Dagur - 04.05.1993, Page 5

Dagur - 04.05.1993, Page 5
Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju Þriðjudagur 4. maí 1993 - DAGUR - í Dagskrá um séra Hallgrím Pétursson sýnd í Akureyrarkirkju í kvöld og annað kvöld: Hallgrúmir kom mér skemmtilega á óvart - segir Signý Pálsdóttir, leikstjóri og handritshöfundur í kvöld og annað kvöld kl. 20.30 verður flutt dagskrá í Akureyr- arkirkju í tali og tónum um æviferil og skáldskap séra Hall- gríms Péturssonar. Flytjendur eru leikarar Leikfélags Akur- eyrar, félagar úr Kór Akureyr- arkirkju og Jón Þorsteinsson, tenór. Signý Pálsdóttir tók sam- an dagskrána og hún er jafn- framt leikstjóri en Björn Stein- ar Sólbergsson valdi tónlist og stjórnar tónlistarflutningi. Dag- skráin er liður í Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju. Persónur og flytjendur í sýn- ingunni eru: Sögukona: Þórey Að- alsteinsdóttir, barn: Agnes Þor- leifsdóttir, Hallgrímur Pétursson: Sigurþór Albert Heimisson, Brynjólfur Sveinsson: Þráinn Karlsson, förukona: Sunna Borg. Aðrar persónur í flutningi leikar- anna eru Halldór Laxness, Matthí- as Jochumsson, Guðbrandur Hólabiskup, Jón Halldórsson og Vigfús Jónsson. Dagskráratriði eru eftirfarandi: 1. Aðdragandi. 2. Biskupsfrændinn ungi og óstýriláti. 3. Dvölin í Danmörku. 4. Baslárin á Suðurnesjum. 5. Hallgímur verður prestur. 6. Hallgrímur flyst aö Saurbæ. 7. Baráttan við ólæknandi sjúk- dóm. Viða leitað fanga Við handritsgerðina leitaði Signý Pálsdóttir í eftirtaldar heimildir: Hallgrímur Pétursson eftir Helga Skúla Kjartansson, Vettvángur dagsins eftir Halldór Laxness, Hallgrímur Pétursson - ævi hans og starf eftir dr. theol Magnús Jónsson, Hallgrímur Pétursson og Passíusálmamir eftir Sigurö Nor- dal, Passíusálmar Hallgríms Pét- urssonar, Hallgrímskver - sálmar og kvæði Hallgríms Péturssonar, Merkir Islendingar - Hallgrímur Pétursson eftir síra Vigfús Jóns- son, Afmælisrit til dr. phil. Stein- gríms J. Þorsteinssonar frá nem- endum hans og Arsritið Gestur Vestfirðingur. „Skemmtilegur karl“ „Ég byrjaði á því að taka saman allt sem ég gat náó í um Hallgrím. Heilladrýgst reyndist yngsta heim- ildin; háskólaritgerð Helga Skúla Kjartanssonar. Hún gaf mér leið- arljósið og út frá henni gat ég unn- ið mig aftur á bak. En í upphafi las ég kvæðakver Hallgríms og þaö veitti mér innblástur," sagði Signý Pálsdóttir. „Ég verö að segja að Hallgrím- ur kom mér skemmtilega á óvart. Við höfum þá ímynd af honum að hann hafi verið píslarvottur, eða „holdsveikur ölmusumaður“ eins og Halldór Laxness segir að munnmælin hafi gert hann. En við lestur sögu hans kemur í ljós allt önnur persóna. I æsku var hann ódælt höfðingjabam á Hól- um. Skólaganga hans hér heima var stutt, en ekki er vitað hvort hann var rekinn úr skóla fyrir prakkaraskap. Síðan lá leió hans til Þýskalands og Danmerkur þar sem Brynjólfur Sveinsson kom honum fyrir í einum besta latínu- skóla Danmerkur. í ljós kom að Hallgrímur var góöur námsmað- ur. Undir lok námsins varð hann ástfanginn af Guðríði Símonar- dóttur, konu sem var 16 árum eldri en hann. Þessi kynnu gjör- breyttu öllu hans lífi. Hann