þetta
sagði Steingrímur Hermanns-
son, formaður Framsóknar-
flokksins, meðal annars á
fundi á Akureyri. Steingrímur
ræddi málefni vaxta og lífeyris-
sjóða frekar og sagði eðlilegt
að sjóðirnir slökuðu á vaxta-
kröfum sínum við ríkjandi
ástand í þjóðfélaginu, þegar
séð væri að atvinnulífið gæti
ekki greitt þá vexti sem nú
væru. „Ef atvinnulífíð stöðvast
fá lífeyrissjóðirnir engin
iðgjöld,“ sagði formaður
Framsok na rllokksins.
Steingrímur reifaði stjórnmála-
ástandið frá ýmsum hliðum og
ræddi einnig nýjar tillögur sem
Framsóknarflokurinn hefur
kynnt undir heitinu „Átak til
endurreisnar.“ Steingrímur
sagði að svo virðist sem núver-
andi ríkisstjórn beri ekki traust
til íslendinga heldur kjósi að leita
erlendrar forsjár. Þá ræddi hann
það sem hann kallaði afskipta-
leysi stjórnvalda af atvinnulífinu
og vitnaði til orða Davíðs Odds-
sonar, forsætisráðherra, frá því
fyrr í vetur, að aðfskipti af
atvinnulífinu væru stílbrot á
hinni hreinu stefnu ríkisstjórnar-
innar. Steingrímur vitnaði einnig
til orða Jóns Baldvins Hannibals-
sonar, utanríkisráðherra, um að
íslendingar væru alltaf tíu árum á
eftir, og sagði að þetta kæmi fram
hjá núverandi stjórnvöldum, sem
nú hefðu tekið upp stefnu er væri
að ganga sér til húðar, meðal
annars í Bandaríkjunum og
Bretlandi.
Steingrímur ræddi um viðskiln-
að fyrri ríkisstjórnar og benti á
að eftir erfiðar aðgerðir haustið
Stóðhestar
Fyrstu verðlauna stóð-
hesturinn Höldur 1248,
faðir Hrammur 1069,
móðir Ósk 6475 og
Óður, faðir Stígur 1017,
móðir Ósk 6475, verða
til afnota á húsi í vor hjá
Matthíasi Eiðssyni að
Brún v/Akureyri.
í sumar verður Höldur
til afnota í hólfi að
Hvassafelli í Eyja-
fjarðarsveit.
Upplýsingar gefnar
í síma (96-)21238.
1988 hafi hagvöxtur tekið að vaxa
og farið vaxandi fram á fyrstu
mánuði ársins 1991 en síðan þá
hafi þróun hans verið niður á við
og samkvæmt útreikningum
Þjóðhagsstofnunar væri hann nú
á svipuðum nótum og í upphafi
árs 1986. Hann sagði að í upphafi
ársins 1991 hefði staðan verið góð
hvað afkomu sjávarútvegsins
varðar.
Steingrímur Hermannsson.
Steingrímur ræddi um atvinnu-
leysið og sagði nýjar tölur um hið
skráða atvinnuleysi vera ógn-
vekjandi. Þær segðu þó ekki alla
söguna og hann vitnaði til sam-
tals við Benedikt Davíðsson,
forseta Alþýðusambands íslands,
þar sem hann hafi talið að mun
fleiri væru án atvinnu en kæmi
fram vegna þess að allir er enga
vinnu hefðu ættu ekki rétt á
atvinnuleysisbótum. Steingrímur
sagði að forseti Alþýðusam-
bandsins hefði sagt að atvinnu-
lausir gætu verið allt að tíu þús-
undum.
Steingrímur lagði mikla
áherslu á framhald þjóðarsáttar.
Síðan ræddi hann nokkuð um
þær leiðir í efnahags- og þjóð-
málum sem Framsóknarflokkur-
inn hefur kynnt. Hann sagði að í
fyrsta lagi yrði að stuðla að kjara-
jöfnun; meðal annars með hækk-
un skattleysismarka og að komið
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálfum
sem hér segir:
Fjarðarvegur 31, Þórshöfn, þingl.
eig. Pétur Guðmundsson, gerðar-
beiðendur Húsnæðisstofnun ríkis-
ins, lögfr.deild, innheimtumaður
ríkissjóðs og Tryggingastofnun f.h.
Lífeyrissj. sjómanna, 28. apríl 1993
kl. 14.00.
