Dagur - 22.04.1993, Page 20
Umhverfisnefnd Eyjaíjarðarsveitar:
Safnar afgangsrúlluböggum til
landgræðsluverkefna í Mývatnssveit
- risaþyrla frá Varnarliði notuð við flutninga
á rúllunum inn á landgræðslusvæði
Umhverfisnefnd Eyjafjarðar-
sveitar mun í vor safna saman
rúlluböggum frá bændum í
sveitinni og flytja til Mývatns-
sveitar þar sem rúllurnar verða
notaðar til landgræðslu. Verk-
efni þetta er unnið í samstarfi
við Landgræðsluna og mun
væntanlega verða styrkt úr
Pokasjóði Landverndar. Nú
þegar hafa bændur í Eyjafjarð-
arsveit lofað yfir 500 rúllum.
Að sögn Páls Ingvarssonar,
formanns Umhverfisnefndar
Eyjafjarðarsveitar, er litið á það
sem góðan kost að losa bændur
við afgangsrúllubagga og aðstoða
Mývetninga í leiðinni við að
hefta sandfok. Umhverfisnefnd
býður bændum að losa þá við
rúllurnar, þeim að kostnaðar-
lausu en ætlunin er að styrkur úr
Pokasjóði Landverndar notist
upp í kostnað við flutninga á rúll-
unum austur í Mývatnssveit. Par
verða þær settar á einn stað og
Mývetningar og Landgræðslan
taka við þeim og munu ákveða
stað fyrir þær. Á þessu stigi kem-
ur einn aðili enn inn í verkefnið
sem er Varnarliðið á Keflavíkur-
flugvelli. Þar eru framundan
æfingar með nýja og mjög stóra
þyrlu og hefur Varnarliðið sýnt
því mikinn áhuga að flytja rúll-
urnar inn á þau svæði þar sem
þær nýtast til að hefta sandfok.
Sem dæmi um flutningsgetu þyrl-
unnar sagði Páll að hún gæti flutt
10-15 rúllur í hverri ferð.
Páll segir að miðað hafi verið
við að flytja 500 rúllur austur og
loforð eru þegar komin fyrir
þeim fjölda. Líklegast verður far-
Hið árlega Krabbameinshlaup:
Hlaupið flutt tfl
Grímseyjar í ár
Þann 5. júní næstkomandi er
hið árlega Krabbameinshlaup
og hefst það samtímis á nokkr-
um stöðum á landinu. Að
þessu sinni verður ekki hlaupið
á Akureyri heldur í Grímsey
og munu þátttakendur því
hlaupa yfir heimskautsbaug.
Halldóra Bjarnadóttir hjá
Krabbameinsfélagi Akureyrar og
nágrennis segir að staðið hafi til í
fyrra að fara í heimsókn til
Grímseyjar en ákveðið hafi verið
að flytja Krabbameinshlaupið
þangað að þessu sinni þar sem
viku áður, eða 26. maí, taki
a
sem
Akureyringar þátt í alþjóðlegum
áskorunardegi um hreyfingu og
það verði í leiðinni nokkurs kon-
ar óformlegt Krabbameinshlaup.
Eins og áður hefur komið fram
mun Akureyri keppa við bæ í
ísrael um fjölda þátttakenda
þessum „Challence day“
svo heitir á ensku.
Eins og áður verður Krabba-
meinshlaupinu hleypt af stokkun-
um í beinni útsendingu gegnum
útvarp og fara hópar af stað á
nokkrum stöðum á landinu. í
fyrra tóku yfir 300 manns þátt í
hlaupinu á Akureyri. JÓH
Súkkulaðiverksmiðjan Linda:
Batnaudi skuldastaða
- eftir endurskipulagninguna
Jón Þór Gunnarsson, fráfar-
andi formaður stjórnar Súkku-
laðiverksmiðjunnar Lindu hf.
