Dagur - 05.05.1993, Side 1
Vel klæddur
í fötum frá
BERNHARDT
Thc Tail<>r-l.<H)k
ennaDuc
HAFNARSTRŒTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 ■ BOX 397
Finnur Aðalbjörnsson tryggði scr um hclgina íslandsmcistaratitilinn í vclsleðaakstri, en eitt af 4 mótum vetrarins
var haldið í Hlíðarfjalli á laugardag og sunnudag. Finnur ók Polaris Indi Storm í stærsta flokki óbreyttra sleða.
Guðlaugur Halldórsson og Ingólfur Sigurðsson tryggðu sér einnig sigur á íslandsmótinu um helgina. Sjá nánar á
íþróttasíðu bls. 11. Mynd: Robyn.
Miðstjórnarfundar ASÍ í dag
beðið með eftirvæntingu:
Verslunarmenn og
Norðlendingar bítast
Vinnuveitendur bíða miðstjórn-
arfundar ASÍ í dag með nokk-
urri eftirvæntingu enda ætti að
skýrast þar hvort farið verður
út í skammtímasamning á
vinnumarkaði, eins og Alþýðu-
samband Norðurlands vill. I>essi
vilji Norðlendinga hefur með-
byr víða utan svæðisins, sér í
lagi innan aðildarfélaga Verka-
mannasambandsins, en hins
vegar eru verslunarmenn harðir
á móti skammtímasamningi og
vilja samning til tveggja ára
sem byggður yrði á tilboði ríkis-
stjórnarinnar frá því fyrr í vor.
Vinnuveitendur hafa einnig
ólíkar skoðanir á málinu en eru
þó sammála um að miðstjórnar-
Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga:
,Að mestu tekist að halda jafnvægi“
- segir Hreiðar Karlsson, kaupfélagsstjóri, um reksturinn á sl. ári
„Rekstur kaupfélagsins ein-
kenndist af aðhaldi, sem miðaði
að því að styrkja stöðu þess til
lengri tíma litið. I»etta tókst að
því leyti að skuldir félagsins
lækkuðu og fjármagnsmyndun
rekstrarins varð ívið meiri en
árið 1991, eða 55,5 milljónir
króna,“ sagði Hreiðar Karlsson,
kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi
„Hvað með bless-
uð bömin?
66
„Hvað með blessuð börnin?“
spurði Björn Jósef Arnviðarson
(D) á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar í gær. Með þessari spurn-
ingu vísaöi hann til þeirrar um-
Akureyri:
Atvinnulaus-
umfækkar
Atvinnulausum á Akureyri hef-
ur fækkað að undanförnu.
Þannig voru 432 á skrá fyrsta
dag maímánaðar, en voru 483 í
byrjun aprílmánaðar.
Sé litið til þeirra sem cru at-
vinnulausir í dag á Akureyri, þá er
fjöldinn sá sami hjá konum og
körlum, 216 einstaklingar í hvor-
um hóp. Attatíu og átta verkakon-
ur eru án atvinnu og 80 verka-
menn. Atvinnulausar iðnverka-
konur eru 54 og atvinnulausar
konur í verslunarmannastétt eru
52. Atvinnulausir vcrslunarmenn
eru 29, bílstjórar 19 og sjómenn
19. Karlmenn í atvinnuleit koma
frá fleiri starfsgreinum en konur.
Nú í byrjun maímánaður höfðu 65
atvinnulausir fengið vinnu vegna
þess atvinnuátaks sem er í gangi á
Akureyri og fulltrúi á Vinnumiðl-
unarskrifstofunni átt von á að
fleiri fengju vinnu á næstu dögum
og vikum. ój
deildu ákvörðunar Dagvistar-
deildar Akureyrar að banna
svokallaða nestistíma á gæslu-
völlum bæjarins.
