Dagur - 04.05.1993, Side 6

Dagur - 04.05.1993, Side 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 4. maí 1993 GLERÁRGÖTU 36 SÍMI 11500 A söluskrá: * Litlahlíð: Mjög góö 5 herb. raðhúsíbúð á tveimur hæðum tæpl. 130 fm. Áhvílandi langtímalán um 4 millj. Laus í maí. + Stapasíða: Gott 4ra-5 herb. endaraðhús á tveimur hæðum ásamt geymslu, samtals um 136 fm. Mikil hag- stæð langtímalán. Laust eftir samkomulagi. * Höfðahlíð: 5 herb. efri hæð í tvíbýli um 146 fm. Skipti á minni eign koma til greina. * Hjallalundur: Gullfalleg 3ja herb. íbúð á 4. hæð um 93 fm. Bílgeymsla. Áhvtlandi húsn.lán um 3.5 millj. Laus eftir samkomulagi. + Sólvellir: 5 herb. neðri hæð ásamt bílskúr, samtals um 175 fm. Áhvílandi langtímalán um 4.4 millj. Skipti á minni eign koma til greina. * Stapasíða: Einbýlishús ásamt bílskúr, samt- als um 213 fm. Eign I góðu lagi. Skipti á minni eign koma til greina. FASTÐCNA& M SKMSAUSSZ MOMNHtlANDS fl Glerárgötu 36, sími 11500 Opið virka daga frá kl. 9.30-11.30 og 13-17. Sölustjóri: Pétur Jósefsson Lögmaður: Æ* Benedikt Ólafsson hdl. Leiklist VINNINGAR . FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 - o 2.205.462,- O ^ffii Z. 4af5>^ W 5 76.690,- 3. 4af5 83 7.969.- 4. 3af 5 3.198 482,- Heildarvinningsupphæö þessa viku: 4.791.775.- UPPLÝSINGAR:SlMSVABl91 -681511 LUKKULlNA991002 BráðsmeDin leiksýning á menningarhátíð í EjjaQarðarsveit Menningarhátíðin í Eyjafjarðar- sveit heldur áfram af fullum þrótti. 20. apríl var komið að þætti leiklistarinnar og var sú samkoma í Freyvangi. Aðsókn var sú sama og á fyrri atburði menningarhátíðarinnar. Það var sem næst í bókstaflegum skilningi fullt út úr dyrum. Stólar hússins voru miklu of fáir, svo að leitað var út fyrir það eftir sætum fyrir hina fjölmörgu áhugasömu menningarunnendur, sem komn- ir voru á staðinn til þess að njóta þess, sem í boði var. Leiklistarþáttur samkomunnar í Freyvangi fólst í því, að þrír flokkar flytjenda settu upp sama hlutann úr Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson. Hlutinn, sem þannig var fluttur þrisvar sinnum, var samræða hins vonda og kerlingarinnar undir hömrum Himnafjallsins, þar sem hún tek- ur sér stutta hvíld áður en hún hefur að klöngrast upp hála klett- ana. Hugmyndin er bráðsnjöll og árangur reyndist eftir því. Fyrstu flytjendur voru félagar úr samtökum aldraðra í Eyja- fjarðarsveit. Flutningur þeirra var á hefðbundnu nótunum og rifjaði upp fyrir áhorfendum þá túlkun, sem viðtekin er og föst í hefðum leikhússins. Gervi flytj- enda voru góð og komust þeir vel frá sfnu. Sérstaklega vel tókst að túlka kerlinguna og rödd Jóns í skjóðunni var vel við hæfi. Næsta útgáfa hlutans úr Gullna hliðinu var flutt af nemendum úr Hrafnagilsskóla. Hér kvað við annan tón. Hinir ungu túlkendur færðu verkið nær nútímanum og bættu ýmsu í kaflabútinn í því skyni. Fram komu nokkrar synd- ugar sálir með nútímaleg misstig á samviskunni auk þeirra sígildu, sem ætíð hafa leitt breyskar manneskjur hraðbyri eftir hinum breiða vegi. Ungmennin voru í góðum gervum og fluttu leikgerð sína af fjöri og vöktu veruleg við- brögð á meðal áhorfenda. Sér- lega vel tókst til að túlka hús- bóndann í neðra, sem kom fram í gervi ameríkaniseraðs „gangst- ers“, sem virtist sambland af mafí- ósa, hálfpönkuðum