Höfði 9, Húsavík, þingl. eig. Aðal-
geir Olgeirsson, gerðarbeiðandi
Iðnlánasjóður, 27. april 1993 kl.
11.00.
Pálmholt .10, Þórshöfn, þingl. eig.
Egill Einarsson, gerðarbeiðandi
Húsnæðisstofnun ríkisins, lögfr,-
deild, 28. apríl 1993 kl. 14.30.
Pálmholt 15, Þórshöfn, þingl. eig.
Jón Hermannsson, gerðarbeiðend-
ur Húsnæðisstofnun ríkisins, lögfr,-
deild og Tryggingastofnun ríkisins,
28. apríl 1993 kl. 15.00.
Sólbrekka 27, Húsavík, þingl. eig.
Þorvaldur V. Magnússon, gerðar-
beiðandi íslandsbanki hf. Akureyri,
27. apríl 1993 kl. 11.30.
Sunnuvegur 8, Þórshöfn, þingl. eig.
Björgvin A. Gunnarsson, gerðar-
beiðandi Húsnæðisstofnun ríkisins,
lögfr.deild, 28. apríl 1993 kl. 15.30.
Sýslumaðurinn á Húsavík
20. apríl 1993.
verið á hátekjuskatti. Þá væri
einnig nauðsynlegt að taka upp
tveggja þrepa virðisaukaskatt
auk þess að taka upp skilvirkara
skattaeftirlit. í öðru lagi væri
nauðsynlegt að hraða ýmsum
opinberum framkvæmdum og
nefndi hann vegagerð, viðhald
opinberra bygginga og ýmsar
umhverfisaðgerðir í því sam-
bandi. í þriðja lagi yrði að efna til
fjárhagslegrar endurskipulagn-
ingar arðvænlegra fyrirtækja, er
væri orðið brýnt verkefni, eftir
tímabil hárra vaxta og mikillar
skuldasöfnunar. í fjórða lagi
verði að að endurskoða álögur er
lagðar hafi verið á sjávarútveginn
og nú eigi að leggja, í formi virð-
isaukaskatts, á ferðaþjónustuna
sem sé ein af álitlegustu gjaldeyr-
isskapandi atvinnugreinum þjóð-
arinnar. í fimmta lagi verði að
selja þá umframorku, sem sé fyr-
ir hcndi í landinu með afslætti
fremur en láta hana ónotaða
vegna þess að stofnkostnaður
vegna virkjanaframkvæmda sé
allur komin fram og hann þurfi
að greiða. í sjötta lagi nefndi
Steingrímur vinnslu sjávarafurða
og benti á að auka mætti vinnsl-
una innanlands með ýmsu móti -
meðal annars því að skylda alla
þá sem hyggjast sigla með þorsk
og ýsu til að bjóða aflann upp á
innlendum mörkuðum.
í lok ræðu sinnar varpaði
Steingrímur Hermannsson þeirri
spurningu fram hvort íslenska
þjóðin ætli að verða framleiðandi
hráefnis og þar með láglaunaþjóð
eða hvort hún ætli að nýta þá
þekkingu sem hún hefur yfir að
ráða og á kost á að afla sér til
fjölbreyttrar atvinnusköpunar og
möguleika til góðra lífskjara í
framtíðinni. Ef fram fari sem nú
horfi sé alvarleg hætta fyrir hendi
um að fyrri kosturinn verði að
veruleika. ÞI
KVEÐIÐ
í DALNUM
Samantekið efni eftir
Hörgdælinga verður
tekið úr kistuhandrað-
anum og flutt að
Melum í Hörgárdal
eftirtalin kvöld.
Föstudagskvöldið 23. apríl,
miðvikudagskvöldið 28. apríl
og laugardagskvöldið 1. maí.
Allar sýningarnar
hefjast kl. 20.30.
Miðapantanir í síma 11688.
Leikdeild
Ungmennafélags Skriðuhrepps.
Fimmtudagur 22. apríl 1993 - DAGUR - 19
—----
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
Ri BLIKKRÁS HF.
HJalteyrargötu 6, sími 26524 og 27770
IIII , ■ I lll III ... !T—"71 ■
Óskum starfsfólki okkar og
viðskiptavinum
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
Óskum starfsfólki okkar og
viðskiptavinum
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
c.
Skipagötu 14, sími 27100
Óskum starfsfólki okkar og
viðskiptavinum
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
Óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegs sumars
með þökk fyrir veturinn
^ármóúóinýg
AKURW
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 24800