Eins og fram hefur komið vakti
þessi ákvörðun dagvistardeildar
hörö viðbrögð margra og 125 for-
eldrar rituðu nöfn sín á undir-
skriftalista þar sem henni var mót-
mælt. Undirskriftalistinn var lagð-
ur fram á síóasta fundi félags-
málaráðs og urðu miklar umræður
um málið, án þess þó að niður-
staða fengist. Gert er ráó fyrir að
ákvörðun veröi tekin á næsta
fundi félagsmálaráðs, sem verður
væntanlega í þessari viku.
Birna Sigurbjörnsdóttir (D)
sagðist á bæjarstjómarfundinum í
gær ekki trúa öðru en þessari
ákvörðun dagvistardeildar yrði
breytt. Bjöm Jósef Arnviðarson
tók undir þetta og sagði málið
vera með ólíkindum. Hann sagði
að gæsluvellirnir væru ekki fyrir
fóstrurnar, þeir væru fyrir börnin.
Þaö hafi lengi verið mesta „sport-
ið“ hjá börnunum að fara með
nesti á gæsluvellina. Sigríður Stef-
ánsdóttir (G) sagói m.a. aó þetta
mál hafi vakið landsathygli. Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir og Sigfríð-
ur Þorsteinsdóttir (B), sem báðar
sátu síðasta fund félagsmálaráðs,
sögðust hafa ástæðu til að ætla að
á þessu máli yrði fundin farsæl
lausn. óþh
Þingeyinga, í ræðu sinni á aðal-
fundi félagsins, sem haldinn var
á Húsavík í gær. Félagsmcnn í
10 deildum félagsins eru samtals
2.044 og áttu 108 fulltrúar rétt á
setu á fundinum.
Tap af rekstri kaupfélagsins
nam samtals 8,2 milljónum, þar
með talið 3,6 milljóna tap af rek-
stri mjólkursamlagsins. Rekstrar-
tekjur kaupfélagsins námu 1729
milljónum og rekstarhagnaður án
fjármagnslióa var 54,2 milljónir.
Skuldir nema samtals 860 milljón-
um, þar af nema skammtíma-
skuldir 578 milljónum. Skuldir
Iækkuðu um 224 milljónir frá
1991. Eignir nema samtals 1119
milljónum. Veltufjárhlutfall var
0,97 en eiginfjárhlutfal! 0,23. Fé-
lagið greiddi rúmlega 200 milljón-
ir í laun á árinu, samtals fyrir 157
ársverk.
Kaupfélagsstjóri sagði að fjár-
festingar hefðu verið með minnsta
móti á árinu, ræddi hann um kaup-
in á Baulu hf. og samstarfssamn-
ing milli Mjólkurbús Flóamanna,
Mjólkursamsölunnar, Mjólkur-
samlags KEA og MSKÞ um fram-
leiðslu á jógúrt og fleiri vörum.
Taldi hann samninginn merkan
áfanga í hagræðingu, bæði hjá
MSKÞ og mjólkuriðnaðinum í
heild, sem horfir fram á nýjar að-
stæður og vaxandi samkeppni.
Kaupfélagsstjóri sagði frá upp-
setningu tölvuvædds kassakerfis í
Matbæ, og aó sú framkvæmd
heföi tekist með ágætum. Hann
sagði kjötiðjuna hafa fengið nýjan
reykofn, sem gjörbreytti aðstöðu
til framleióslu. Hann greindi frá
þátttöku og frábærum árangri í
fagkeppni kjötiðnaðarmanna í
Reykjavík og Danmörku.
„Teija má að félaginu hafi að
mestu tekist að halda jafnvægi á
liðnu ári. Þó er árangur misjafn og
sums staðar óviðunandi. Þar eru
hafnar aðgerðir til að bæta úr, en
eins og nú horfir í umhverfi okkar
verður að halda fullri gát í starfi
félagsins og lámarka kostnað,
ásamt því að nýta alla möguleika
til tekjusköpunar. Aðeins með
þeim hætti getur félagið haldið
áfram að gegna hlutverki sínu í
þingeyskum byggðum," sagði
Hreiðar. IM
fundur ASÍ í dag verði að skera
úr um hvaða stefnu samninga-
málin taka.