hórumangara og slepjulegum smákrimma. Einnig vakti Mikjáll erkiengill mikla kátínu með þreytulegum | flugtilburðum sínum. Þriðja og síðasta útgáfan af Gullnahliðshlutanum var flutt af gömlum félögum í Freyvangs- leikhúsinu. Þeir höfðu einnig komið fyrir ýmsum nútímalegum viðbótum bæði í texta og umhverfi. Tæknina höfðu þeir einnig tekið í þjónustu sína í frá- gangi verksins. Það var flutt af myndbandi, sem tekið hafði ver- ið utan dyra eingöngu, þar sem leikarar og tól þeirra, svo sem fjórhjól, sem Myrkrahöfðinginn notaði við sálnaveiðar sínar, svif- dreki, sem sendiboði himnaföð- ursins hafði til sinna ferða, og hjólbörur kerlingar, sem hún ók í Jóni klæddum í spariföt og lík- poka, nutu sín með ágætum. Gervi voru góð og flutningur almennt ekki síður svo. Þá var myndataka víða skemmtileg og fas flytjenda langtíðast vel við hæfi. í bland við leiklistaratriðin var flutt tónlist. Hulda Garðarsdóttir flutti Maríuvers Páls ísólfssonar og Vorperluna eftir Garðar Karlsson við undirleik Þórdísar Karlsdóttur. Hulda var nokkuð óstyrk sérstaklega í fyrra laginu, en tókst mun betur í því síðara, sem hún frumflutti. Lagið er eftirtektarvert og mætti heyrast aftur. Þá fluttu systurnar Vigdís og Hulda Garðarsdætur lagið Nú finn ég angan... við undirleik Eir- íks Bóassonar á gítar. Raddir stúlknanna féllu skemmtilega saman og flutningur þeirra var ljúflegur. Kvartett skipaður Huldu Garðarsdóttur, Valdimar Gunn- arssyni, Vilberg Jónssyni og Eir- íki Bóassyni, sem einnig lék und- ir á gítar, flutti lag eftir Eirík við Ijóðið Leir eftir Halldór Laxness. Flutningur kvartettsins var held- ur ójafn og virtist svo, að lagið hefði mátt æfa betur. Hins vegar virtist lagið áheyrilegt og að kvar- tettinn gæti orðið skemmtilegur með frekari þjálfun. Erlendur gestur var á meðal flytjenda á samkomunni í Frey- vangi, írskur fiðluleikari, Yolande Carter. Hún lék nokkur írsk þjóðlög með aðstoð Guðjóns i Pálssonar á píanó. Góður rómur var gerður að flutningi þeirra og voru þau klöppuð upp í lok seinni innkomu. Menningarhátíð Eyjafjarðar- sveitar virðist sannarlega falla í góðan jarðveg hjá íbúum byggð- arinnar. Þær góðu undirtektir, sem atburðir hátíðarinnar fá hljóta að efla með aðstandendum hennar þrek og þrótt. Þær sanna kyrfilega, að samborgarar þeirra kunna að meta verk þeirra á menningar- og listasviðinu og sýna ekki síður, að fólk finnur, að menningarefni af ýmsu tagi er andanum nauðsynlegt ekki síður en líkamanum brauðið. Haukur Ágústsson. Öryggisþjónustan Vari gefur kennslutæki: Rafiðnaðar- skólinn fær öryggis- kerfi Rafíönaðarskólinn fékk nýlega að gjöf frá öryggisþjónustunni Vara sýningarskáp með fullkomnu ör- yggisviðvörunarkerfí. Kerfínu er ætlað að vera hjálpartæki við námskeið sem Rafíðnaðarskólinn heldur reglulega, en eitt af verk- efnum skólans er að annast kennslu í uppsetningu viðvörunar- búnaðar. Framkvæmdastjóri Vara, Viðar Agústsson, afhenti gjöfína en fyrir hönd Rafiónaðarskólans tók Sigurður Geirsson, forstöðu- maður, við sýningarskápnum. Viðar Ágústsson, framkvæmdastjóri Vara afhenti Sigurði Geirssyni, for- stöðumanni Rafiðnaðarskólans sýningarskáp með fullkomnu öryggisviðvör- unarkefi. Öryggiskerfið er ætlað sem kennslutæki fyrir rafvirkja og raf- eindavirkja á námskeiðum skólans. Ný þjónusta: Símasteftiumót Norðurlands í síma 991516 íslenska símaþjónustan býður nú upp á einfalda þjónustu, „Símastefnumót“, sem miðar að því að gefa fólki frá 16 ára aldri kost á að kynnast nýjum félög- um á skemmtilegan og öruggan hátt. Nú býðst notendum í stafræna símkerfinu símastefnumót í tveim- ur símanúmerum, þ.e. 99 1895 AÐALFUNDUR Veiðifélags Hörgár og vatnasvæðis hennar veröur haldinn aö „Melum“ laugardaginn 8. maí kl. 14.