á Akureyri, segir að eftir fjár-
hagslega endurskipulagningu
fyrirtækisins á síðasta ári sé
VEÐRIÐ
Þó samkvæmt dagatalinu sé
komið sumar þá verður
nálægð vetrar merkjanleg í
veðurfarinu í dag. Búist er við
að með köflum verði bjart veð-
ur á Norðurlandi vestra í dag
og að á Norðurlandi eystra
verði hvasst á annesjum en
hægari inn til landsins. Þar má
búast við éljum af og til.
skuldastaða þess betri en verið
hafi um langan tíma.
Aðalfundur Lindu var haldinn
á þriðjudag. Jón Þór vill ekki
gefa upp tölur um afkomuna á
árinu 1992 þar sem þær séu ekki
marktækar vegna endurskipu-
lagningar á fjárhagsstöðu fyrir-
tækisins. Eins og fram hefur
komið keyti Landsbanki íslands
húsnæði súkkulaðiverksmiðjunn-
ar við Hvannavelli en þar er fyrir-
tækið enn til húsa. Jón Þór sagði
það í verkahring nýrrar stjórnar
fyrirtækisins að ákveða hvernig
húsnæðismálum verði skipað í
framtíðinni.
Á aðalfundi var fækkað í
stjórn úr fimm fulltrúum í þrjá.
JÓH
ið með rúllurnar austur í
Mývatnssveit í maí. „Þetta er á
margan hátt hið besta mál og í
raun er verið að slá að minnsta
kosti tvær flugur í einu höggi með
þessu, bæði styðja landgræðslu-
starf og losa bændur við rúllur
sem annars hefur jafnvel verið
kveikt í með tilheyrandi óþæg-
indum fyrir íbúana,“ sagði Páll.
JÓH
Framkvæmdastjóri Jökuls hf. í Bretlandi:
Leitar eftar kaupum á
aðalvél í Rauðauúp ÞH
Þorsteinn Sigurösson, fram-
kvæmdastjóri Jökuls hf. á
Raufarhöfn, er nú á Bret-
landseyjum aö leita eftir
kaupum á aðalvél og gír í
togarann Rauðanúp ÞH, sem
liggur vélarvana við bryggju á
Raufarhöfn.
Haraldur Jónsson, útgerðar-
stjóri Jökuls hf., segir að um sé
að ræða gamla ónotaða vél í
eigu þrotabús á Bretlandseyj-
um. Haraldur væntir þess að
kaupin gangi eftir og annað
kvöld á að liggja fyrir hvar vél-
arskiptin fara fram.
.Skipverjar Rauðanúps eru
flestir ef ekki allir komnir til
vinnu um borð í önnur skip.
Búið er að tryggja hráefni til
Fiskiðju Raufarhafnar. Fjórir
bátar munu leggja hér upp
næstu mánuðina. Bátarnir eru,
auk heimabátsins Öxarnúps
ÞH, Guðrún Björg ÞH frá
Húsavík, Viöar ÞH frá Raufar-
höfn og Víðir Trausti EA frá
Hauganesi. Bátarnir lögðu
fyrstu trossurnar í gær og við
horfum til framtíðar fullir bjart-
sýni,“ segir Haraltjur Jónsson.
ój
MITSUBISHI
GRLRNT
Bílasýning í sýningarsal okkar að Tryggvabraut,
laugardaginn 24. og sunnudaginn 25. apríl nk.,
frd kl. 13.00 til 17.00 bóða dagana.
Sýnum nýja glœsilega
Galantinn sem slœr í
gegn og einnig nýju 4Wd
Caravelluna fró VW.
A
MITSUBISHI
Fremstur meðal jafningja
Komið og reynsluakið Galant
2000 GLSi sjálfskiptum, Galant
2000 GLSi 4Wd og síðast en ekki
síst Galant V6 24 ventla.
Frábœrir bílar.
Komið, sjáið, sannfœrist og njótið veitinga
[H|HEKIAHF ! M löldur hf.