Kári Arnór Kárason, forseti
ASN, sagði síðdegis í gær að hug-
mynd verkalýðsfélaganna á Norð-
urlandi hafi á engan hátt verið
hafnað af vinnuveitendum þrátt
fyrir yfirlýsingar framkvæmda-
stjóra VSI í gær um að ekki verði
samið í héraði. Vinnuveitendur
vilji hins vegar sjá^ niðurstöðu
mióstjómarfundar ASI í dag áóur
en ósk verkalýðsfélaga norðan
heiða verði svarað.
Hjörtur Eiríksson, formaður
Vinnumálasambands samvinnufé-
laganna, segir engum hugmyndum
hafa verið hafnað. „Auðvitað eru
ansi mismunandi áherslur gang-
vart því hvaða leið eigi að fara en
þó verð ég á að segja að hjá okkur
var stjómin samþykk samningi til
tveggja ára. Margir forsvarsmenn
okkar aóildarfélaga eru þó á móti
slíkum samningi og þá eru það
fyrst og fremst aðilar í sjávarút-
vegi, scm hafa botnlausar áhyggj-
ur af taprekstri í greininni. Það er
því rétt að einhugur er ekki til
staðar,“ sagói Hjörtur. JÓH
Skagfirðingur SK-4:
Ekki nógu gott
meðalverð
Skagfírðingur SK-4 seldi afla
sinn í Bremerhaven á mánu-
dags- og þriðjudagsmorgun, alls
tæp 199 tonn, fyrir 17,4 milíjón-
ir.
Meðalverð aflans, sem var
karfi, voru 88 kr. á kílóið, sem er
fremur lágt verð. Að sögn Gísla
Svanssonar útgeróarstjóra Skag-
firðings hf. er mjög heitt í Þýska-
landi um þessar mundir og segir
hann að neyslumunstur fólks
breytist oft þegar fyrstu hitamir
koma. Þá fari fólk að grilla. Afli
Skagfirðings var seldur á tveimur
morgnum í von um að verðið
hækkaði, en það breyttist sáralítið.
„Við vorum ánægðir með að losna
við allan þennan fisk, en viö hefð-
um viljað fá hærra verð,“ sagði
Gísli. sþ
Sparisjóðir Svarfdæla, Hríseyjar og Árskógsstrandar:
Samemingin formlega samþykkt
- 15 manna fulltrúaráð kýs stjórn
Á laugardag var formlega geng-
ið frá sameiningu sparisjóðanna
á Dalvík, Árskógsströnd og í
Hrísey. Lögheiti hins nýja sjóðs
er Sparisjóður Svarfdæla og
hefur hann afgreiðslur á stöðun-
um þremur. Friðrik Friðriks-
son, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs
Svarfdæla, segir að þessi sam-
eining sé tímanna tákn og gott
merki um að menn vilji snúa
bökum saman í sókninni enda
eigi sameining sjóðanna sér stað
á jafnréttisgrundvelli.
„I sjóðnum eru 150 ábyrgóar-
aðilar, sem áður hétu ábyrgðar-
menn, og þeir gerast ábyrgðaraðil-
ar með ákveðnu stofnfjárframlagi.
Níutíu þeirra eru frá Dalvík og
Svarfaðardal, þrjátíu frá Árskógs-
strönd og 30 frá Hrísey. Á fundin-
um voru kosnir 15 menn í full-
trúaráð sem kemur saman fyrir 15.
maí til að kjósa sér stjóm,“ sagði
Friðrik.
Hann sagðist vonast til að hægt
verði að veita betri þjónustu en
áður á afgreiðslustöðunum þrem-
ur. „Mér finnst að sér í lagi sé
nauðsyn á úti á landi að snúa sam-
an bökum og berjast. Málið snýst
cinfaldlega um að ganga samein-
aðir til verks cn ekki sundraðir,“
sagói Friðrik. JÓH