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. ^ Ný aröskrá tekin til afgreiðslu. Stjórnin. sem þjónar landinu öllu og 99 1516 sem er sérstaklega fyrir not- endur á Norðurlandi. „Síma- stefnumótið“ er notað á eftirfar- andi hátt: Þú hringir í Símastefnumót Norðurlands í síma 99 1516. Þar bjóðast þér þrír valkostir. í fyrsta lagi aó leggja inn auglýsingu, í öðru lagi að hlusta á viðbrögð við auglýsingunni þinni og í þriðja lagi að hlusta á auglýsingar frá öðrum og svara þeim ef áhugi er fyrir hendi. Ef sá sem hringir hefur hugsað sér að lesa inn auglýsingu og ósk- ar eftir félagsskap byrjar hann á aö velja lið 1. Viðkomandi fær hálfa mínútu til að lesa auglýsing- una inn. Alger óþarfí er að gefa upplýsingar um fullt nafn, heimil- isfang eða símnúmer, því viðkom- andi hefur síðan sjálfur samband við þá eða þær, sem svara auglýs- ingunni. Til að auglýsingin beri góðan árangur er ráðlegt að hafa hana bæði frumlega og skemmti- lega og láta aldur, áhugamál og annað sem máli skiptir í mannleg- um samskiptum koma fram. Þegar innlestri er lokið heyrir viðkom- andi auglýsinguna sína endurtekna og vilji hann einhverju breyta er honum boðið upp á það. Ef hann er sáttur við auglýsinguna stað- festir hann það og fær þá gefin upp tvö númer. I fyrsta lagi fímm stafa símahólfsnúmer og í öðru lagi fimm stafa persónulegt leyni- númer. Þessi númer veróur hann að skrifa hjá sér, því þau þarf að slá inn til að nálgast þau svör sem koma við auglýsingunni. Astæðan fyrir því að notuð eru tvö númer er sú að hugsanlega geta einhverjir sem eru að reyna að nálgast upplýsingar, sem ekki eru ætlaðar þeim, giskað á ein- hverja fimm stafa tölu sem á við hólfnúmer sem er í notkun, en það er algerlega ómögulegt að þeir geti síðan skotið á rétt fímm stafa leyninúmer í framhaldi af því. Þannig er algerlega tryggt að eng- inn annar en sá sem Iagði inn aug- lýsinguna geti nálgast svörin við henni. Sá eöa sú sem velur þriðja val- kostinn og hlustar á auglýsingar frá öðrum og hefur hug á að svara einhverri þeirra er leiðbeint ná- kvæmlega um hvemig hann eða hún á að bera sig að. Hver auglýs- ing er endurtekin svo viðkomandi gefist ráðrúm til að svara. Alltaf verður síðan að ýta á 3 til að heyra næstu auglýsingu. Sá sem svarar einhverri auglýsingu verður að muna að skilja eftir nægilegar upplýsingar um það hvar eða hvemig hægt er að ná í viókom- andi. Engin ástæða er til að óttast að aðrir en sá sem á auglýsinguna heyri þær upplýsingar, því eins og getið var um hér að framan þarf tvö fimm stafa númer til að nálg- ast upplýsingarnar. Þannig geta notendur treyst því að ef þeir eru að svara auglýsingu þá getur að- eins sá sem svarið er ætlaó heyrt það. - Verð þjónustunnar er aðeins 39.90 krónur mínútan. ój

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.