missti af lokaprófinu og prestembætti. Þegar heim var komið bjuggu þau á Suðumesjum í mikilli fátækt. Þar var hann uppreisnargjam og samdi auk trúarljóðanna til dæmis kersknisvísur um höfóingjana. Svo virðist sem öll hræsni hafi Safnaðarheimili Akureyrarkirkju: Sýning á kirkjumunum Síðastliðinn sunnudag var opn- uð í Safnaðarheimili Akureyr- arkirkju sýning á kirkjugripum eftir feðgana frá Naustum, Hallgrím Jónsson og Jón son hans. Sýningin, sem er liður í Kirkjulistaviku í Akureyrar- kirkju, er gerð í samvinnu Minjasafnsins á Akureyri og Þjóðminjasafns íslands. Þóra Kristjánsdóttir, safnvörður við Þjóðminjasafnið, valdi verkin, sem koma víða að. Allir eiga kirkjugripimir það sameiginlegt að vera úr kirkjum á Norðurlandi. Fimm eru fengnir aö láni frá Þjóðminjasafninu, aórir fjórir úr kirkjum í Skagafirði, Éyjafirði og Fnjóskadal, tveir eru í eigu einstaklinga og einn í eigu Davíöshúss á Akureyri. Afkastamiklir hagleiksmenn I texta sýningarskrár, sem Þóra Kristjánsdóttir tók saman, segir að þeir feðgar hafi verið afkasta- miklir skreytingamenn kirkna á Noróurlandi á seinni hluta 18. aldar. Hallgrímur Jónsson er talinn fæddur 1717 á Naustum við Ak- ureyri. Hann bjó á Naustum, í Kjarna, á Halldórsstöðum og í Kasthvammi í Laxárdal, en flutt- ist loks að Upsum á Upsaströnd þar sem hann var heimilisfastur til dauðadags. Hann var orðlagur hagleiksmaður og eru margir merkir gripir varðveittir eftir hann í Þjóðminjasafninu. Jón Hallgrímsson fæddist aö Naustum 1741. Hann fór til Dan- merkur og lærði þar tréskurð og málaralist, en kom til íslands um 1760 og bjó eftir það á ýmsum stöðum á Norðurlandi, lengst af í Kasthvammi í Laxárdal og við þann bæ er hann kenndur. Hann var fenginn til þess að mála og skreyta Hóladómkirkju, þegar hún var reist úr steini og vígð 1763. Þar málaði hann meðal ann- ars allar höfuðdyggðirnar tólf í konulíki á milligcrð milli kórs og kirkju. Þrettán kirkjumunir á sýningunni Á sýningunni í Safnaðarheimilinu eru eftirtaldir 13 kirkjumunir: 1. Predikunarstóll úr Lögmanns- hlíðarkirkju viö Akureyri eftir Jón Hallgrímsson 1781. 2. Stööugleikinn - úr milligerð Hóladómkirkju cftir Jón Hall- grímsson 1763. Lán frá Þjóð- minjasafninu. 3. Altaristafla úr Grímstungu- kirkju í Vatnsdal eftir Jón Hallgrímsson 1782. Lánuð af eiganda, Guörúnu Jónsdóttur, arkitekt. 4. Altaristafla úr Hofsstaðakirkju í Viðvíkursveit eftir Jón Hall- grímsson 1782. 5. Altaristafla úr Illugastaða- kirkju í Fnjóskadal eftir Jón Hallgrímsson 1765. 6. Altaristafla úr Hjaltabakka- kirkju í Húnaþingi eftir Jón Hallgrímsson 1770. Lánuð af Kristjáni Flygenring. 7. Altaristafla úr Grenjaðarstaða- kirkju í Aðaldal eftir Jón Hallgrímsson 1766. Lán frá Þjóðminjasafninu. 8. Altaristafla úr Rípurkirkju í Hegranesi eftir Jón Hall- grímsson 1777. 9. Altaristafla úr Þverárkirkju í Laxárdal eftir Hallgrím Jóns- son 1769. Lán frá Þjóóminja- safninu. 10. Minningartafla yfir séra Stefán Einarsson eftir Hallgrím Jóns- son 1755. Lán frá Þjóðminja- safninu. 11. Altaristafla úr Glæsibæjar- kirkju í Glæsibæjarhreppi eft- ir Hallgrím Jónsson. Ur eigu Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Taflan er nú í Davíðshúsi. 12. Altaristafla úr Brettingsstaða- kirkju á Flateyjardal eftir Hallgrím Jónsson 1770. Lán frá Þjóðminjasafninu. 13. Altaristafla úr Svalbarðs- kirkju. Nú í Minjasafnskirkj- unni á Akureyri eftir Jón Hall- grímsson 1806. óþh farið fyrir brjóstió á honum og hann þorði að fara sínar eigin leiðir. Loks þegar Brynjólfur biskup útvegaói honum brauð á Hvals- nesi var Hallgrímur ekkert að sinna prestsverkunum of mikið. Hann lá í fræðagrúski og því sem hann hafði áhuga á. En síðan virt- ist allt gjörbreytast þegar hann flutti í Saurbæ á Hvalfjarðar- strönd. Þá hófst blómatími hans, bæði í skáldskap og efnahag,“ sagði Signý. Hún bætti við að persónulýs- ingar á séra Hallgrími hafi komið á óvart. „Það kemur fram í heim- ildum að hann hafi verið glað- sinna, skemmtinn og alþýðlegur, hann hafi verið skemmtilegur karl.“ Dagskráin í Akureyrarkirkju er ekki eiginleg leiksýning, enda set- ur umgjörðin töluverðar skoróur. Saga Hallgríms er rekin í stórum dráttum, ljóð hans eru flutt og stutt leikatriði úr sögu hans leikin. Inn á milli eru sungnir sálmar eftir hann. Tónlistin Eins og áður segir valdi Björn Steinar Sólbergsson, organisti Ak- ureyrarkirkju, tónlist í dagskrán; og hann stjómar jafnframt tónlist arflutningi. Flytjendur eru félagai úr Kór Akureyrarkirkju og Jón Þorsteinsson, tenór, sem um þess- ar mundir syngur hlutverk Eisen- steins í uppfærslu Leikfélags Ak- ureyrar á Leðurblökunni. Tónlist- in sem flutt verður er eftirfarandi: W ási 1. Gefðu að móðurmálið mitt - úr 35. Passíusálmi - íslcnskt þjóðlag í raddsetningu Ró- berts A. Ottóssonar. 2. Vertu Guð faðir, faðir minn -||f úr 44. Passíusálmi - lag og- útsetning Jakobs Tryggva- sonar. 3. Víst ertu, Jesú, kóngur klár - úr 27. Passíusálmi - laggeró og raddfærsla Jóns Hlöóvers Áskelssonar. 4. Bænin má aldrei bresta þig - úr 4. Passíusálmi - íslenskt þjóðlag í útsetningu Þorkels Sigurbjömssonar. 5. Dýrð, vald, virðing og veg- semd hæst - úr 50. Passíu- sálmi - íslenskt þjóðlag í raddsetningu Jóns Hlöðvers Áskelssonar. óþh Ferðafélag Akureyrar Myndakvöld F.F.A. verður með myndakvöld fimmtu- dagskvöldið 6. maí kl. 20.30 í Galtalæk, einnig verða ferðir sumarsins kynntar. Aðgangseyrir er kr. 250,- Kaffiveitingar. ★ Allir velkomnir. Sumarbúðir í Hamri íþróttaskóli fyrir 6-13 ára krakka Innritun er nú hafin í íþrótta-og leikjaskólann SUMARBÚÐIR í HAMRI, sem haldinn verður í sumar á íþróttasvæði Þórs. Hér er um að ræða heilsdags 2 vikna námskeið, með heitum mat frá GREIFANUM í hádeginu. Það verða mjög fjölbreyttar íþróttir, leikir og ýmsar ferðir á boðstólum hjá okkur í sumar. Nú verður gaman! Námskeiðin verða sem hér segir: 1. júní-11. júní 9 dagar 14. júní-25. júní 9 dagar 28. júní- 9. júlí 10dagar 12. júlí-23. júlí 10dagar 26. júlí- 6. ágúst 9 dagar Þátttökugjald fyrir 10 daga námskeið er kr. 9.900,- og fyrir 9 daga námskeið kr. 8.900. Systkinaafsláttur. Innritun og allar nánari upplýsingar í Hamri í síma 12080 1. Námskeið 2. Námskeið 3. Námskeið 4. Námskeið 5. Námskeið

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.